Morgunblaðið - 09.11.2019, Side 8

Morgunblaðið - 09.11.2019, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2019 Í þeirri niðursveiflu sem Íslend-ingar upplifðu fyrir um áratug greip vinstristjórnin til þess vafa- sama ráðs að hækka skatta stór- kostlega. Um þetta og fleira tengt efnahagsmálum síðasta áratugar var á dögunum fjallað í fróðlegri grein Ásdísar Kristjánsdóttur, forstöðumanns efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins, í blaðinu Framúrskarandi fyrirtæki sem gefið var út í tengslum við Við- skiptamoggann.    Þar segir Ásdís, sem orðarhlutina varlega, að í síðustu niðursveiflu hafi of mikil áhersla verið lögð á aukna skattheimtu en of lítil á hagræðingu hjá hinu opinbera. „Fyrir vikið er skatt- heimta í dag mun meiri en fyrir 10 árum. Tryggingagjaldið, tekju- skattur fyrirtækja og ein- staklinga, veiðigjaldið og fjár- magnstekjuskattur eru allt dæmi um skatta sem eru hærri í dag en undir lok síðustu uppsveiflu. Þá eru skattar eins og bankaskattur, sérstakur og almennur fjársýslu- skattur, gistináttaskattur og kol- efnisgjald dæmi um nýja skatta. Á árinu 2019 er áætlað að árlegar tekjur ríkissjóðs af nýjum skött- um og skattahækkunum verði ríf- lega 115 milljarðar króna. Sam- svarar það um 15% af heildarskatttekjum ríkisins. Þrátt fyrir að boðaðar séu skattalækk- anir á árunum 2020-2021 þá munu heimili og fyrirtæki enn greiða 97 milljarða króna vegna skatthækkana síðustu 10 ára.“    Ásdís bendir líka á að Ísland sémeð eina mestu skattheimtu meðal þróaðra ríkja. Það hlýtur að vera óhætt að vinda aðeins meira ofan af vinstri sköttunum. Ásdís Kristjánsdóttir 115 milljarðar vegna nýrra skatta STAKSTEINAR Miðflokkurinn heldur fjórða flokks- ráðsfund sinn í dag í Reykjanesbæ. Flokksráðið kemur að jafnaði sam- an tvisvar á ári en núna stefnir í metfjölda á þessum haustfundi flokksins að sögn Hólmfríðar Þóris- dóttur, aðstoðarmanns þingmanna Miðflokksins, þar sem öllum fé- lögum í Miðflokknum er að þessu sinni heimilt að sækja fundinn auk fulltrúa sem eiga sæti í flokks- ráðinu. Um 70 manns sitja í flokks- ráðinu og þar eiga sæti helstu trún- aðarmenn flokksins, en rúmlega 100 manns hafa tilkynnt þátttöku í fundinum að sögn Hólmfríðar. Ræðu Sigmundar streymt Fundur flokksráðsins, sem hald- inn er á Park Inn Radisson hótelinu við Hafnargötu í Reykjanesbæ, hefst klukkan 13 með ræðu Sig- mundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns flokksins. Verður ræðu Sigmundar Davíðs streymt á Face- book-síðu Miðflokksins að sögn Hólmfríðar. Fundinum verður því næst lokað eftir ræðu formanns fyrir öðrum en fundargestum. Á dagskrá fundarins er meðal annars gert ráð fyrir stjórnmála- umræðum og afgreiðslu stjórnmála- ályktunar. omfr@mbl.is Stefnir í metfjölda á fundi flokksráðs  Haustfundur flokksráðs Miðflokksins verður haldinn í Reykjanesbæ í dag Morgunblaðið/Hari Alþingi Miðflokksþingmenn funda. Rökræðukönnun um endurskoðun stjórnarskrárinnar verður haldin í Laugardalshöll um helgina, laug- ardag og sunnudag, með þátttöku 300 manna hóps víðsvegar af land- inu. Könnunin er hluti af almennings- samráði um endurskoðun stjórnar- skrárinnar og mun taka fyrir nokkur afmörkuð atriði. Þau eru meðal annars ákvæði um embætti forseta Íslands, þjóðar- atkvæðagreiðslur og þjóðarfrum- kvæði, Landsdóm, breytingar á stjórnarskrá, kjördæmaskiptingu og atkvæðavægi og alþjóðasamstarf. Þátttakendur í rökræðukönnun- inni voru valdir úr hópi þeirra sem svöruðu viðhorfskönnun um stjórn- arskrána sem var gerð síðastliðið sumar og byggðist á slembiúrtaki og netpanel Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands. Kanna breytingar á viðhorfum fólks eftir umræður Rökræðukönnunin fer þannig fram að þátttakendum verður skipt í hópa sem ræða viðfangsefnin út frá rökum með og á móti ýmsum til- lögum undir stjórn umræðustjóra. Að loknum umræðum um hvert efni gefst þátttakendum færi á samtali við sérfræðinga í pallborðs- umræðum. Viðhorfskönnun fer fram í upphafi fundar og einnig í lok hans og þannig er kannað hvort breytingar verði á viðhorfum fólks við að taka þátt í nánari skoðun, rýni og umræðum um viðfangsefnin. Félagsvísindastofnun annast rök- ræðukönnunina í samstarfi við Önd- vegisverkefni um lýðræðislega stjórnarskrárgerð og Center for Deliberative Democracy við Stan- ford-háskóla. Rökræða endurskoð- un stjórnarskrárinnar  Þátttakendum skipt í hópa sem ræða um ákveðin málefni Morgunblaðið/Kristinn Stjórnarskrá Frá þjóðfundi í Laugardalshöll 6. nóvember 2010. HRAFNHILDUR INGA SIGURÐARDÓTTIR Listamannaspjall laugardag kl. 15 987,9 hektóPasköl Rau›arárstígur 12–14, sími 551 0400 · www.gallerifold.is SÍÐASTA SÝNINGARHELGI SÝNINGU LÝKUR 9. NÓVEMBER Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.