Fréttablaðið - 14.02.2020, Qupperneq 10
Frá degi til dags
Halldór
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRAR: Davíð Stefánsson david@frettabladid.is, Jón Þórisson jon@frettabladid.is,
MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is
LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Hörður
Ægisson
hordur@frettabladid.is
Verðmæti
slíkra
langtíma
raforku-
samninga
Landsvirkj-
unar, sem er
í eigu
lands-
manna,
hleypur á
mörg
hundruð
milljörðum.
Útbreiddur
misskilning-
ur er að Ríkis-
endurskoðun
sinni þessu
eftirliti.
Í fréttum nefndi heilbrigðisráðherra að ætlunin væri að skoða skipun stjórnar yfir Landspítalanum. Ég tel vert að skoða samhliða hvort henni yrði falið að
skipa endurskoðunar nefnd og innri endurskoðanda.
Endurskoðunarnefnd er ætlað að bæta stjórnar
hætti í þeim málefnum sem stjórn ber að annast.
Meðal verkefna er að hafa eftirlit með gerð fjárhags
áætlunar og reikningsskila, endurskoðun ársreikn
ings, virkni innra eftirlits og innri endurskoðun. Í
lögum um opinber fjármál frá árinu 2015 voru gerðar
verulegar breytingar á reikningsskilum ríkisstofnana
og þeim gert skylt að láta framkvæma innri endur
skoðun hjá sér á grundvelli reglugerðar sem fjármála
ráðherra setur. Þessi reglugerð hefur ekki enn verið
gefin út. Útbreiddur misskilningur er að Ríkisendur
skoðun sinni þessu eftirliti. Örfáar ríkisstofnanir
láta framkvæma innri endurskoðun hjá sér en eitt
meginúrlausnarefnið er að finna skipulag sem tryggir
óhæði innri endurskoðandans. Skilyrðið er að hann
heyri undir stjórn og hafi beinar boðleiðir til hennar.
Þetta er vandkvæðum bundið í ríkisrekstri þar sem
stjórnir eru sjaldan skipaðar yfir ríkisstofnunum.
Tilgangur innri endurskoðunar er að vera virðisauk
andi og bæta rekstur stofnana. Verkefnin eru gríðar
lega fjölbreytt og geta falist í því að gera kannanir
á fylgni við lög og reglur, skilvirkni, hagkvæmni og
árangri einstakra starfseininga, ferla eða verkefna.
Úttektirnar eru liður í stöðugum umbótum og kerfis
bundnu eftirliti með starfsemi stofnunar. Þegar erfið
mál koma upp getur stjórn falið innri endurskoðanda
að gera óháða úttekt og koma með tillögur til úrbóta.
Innri endurskoðun er órjúfanlegur þáttur í stjórn
skipulagi fjármálafyrirtækja, lífeyrissjóða, opinberra
félaga og stærsta sveitarfélags hér á landi. Þetta á
einnig við þegar litið er til Norðurlandanna en þar er
búið að festa í sessi innri endurskoðun hjá hinu opin
bera. Ég tel því mikilvægt fyrir ráðherra að skoða þetta
fyrirkomulag og þann ávinning sem í því felst fyrir
ráðuneyti og ríkisstofnanir.
Innri endurskoðunar
þörf fyrir Landspítala
Ingunn
Ólafsdóttir
formaður
Félags um innri
endurskoðun
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
Austurströnd 14 • Hringbraut 35
.......................... .........................Sími: 561 1433
www.bjornsbakari.is
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
Austurströnd 14 • Hringbraut 35
....................................................Sími: 561 1433
www.bjornsbakari.is
MUNDU EFTIR GÖMLU GÓÐU
AFMÆLISKRINGLUNNI
- fyrir 25-30 manns
VELDU GÆÐI!
Þú færð gómsætar
bollur hjá okkur
allar helgar
í febrúar.
Einherji á toppinn?
Greint var frá því á dögunum að
Sir Jim Ratcliffe ætlaði sér ekki
að kaupa lið í ensku úrvals-
deildinni í knattspyrnu. Lengi
var sá orðrómur á kreiki að
hann hefði hug á að kaupa Chel-
sea. Ratcliffe er ríkasti maður
Bretlands. Meðal eigna hans
eru ýmsar jarðir á Norðaustur-
landi og hefur í kjölfarið skapast
neikvæð umræða um jarðakaup
útlendinga. Gullið tækifæri
blasir hins vegar við Ratcliffe til
að bæta ímynd sína. Hann gæti
slegið tvær f lugur í einu höggi
með því að fjárfesta örlítið brot
fjár síns í knattspyrnuliði Ein-
herja á Vopnafirði. Þannig gæfi
hann til baka til samfélagsins og
myndi fagna Íslandsmeistara-
titli innan nokkurra ára.
Ekkert messuvín
Drög að frumvarpi dómsmála-
ráðherra um vefverslun með
áfengi hafa verið birt. Er þetta
enn einn liður í nútímavæðingu
á sölu þessa stórhættulega varn-
ings. Tillögurnar ganga út á að
heimilt verði að af henda vöruna
frá klukkan átta á morgnana og
til níu á kvöldin. Það er framför
miðað við opnunartíma Vín-
búðanna. Þó má ekki af henda
áfengið á helgidögum þjóðkirkj-
unnar og f leiri opinberum frí-
dögum. Klerkar landsins verða
því enn að bíða þess að geta
bjargað sér með eina messuvín á
sunnudagsmorgni.
sighvatur@frettabladid.is
Þung staða álversins í Straumsvík (ISAL) er ekki ný af nálinni. Reksturinn hefur verið óarðbær um langt skeið – tap ISAL frá 2016 nemur yfir 20 milljörðum – og framleiðsla álversins var nýlega minnkuð um 15 prósent vegna taprekstursins. Endurnýjaður raforku
samningur við Landsvirkjun fyrir um áratug, þar sem
orkuverðið var hækkað og tenging við álverð réttilega
afnumin, hefur ekki hjálpað til en aðrir þættir, einkum
erfiðleikar á hrávörumörkuðum, skipta meira máli.
Aðföng hafa hækkað í verði og á sama tíma hefur heims
markaðsverð á áli lækkað verulega. Með stóraukinni
álframleiðslu Kínverja, sem niðurgreidd er af þarlendum
stjórnvöldum og stendur nú undir um 60 prósentum af
álframleiðslu heimsins, hefur rekstrarumhverfi vest
rænna álfyrirtækja versnað til muna. Útflutningur á áli
frá Kína hefur farið vaxandi og haldið niðri álverði. Ólík
legt er að þessi staða taki breytingum í náinni framtíð og
álverð verður því áfram undir þrýstingi til lækkunar.
Rio Tinto Alcan, eigandi ISAL, lætur nú að því liggja
að rekstri álversins kunni að verða hætt. Félagið hefur
boðað endurskoðun á starfsemi álversins, þar sem meðal
annars verði skoðað að loka því, til að meta rekstrarhæfi
þess og leita leiða til að bæta samkeppnisstöðuna. Fram
undan eru viðræður við Landsvirkjun um raforkusamn
ing félagsins en forstjóri álversins hefur sagt „aðalvanda“
fyrirtækisins stafa af háu orkuverði sem sé mun óhag
stæðara en önnur álver þurfa að greiða. Sú fullyrðing
er talsverð einföldun. Þótt breytingar verði gerðar á
samningnum til lækkunar á orkuverðinu, ákvörðun sem
erfitt er að réttlæta, yrði rekstur álversins eftir sem áður
þungur ef aðrir ytri þættir héldust óbreyttir.
Er hótun Rio Tinto trúverðug? Fyrir liggur að álverið er
skuldbundið til að kaupa að lágmarki um 80 prósent raf
orkunnar af Landsvirkjun fram til 2036, óháð því hvort
álverið verði starfrækt. Fullvíst má telja að forsvarsmenn
álversins hóti málaferlum, komi Landsvirkjun ekki til
móts við kröfur álrisans um lægra orkuverð, þar sem
látið verður reyna á ákvæði kaupskyldunnar og hvort
móðurfélagsábyrgð sé til staðar. Mikilvægt er að hafa í
huga þá gríðarlegu hagsmuni sem eru í húfi. Verðmæti
slíkra langtíma raforkusamninga Landsvirkjunar, sem er
í eigu landsmanna, hleypur á mörg hundruð milljörðum.
Lækkun orkuverðs, jafnvel þótt tímabundið væri, myndi
þýða að Landsvirkjun yrði af umtalsverðum fjárhæðum.
Álverið í Straumsvík er ekki eins og hvert annað fyrir
tæki á Íslandi. Það er einn mikilvægasti og verðmætasti
viðskiptavinur Landsvirkjunar – nærri fjórðungur af
raforkusölu hennar er til álversins – og verði starfsemi
þess hætt hér á landi yrði það mikið efnahagslegt áfall.
Álverið stendur undir um 60 milljörðum í útflutnings
tekjur á ári og um fimm hundruð manns starfa hjá
fyrirtækinu. Vandinn sem Landsvirkjun kann að standa
frammi fyrir, nú þegar minni og stærri viðskiptavinir
fullyrða að orkuverðið sé ekki lengur samkeppnishæft,
er að það verði erfitt að finna aðra kaupendur að því
magni af orku sem gæti losnað á næstu árum – einkum
nú þegar áform um sæstreng til Bretlands virðast því
miður óraunhæfari en áður. Það er eins gott að stjórn
endur Landsvirkjunar, sem hafa teflt djarft, séu reiðu
búnir með plan B. Ef ekki er hætta á að illa geti farið.
Störukeppni
1 4 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R10 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN