Morgunblaðið - 08.11.2019, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 08.11.2019, Blaðsíða 34
EVRÓPUDEILDIN Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Manchester United lék á als oddi þegar liðið fékk serbneska liðið Partizan Belgrad í heimsókn í L- riðli Evrópudeildar UEFA í knatt- spyrnu á Old Trafford í Manchest- er í gær. Leiknum lauk með 3:0- sigri United þar sem fremstu menn liðsins voru allir á skotskón- um, þeir Mason Greenwood, Ant- hony Martial og Marcus Rashford. United hefur ekki gengið neitt sérstaklega vel að skora mörk á þessari leiktíð og hefur sókn- arleikur liðsins oft á tíðum verið harðlega gagnrýndur af stuðnings- mönnum liðsins. Liðið skoraði hins vegar þrjú góð mörk í gær en þetta var í þriðja sinn á tímablinu sem liðið skorar þrjú mörk eða meira í leik á keppnistímabilinu. Marcus Rashford hefur stigið upp að undanförnu og var hann að skora sitt áttunda mark á tíma- bilinu í sextán leikjum. Martial hefur einni verið að koma sterkur inn en United þarf nauðsynlega á þeim tveimur að halda, ef liðið ætlar sér að berjast um Evr- ópusæti. United er komið með annan fótinn í 32-liða úrslit Evr- ópudeildarinnar og dugar eitt stig úr síðustu tveimur leikjum sínum til þess að fara áfram í út- sláttakeppnina. Arnór Ingvi Traustason og liðs- félagar hans í Malmö gerðu 0:0- jafntefli gegn Lugano á útivelli í B-riðli keppninnar. Arnór Ingvi lék allan leikinn fyrir Malmö en sænska liðið hefði með sigri getað tyllt sér á toppinn í riðlinum. Í staðinn er Malmö í þriðja sæti rið- ilsins með 5 stig, einu stigi minna en topplið FCK og Dynamo Kiev, sem eru með 6 stig. Malmö er hins vegar með örlögin í eigin höndum því liðið mætir Dynamo Kiev og FCK í síðustu tveimur umferðunum. Þá var Jón Guðni Fjóluson ónotaður varamaður hjá Krasnod- ar sem vann 3:1-sigur gegn Trab- zonspor á heimavelli og Arnór Sigurðsson og Hörður Björgvin Magnússon voru báðir í byrj- unarliði CSKA Moskvu sem gerði markalaust jafntefli gegn Ferenc- város í Ungverjalandi. Mikið stuð á Old Trafford  Malmö missti af gullnu tækifæri AFP Gleði Marcus Rashford fagnar marki sínu og þriðja marki Manchester United á Old Trafford í Manchester í gær. 34 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2019 Eftir að hafa verið frá æfingum og keppni í tvo mánuði vegna höfuð- meiðsla er danska stórskyttan Mikkel Hansen, liðsfélagi Guðjóns Vals Sigurðssonar hjá Paris SG, mættur aftur út á völlinn. Hansen fékk heilahristing á æfingu Par- ísarliðsins í september og var óvíst hvenær hann gæti snúið til baka. En nú anda Danir léttar. Þeirra besti leikmaður er orðinn heill heilsu og heimsmeistararnir geta notað krafta hans á EM í janúar þar sem þeir mæta Íslendingum í fyrsta leik í Malmö. gummih@mbl.is Hansen klár í slaginn á EM Stórskytta Mikkel Hansen er orð- inn heil heilsu eftir höfuðmeiðsli. Spænski knattspyrnumaðurinn Ro- drigo Gómez er genginn til liðs við KA en þetta staðfesti félagið á heimasíðu sinni í gær. Rodrigo skrif- ar undir tveggja ára samning við Akureyrarliðið en Spánverjinn kem- ur frá Grindavík. Óli Stefán Fló- ventsson, þjálfari KA, þekkir vel til leikmannsins en þeir unnu saman hjá Grindavík á árunum 2016 til 2018. Rodrigo á að baki 46 leiki í efstu deild með Grindavík þar sem hann hefur skorað eitt mark en hann hefur einnig leikið með Sindra á Hornafirði hérlendis. bjarnih@mbl.is Spænskur liðs- styrkur til KA Morgunblaðið/Eggert Miðjumaður Rodrigo Gómez leikur með Akureyringum næsta sumar. HANDBOLTI Bikarkeppni kvenna 16-liða úrslit: Víkingur – FH .......................................18:42 Grill 66 deild karla FH U – Víkingur ...................................34:30 Þýskaland Bergischer – Erlangen ........................25:24  Ragnar Jóhannsson skoraði eitt mark fyrir Bergischer en Arnór Þór Gunnarsson lék ekki vegna meiðsla.  Aðalsteinn Eyjólfson er þjálfari Erlang- en. Balingen – Stuttgart ............................25:25  Oddur Gretarsson skoraði ekki fyrir Balingen.  Elvar Ásgeirsson skoraði ekki fyrir Stuttgart Rhein-Neckar Löwen – Kiel ...............26:25  Alexander Petersson skoraði eitt mark fyrir Löwen. Kristján Andrésson er þjálf- ari liðsins.  Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði ekki fyrir Kiel. Danmörk GOG – Lemvig ......................................30:27  Arnar Freyr Arnarsson skoraði 2 mörk fyrir GOG en Óðinn Þór Ríkharðsson komst ekki á blað. Viktor Gísli Hallgríms- son varði 10 skot í markinu. Nordjælland – Skjern ..........................25:31  Elvar Örn Jónsson skoraði 5 mörk fyrir Skjern. Björgvin Páll Gústafsson varði 7 skot. Patrekur Jóhannesson þjálfar liðið. Benjamin Mendy, bakvörður úr Manchester City, var í gær valinn í franska landsliðshópinn í knatt- spyrnu á nýjan leik fyrir leiki heims- meistaranna gegn Albaníu og Mold- óvu í undankeppni EM. Mendy hefur ekkert leikið með Frökkum frá því hann spilaði leikinn gegn Hollendingum í Þjóðadeild UEFA í september á síðasta ári. Fyrirliðinn og markvörðurinn Hugo Lloris er ekki í hópnum en hann gekkst undir aðgerð á olnboga í gær. Paul Pogba og Lucas Hern- andez voru heldur ekki valdir í hóp- inn en þeir glíma við meiðsli. Frakk- ar endurheimta framherjann Kylian Mbappé en hann var fjarri góðu gamni í leikj- unum í síðasta mánuði sökum meiðsla og þá heldur Olivier Giroud sæti sínu þrátt fyrir að vera úti í kuld- anum hjá Chelsea. Giroud skoraði sigur- mark Frakka gegn Íslendingum og hann skoraði í 1:1-jafntefli heimsmeistaranna gegn Albaníu. Frakkar þurfa eitt stig úr leikj- unum tveimur til að tryggja sér far- seðilinn á EM. gummih@mbl.is Mendy valinn á nýjan leik Benjamin Mendy Sigurður Gunnar Þorsteinsson leikur ekki meira með ÍR í úrvalsdeild karla í körfuknattleik, Dominos-deildinni, en hann er með slitið krossband. Þetta staðfesti hann í samtali við RÚV í gær en Sigurður gekk til liðs við ÍR-inga á nýjan leik 23. október- eftir stutt stopp í frönsku B-deildinni. Sigurður meiddist í leik Þórs Ak- ureyrar og ÍR 25. október en hann er nú á leið í aðgerð. Sigurður lék því einungis í níu mínútur með ÍR-ingum í vetur en hann var lykilmaður í liðinu á síðustu leiktíð sem fór alla leið í úr- slit Íslandsmótsins þar sem ÍR-ingar töpuðu í oddaleik fyrir KR. bjarnih@mbl.is Kremja Sigurður Gunnar í baráttunni í úrslitum Íslandsmótsins á síðustu leiktíð. Mikið áfall fyrir ÍR-inga Katar Al-Arabi – Al Sailliya ...............................1:2  Birkir Bjarnason lék fyrstu 65 mínút- urnar með Al-Arabi en Aron Einar Gunn- arsson lék ekki vegna meiðsla. Heimir Hallgrímsson er þjálfari liðsins. Danmörk Nyköping – Vejle......................................0:0  Kjartan Henry Finnbogason var ekki í leikmannahópi Vejle. KNATTSPYRNA KÖRFUKNATTLIEIKUR Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin Origo-höllin: Valur – Njarðvík .............18.30 DHL-höllin: KR – Tindastóll ...............20.30 Bikarkeppni karla, 32-liða úrslit: Höllin Ak.: Þór Ak. b – Keflavík ..........16.45 SUND Íslandsmótið í 25 m laug hefst í Ásvallalaug og keppt er til úrslita í 15 greinum frá kl. 16.30 til 18.00. Enski boltinn á Síminn Sport Norwich – Watford.....................................20 Í KVÖLD! Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is Einfalt og nett hjartastuðtæki fyrir stofnanir og fyrirtæki. Tækið greinir sjálfkrafa mögulega rafvirkni í hjartanu og sé þess þörf gefur það rafstuð. Tækið talar til notandans og gefur fyrirmæli á íslensku* *Einnig fáanlegt með ensku tali. LIFEPAK CR PLUS HJARTASTUÐTÆKI TILBOÐSVERÐ LIFEPAK CR PLUS 159.900 KR M/VSK VEGGFESTING 19.000 KR M/VSK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.