Morgunblaðið - 30.10.2019, Síða 22
22 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2019
www.gilbert.is
NNUM NÝTT ÚR FRÁ
H CO. REYKJAVIK
VIÐ KY
JS WATC
70 ára Einar er Reyk-
víkingur og ólst upp á
Hverfisgötu 59 til tví-
tugs en hefur síðan
búið í Breiðholti. Hann
var verkstjóri hjá Toll-
vörugeymslunni í 38
ár.
Maki: Anna Sigríður Björnsdóttir, f.
1950, sjúkraliði.
Börn: Gústaf Bergmann, f. 1976, og
Björn Bergmann, f. 1984.
Foreldrar: Gústaf B. Einarsson, f. 1916,
d. 2001, verkstjóri og varaborgarfulltrúi,
og Ólöf Þorgeirsdóttir, f. 1916, d. 2004,
kaupmaður og rak Lífstykkjabúðina.
Einar Bergmann
Gústafsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Loksins eru samstarfsmenn þínir
farnir að koma fram við þig á þann hátt
sem þú átt skilið. Heppnin eltir þig á
röndum.
20. apríl - 20. maí
Naut Notaðu daginn til þess að ákveða
hvernig á að skipta einhverju sem þú
deilir með öðrum. Blandaðu þér ekki of
mikið í vandamál annarra.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Gömul vandamál, sem tengjast
börnum, munu hugsanlega koma upp að
nýju. Þú færð skemmtilegt símtal.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það eru undur og stórmerki að
gerast í ástalífinu, búðu þig undir
skemmtilega tíma fram undan. Farðu var-
lega í umferðinni.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Einhverra hluta vegna fara sam-
starfsmenn þínir í taugarnar á þér. Eitt-
hvað kemur á óvart í dag.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Stundum er nauðsynlegt að halda
fólki í ákveðinni fjarlægð. Hættu að hafa
áhyggjur. Uppfylltu óskir hjarta þíns í
kvöld.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ert í góðu formi og nýtur þess að
vera til. Taktu á þig rögg en ekki stinga
höfðinu í sandinn.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú þarft að fá útrás fyrir
sköpunarþrá þína svo þú kafnir ekki.
Tækifærin bíða handan hornsins og
þangað átt þú að fara.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Alvarlegar samræður við
maka eða nána vini koma hugsanlega
lagi á eitthvað sem hefur farið úr
skorðum. Skoðaðu málið frá öllum hlið-
um áður en þú tekur ákvörðun.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Fólk er tilbúið til að aðstoða
þig á heimilinu og í tengslum við fjöl-
skyldu þína í dag. Taktu til í geymslunni,
þar finnur þú eitthvað sem þú hefur
saknað lengi.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Heimilið og fjölskyldan verða í
brennidepli hjá þér næstu fjórar vikurnar.
Nú er rétti tíminn til að sleppa tökum á
gamalli tilfinningu.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Hindranir gætu komið upp vegna
ferðaáætlana. Búðu þig undir að til þín
verði leitað varðandi stöðuhækkun.
mjög vel og við teljum okkur vera á
réttri leið. Okkar fjármagn hefur
runnið inn á við og við höfum ekki
verið að belgja okkur út eða keypt
aðra aðila eða fyrirtæki. Við höfum
frekar styrkt okkar stoðir. Við eig-
um okkar húsnæði sjálf og þetta er
allt undir okkur komið.“
og erlenda. Fyrirtækið hefur einnig
frá upphafi reynt að koma íslenskri
hönnun á framfæri. Epal rekur núna
fjórar verslanir, á Laugavegi, í
Kringlunni, og Hörpunni og í Skeif-
unni, en sú verslun er 2.000 fermetr-
ar að stærð. Þá rekur Epal jafn-
framt vefverslun. „Síðasta ár gekk
K
jartan Páll Eyjólfsson
fæddist 30. október
1969 í Kaupmanna-
höfn og ólst þar upp
fyrstu þrjú árin. Fjöl-
skyldan flutti svo þaðan fyrst í Hafn-
arfjörð og svo í Vesturberg í Breið-
holti og bjó Kjartan þar fram á
fullorðinsár.
„Meðan aðrir voru í unglingavinn-
unni var ég í sveit hjá Sólveigu
frænku minni og Hreini manni henn-
ar á Hofteigi í Arnarneshreppi í
Eyjafirði. Þar átti ég mínar bestu
stundir í æsku og var ég skólaður til
af Hreini sem var mikil alfræðiorða-
bók. Þarna var ég í mörg ár.“ Kjart-
an vann síðan á sumrin í málning-
arverksmiðjunni Hörpu.
Kjartan gekk í Fellaskóla, varð
stúdent við Fjölbrautaskólann í
Breiðholti á viðskiptabraut og fór tíu
árum síðar í nám í markaðsfræði við
Coastal Carolina University og lauk
þaðan BS-gráðu árið 2002.
Kjartan var sölu- og markaðs-
fulltrúi hjá Mjólkursamsölunni 1994-
1998 og síðar sölu- og markaðs-
fulltrúi hjá Sól Víking 1998-2000.
„Ég verð að fá að nefna Friðþjóf
Adolf Ólason – Dolli eins og hann er
alltaf kallaður – hann var mikill
áhrifavaldur í mínu lífi á þessum
tíma. Hann vann hjá Mjólkursölunni
og síðan Sól Víking og fékk mig
þangað yfir. Hann hvatti mig til að
fara í skóla til Bandaríkjanna sem úr
varð en hann hafði sjálfur verið þar í
námi og er ég mjög þakklátur hon-
um.“ Kjartan var síðan vöruflokka-
stjóri Ölgerðarinnar Egils Skalla-
grímssonar 2001-2002, sölustjóri
2002-2004 og framkvæmdastjóri á
verslunarsviði hjá Ölgerðinni 2004-
2008.
Árið 2008 tók hann við sem fram-
kvæmdastjóri Epal hf., fyrirtækis
sem faðir hans, Eyjólfur Pálsson,
stofnaði árið 1975. „Það var ekki
endilega sjálfgefið, mér leið vel hjá
Ölgerðinni og var orðinn einn af
framkvæmdastjórum þar. En
kannski blundaði það alltaf í mér að
vilja taka við keflinu í Epal,“ segir
Kjartan.
Epal hefur frá upphafi selt gæða-
vörur og góða hönnun, íslenska sem
Áhugamál Kjartans eru útivera,
ferðalög og kvikmyndir og svo spil-
ar hann fótbolta einu sinni í viku.
„Það er nauðsynlegt til að halda sér
í formi. Ég hef alltaf haft mikinn
áhuga á kvikmyndum, sem hefur
smitað út frá sér því annar sonur
minn vinnur við fagið. Ég vann á
vídeóleigu í sjö ár meðfram skóla
og annarri vinnu og ég leit aldrei á
það sem vinnu. Það var áhugamál,
og ég kynntist meira að segja kon-
unni minni á vídeóleigunni. Ég er
duglegur að sækja kvikmyndahá-
tíðir til að geta horft á fleira en am-
erískar myndir, en ég horfi líka á
þær.“
Kjartan fékk draumaferð að eig-
in vali í afmælisgjöf. „Ég er ekki
búinn að ákveða hvert farið verður,
en síðasta stóra ferðin var til Japan
fyrir tveimur árum. Ég varð heill-
aður af japanskri menningu og al-
veg ljóst að ég fer þangað aftur.“ Í
tilefni dagsins fer fjölskyldan út að
borða í kvöld en á morgun fara þau
til hjónin til New York.
Kjartan Páll Eyjólfsson, framkvæmdastjóri Epal – 50 ára
Ljósmynd/Spessi
Fjölskyldan Kjartan og Hildigunnur, synirnir Andri Fannar og Garðar Sölvi og hundurinn Sunna.
Tók við keflinu af föður sínum
Framkvæmdastjórinn Epal rekur núna fjórar verslanir auk vefverslunar.
60 ára Fjóla ólst upp í
Keflavík en býr í
Smárahverfinu í Kópa-
vogi. Hún er sviðs-
stjóri bókhalds og inn-
heimtu hjá
Olíudreifingu.
Maki: Sigurjón Rann-
versson, f. 1958, verkfræðingur hjá
Mannviti.
Börn: Rannver, f. 1984, Viktor, f. 1988,
og Oliver, f. 1995.
Foreldrar: Finnur Valdimarsson, f. 1936,
fv. verkstjóri hjá Icelandair, og Ingibjörg
Gilsdóttir, f. 1940, húsfreyja. Þau eru
bús. í Reykjavík.
Fjóla
Finnsdóttir
Til hamingju með daginn
Reykjavík Máni Rógvason av
Skarði fæddist 12. febrúar
2019 kl. 1.50. Hann vó 3.120 g
og var 51 cm langur. Foreldrar
hans eru Sólja av Skarði og
Rógvi Lamhauge.
Nýr borgari