Morgunblaðið - 30.10.2019, Side 32

Morgunblaðið - 30.10.2019, Side 32
Vísindafélag Íslands stendur fyrir fræðslufundi í Þjóðminjasafninu í dag kl. 12 um nóbelsverðlaunahaf- ann í bókmenntum fyrir árið 2018, pólska rithöfundinn Olgu Tok- arczuk. Verðlaunin voru ekki afhent í fyrra og því hlaut hún þau í ár. Ewa Marcinek, pólskur rithöfundur sem er búsett á Íslandi, mun segja frá Tokarczuk og verkum hennar. Fyrir- lesturinn verður á ensku og að- gangur að honum er ókeypis. Fræðslufundur um Olgu Tokarczuk MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 303. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. „Þeir sýndu áhuga á að semja við mig en ég er ákveðinn í að breyta til. Ég er búinn að vera hjá Álasundi í langan tíma, fimm ár, og tel að ég þurfi á nýrri áskorun að halda en það var gaman að enda á góðum nótum,“ segir Aron Elís Þrándarson meðal annars í blaðinu í dag. Hann ætlar að yfirgefa Álasund sem vann sér sæti í efstu deild. »25 Aron Elís er ákveðinn í að breyta um umhverfi ÍÞRÓTTIR MENNING „Við erum með gríðarlega sterkan hóp. Í liðinu er viss kjarni sem var einnig á síðasta tímabili og stóð sig rosalega vel. En við erum einnig nokkrar sem komum nýjar inn í þetta fyrir tímabilið. Mér finnst því liðið eiga helling inni. Við erum að vinna í okkar leik og við munum bæta okkur í hverri viku en það er nóg eftir af tíma- bilinu,“ segir Hildur Björg Kjartansdóttir, landsliðskona í körfu- knattleik og leikmaður KR, meðal annars í blaðinu í dag. »26 Langur vetur og KR mun bæta sig frekar Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Gítarleikarinn Björn Thoroddsen hefur lengi þótt vera frekar hlédræg- ur, en með aukinni reynslu og frama hefur hann orðið æ framhleypnari og verður aðalatriðið í Gítarveislu Bjössa Thor, sem fer fram í Bæjar- bíói í Hafnarfirði 2. nóvember. „Gítar- veislan verður haldin í 12. sinn og í fyrsta sinn í heimabæ mínum og því er tilhlýðilegt að ég verði loks í sviðs- ljósinu,“ segir hann, en uppselt er á skemmtunina. Fyrir skömmu tóku Bjössi og Unn- ur Birna Björnsdóttir, söngkona og fiðluleikari, upp lagið „Mother Goose“ sem kom út á plötunni Aqualung með Jethro Tull 1971. Upp- takan er komin inn á streymisveituna Spotify og segir Bjössi að hún hafi verið unnin í samráði við Ian Ander- son, lagahöfund og liðsmann Jethro Tull. „Með þessari útgáfu sameinum við gamla og nýja tímann því þegar við Unnur Birna fórum að bera sam- an bækur okkar og stilla strengina kom í ljós að lagið er eitt af uppá- haldslögunum okkar, þó að við séum hvort af sinni kynslóðinni.“ Hann bætir við að aukinheldur hafi þau að miklu leyti hlustað á sömu tónlist. Toppfólk Unnur Birna þekkir reyndar mjög vel til Jethro Tull og Ians Andersons, spilaði fyrst með Anderson fyrir ára- tug og kom fram í rokkóperu hans fyrir þremur árum. Sigurgeir Skafti Flosason og Skúli Gíslason, báðir undir þrítugu, eru í bandinu með Bjössa og Unni Birnu. Auk hennar kynnir Bjössi uppáhalds- gítarleikara sína frá Hafnarfirði á tónleikunum. Í þeim hópi verða meðal annars Krummi Björgvinsson, Stefán Hjörleifsson, Andrés Þór, Gunnar Þór Jónsson og Pétur Valgarð. „Þetta eru hreinræktaðir og aðfluttir Hafnfirðingar,“ áréttar hann. „Til þessa hef ég einbeitt mér að því að kynna aðra en nú verður aðalfókusinn á mig, því fyrir um 50 árum kom ég fyrst opinberlega fram og það í Bæjarbíói. Nú endurtek ég leikinn á sama stað en munurinn er sá að nú kann ég aðeins fleiri lög.“ Að undanförnu hefur Sigurgeir Skafti unnið að því að setja tónlist Bjössa Thor inn á Spotify. „Hann hef- ur gefið út um 40 plötur í eigin nafni eða í hljómsveit með öðrum og efnið er nú aðgengilegt á rafrænu formi,“ segir hann. Gunnar Þórðarson, Björn Thor- oddsen og Jón Rafnsson komu í fyrsta sinn opinberlega saman undir nafninu Guitar Islancio fyrir um 21 ári. Þeir hafa spilað saman víða um heim, meðal annars með Richard Gill- is, trompetleikara í Kanada. Bókin Ís- lensk þjóðlög í útsetningum Guitar Islancio kom út fyrr í sumar. Hún hefur að geyma safn 22 íslenskra þjóðlaga. Öll lögin eru skrifuð með nótum og ljóðin birt í heild sinni. Ennfremur er fjallað um þjóðlögin á íslensku, ensku og þýsku. „Við Jón förum væntanlega til Kanada í mars til þess að kynna bókina með tón- leikum,“ segir Bjössi. Þess má geta að Halldór Árni Sveinsson ritstýrir bók um Bjössa Thor og er gert ráð fyrir að hún komi út á 62 ára afmælisdegi hans, 16. febrúar á næsta ári. Morgunblaðið/Eggert Hljómsveitin Skúli Gíslason, Björn Thoroddsen, Unnur Birna Björnsdóttir og Sigurgeir Skafti Flosason. Ekkert kynslóðabil  Ungir sem eldri í Gítarveislu Bjössa Thor í Hafnarfirði  Bók um gítarleikarann á næsta ári og kynning í Kanada

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.