Morgunblaðið - 08.11.2019, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2019
✝ Kristrún Kjart-ansdóttir fædd-
ist 27. maí 1923 að
Kringlu í Gríms-
nesi. Hún lést 30.
október 2019 á
Dvalarheimilinu
Sólvöllum á Eyrar-
bakka.
Foreldrar henn-
ar voru Kjartan
Bjarnason frá
Minni-Bæ í Gríms-
nesi, f. 1891, d. 1939 og Margrét
Þorkelsdóttir frá Þórisstöðum í
Grímsnesi, f. 1897, d. 1987. Krist-
rún var næstelst 7 systkina og
þau eru: Þorkell, f. 1922, d. 2016,
Lárus, f. 1927, d. 1996, Heiða, f.
1928, d. 2012, Anna, f. 1932, Þor-
björg, f. 1935, og Kjartan, f.
1938. Foreldrar Kristrúnar flutt-
ust að Austurey í Laugardal árið
1926. Eftir andlát föður hennar
rak Margrét móðir hennar búið
með aðstoð barna sinna til ársins
1951 en þá tóku synir hennar
Þorkell og Lárus við búinu.
börn þeirra eru Helgi, f. 1971,
maki Sylvía og börn þeirra Jóna
Kolbrún, Kjartan og Ásdís Erla.
Svanlaug, f. 1974, maki Óskar
Helgi og dætur þeirra Auður og
Guðrún. 3) Guðmundur, f. 1948,
d. 1974, maki Áslaug Harðar-
dóttir, f. 1946. Börn þeirra eru
Hörður Óli, f. 1970, maki Kristín
og börn þeirra Guðmundur
Helgi, dóttir hans er Sif, Jóhann
Guðni, Elías Svanur, d. 2016, og
Kristrún Urður. Guðmunda, f.
1974, maki Garðar og börn
þeirra Guðmundur Benedikt og
Guðrún Olga.
Helgi, eiginmaður Krist-
rúnar, lést ásamt Guðmundi syni
þeirra af slysförum vorið 1974.
Þá hætti hún formlegum búskap
en bjó þó áfram í Haga. Árið
1978 flutti hún á Selfoss og
keypti íbúð í Fossheiðinni og
hélt þar heimili um árabil ásamt
Jóhanni Ingva Guðmundssyni, f.
1905, d. 1992. Í Fossheiðinni bjó
hún til æviloka fyrir utan síðustu
fjóra mánuðina sem hún dvaldi á
Sólvöllum. Hún vann lengst af á
Ási í Hveragerði en einnig starf-
aði hún hjá Sláturfélaginu Höfn
á Selfossi.
Útför Kristrúnar fer fram frá
Selfosskirkju í dag, 8. nóvember
2019, klukkan 13.
Kristrún var í
farskóla í Eyvind-
artungu í æsku og
gekk síðan í Hús-
mæðraskóla Suður-
lands að Laugar-
vatni veturinn
1942-1943. Þann 12.
júní 1943 giftist hún
Helga Guðnasyni
frá Haga í Gríms-
nesi, f. 1914, d.
1974, og hófu þau
búskap í Haga það sama ár. Þau
eignuðust þrjú börn, 1) Ragn-
hildur f. 1944, maki Hafliði S.
Sveinsson f. 1944. Dætur þeirra
eru Sigrún f. 1966, maki Hall-
dór. Fyrrverandi maki Gísli, d.
2017, og sonur þeirra Hafþór
Gylfi. Kristrún, f. 1970, maki
Óskar Ingi og synir þeirra Kári
Már og Hafliði Már. Heiðrún, f.
1980, maki Róbert og synir
þeirra Magnús Máni, Eysteinn
Ari og Helgi Jens. 2) Kjartan f.
1945, fyrrverandi maki Jórunn
Erla Sigurjónsdóttir f. 1951 og
Á kveðjustundum er margs að
minnast. Það er margt sem kem-
ur upp í hugann þegar maður
hugsar til baka til allra þeirra
góðu ára sem við amma áttum
saman. Það eru mikil forréttindi
að hafa átt ömmu að í nær hálfa
öld.
Fyrir nokkrum árum settist ég
niður í nokkur skipti með ömmu,
setti símann á hljóðupptöku og fór
m.a. að spjalla við hana um fyrstu
búskaparár hennar. Það er fyrst
nú þegar ég rita þessi fáu orð á
blað sem ég hlusta á þessar upp-
tökur og þá átta ég mig á því hvað
þær eru mér mikilvægar. Það var
t.d. virkilega gaman að heyra
hana segja frá því að áður en hún
og afi fóru að búa vildi afi að hún
færi í Hússtjórnarskólann á
Laugarvatni. Afi borgaði skóla-
gjöldin sem voru 50 kr., sem þótti
ágætis upphæð á þeim tíma, og
þegar náminu lauk flutti hún að
Haga.
Amma sagði mér stolt frá því
þegar hún og afi byggðu íbúðar-
húsið í Haga. Sumarið sem þau
byggðu húsið hefðu þau náð að
fjármagna öll efniskaup með því
að stunda veiðar í Apavatni af
kappi. Að hafa náð að koma sér
þaki yfir höfuðið með þessum
hætti hefur kallað á mikla þraut-
seigju og vinnusemi. Svo sagði
hún mér frá því að eftir að hún
flutti á Selfoss hefði hana langað í
lítið sumarhús. Svo var það í einni
ferðinni þegar ég kom á Selfoss,
þá sem smá strákur með pabba,
að ég hvíslaði því að henni að
pabbi væri byrjaður að smíða
sumarhúsið fyrir hana en ég hefði
ekki mátt segja henni þetta. Ég
mundi ekki eftir þessu, en hún hló
mikið þegar hún sagði mér þetta,
sennilega hef ég verið orðinn
spenntur að fá hana oftar í sveit-
ina með tilkomu sumarhússins og
ekki getað þagað yfir leyndarmál-
inu. Þessar hljóðupptökur mun ég
varðveita eins vel og ég get og
spila fyrir mín börn og barnabörn.
Svo var það nokkru seinna sem
ég fékk að vera hjá henni þegar
ég var í skóla og vinnu á Selfossi.
Þá var alltaf sest niður á hverjum
degi og spjallað, farið yfir daginn
og hvað væri fram undan. Svona
stundir kallast í dag gæðastundir,
amma vissi vel að þetta skipti máli
fyrir alla og lagði mikið upp úr
svona stundum. Eins lagði hún
alla tíð mikið upp úr gestrisni, að
bjóða fólki inn í kaffi, það skipti
hana miklu máli. Þegar ég var hjá
henni sem unglingur áttaði ég mig
á því hvað hún bar mikla virðingu
fyrir öllum og að hún sá það besta
og jákvæða í fari allra. Allt þetta
eru eiginleikar sem fólk þyrfti að
tileinka sér betur nú til dags þeg-
ar álag, streita og lífsgæðakapp-
hlaupið er að fara illa með fólk.
Það er mér dýrmætt að börnin
mín hafi náð að kynnast þessum
eiginleikum sem langamma
þeirra hafði, enda náði hún til
þeirra, þau hlustuðu á hana og
báru mikla virðingu fyrir henni.
Fyrir ekki svo löngu settist ég
niður með ömmu og fór að ræða
við hana um lífið og tilveruna, m.a.
hvort hún væri sátt við lífshlaup
sitt. Hún sagðist vera sátt við ævi
sína, hún ætti góða og yndislega
fjölskyldu sem hún væri stolt af.
Hún nefndi að það væri í raun
ótrúlegt að hún stæði svona upp-
rétt eftir allt sem hún hefði gengið
í gegnum. Hún útskýrði fyrir mér
hvernig hún hefði tekist á við og
unnið sig út úr þeim áföllum sem
hún hafi orðið fyrir á ævi sinni.
Hvernig hún komst út úr þessu
lýsti hún í smáatriðum fyrir mér,
þeirri frásögn mun ég aldrei
gleyma.
Það er með miklum hlýhug,
virðingu og söknuði sem ég,
Sylvía, Jóna Kolbrún, Kjartan og
Ásdís Erla kveðjum ömmu. Ynd-
islegri ömmu er ekki hægt að
hugsa sér.
Þinn,
Helgi.
Elskuleg föðuramma mín,
amma KK, er látin á 97. aldurs-
árinu.
Amma var húmoristi af guðs
náð, var orðheppin, skemmtileg
og mikil félagsvera. Hún hafði
mikla ánægju af því að hitta fólk
og spjalla. Bíltúrarnir okkar eru
nú orðir margir, til að kaupa blóm
á leiðin á Mosfelli, til að næla okk-
ur í jurt sem við höfðum séð á
víðavangi, tré til að fara með í
Einbúa, forvitnisleiðangrar, ísbíl-
túrar sem oft voru algjörlega
óplanaðir og allar ferðirnar að
Haga í afmælin hjá börnunum
hans Hödda og hennar Stínu. Al-
laf var amma tilbúin að koma
með, stundum þurfti að snúa við á
miðri leið þar sem tennurnar
höfðu gleymst, alloft meira að
segja. Þessu hlógum við nú bara
að.
Ýmsum ævintýrum lentum við
líka í, einu sinni keyrði ég heldur
glannalega yfir hraðahindrun sem
ég sá ekki og þegar við vorum
lentar hinum megin við hana og
bíllinn neitaði að fara lengra sagði
amma „ég hef nú oft farið hraðar
yfir hraðahindranir en þetta …“
Ég var þeirrar gæfu aðnjótandi
að amma passaði mig oft. Einu
sinni man ég eftir að hafa fengið
að vera hjá henni á Ási í Hvera-
gerði, þar sem hún vann um tíma.
Í minningunni var þetta völund-
arhús með óteljandi herbergjum
og í hverju herbergi var gamalt
fólk sem vildi spjalla við stelpuna
sem þarna var á vappinu. Í Foss-
heiðinni man ég eftir að herbergið
hans Jóhanns var líka eins og
ævintýraveröld og þangað fékk
enginn að fara nema í fylgd ömmu
því að þar voru tækin sem hann
notaði til að binda bækur og svo-
leiðis tæki hafði ég aldrei séð.
Ég bjó hjá ömmu í Fossheið-
inni þegar ég var í FSU, eins og
fleiri barnabörn hennar, og síð-
asta árið ein og þá gátum við
amma oft spjallað mikið um lífið
og tilveruna. Hún ráðlagði mér,
óhörðnuðum unglingnum, og ég
henni, fullorðinni konunni.
Amma bar ekki oft tilfinningar
sínar á borð fyrir aðra. Harm sinn
bar hún í hljóði, en slysið í Haga í
apríl 1974 var henni erfitt og okk-
ur mörgum og er enn. Hún ræddi
þetta ekki mikið en hún sagði að á
þessum tíma hefðu bara allir sett
undir sig hausinn og haldið áfram.
Amma átti líka mjög erfiða daga
að hausti 2016 þegar Elías lést og
skildi ekki tilganginn með þeim
atburði.
Amma var líka iðin og vann sín
verk með gleði. Einu sinni töluð-
um við saman í síma og ákváðum
að steikja daginn eftir saman
kleinur og átti ég að mæta kl. 13.
Þar sem amma var stundvís og
þoldi ekki að bíða eftir fólki ákvað
ég að vera á fyrra fallinu og var
mætt fyrir kl. 13. Ilmandi kleinu-
lykt var í stigaganginum þegar ég
mætti og þegar ég kom inn var
hún langt komin með að steikja
allar kleinurnar. Ég ætlaði að fara
að taka við en þá sagði hún „so, so,
so, þú bara færð þér kaffi og
smakkar þetta hjá mér“.
Ég get ekki sleppt því að nefna
matarsmekkinn okkar, sem á
stundum var mjög líkur. Margar
silungahausaveislurnar höfum við
tvær haldið okkur, setið lengi og
notið. Amma átti líka alltaf til ís
fyrir börnin, stór og smá.
Við þökkum þér fyrir sam-
fylgdina í gegnum árin og við
munum halda minningu þinni á
lofti um ókomna tíð.
Guðmunda, Garðar,
Guðmundur og Guðrún.
Elskuleg amma mín, Kristrún
Kjartansdóttir, er látin 96 ára.
Amma lést á Sólvöllum Eyrar-
bakka 30. október, þar dvaldi hún
sl. fjóra mánuði.
Ég minnist ömmu minnar sem
yndislegrar konu, hún var
hjartahlý, ákveðin, nýtin og úr-
ræðagóð.
Við amma brölluðum margt
saman, fórum ófáa bíltúra og þyk-
ir mér mjög vænt um að hafa farið
í Einbúa með henni um verslunar-
mannahelgina í ágúst sl.. Einbúi
er lítill sumarbústaður sem hún á
í landi Haga. Þar hefur hún gróð-
ursett tré í gegnum árin og er þar
orðinn myndarlegur gróður allt í
kring. Þar undi hún sér vel. Þessi
bíltúr var mikilvægur fyrir okkur
báðar, þarna var heilsunni farið
að hraka og okkur grunaði að
þetta yrði jafnvel síðasta ferðin í
Einbúann.
Þær voru margar sögurnar
sem amma sagði mér frá uppvexti
sínum og þegar hún var að byrja
sinn búskap með afa. Henni
fannst við unga fólkið nú til dags
hafa það gott með alla þessa
tækni og tæki sem við höfum,
þvottavél, þurrkara og uppþvotta-
vél meðal annars. Amma þvoði
nefnilega sjálf sinn þvott í mörg
ár í höndunum og fannst henni
þvottavélin mesta byltingin sem
hún upplifði.
Ég minnist líka þegar ég bjó
hjá ömmu í Fossheiðinni þegar ég
var í Fjölbrautaskóla Suðurlands,
þá var alltaf heitur matur á hverj-
um degi, stundum tvisvar á dag.
Hafragrautur á morgnana, við
amma eigum það sameiginlegt að
þykja hafragrautur mjög góður.
Þá var gott að eiga ömmu að og
mjög stutt í skólann.
Síðustu mánuði höfum við varið
miklum tíma saman, rætt lífið, til-
veruna og tilgang lífsins. Ég verð
ævinlega þakklát fyrir þann tíma.
Ég vil þakka starfsfólki á Sól-
völlum Eyrarbakka fyrir einstaka
umönnun og alúð við fjölskylduna.
Amma var tilbúin að leggja í hann
í sumarlandið, veit að heill her af
fólki tók á móti henni.
Far þú í friði, friður Guðs þig
blessi, elsku amma.
Þín
Svanlaug.
Nú er amma mín Kristrún
Kjartansdóttir lögð af stað í sitt
síðasta ferðalag og áfangastaður-
inn er blómum skrýddar brekkur
og grösugir dalir í Sumarlandinu.
Amma reyndist mér og mínum
alla tíð vel og verð ég henni ævin-
lega þakklát fyrir allt sem hún
gerði fyrir okkur. Amma mín tal-
aði aldrei illa um nokkurn mann
og hún elskaði menn og dýr og
mátti aldrei neitt aumt sjá og tók
oft málstað þess sem undir varð í
umræðunni.
Það voru forréttindi að alast
upp og eiga ömmu eins og þig og
alveg ómetanlegt að vera komin á
sextugsaldurinn og eiga ömmu
sem alltaf var hægt að leita til ef
eitthvað bjátaði á.
Amma fæddist á Kringlu í
Grímsnesi 27.5. 1923 og ólst upp í
Austurey í Laugardal í stórum
systkinahópi á bökkum Apavatns.
Árið 1943 giftist amma Helga
Guðnasyni í Haga í Grímsnesi og
þá flutti hún yfir á bakkann hinum
megin við Apavatn.
Man ég eftir að hafa gengið á ís
yfir Apavatn að vetri til og siglt á
bát með ömmu að heimsækja ætt-
ingjana í Austurey.
Árið 1974 missir amma mann
sinn og son þegar þeir drukkna
við veiðar á Apavatni. Amma flyt-
ur á Selfoss 1978 og fljótlega
keypti hún íbúð í Fossheiði 58 og
bjó hún þar alla tíð síðan utan síð-
ustu fjóra mánuði sem hún dvaldi
á Sólvöllum á Eyrarbakka.
Amma elskaði að ferðast og
sjaldan neitaði hún bíltúrum og
minnist ég og fjölskylda mín
margra ferða upp í Haga í litla
sumarbústaðinn hennar.
Það var ýmist verið að kaupa
tré eða blóm til að gróðursetja,
síðan færa þau, því þau uxu og
urðu of stór, reyta arfa og vökva
og að sjálfsögðu var hellt upp á
könnuna og borðað nesti og jafn-
vel soðinn nýveiddur silungur.
Stundum skruppum við í bíltúr
í Hveragerði að skoða blóm í
Eden og oftar en ekki fengum við
okkur kaffi, kökur eða ís. Amma
naut þess að keyra um sveitirnar,
horfa á fjöllin, dýrin á túnunum og
horfa heim að bæjunum. Þá rifjaði
hún upp gamlar sögur frá því hún
var stelpa og það var svo gaman
að hlusta því hún sagði svo
skemmtilega frá.
Þegar ég stofna mína eigin fjöl-
skyldu og flyt á Selfoss þá flutti ég
í sama stigagang og amma og
voru það ómetanleg ár og naut
Hafþór Gylfi þess að búa svo ná-
lægt langömmu sinni og eigum við
margar ómetanlegar minningar
frá þeim tíma.
Ekki vorum við amma alltaf
sammála um alla hluti en við gát-
um alltaf rætt málin og alltaf stóð
hún með sínu fólki þótt hún væri
ekki alltaf sammála því sem við
tókum okkur fyrir hendur.
En bíddu nú við, þú áttir alltaf
eftir að kenna mér að baka pönnu-
kökur. Þú sagðir að það væri nú
hálfgerð skömm að því að kona á
mínum aldri kynni ekki að baka
pönnsur. Nú bara vind ég mér í að
æfa mig og treysti á að þú standir
á hliðarlínunni og segir mér til.
Nú styttist í jólin og þá tek ég
upp jólatréð sem þú bjóst til
handa mér og gafst mér fyrir
rúmum 30 árum og ég hef passað
það svo vel í gegnum árin og er
það sá hlutur sem mér er kær-
astur í minni eigu.
Elsku amma mín takk fyrir
allt.
Sigrún.
Elsku besta amma mín var
ótrúleg kona og á ég ótal margar
dýrmætar minningar um hana
bæði frá því að ég var barn og allt
til dagsins í dag. Við höfum lengst
af búið í sömu blokkinni, Foss-
heiði 58, og seinna í sama bæjar-
félagi þannig að samverustund-
irnar voru margar.
Amma gleymdi aldrei afmæl-
inu mínu og kom alltaf með tvo
pakka fyrir jólin, annan merktan
afmæli, frá ömmu KK og bað
mömmu að geyma hann í búrinu.
Það var mikill spenningur að fá að
opna þennan pakka þegar nýja
árið gekk í garð enda mikið búið
að horfa á hann í efstu hillunni.
Þegar ég byrjaði að búa gaf
hún mér pönnukökupönnu og
kenndi mér að baka pönnukökur,
láta passlega mikið deig á pönn-
una, halla henni niður og ýta hratt
frá sér þrisvar sinnum, þá er deig-
ið jafnt. Enn þann dag í dag tel ég
alltaf upp að þremur ... bara í
hljóði.
Strákarnir mínir gátu alltaf
leitað til hennar og þegar þeir
voru litlir kom hún ósjaldan yfir
og braut saman litlu barnafötin,
brosti og raulaði og tók þá iðulega
í fangið og leyfði þeim að liggja í
„hengirúmi“ í lausu lofti á pilsinu
sínu. Þegar þeir stækkuðu spurði
hún alltaf frétta af þeim og vildi
fylgjast vel með sínu fólki.
Ófáar ferðirnar fórum við í
Einbúann, litla reitinn hennar í
Haga, og gróðursettum tré, færð-
um til, klipptum og rökuðum þar
til allt var hreint og fínt. Þá var
farið inn í kofann og fengið sér
kaffi, það besta í heimi, og skrifað
eitthvað gagnlegt og skemmtilegt
í gestabókina.
Amma hafði alltaf tíma og það
var hægt að ræða við hana um allt
en við vorum ekki alltaf sammála,
þá voru umræðurnar bara
skemmtilegri. Hún sagði oft frá
æsku sinni og hvað allt væri orðið
breytt.
Hún vildi að yngra fólkið vissi
hvernig þetta var áður og hvað við
hefðum margt sem vert væri að
þakka fyrir.
Það er mér mikill heiður að
hafa verið skírð í höfuðið á henni
ömmu og verð ég foreldrum mín-
um ævinlega þakklát fyrir það.
Svo er það bara hvort ég standi
undir nafni.
Minningarnar eru dýrmætar
og fyrir þessar fjölmörgu sam-
verustundir með henni ömmu
minni vil ég þakka af öllu hjarta.
Minning um ómetanlega konu
lifir.
Kristrún Hafliðadóttir.
Það er sárt að kveðja elsku
Kristrúnu ömmu. Minningarnar
um ömmu eru margar og góðar og
rifjast allar upp nú þegar hún hef-
ur kvatt okkur.
Amma var skemmtileg kona,
hnyttin og hlý, hreinskilin og dug-
leg. Á sinni löngu ævi upplifði hún
margt og ég trúi því að nú taki á
móti henni allt það góða fólk sem
hún hefur þurft að kveðja í gegn-
um árin.
Alveg frá því ég man eftir mér
bjó amma í íbúðinni sinni í Foss-
heiðinni.
Amma var sérstaklega ánægð
með eldhúsgluggann sinn og sat
oftar en ekki þar og fylgdist með
lífinu fyrir utan, mannaferðum og
bílaumferð.
Þegar ég var í Fjölbraut var
gott að skreppa til hennar hinum
megin við götuna og alltaf var ég
velkomin að gista í litla herberg-
inu hjá henni. Seinna meir bjugg-
um við Róbert í kjallaranum hjá
henni og í íbúðinni við hliðina og
þá var gott að geta litið inn til
ömmu í kaffisopa og spjall.
Ég minnist þess sem krakki að
í Selfossferðum var það fastur lið-
ur að koma við hjá ömmu og alltaf
átti hún íspinna í frystinum.
Amma hélt í þessa hefð alla tíð og
vildi alltaf eiga ís handa krökkum
sem komu í heimsókn til hennar. Í
síðustu heimsókn okkar til þín í
Fossheiðina í sumar fengu strák-
arnir mínir ís eins og venjulega og
við sátum við eldhúsborðið og
ræddum um lífið og tilveruna.
Í Einbúa átti amma sinn sælu-
reit þar sem hún hugsaði um
gróðurinn sinn og var dugleg að
rétta hrífu eða skóflu að þeim sem
komu í heimsókn, alltaf var eitt-
hvað sem þurfi að færa til eða
hreinsa og laga til. Amma passaði
upp á að eiga nóg með kaffinu í
Einbúa og það var alltaf spenn-
andi að fara inn í hús og sjá hvað
kom upp úr pokunum hjá ömmu.
Amma sagði sína skoðun á
hlutunum og lét alveg vita ef
henni mislíkaði eitthvað. En hún
hrósaði líka og ég minnist þess
þegar ég heimsótti hana í haust á
Sólvelli, og heilsunni var farið að
hraka, þá var það fyrsta sem hún
sagði „mikið ert þú fín“ og spurði
svo hvert ég væri eiginlega að
fara, varla væri ég að koma svona
fín bara að heimsækja hana.
Þarna áttum við okkar síðasta
góða spjall, næst þegar ég kom til
ömmu var það til að kveðja.
Við Róbert og strákarnir okk-
ar, Magnús Máni, Eysteinn Ari og
Helgi Jens, þökkum tímann sem
við fengum með ömmu og yljum
okkur við góðar minningar um
hana og kveikjum á lampanum
fallega sem hún bjó til og gaf okk-
ur. Hvíl í friði, elsku amma mín.
Heiðrún Hafliðadóttir.
Það var örlagaríkur dagur 4.
apríl 1974 þegar feðgarnir í Haga,
Guðmundur og Helgi, létust af
slysförum í Apavatni. Þann sama
dag lést föðuramma mín Guð-
björg Lárusdóttir í kjölfar veik-
inda.
Hagahjónin Helgi og Kristrún
voru kærir vinir afa míns og
ömmu frá búskaparárum þeirra í
Grímsnesinu. Þegar frá leið fór afi
Jóhann að heimsækja Kristrúnu
og bjóða henni í ökuferðir og því
má segja að sorgin hafi leitt þau
saman.
Þessar samvistir þeirra urðu til
þess að Kristrún og afi hófu sam-
búð hér á Selfossi, fyrst á Kirkju-
vegi 7 og síðan Fossheiði 58. Þau
ferðuðust mikið með Félagi eldri
borgara og nutu lífsins um árabil,
eða allt þar til afi fór á Dvalar-
heimilið Ljósheima. Kristrún
hans afa, eins og hún var ætíð
kölluð innan fjölskyldunnar, var
okkur öllum afar kær. Lengi
sendi hún öllum jólakort og
„konuferðirnar“ sem farnar voru
á hverju sumri enduðu alltaf í
kaffi hjá Kristrúnu þar sem
Grímsnesárin voru rifjuð upp og
slegið á létta strengi.
Elsku Kristrún, þessum
kveðjuorðum fylgir einlægt þakk-
læti fyrir umhyggju alla tíð í okk-
ar garð.
Hver minning dýrmæt perla,
að liðnum lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni
af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki
er gjöf sem gleymist eigi
og gæfa var það öllum
er fengu að kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Ingibjörg Stefánsdóttir.
Kristrún
Kjartansdóttir