Morgunblaðið - 08.11.2019, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 08.11.2019, Blaðsíða 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2019 safnið þitt, holugrilluðu lamba- lærin þín, fermingarveislu okk- ar Rósu Daggar og hin ýmsu afmæli ömmu Huldu. Minnis- stæðast er mér samt þegar þú tókst að þér föðurhlutverkið að kenna mér að raka mig. Þér þótti hýjungurinn á unglingnum orðinn frekar mikill og sýndir mér til verka á baðinu á Hraun- hólunum. Við hittumst reglulega í af- mælisveislum, jólaboðum, slát- urveislum og á öðrum mann- fögnuðum í fjölskyldunni enda hafið þið systkinin alltaf verið samheldin. Við systkinabörnin lærðum það fljótt að við værum partur af góðri og tryggri fjöl- skyldu. Á erfiðu tímabili í lífi mínu heimsótti ég þig og Dag- nýju oft í Hraunhólana. Það var gott að tala við ykkur og það hjálpaði mér mikið við að takast á við mín mál. Ég hugsa til þess tíma með hlýju og þakklæti. Þegar stóra ástin kom loks inn í líf mitt var það hjá ykkur Dag- nýju í Hraunhólunum sem Ásta fyrst hitti fjölskylduna mína á gamlársdag 1999. Nú 20 árum síðar, og við náum ekki að fagna nýju ári og 70 árum með þér. Elsku Nonni, ég kveð þig með söknuði og sorg. Ég hugsa til þín í ljúfum faðmi ömmu og afa og veit að þið munuð vaka yfir stóru fjölskyldunni þinni og stórfjölskyldunni okkar. Hvíl í friði, elsku frændi. Ingólfur Már Ingólfsson. Við kveðjum elskulegan vin okkar hjóna. Það sköpuðust snemma á lífsleiðinni sterk vin- áttubönd okkar við þau Jón Ingólfsson og Dagnýju Guð- mundsdóttur og þó sambandið hafi verið slitróttara í seinni tíð erum við bundin eilífum bönd- um. Sama gildir um börn okkar. Samvistir voru miklar og minn- isstæðar. Með engum skemmt- um við okkur meira og inni- legar. Jón var stór í sniðum á allan hátt og ævinlega trúr sjálfum sér og traustur. Hann var óhræddur við að fara sínar eig- in leiðir og skar sig snemma úr fyrir dirfsku í klæðaburði og hársídd, vakti athygli fyrir reisn og glæsileik. Jón hafði sterkar skoðanir, ekki síst á þjóðfélagsmálum, var réttsýnn og heiðarlegur og naut mikils trausts í starfi og leik. Jón var náttúrubarn og opn- aði augu okkar fyrir fegurð ís- lenskrar náttúru sem hann unni mjög, hvort heldur það var í Skorradal, Borgarfjarðarhéraði eða Lóni í Öræfum. Jón hafði einlæga trú á hvað tæki við eftir jarðneskan dauða. Hann kvaddi kyrrlátur og örugglega í góðri vissu um hvaða ferðalag tæki nú við. Við óskum honum góðrar ferðar í sumarlandið og vottum Dag- nýju og börnum þeirra, fjöl- skyldunni allri, innilega samúð okkar með þakklæti fyrir það sem aldrei gleymist. Guð geymi þig, elsku vinur. Jóhann Páll Valdimarrson og Guðrún Sigfúsdóttir. Mér barst harmafregn, kær vinur minn til áratuga, Jón Ernst Ingólfsson, væri fallinn, horfinn úr þessu lífi, dáinn. Í fyrstu trúði ég ekki að Jón væri dáinn, það er bara tæp vika á milli okkar. Er lífið þá svona hverfult? Ég hugsaði um Jón og minningarnar tóku að streyma. Ég kynntist Jóni í fallbekk í Lindargötuskóla. Þar komu saman unglingar sem nenntu ekki venjulegu námi því þeir höfðu öðrum hnöppum að hneppa. Ég hafði til dæmis bara áhuga á myndlist og afplánaði þarna skólavist svo ég gæti sótt um að hefja nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Sama gilti um alla hina, þar með Jón, sem mætti stundum í skólann, en virtist mjög upptekinn við eitthvað allt annað. Síðar komst ég að því að hann vann fulla vinnu með skólanum enda óvenjuorkumikill og hugumstór maður. Það var tónlistin sem tengdi okkur órjúfanlegum böndum, því áður en ég vissi af vorum við farnir að skjótast í frímínútum í Fálkann að hlusta á nýjustu plöturnar. Við Jón urðum mestu mátar, þótt líf hans væri hulu þakið að miklu leyti framan af. Svo skildi ég allt einn daginn þegar hann kynnti mig fyrir kærustu sinni, henni Dagnýju. Þá bjó ég hjá foreldrum mínum í Þórufelli. Stuttu síðar keyptu Jón og Dagný íbúð í Æsufelli við hlið- ina á blokk foreldra minna. Ég trúði þessu varla en svona er lífið og einn daginn hringdi hann í mig og spurði hvort ég vildi brenna með sér í Hvera- gerði. „Kem eftir fimm,“ mælti Jón og ég mætti snarlega út á plan, þar sat hvítur Thunder- bird, greinilega beint úr kass- anum með dökkrauðum leður- klæðum að innan. „Jón, átt þú þennan kagga?“ „Já, leggjum í hann, ég er hérna með frábæra snældu með Moody Blues.“ Þessi ferð situr enn greypt í mig þegar við svifum yfir Hellisheiðina með „To Our Children’s Children’s Children“ á fullu blasti í flottustu ster- íógræjunum í bænum. Seinna byggðu þau hjón Jón og Dagný sér vin í Garðabæ, steinhús byggt í dönskum bændastíl, fagurt, stílhreint og einfalt. Þar kynnti hann mig fyrir hljómsveitinni Super- tramp, tónlist sem enn lifir í hjarta mínu og Jóns. Jón var frábær gestgjafi og félagi sem gaf af sér en vænti einskis í staðinn. Ég sakna þín, elsku vinur, og ég er viss um að við hittumst aftur til að rifja upp gamla tíma. Ég votta eiginkonu, börn- um og barnabörnum mína dýpstu samúð. Kristján Frímann Kristjánsson. Jón Ernst Ingólfsson er einn eftirminnilegasti og litríkasti samferða- og samstarfsmaður sem ég hef átt skipti við á lífs- leiðinni. Leiðir okkar lágu fyrst saman árið 1969, fyrir réttri hálfri öld, þegar ég hóf störf í Plastprenti hf. Jón var þá ný- tekinn við sem sölustjóri hjá systurfyrirtæki Plastprents, Plastpokum hf. á Laugavegi 71, undir framkvæmdastjórn Hjálmars F. Hafliðasonar (1919-1998). Jón var aðeins 19 ára, en krókurinn þegar tekinn að beygjast til þess sem verða vildi. Hann var sölumaður af guðs náð. Hann fór eigin leiðir í störfum sínum og skilaði best- um árangri þannig. Hann þandi út viðskiptanet fyrirtækisins og hélt utan um sína viðskiptavini af umhyggju og ræktarsemi – og tengdist þeim tryggðabönd- um, sem héldu í gegnum þykkt og þunnt, hvar sem hann drap síðar niður fæti á áratugalöng- um ferli sínum innan umbúða- iðnaðarins. Jón starfaði samanlagt í all- mörg ár hjá Plastpokum hf. og Plastprenti hf. Hann skipti um vettvang um tíma, en sneri aft- ur nokkrum árum síðar og var tekið tveim höndum. Jón Ernst Ingólfsson var fas- mikill, hreinskiptinn og frjór – og var annt um heiður sinn. Hann átti á sínum tíma góðan þátt í vexti og viðgangi Plast- prents hf. og annarra fyrir- tækja í umbúðaiðnaðinum sem hann starfaði hjá. Þótt nokkuð sé um liðið síðan því dagsverki lauk, skal þess minnst við þessi tímamót – og þakkað að verð- leikum. Eggert Hauksson, fv. framkvæmdastjóri Plastprents hf. ✝ Einar Pálssonfæddist 22. júní 1940 í Varma- dal á Rangárvöll- um. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 29. október 2019. Kjörforeldrar Einars voru hjónin Hjörleifur Pálsson (1903-1980) og Unnur Jónsdóttir (1901-1980). Móðir Einars var Þorbjörg Hall- mannsdóttir (1916-2003) og faðir hans var Páll Pálsson (1902-1990). Albróðir Einars er Reynir Pálsson (1941) og uppeld- isbróðir er Rósant Hjörleifsson (1933). Systkini Einars í móðurætt eru: Sigurður Ingi (1944), Hall- mann Ágúst (1945), Jónína (1947-2003), Björg (1950), Garðar (1952-2018), Óskar Þór (1954) og Jón Ólafur (1955). Systkini Einars í föðurætt eru: Guðríður Ásta Esther (1951), Halldór Árni (1952), Hjörleifur (1955) og Páll Sölvi (1957-2003). Þann 24. desember 1967 kvæntist Einar Ólínu Stein- dórsdóttur (1928-1983), sem var ávallt kölluð Gógó. Þau eignuðust tvær dætur: 1) Gerð- ur Engilrós Einarsdóttir (1968), sambýlismaður Guð- mundur Páll Óskarsson (1969). Þeirra börn eru: a) Einar Óli (1998), b) Helgi Hrannar (2002) og c) Elísa Guðrún (2005). 2) Kristrún Ein- arsdóttir (1969), sambýlis- maður Gunnar Valur Stein- dórsson (1971). Þeirra dætur eru: a) Aníta Dagný (1998), b) Eva Marín (2000) og c) Brynja Mekkín (2000). Börn Gógóar frá fyrra hjónabandi eru: 1) Einar Kristján (1949), 2) Erla Kristbjörg (1952) og 3) Guðmundur Kristinn (1955). Þeirra börn eru átta og barnabörn- in 17. Fyrstu hjúskap- arár Einars og Gógóar voru á Grettisgötu 31 en árið 1983 fluttu þau í Beykihlíð 31, Reykjavík. Eftir andlát Gógóar hélt Einar heimili með dætrum sínum þar til þær stofnuðu sín eigin heimili. Eftir að dæturnar fluttu að heiman hélt Einar eigið heimili en var í sambúð með Önnu Vilhjálmsdóttur í um 10 ára skeið. Síðast bjó Einar í Furugerði 1. Einar ólst upp í Arnarbæli í Ölfusi og gekk í Barnaskólann í Hveragerði. Hann fluttist ásamt kjörforeldrum sínum til Reykjavíkur upp úr 1960. Einar vann á sínum yngri árum hjá RARIK við línulagnir um allt land þar sem hann kynntist vel íslensku landslagi og var því ávallt glöggur á staðhætti landsins. Hann var bifreiðarstjóri hjá Bæjarleiðum til fjölmargra ára og um nokk- urra ára skeið hjá Strætó. Helstu áhugamál Einars voru bridge, skák, veiði og íþróttir. Hann keppti í bridge fyrir hönd Bæjarleiða í stöðv- arkeppnum, tók þátt í Norð- urlandamóti strætóbílstjóra í skák. Einar bjó vel að íþrótta- iðkun sinni, var heilsuhraustur alla ævi þangað til hann greindist með krabbamein. Útför Einars fer fram frá Árbæjarkirkju í dag, 8. nóv- ember 2019, klukkan 13. Elsku pabbi. Mikið eigum við öll sem stóðum þér næst eftir að sakna þín. Það er svo skrítið og óraunverulegt að kveðja. Trúum varla að þú sért farinn og komir ekki framar í heimsókn til að ræða allt og ekkert og þrasa við okkur um þjóðmálin og nýjustu rannsóknir sérfræðinga út um all- an heim. Elsku pabbi var falleg og góð sál sem hafði sterkar skoðanir og gat verið þverari en margir. Frekar hlédrægur og setti sjálf- an sig alltaf í annað sætið og vildi láta hafa lítið fyrir sér. Hann var handlaginn snillingur sem gat lag- að og gert við svo til allt, nægju- samur og nýtinn, mikið snyrti- menni og algjör töffari. Hafði mikinn áhuga á fótbolta og hand- bolta og fylgdist alltaf vel með íþróttum og íslensku íþróttafólki og var einstaklega duglegur að mæta á íþróttaleiki afabarnanna í gegnum tíðina. Elsku pabbi, við hugsum til þín með þakklæti og hlýju því betri pabba var vart hægt að hugsa sér. Mikill fjölskyldumaður sem sá ein- staklega vel um sína, var fórnfús og sérlega bóngóður og vildi allt fyrir alla gera. Hann sá ekki sólina fyrir barnabörnunum og hugsaði einstaklega vel um þeirra hag. Söknuður, sorg og sársauki ein- kenna líf okkar sem eftir sitjum en um leið mikið þakklæti, auðmýkt og umhyggja. Við geymum fallegu minningu pabba í hjartanu og huggum okkur við að hann sé kom- inn á góðan stað; staðinn hennar mömmu. Þótt sólin nú skíni á grænni grundu, er hjarta mitt þungt sem blý. Því burt varst þú kallaður á örskammri stundu, í huganum hrannast upp sorgarský. Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga og góða, svo gestrisinn, einlægur og hlýr. En örlög þín ráðin - mig setur hljóða, við hittumst ei framar á ný. Megi algóður Guð þína sálu nú geyma, gæta að sorgmæddum, græða djúp sár. Þó kominn sért yfir í aðra heima mun minning þín lifa um ókomin ár. (Sigríður Hörn Lárusdóttir) Kristrún og Gerður. Elsku afi, okkar besti vinur. Það sem við munum sakna þín. Þakka þér fyrir allt og allar góðu minningarnar sem munu lifa áfram í hjörtum okkar. Við vitum að þú munt vaka yfir okkur. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson) Þínar afastelpur, Aníta Dagný, Eva Marín og Brynja Mekkín. Elsku besti afi okkar, takk fyr- ir allar skemmtilegu stundirnar sem við áttum saman. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson) Einar Óli, Helgi Hrannar og Elísa Guðrún. Öll við færum, elsku vinur, ástar þökk á kveðjustund. Gleði veitir grátnu hjarta. guðleg von um eftirfund. Drottinn Jesú, sólin sanna, sigrað hefur dauða og gröf. Að hafa átt þig ætíð verður, okkur dýrmæt lífsins gjöf. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Í dag kveð ég bróður minn með söknuð í hjarta og þakka af heil- um hug þær stundir sem við átt- um saman. Fjölskyldunni allri sendum við Þórdís innilegar samúðarkveðjur. Jón Ólafur og Þórdís. Einar Pálsson Það er erfitt að kveðja hvern vininn á fætur öðrum. Í byrjun þessa árs kvöddum við Signýju vinkonu okkar og nú er komið að því að kveðja hana Guðrúnu okkar sem barðist við sama grimma óvininn og Signý og því miður hafði hann betur í bæði skiptin. Guðrún var mikill og virkur vinur í vinahópnum og Gunnar bóndi hennar ekki síður. Það fór ekki mikið fyrir þeim en alltaf voru þau boðin og búin þegar eitthvað stóð til og tóku fullan þátt í öllu gríni og glensi sem þessum káta hópi datt í hug hverju sinni. Guðrún var líka góður starfs- félagi og ótrúlega minnug. Það var ósjaldan sem ég hringdi í Guðrúnu til að spyrja hana um eitthvað sem gerst hafði fyrir löngu og það brást ekki að Gunna mundi það eins og gerst hefði í gær. Guðrún var söngelsk og kunni alla texta utan að og þau hjónin Guðrún Sigurveig Jóhannsdóttir ✝ Guðrún Sig-urveig Jó- hannsdóttir fæddist 3. apríl 1941. Hún lést 16. október 2019. Útförin fór fram 25. október 2019. bæði. Þau sungu Rósina fyrir hópinn löngu áður en hún komst í tísku. Já, það er margs að minnast þegar góðir vinir falla frá og söknuðurinn sit- ur eftir. En minningin er sem perla ein, þau gleymast ei góðu árin. Og tíminn líður sem líknandi hönd, að lokum hann hylur sárin. Við kveðjum þig vina hér og nú, ert kölluð til æðri starfa. Þakklát fyrir að þú varst þú. Þér Rósirnar kveðju bera. Guðbjörg Ellertsdóttir. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Minningargreinar Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GRÉTA JÓNSDÓTTIR, Reynimel 50, Reykjavík, lést sunnudaginn 3. nóvember á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni. Útförin fer fram frá Fossvogskapellu mánudaginn 18. nóvember klukkan 13. Sigurður Erling Baldursson Þuríður Ellisif Baldursdóttir Jóhann S. Erlendsson Ingi Þór Vöggsson Baldur og Freyr Jónssynir Baldur Erling, Margeir Jón, María Sif og Hulda Hrönn Sigurðarbörn Arnar Páll og Jóhann Baldur Jóhannssynir og langömmubörn Elskulegur faðir okkar, ástvinur og bróðir, ÓMAR ÁSGEIRSSON, búfræðingur og trésmíðameistari, lést á Hjúkrunarheimilinu Eir sunnudaginn 3. nóvember. Útförin fer fram frá Neskirkju mánudaginn 11. nóvember klukkan 13. Ólöf Huld Ómarsdóttir Arnar Hlynur Ómarsson Ómar Sigurbjörn Ómarsson Einar Auðólfur Ómarsson Elísabet María Haraldsdóttir Jóhanna Lind Ásgeirsdóttir Sigurbjörn Ásgeirsson Málfríður Ásgeirsdóttir Valgerður Ásgeirsdóttir Ásgerður Ósk Jakobsdóttir tengdabörn og barnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BERA ÞORSTEINSDÓTTIR frá Laufási í Vestmannaeyjum, lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum þriðjudaginn 5. nóvember. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 14. nóvember klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Alzheimersamtökin. Þorsteinn Ingólfsson Kristrún Gísladóttir Gylfi Ingólfsson Anna Jenný Rafnsdóttir Ingólfur Ingólfsson Júlíanna Theodórsdóttir barnabörn, makar þeirra og langömmubörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.