Morgunblaðið - 09.11.2019, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 09.11.2019, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2019 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Mér finnst mjög áhuga-vert að kynnast fólkiúr öðrum starfs-stéttum og eiga við það samneyti. Rótarý heldur reglulega fundi með fróðlegum erindum og skemmtilegri samveru og er að mér finnst einkar gefandi. Þetta félags- starf hefur gefið mér mikið,“ segir Anna Stefánsdóttir hjúkrunarfræð- ingur, sem nýlega tók við embætti umdæmisstjóra Rótarý- hreyfingarinnar á Íslandi. Verkefni um veröld víða Um 1.200 manns eru í dag inn- an vébanda Rótarýklúbba víða um land, en þátttakan byggist á því að þar séu fulltrúar sem flestra starfs- greina sem miðli af reynslu sinni og þekkingu. Á vikulegum fundum eru flutt erindi um ýmis efni af áhrifa- fólki úr viðskiptalífinu, opinberum stofnunum, skólum, stjórnmálum og svo mætti áfram telja. Þá taka Rótarýfélagar einnig til máls á fundum og segja frá áhugaverðum málum. Hinn þátturinn í starfi Rót- arý er mannúðarmál almennt; verk- efni í samfélaginu og um veröld víða sem hreyfingin á heimsvísu sem er með 1,2 milljónir félaga í sínum röð- um styrkir. „Ég hef lengi haft áhuga á mannúðarmálum og starfað innan samtaka sem hafa það markmið að bæta lífsskilyrði fólks,“ segir Anna Stefánsdóttir, sem starfaði á Land- spítalanum í áratugi og var lengi framkvæmdastjóri hjúkrunar þar. „Kjörorð Rótarýhreyfingar- innar eru Þjónusta ofar eigin hag sem er við hæfi hjá einum stærstu mannúðarsamtökum heims. Meðal verkefna þar má nefna forvarnir og baráttu gegn sjúkdómum, mæðra- vernd og forvarnir gegn ungbarna- dauða. Þá vinnur Rótarý við að stuðla að friði í heiminum með þjálf- un og menntun í friðarfræðum. Hreyfingin á og rekur einn stærsta friðarsjóð heims og styrkir árlega 100 manns til meistaranáms í fræð- um er lúta að friðarstarfi.“ Umdæmisstjóri Rótarý í hverju landi er fulltrúi og tals- maður alþjóðaforseta Rotary Int- ernational og kynnir og fylgir áherslum alþjóðaforseta eftir. Um- dæmisstjóri stýrir umdæmisráði og mótar ásamt því stefnu Rótarý á Ís- landi, heimsækir klúbbana og ræðir mál og stóru myndina. Áherslur eru annars lagðar á umdæmisþingum sem eru eins konar aðalfundir, en það er síðan umdæmisstjórans að sjá til þess að samþykktum sé fram- fylgt. Á umdæmisþingi Rótarý á Ís- landi nú í haust voru loftslagsmál ofarlega á baugi. Anna Stefáns- dóttir segir þetta í samræmi við tíð- arandann; umhverfismál verði að vera í öndvegi ætli hreyfingin að vera trúverðug í sínum mikilvægu mannúðarverkefnum á 21. öld. „Áhrifa loftslagsbreytinga gætir í auknum mæli víða í heiminum. Flóð, hvirfilbylir og gróðureldar ógna lífsviðurværi fólks eins og við sjáum í fréttum nánast daglega. Við vitum að áhrifa loftslagsbreytinga er farið að gæta hér á landi. Al- þjóðaforsetar Rótarý leggja í ríkari mæli áherslu á að umhverfismál falla vel að megináherslum okkar,“ segir Anna og heldur áfram: Framlagið skiptir sköpum „Við sjáum líka að mjög munar um framlag frjálsra félagasamtaka í brýnum viðfangsefnum samtímans. Baráttan gegn lömunarveiki hefur lengi verið áherslumál Rotarý og árangur þar er stórkostlegur. Það er nánast búið að útrýma lömunar- veiki í heiminum. Ár hvert eru um 400 milljón börn bólusett við löm- unarveiki. Búið er að útrýma tveim af þremur lömunarveikiveirunum. En lokatakmarkinu er ekki náð því enn greinast börn í Pakistan og Afganistan með veikina. Framlag Rótarý til velferðarmála skiptir sköpum í mörgum löndum, ekki síst þar sem mikil fátækt ríkir. Ég get nefnt dæmi eins og áveitukerfi til ræktunar og viðurværis búfénaðar vatnsbrunnar til að fá hreint vatn, sem skiptir einmitt miklu í barátt- unni við lömunarveikina.“ Fróðlegt og skemmtilegt Anna Stefánsdóttir er umdæmisstóri Rótarý á Ís- landi. Hún starfar í Rótarýklúbbnum Borgum í Kópavogi og segir þátttöku í starfinu hafa gefið sér mikið. Það sé áhugavert að hlusta á fróðleg erindi og samveran sé skemmtileg. Mannúðar- starf hreyfingarinnar víða um heiminn sé sömu- leiðis starf sem skilað hafi miklu. Umdæmisstjóri Mjög munar um framlag frjálsra félagasamtaka í viðfangsefnum samtímans, segir Anna. Umhverfi Rótarýfélagar í Borgum taka til hendi á Borgarholti í Kópavogi. Anna Stefánsdóttir, sem er félagi í Rótarýklúbbnum Borgum í Kópavogi tók við embætti umdæmisstjóra í júlíbyrjun á þessu ári. Áður var um- dæmisstjóri Garðar Eiríksson á Selfossi, það er frá 1. júlí 2018 til 30. júní – en við þær dagsetningar miðast starfsár Rótarý. „Við eigum að vera opnari um starfið okkar og um þau samfélagsverk- efni sem klúbbarnir sinn. Segja frá því til dæmis á samfélagsmiðlum í máli og myndum,“ segir Anna Stefánsdóttir. „Ég hef líka hvatt félaga okkar til að ræða um starfið á sínum vinnustöðum, meðal vina sinna og fjölskyldu. Gera að umtalsefni skemmtileg og fræðandi erindi á fundum okkar og bjóða til þátttöku í fundum og í starfinu almennt. Almenningur veit lítið um Rótarý, hvað við gerum og fyrir hvað við stöndum. Ég vil breyta því.“ Rótarý veitir á hverju ári veglega styrki til ungra tónlistarmanna og viðkenningar til skólafólks fyrir góða frammistöðu á ýmsum sviðum. Sömuleiðis hafa Rótarýklúbbar unnið að skógrækt um árabil víða um land í lundum sem dafna vel. Segja frá samfélagsverkefnum STARF RÓTARÝKLÚBBANNA VERÐI OPNARA EN NÚ ER Jólakaffi Hollvina Grensásdeildar verður í Bústaða- kirkju í dag, laugardaginn 9. nóvember, kl. 13- 17. Basarinn hefur verið vinsæl leið til að styðja við Grensásdeild og fjöldi fólks hefur jafnan komið og skoðað úrvalið. Allur ágóði rennur til Grensásdeildar, fyrst og fremst til kaupa á búnaði til meðferðar og til bættrar aðstöðu. Styrkir Grensás Jólakaffi Hollvina Efnt verður til dag- skrár í Hofi á Akur- eyri á morgun, 10. nóvember, kl. 15 í tilefni af 100 ára útgáfuafmæli fyrstu ljóðabókar Davíðs Stefáns- sonar, Svartar fjaðrir. Fáar íslenskar ljóðabækur hafa vakið aðra eins at- hygli og aðdáun og Svartar fjaðrir, enda hefur bókin oft verið endur- útgefin. Í Hofi býður María Pálsdótttir leikkona Guðmundi Andra Thorssyni, Pétri Halldórssyni og Valgerði Bjarna- dóttur til stofu til að ræða skáldið Davíð og verk hans. Davíðshátíð Davíð Stefánsson Svartar fjaðrir í Hofi Hamraborg 12 200 Kópavogur 416 0500 www.eignaborg.is Fallegar og bjartar íbúðir, flestar með góðu útsýni, í fjölbýlishúsi við rólega götu í Urriðaholti. Íbúðirnar eru þriggja, fjögurra og fimm herbergja. Íbúðunum verður skilað tilbúnum án gólfefna. Öllum íbúðum fylgir kæli-/frystiskápur, eldavél og uppþvottavél frá Siemens. Afhending við kaupsamning. Lyfta. Flestum íbúðum fylgir stæði í bíla- geymslu og er gert ráð fyrir rafhleðslu við hvert stæði. Sameiginleg stæði ofan á bílageymsluhúsi. Sameign og lóð skilast fullfrágengin. ÁRANGUR Í SÖLU FASTEIGNA BREKKUGATA 1-3, 210 Garðabæ Opið hús sunnudaginn 10. nóv. kl. 14-15 Verð frá 52,9 m. Stærðir frá 109 m2 Upplýsingar eru veittar á Eignaborg sími 416 0500 eða í farsíma sölumanna. Óskar Bergsson fasteignasali s. 893 2499 Hildur Harðardóttir lögfr. og lgfs. s. 897 1339 Elín G. Alfreðsdóttir nemi til lögg. s. 899 3090 Sveinbjörn Sveinbjörnsson lögmaður s. 892 2804 Rakel Árnadóttir fasteignasali s. 895 8497 Vilhjálmur Einarsson fasteignasali s. 864 1190 Hugrún geðfræðslufélag og samtökin Ungir umhverfissinnar standa næst- komandi þriðjudagskvöld, 12. nóvem- ber, kl. 19.30 fyrir málþinginu Andleg heilsa á tímum loftslagsbreytinga. Tilgangurinn er að fjalla um loftslags- kvíða og hvað sé hægt að gera við honum. Þá verður einnig fjallað um tengsl umhverfismála og geðheilsu. „Þegar við hugsum um loftslags- breytingar þá er geðheilsa líklega ekki það fyrsta sem kemur upp í hug- ann. Við könnumst flest við slæm áhrif loftslagsbreytinga á tíðni skógarelda og fellibylja, hækkun sjávarmáls, bráðnun jökla, lífríki í sjó og á landi og útrýmingu dýrategunda. Ljóst er þó að loftslagsbreytingar hafa líka mikil áhrif á geðheilsu. Loftslagsbreytingar liggja svo þungt á mörgum að hugtakið loftslagskvíði, sem þekktist ekki fyrir nokkrum ár- um, er nú sífellt meira notað til að lýsa þeim áhyggjum og erfiðu tilfinn- ingum sem því fylgja.“ Geð og umhverfi Loftslagsbreytingar Morgunblaðið/Hari Verkfall Aðgerðaleysi í loftslags- málum mótmælt í Reykjavík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.