Morgunblaðið - 08.11.2019, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 08.11.2019, Blaðsíða 37
MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2019 Sérfræðingar úti um allanheim hafa lengi reynt aðskipuleggja hinn fullkomnaglæp, en auðvitað er hann best geymdur í bókum eins og Hel- kaldri sól eftir Lilju Sigurðardóttur. Þar gengur uppskriftin en er auðvit- að ekki til eftirbreytni í mann- heimum. Glæpamönnum verður yfir- leitt alltaf eitt- hvað á í messunni. Vandamálin blasa víða við og þau eru yrkisefni Lilju í þessari glæpasögu. Helstu viðfangs- efni sögunnar eru heimilisofbeldi og afleiðingar þess, lyfjamál og dóp- sala, málefni flóttamanna og ör- yrkja, peningaþvætti, ástir og ævin- týri. Glæpir og refsingar. Fólk úr ýmsum áttum tengist með mis- jöfnum hætti, samskiptin ganga upp og niður en sumir eru ákveðnari en aðrir í því sem þeir gera og nauðsyn brýtur lög. Helköld sól er skemmtilega upp- byggð. Lesandinn fylgist með Áróru leita að Ísafold, eldri systur sinni, netinu er kastað út frá þessum ási og síðan dregið inn jafnt og þétt með meðafla þar til yfir lýkur. Leitin er þungamiðjan og inn í hana fléttast meðal annars sam- skipti fólks og ekki síður samskipta- leysi, svindl og svínarí. Fjölskyldur eru tvístraðar og einstaklingarnir hafa misjafna sýn á málin. Áróra er ákveðin í því sem hún tekur sér fyrir hendur og ákveður sjálf hvað er rétt- látt og hvað ekki. Henni gengur vel í fjársjóðsleit, er einkaspæjari og peningasporhundur, líkist Lisbeth Salander á stundum, en er ekki sátt við eigin framkomu gagnvart systur sinni. Ekki alltaf gott að vera vitur eftir á. Lilju tekst vel upp í þessari sögu. Hún tekur á brýnum vandamálum og tengir þau við líðandi stundu. Karlmenn, sem eiga það skilið, finna til tevatnsins, en ekki eru allir þar sem þeir eru séðir. Angarnir teygja sig víða, sumt gengur upp og annað ekki. Þar liggur hundurinn grafinn. Tilgangurinn á að helga meðalið Glæpasaga Helköld sól bbbmn Eftir Lilju Sigurðardóttur. JPV útgáfa, 2019. Innbundin, 326 bls. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR Morgunblaðið/Árni Sæberg Glæpur og refsing Í Helkaldri sól tekur Lilja Sigurðardóttir á brýnum vandamálum og tengir þau við líðandi stundu að mati rýnis. Kynóða vampíran Hjörturhírist í Reykjavík og áengan að. Einn daginnsýnir manneskja, fíkni- efnaneytandinn Hulda, vampírunni einhvers konar viðleitni til vænt- umþykju og verða þau óaðskiljanleg upp frá því. Skilin milli góðs og ills eru óljós og óöldin sem geisar í Reykjavík virðist geta læst sig í hvern sem er. Handritið er einn af jákvæðum punktum kvikmyndarinnar en ýmis- legt annað öskrar á áhorfandann að þarna sé um svokallaða B-mynd að ræða. Sem er í raun gott og gilt enda ekki að sjá að markmiðið sé annað en að skapa slíka kvikmynd. Þorsti var tekinn upp á ellefu dögum og hefur Steinþór Hróar Steinþórsson, einn af leikstjórum og framleið- endum kvikmyndarinnar, gefið út að hún hafi verið fáránlega ódýr. Leikhópurinn X, hópur áhugaleik- ara sem höfðu fram til þessa aðal- lega tekið að sér hlutverk aukaleik- ara, stendur sig með ágætum í myndinni miðað við litla reynslu af stórum hlutverkum á hvíta tjaldinu. Ef reynsluleysið er ekki dregið upp til afsökunar eru leikrænir til- burðir aðalleikaranna ekki upp á marga fiska. Í tilfelli Huldu, sem leikin er af Huldu Lind Kristins- dóttur, þá er leikur hennar svo ýktur og óraunverulegur að áhorfandinn á erfitt með að detta inn í myndina, er í raun með leiknum sífellt minntur á að um kvikmynd sé að ræða. Eini aðalleikarinn sem stendur sig merkilega vel var vampíran Hjörtur sem leikin er af nafna sínum, Hirti Sævari Steinasyni. Hjörtur gjör- samlega geislar og hlutverkið er eins og hannað fyrir hann, hlutverk sam- kynhneigðrar, örlítið vonleysis- legrar vampíru. Nú er ég hvorki sérfræðingur í kvikmyndatöku né hljóðblöndun og ræði því um slíkt sem áhorfandi, ekki sem faglærður einstaklingur. Myndin er sannkölluð upplifun, bæði fyrir augu og eyru. Hún er mjög grafísk, ekki einungis vegna grót- eskra líkamsleifa, heldur sömuleiðis vegna þess hvernig hún er tekin upp og lýst. Þessi atriði leika stórt hlut- verk í myndinni en þau draga at- hygli áhorfandans að atriðum sem hann hefði annars ekki gefið gaum. Kvikmyndunin ýkti upplifunina og gerði allt meira hrollvekjandi og það sama má segja um hljóðið. Hávært smjatt Jens lögregluþjóns í hvert sinn sem hann fékk sér nikótín- tyggjó var merkilega áhrifaríkt sem og marrið í Hirti þegar hann hafði fundið sér ákjósanlega bráð. Það er nauðsynlegt að taka fram að undirrituð emjaði af hlátri yfir myndinni og þurfti í sífellu að grípa fyrir augun þegar blóð-, þarma- og heilaslettur urðu henni um megn. Myndin er sannkallaður „splatter“ og er tilvalin fyrir þá sem vilja tárast af hlátri og hrista hausinn í sífellu yfir vitleysunni sem myndin hefur upp á að bjóða. Þorsti er í raun virkilega ferskt framlag til íslenskrar kvikmynda- gerðar sem hefur varla séð annað eins en erfitt er að horfa framhjá því að þarna er ekki um gæðaefni að ræða. Ferskt framlag í formi B-kvikmyndar Sambíóin Egilshöll og Álfabakka Þorsti bbmnn Leikstjórar: Gaukur Úlfarsson og Stein- þór Hróar Steinþórsson. Leikarar: Hjört- ur Sævar Steinason, Hulda Lind Krist- insdóttir, Birgitta Jeanne Sigursteins- dóttir, Jens Jensson, Ester Svein- bjarnardóttir og Birna Halldórsdóttir. Ísland, 2019. 90 mínútur. RAGNHILDUR ÞRASTARDÓTTIR KVIKMYND Vonleysislegur „Hjörtur gjörsamlega geislar og hlutverkið er eins og hannað fyrir hann, hlutverk samkynhneigðrar, örlítið vonleysislegrar vampíru,“ segir um frammistöðu Hjartar Sævars Steinasonar í Þorsta. BORGARLEIKHÚSIÐ Sex í sveit (Stóra sviðið) Fös 8/11 kl. 20:00 16.sýn Sun 17/11 kl. 20:00 21.sýn Lau 30/11 kl. 20:00 26. s Lau 9/11 kl. 20:00 17.sýn Fös 22/11 kl. 20:00 22.sýn Fös 6/12 kl. 20:00 27. s Sun 10/11 kl. 20:00 18.sýn Lau 23/11 kl. 20:00 23.sýn Lau 7/12 kl. 20:00 28. s Fös 15/11 kl. 20:00 19.sýn Fim 28/11 kl. 20:00 24. s Fim 12/12 kl. 20:00 29. s Lau 16/11 kl. 20:00 20.sýn Fös 29/11 kl. 20:00 25. s Fös 13/12 kl. 20:00 30. s Sprenghlægilegur gamanleikur! Matthildur (Stóra sviðið) Sun 10/11 kl. 13:00 66. s Lau 30/11 kl. 13:00 70. s Lau 14/12 kl. 13:00 74. s Sun 17/11 kl. 13:00 67. s Sun 1/12 kl. 13:00 71. s Sun 15/12 kl. 13:00 75. s Lau 23/11 kl. 13:00 68. s Lau 7/12 kl. 13:00 72. s Sun 24/11 kl. 13:00 69. s Sun 8/12 kl. 13:00 73. s Sýning ársins á Sögum - Verðlaunahátíð barnanna! Stórskáldið (Nýja sviðið) Fös 8/11 kl. 20:00 7.sýn Sun 17/11 kl. 20:00 8.sýn Lau 23/11 kl. 20:00 9. s Spennandi könnunarleiðangur um hinar mörgu hliðar sannleikans. Eitur (Litla sviðið) Fös 8/11 kl. 20:00 4. s Sun 17/11 kl. 20:00 10. s Sun 1/12 kl. 20:00 16. s Lau 9/11 kl. 20:00 5. s Fim 21/11 kl. 20:00 11. s Mið 4/12 kl. 20:00 17. s Sun 10/11 kl. 20:00 6. s Fös 22/11 kl. 20:00 12. s Fim 5/12 kl. 20:00 18. s Fim 14/11 kl. 20:00 7. s Sun 24/11 kl. 20:00 13. s Fös 6/12 kl. 20:00 Fös 15/11 kl. 20:00 8. s Fim 28/11 kl. 20:00 14. s Fim 12/12 kl. 20:00 Lau 16/11 kl. 20:00 9. s Fös 29/11 kl. 20:00 15. s Hvað áttu eftir stærsta missi lífs þíns? Kvenfólk (Nýja sviðið) Lau 9/11 kl. 20:00 52. s Fös 15/11 kl. 20:00 53. s Fös 29/11 kl. 20:00 54. s Síðustu sýningar. Ríkharður III (Stóra sviðið) Mið 13/11 kl. 20:00 21.sýn Mið 20/11 kl. 20:00 23.sýn Fim 14/11 kl. 20:00 22.sýn Fim 21/11 kl. 20:00 lokasýning Sýning ársins snýr aftur í örfá skipti! Club Romantica (Nýja sviðið) Mið 20/11 kl. 20:00 13. s Mið 27/11 kl. 20:00 16. s Lau 28/12 kl. 20:00 19. s Fim 21/11 kl. 20:00 14. s Fim 28/11 kl. 20:00 17. s Sun 24/11 kl. 20:00 15. s Fös 27/12 kl. 20:00 18. s Allra síðustu sýningar. Um tímann og vatnið (Stóra sviðið) Þri 12/11 kl. 20:00 3.sýn Þri 26/11 kl. 20:00 4.sýn Kvöldstund með listamanni. Kvöldvaka með Jóni Gnarr (Litla sviðið) Lau 23/11 kl. 20:00 20. s Lau 30/11 kl. 20:00 21. s Lau 7/12 kl. 20:00 22. s Skjáskot (Nýja sviðið) Þri 19/11 kl. 20:00 1. s Þri 3/12 kl. 20:00 2. s Þri 21/1 kl. 20:00 3. s Kvöldstund með listamanni. Kynntu þér matseðil Leikhúsbarsins á borgarleikhus.is Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið) Lau 9/11 kl. 17:00 ALLRA SÍÐASTA SÝNING Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna! Shakespeare verður ástfanginn (stóra sviðið) Sun 10/11 kl. 19:30 8. sýn Lau 16/11 kl. 19:30 9. sýn Fös 29/11 kl. 19:30 11. sýn Fös 15/11 kl. 19:30 auka Lau 23/11 kl. 19:30 10. sýn Lau 7/12 kl. 19:30 12. sýn Hrífandi og skemmtileg stórsýning fyrir áhorfendur á öllum aldri Stormfuglar (Þjóðleikhúskjallarinn) Sun 17/11 kl. 19:30 5. sýn Fim 21/11 kl. 19:30 6. sýn Fös 22/11 kl. 19:30 7. sýn Hinn rómaði sögumaður Einar Kárason stígur á svið Ör (eða Maðurinn er eina dýrið sem grætur) (Kassinn) Sun 10/11 kl. 19:30 14. sýn Sun 24/11 kl. 19:30 16. sýn Fös 29/11 kl. 19:30 auka Lau 23/11 kl. 19:30 auka Fim 28/11 kl. 19:30 17. sýn Fös 6/12 kl. 19:30 18. sýn Ágengt og tragíkómískt nýtt íslenskt verk sem spyr stórra spurninga Gilitrutt (Brúðuloftið) Lau 9/11 kl. 13:00 Lau 9/11 kl. 15:00 LOKASÝNING Brúðusýning fyrir alla fjölskylduna Atómstöðin (Stóra Sviðið) Fös 8/11 kl. 19:30 3. sýn Fim 14/11 kl. 19:30 5. sýn Lau 30/11 kl. 19:30 7. sýn Mið 13/11 kl. 19:30 4. sýn Fim 21/11 kl. 19:30 6. sýn Sun 8/12 kl. 19:30 8. sýn Nýtt og framsækið leikverk byggt á skáldsögu Nóbelskáldsins Halldórs Laxness Guðmundur Steinsson - Leiklestraveisla (Þjóðleikhúskjallarinn) Sun 10/11 kl. 16:00 Katthóll Leiklestraveisla til heiðurs leikskáldinu Guðmundi Steinssyni í Þjóðleikhúskjall Engillinn (Kassinn) Lau 21/12 kl. 19:30 Frums Lau 28/12 kl. 19:30 3. sýn Fös 27/12 kl. 19:30 2. sýn Sun 12/1 kl. 19:30 4. sýn Leiksýning byggð á textum og myndlist eftir Þorvald Þorsteinsson Leitin að jólunum (Brúðuloftið) Lau 16/11 kl. 11:00 343. sýn Sun 24/11 kl. 13:00 351. sýn Sun 1/12 kl. 14:30 358. sýn Lau 16/11 kl. 13:00 344. sýn Sun 24/11 kl. 14:30 352. sýn Lau 7/12 kl. 11:00 359. sýn Sun 17/11 kl. 11:00 345. sýn Lau 30/11 kl. 11:00 353. sýn Lau 7/12 kl. 13:00 360. sýn Lau 23/11 kl. 11:00 347. sýn Lau 30/11 kl. 13:00 354. sýn Sun 8/12 kl. 11:00 362. sýn Lau 23/11 kl. 13:00 348. sýn Lau 30/11 kl. 14:30 355. sýn Sun 8/12 kl. 13:00 363. sýn Lau 23/11 kl. 14:30 349. sýn Sun 1/12 kl. 11:00 356. sýn Sun 24/11 kl. 11:00 350. sýn Sun 1/12 kl. 13:00 357. sýn Tveir skrýtnir og skemmtilegir náungar taka á móti litlum leikhúsgestum í anddyr leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.