Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.02.2020, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 14.02.2020, Qupperneq 18
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103, Þetta er þriðja árið í röð sem Eyrún Ósk heldur ástarljóða­kvöld á Valentínusardaginn en hún hefur fengið mismunandi skáld í lið með sér til að lesa ástar­ ljóð á þessum degi elskenda. „Mér finnst gaman að halda þessi kvöld, því lengi var ég svo hrædd við væmni og ástarljóð. Mér fannst eins og þau væru annars flokks. Maður er alltaf að reyna að vera svo ögrandi sem listamaður,“ segir Eyrún Ósk. Eftir að hún hélt fyrsta ástar­ ljóðakvöldið fyrir tveimur árum ákvað hún að taka hugmyndina lengra og búa til ljóðagjörning með ljóðum sem fjölluðu ein­ göngu um ást og kærleika. Kristín Thorstensen leikstýrði honum og Viktor Aron Bragason samdi tón­ listina. Gjörningurinn var haldinn í Fríkirkjunni í Hafnarfirði og átti upprunalega bara að vera eitt skipti en svo vatt þetta upp á sig og hann hefur verið fluttur sex sinnum, meðal annars í Finnlandi. „Ég fann hvað það var mikil áskorun fyrir mig að sleppa þessum hömlum. Ég var einmitt að hugsa það bara í dag hvað það er mikil neikvæðni í gangi og hvað það er í raun og veru ögrandi að tala um ást og kærleika,“ segir Eyrún Ósk. „Ekki bara í listinni heldur í samfélaginu líka. Mér finnst eins og það megi ekki tala mjög opin­ berlega um ást og kærleika því það þykir ekki nógu fínt. En einhvern veginn finnst mér eins og það sé það sem heimurinn þarf núna.“ Semur ástarljóð til mannsins síns Eyrún segir að hugmyndin að ástarljóðakvöldinu hafi uppruna­ lega komið út frá því að hún hafði gaman af að nýta sérstaka daga, eins og Valentínusardaginn, sem hvatningu til að skapa. „Ég vel þá eitthvert þema tengt deginum og út frá því f læðir fram sköpun. Á Jónsmessunni var ég með sólarljóðakvöld og fékk skáld til að semja ljóð til sólarinnar og sumarsins. Það var uppruna­ lega þannig sem hugmyndin að ástarljóðakvöldinu fæddist. En svo þegar ég fann að það voru einhverjar hömlur þá ákvað ég að taka þetta lengra og þess vegna er ég að halda það í þriðja sinn.“ Eyrún segist hafa ort eitthvað af ástarljóðum áður en hún byrjaði með ástarljóðakvöldin en engin þeirra rötuðu inn í ljóðabækurnar hennar. „En núna í fyrra gaf ég út Sandra Guðrún Guðmundsdóttir sandragudrun@frettabladid.is Eyrún Ósk stendur fyrir ástarljóða­ kvöldi þriðja árið í röð. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI Í ljóðabókinni Mamma, má ég segja þér? er eingönguað finna ljóð sem fjalla um frið eða ástina. ljóðabókina Mamma, má ég segja þér? Hún fjallar öll annars vegar um frið og hins vegar um ást og kærleika. Núna yrki ég rosa mikið um manninn minn, ég er of boðs­ lega ástfangin þessa dagana. Við erum að fara að gifta okkur í sumar,“ segir Eyrún og hlær. „Það er mikið af ástarljóðum um hann í bókinni og hluti af ljóðagjörningnum er þar líka. Maðurinn minn var að segja við mig að hann hefði þurft að venjast því svolítið að sitja á ljóðakvöldum og hlusta á mig lesa upp ástarljóð um hann fyrir framan kannski 60­70 manns. Hann var feiminn við það fyrst en er aðeins farinn að venjast því.“ Eyrún segir að hann hafi ekki samið ástarljóð til hennar á móti. „Hann er ekki í því að yrkja ljóð. En hann er aftur á móti duglegur að sýna það.“ Er ekki hrædd við útlenskar hefðir Eyrún segist ekki vera sammála því að Valentínusardagurinn sé eitthvert útlenskt fyrirbæri sem ekki megi halda upp á á Íslandi. „Mér fannst svo áhugavert þegar ég fór að lesa mér til um þetta þegar ég hélt fyrsta Valentínusarkvöldið, af því margir halda að þetta sé eitthvað amerískt en þvert á móti má rekja uppruna Valentínusar­ dagsins til Evrópu á 14. öld. Það var sem sagt haldin messa heilags Valentínusar í Evrópu og svo hefur hún verið haldin í ýmsum formum víða um heim. Það er eins með hrekkjavökuna. Hún var evrópsk hátíð til að byrja með. Ég er svo­ lítið á því að við séum ein jörð og við höfum öll áhrif á menningu hvert annars. Hlutirnir byrja alltaf einhvers staðar og fara svo eitt­ hvert annað. Ég er aldrei hrædd við eitthvað sem heitir útlenskar hefðir.“ Eyrún Ósk hefur í nógu öðru að snúast þessa dagana. Í ár kemur út eftir hana skáldsaga sem ber vinnuheitið Guðrúnarkviða. „Bókin fjallar um konu sem vaknar upp í eigin jarðarför. Hugmyndin kom út frá því að ég er að vinna mikið með meðvirkni, ég þekki hana mjög vel. Ég skrifa mikið um það sem ég er að berjast við sjálf. Þessi kona vaknar sem sagt upp í eigin jarðarför og kann ekki við að láta vita að hún sé á lífi því hún vill ekki trufla,“ segir Eyrún og bætir við: „Mér finnst sköpun alltaf kraftmest þegar verið er að tækla eigin takmarkanir.“ Í augnablikinu er Eyrún Ósk að vinna að ljóðabók sem er byggð á persónulegum sögum fólks. „Þannig að núna er ég að hitta fullt af fólki. Taka kaffibolla með þeim, ræða um líf þeirra og semja ljóð,“ segir Eyrún en hún reiknar með að sú bók komi út á næsta ári. Þegar þú horfir svona á mig snögghitnar niðri við suðurströndina hitinn leitar upp og dregur með sér kaldara loft stormur austlæg átt 19-23 m/s rauð viðvörun við lendarnar niðri við sköp en bjartviðri á hálendinu við hjartastöðina stjörnubjart og norðurljós undir kvöld í speglunum tveim til fjalla. Úr ljóðabókinni Mamma, má ég segja þér? Ástarljóðakvöldið fer fram í bókakaffihúsinu Norðurbakk­ anum í Hafnarfirði klukkan 20.00 í kvöld. Auk Eyrúnar koma fram skáldin Brynja Hjálmsdóttir, Eygló Jónsdóttir, Halla Margrét Jóhannesdóttir, Hlín Leifsdóttir og Kristian Guttesen. Mér finnst eins og það megi ekki tala mjög opinberlega um ást og kærleika því það þykir ekki nógu fínt. FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is Nán ri upplýsi ar um blaðið veitir: Jón Ívar Vilhelmsson markaðsfulltrúi Fréttablaðsins. Sími 550 5654/ jonivar@frettabladid.is NOTAÐIR BÍLAR Veglegt sérblað um notaða bíla kemur út þriðjudaginn 25. febrúar. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 4 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U R

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.