Morgunblaðið - 08.11.2019, Blaðsíða 35
ÍÞRÓTTIR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2019
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • tengi@tengi.is
Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is
Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15
Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi
HÁGÆÐA BLÖNDUNARTÆKI
Þýska fyrirtækið Hansa hefur framleitt bað- og eldhústæki í meira en 100 ár.
Tengi hefur mikla og góða reynslu af vörunum frá Hansa.
Kylfingarnir Andri Þór Björnsson
og Guðmundur Ágúst Kristjánsson
eru báðir í toppbaráttu eftir fyrsta
hring á annars stigs úrtökumóti fyrir
Evrópumótaröðina í golfi en leikið er
á Spáni. Fimm íslenskir kylfingar
komust á annað stigið.
Andri lék hringinn í gær á 66 högg-
um eða sex höggum undir pari og er
hann í áttunda sæti. Guðmundur
Ágúst lék á 68 höggum, fjórum
höggum undir pari, og er í 13. sæti.
Leika þeir á Desert Springs-vellinum
en um 20 efstu kylfingarnir á hverj-
um velli fara áfram í þriðja og síð-
asta úrtökumótið.
Rúnar Arnórsson, Haraldur Franlín
Magnús og Bjarki Pétursson eru
einnig á meðal þátttakenda.
Eitt
ogannað
Dalhús, Dominos-deild karla,
fimmtudaginn 7. nóvember 2019.
Gangur leiksins: 4:3, 8:9, 16:9,
18:15, 25:22, 27:30, 29:41, 34:48,
43:48, 48:59, 53:65, 57:71, 59:71,
66:80, 73:82, 83:91.
Fjölnir: Viktor Lee Moses 28/10 frá-
köst/6 stoðsendingar, Srdan Stoj-
anovic 25/9 fráköst, Jere Vucica
21/9 fráköst, Vilhjálmur Theodór
Jónsson 7, Hlynur Breki Harðarson
2.
Fráköst: 24 í vörn, 8 í sókn.
FJÖLNIR – ÞÓR Þ. 83:91
Þór Þorlákshöfn: Vincent Terrence
Bailey 21/9 fráköst, Emil Karel Ein-
arsson 19/7 fráköst, Dino Butorac
17/7 fráköst, Halldór Garðar Her-
mannsson 17/5 fráköst/5 stoðsend-
ingar, Marko Bakovic 12/12 fráköst,
Davíð Arnar Ágústsson 3, Ragnar
Örn Bragason 2.
Fráköst: 35 í vörn, 9 í sókn.
Dómarar: Ísak Ernir Kristinsson,
Rögnvaldur Hreiðarsson, Bjarni Hlíð-
kvist Kristmarsson.
Áhorfendur: Á að giska 180.
KÖRFUBOLTI
Kristján Jónsson
Skúli B. Sigurðsson
Þórsarar frá Þorlákshöfn eru búnir
að finna taktinn í Dominos-deild
karla í körfuknattleik. Liðið vann
sinn þriðja leik af síðustu fjórum í
gær þegar það heimsótti Fjölni í
Grafarvoginn í 6. umferð. Fjölnir
hafði betur 91:83 en liðið hafði yf-
irhöndina í leiknum frá því í öðrum
leikhluta.
Enginn skyldi vanmeta Þórsliðið
þótt það hafi farið rólega af stað í
fyrstu leikjunum í deildinni. Sé mið
tekið af leiknum í gær þá er andinn
til staðar hjá Þórsurum. Þeir léku
með bros á vor og fögnuðu þegar
vel var gert. Reynsluboltinn Friðrik
Ingi Rúnarsson virðist vera að slípa
mannskapinn saman. Klókt var hjá
honum að ná í Dino Butorac sem
sýndi með Tindastóli síðasta vetur
að hann skilur leikinn vel. Heima-
mennirnir Emil Karel Einarsson og
Halldór Garðar Hermannsson eru í
stórum hlutverkum og skila sínu í
stigaskorun. Fæturnir á Marko
Bakovic virka ekki eins og styrk-
ustu stoðir sem ég hef séð en það er
merkilegt hversu miklum krafti
hann nær úr þessum spóaleggjum.
Fjölnir þarf að safna stigum.
Deildin er geysilega sterk og erfitt
fyrir nýliða að festa sig í sessi. Liðið
átti góða möguleika á sigri gegn Val
og Grindavík en náði ekki að landa
stigunum. Slíkt gæti reynst dýrt.
Liðið átti ekki eins mikla möguleika
í gær og sóknir liðsins voru fremur
hægar að mér fannst. Auk þess
skoraði fyrirliðinn Róbert Sigurðs-
son ekki stig sem er afar sjaldgæft
en hann gaf þó fimm stoðsendingar.
Fjölnir hefur dregið öflugan upp-
alinn leikmann á flot, Tómas Heiðar
Tómasson. Eftir áramót verður
hann væntanlega farinn að skila
ágætu framlagi og Orri Hilmarsson
verður orðinn leikfær. Þá verður
áhugavert að sjá hvar Fjölnisliðið
stendur. kris@mbl.is
Stjarnan sterkari á ögurstundu
Grindavík og Stjarnan mættust í
Mustad-höllinni í Grindavík. Bæði
lið mættu til leiks þetta kvöldið eftir
ansi skrautlega sigra í síðustu um-
ferð þar sem úrslit réðust á síðustu
sekúndum leikjanna. Þetta kvöldið
voru síðustu tíu mínútur leiksins
eign gestana úr Garðabæ sem hófu
sig á brott úr Grindavík með 95:83-
sigur í farteskinu.
Eins og áður sagði hafði spenna
ríkt á lokametrum síðustu leikja hjá
báðum liðum og þessi „spennufíkla-
lið“ virtust langt fram eftir leik í
gærkvöldi ætla að stefna í sömu átt
með þennan leik. Leikurinn var
hnífjafn á flestum tölum þangað til,
sem fyrr segir á síðustu metrunum.
Það sem gerði endanlega útslagið
var að Stjörnumenn héldu sig við
sinn leik á meðan Grindvíkingar
virtust missa einbeitninguna þegar
mest á reyndi. Varnarleikur beggja
liða var kannski ekkert gríðarlegt
fagnaðarefni en sókn Grindvíkinga,
sem hafði verið skipulagðari í gær
enn megnið af vetri, fór í baklás og í
raun sama agaleysi og stundum loð-
ir við liðið. Það sauð á þjálfara
þeirra Daníel Guðna eftir leik og
hafði hann ærna ástæðu til.
Stjörnumenn klára í bili sinn Suð-
urnesjarúnt með tveimur sigrum og
gríðarlega sterkt fyrir þá að hirða
sigra í Njarðvík og Grindavík án
Hlyns Bæringssonar sem enn er
meiddur. Yfirburðamaður kvöldsins
var Ægir Þór Steinarsson sem tók
sóknarleik Stjörnumanna á herðar
sínar þetta kvöldið og skoraði 27
stig. „Gríðarlega mikilvægir og góð-
ir sigrar hér síðustu tveir en við
getum bætt okkar leik,“ sagði Ægir
eftir leik. skulibsig@mbl.is
Keflvíkingar ósigraðir
Keflavík styrkti stöðu sína á
toppi deildarinnar með sterkum
fimmtán stiga útisigri gegn Þór í
Höllinni á Akureyri. Leiknum lauk
með 95:80-sigri Keflavíkur en mikið
jafnfræði var með liðunum, framan
af leik.
Khalil Ahmad fór mikinn í liði
Keflavíkur og skoraði 30 stig og
Dominykas Milka var með tvöfalda
tvennu, 23 stig og fimmtán fráköst.
Hjá Þórsurum var Hansel Suarez
stigahæstur með 30 stig.
Gerald Robinson átti mjög góðan
leik fyrir Hauka gegn sínu gömlu
félögum í ÍR á Ásvöllum þar sem
Haukur fögnuðu öruggum 101:82-
sigri. Robinson var með tvöfalda
tvennu en hann skoraði 20 stig og
tók ellefu fráköst í leiknum, ásamt
því að gefa þrjár stoðsendingar.
Hjá ÍR var Collin Pryor stiga-
hæstur með 23 stig, níu fráköst og
fjórar stoðsendingar.
Leikið með bros á vör
Stjarnan reyndist sterkari í Grinda-
vík í fjórða leikhluta Keflvíkingar
áfram taplausir á toppi deildarinnar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Átök Jere Vucica hirðir eitt af níu fráköstum sínum í Dalhúsum í gær. Hann
var einnig öflugur á hinum enda vallarins og skoraði 21 stig.
Uwe Gensheimer reyndist hetja
Rhein-Neckar Löwen þegar liðið
fékk Kiel í heimsókn í þýsku 1. deild-
inni í handknattleik í gær. Leiknum
lauk með 26:25-sigri Löwen en
Gensheimer skoraði sigurmark
leiksins þrjátíu sekúndum fyrir
leikslok.
Kiel byrjaði leikinn af gríð-
arlegum krafti og náði sjö marka
forskoti í fyrri hálfleik, 13:6. Löwen
tókst að koma til baka og var staðan
13:10 í hálfleik, Kiel í vil. Löwen
tókst að jafna metin í 15:15 þegar
fimm mínútur voru liðnar af síðari
hálfleik og eftir það var mikið jafn-
ræði með liðunum.
Ljótt atvik átti sér stað á 53. mín-
útu þegar Gísli Þorgeir Krist-
jánsson, leikmaður Kiel, lenti illa á
gólfinu og fór meiddur af velli en
hann fór úr lið á vinstri öxl.
Gísli komst ekki á blað hjá Kiel en
Alexander Petersson skoraði eitt
mark fyrir Löwen.
Kristján Andrésson er þjálfari
Löwen en liðið fer með sigrinum upp
í fimmta sæti deildarinnar í 16 stig
en Kiel er í öðru sæti deildarinnar
með 16 stig og á leik til góða á topp-
lið Hannover sem er með 19 stig.
Þá skoraði Ragnar Jóhannsson
eitt mark fyrir Bergischer sem vann
25:24-heimasigur gegn Aðalsteini
Eyjólfssyni og lærisveinum hans í
Erlangen. Balingen og Stuttgart
gerðu svo 25:25-jafntefli þar sem Ís-
lendingar komust ekki á blað.
bjarnih@mbl.is
Stöðvuðu sigurgöngu Kiel
AFP
Óheppinn Gísli Þorgeir Krist-
jánsson fór meiddur af velli.
Dominos-deild karla
Haukar – ÍR.........................................101:82
Fjölnir – Þór Þorlákshöfn ....................83:91
Grindavík – Stjarnan ............................83:95
Þór Akureyri – Keflavík .......................80:95
Staðan:
Keflavík 6 6 0 561:503 12
KR 5 4 1 445:394 8
Stjarnan 6 4 2 540:509 8
Haukar 6 4 2 566:525 8
Valur 5 3 2 448:443 6
ÍR 6 3 3 490:531 6
Tindastóll 5 3 2 434:414 6
Þór Þ. 6 3 3 493:501 6
Grindavik 6 2 4 512:535 4
Njarðvík 5 1 4 386:399 2
Fjölnir 6 1 5 510:544 2
Þór Ak. 6 0 6 466:553 0
NBA-deildin
Indiana – Washingon ....................... 121:106
Houston – Golden State ...................129:112
Atlanta – Chicago ............................... 93:113
Memphis – Minnesota...................... 137:121
Detroit – New York.......................... 122:102
Toronto – Sacramento ..................... 124:120
Dallas – Orlando ............................... 107:106
LA Clippers – Milwaukee................ 124:129
Utah – Philadelphia.......................... 106:104
KÖRFUBOLTI