Morgunblaðið - 09.11.2019, Side 13

Morgunblaðið - 09.11.2019, Side 13
DAGLEGT LÍF 13 HARPA – NOR FIMMTUDAGIN KL. 12.30-15.3 12.30 Opnun Flutningalandsins Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins 12.40 Framtíðin Gunnar Már Sigurfinnsson, framkvæmdastjóri Icelandair Cargo Vilhelm Þorsteinsson, forstjóri Eimskip Lilja Karlsdóttir, samgönguverkfræðingur og verkefnastjóri Borgarlínunnar 13.20 Frumkvöðlamínútur Krít, Almar Guðmundsson Optitog, Halla Jónsdóttir Magnea bátar, Bjarni Hjartarson Greenvolt, Bala Kamallakharan Tracio, Stefán Jones Mínútustjóri er Berta Daníelsdóttir, framkvæmdastjóri Sjávarklasans 13.50 Hlutverk atvinnulífsins í uppbyggingu innviða Ásta S. Fjeldsted, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands 14.05 Kaffihlé 14.30 Umræður Verður Ísland samkeppnishæft í flutningum árið 2050? Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Samgöngustofu Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia 15.00 Lokaorð: Samgöngur og framtíðin Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra 15.30 Dagskrárlok Ráðstefnustjóri er Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis DAGSKRÁ Vinsamlegast skráið þátttöku á www.sa.is Íslenski sjávarklasinn, Samtök atvinnulífsins og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið efna til ráðstefnunnar Flutningalandið Ísland í Hörpu fimmtudaginn 14. nóvember kl. 12.30-15.30. Boðið er upp á fjölbreytta og áhugaverða dagskrá þar sem m.a. verður horft til tækifæra og ógnana framundan í þessari mikilvægu atvinnugrein fyrir Íslendinga. FLUTNINGALANDIÐ ÍSLAND Margt spennandi býðst í Vest- mannaeyjum nú um helgina á Safna- helgi sem þar er nú efnt til og nær dagskráin raunar til næstu helgar líka. Dagskráin í ár er unnin í samráði við nefnd sem staðið hefur að ýms- um viðburðum í tilefni af 100 ára kaupstaðarafmæli Vestmannaeyja- bæjar og því er meira lagt undir nú en áður. Má þar meðal annars nefna að í dag, laugardag, verður Lúðrasveit Vestmannaeyja með hátíðartónleika í Hvítasunnukirkjunni í tilefni af 80 ára afmælis sveitarinnar. Einnig er þessa dagana efnt til ýmissa fróð- legra fyrirlestra um sögu og mannlíf í Eyjum. Á sunnudag um næstu helgi opnar Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri sýningu á munum Náttúrugripa- safnsins við Heiðarveg. Safnahelgi í Eyjum Tveggja helga hátíðardagskrá Eyjar Menning í verstöðinni miklu. Markaðsstofa Norðurlands veitti þrjár við- urkenningar á uppskeruhátíð ferðaþjónust- unnar í lands- hlutanum sem haldin var á dög- unum. Sjóböðin GeoSea á Húsavík voru sproti ársins, fyrirtækin Ekta- fiskur og Hvalaskoðun á Hauganesi fengu sameiginlega viðurkenningu sem fyrirtæki ársins og Skagfirðing- urinn Evelyn Ýr Kuhne hlaut viður- kenningu fyrir störf í þágu ferða- þjónustu. Á Lýtingsstöðum, sem eru í fram- dölum Skagafjarðar, hefur Evelyn, ásamt fjölskyldu sinni, byggt fyrir- tækið sitt upp í 20 ár og stöðugt unnið að því að auka þjónustuna við ferðamenn. Hestaferðir og hestasýn- ingar eru hennar aðalsmerki en einn- ig er boðið upp á gistingu og skoð- unarferðir með leiðsögn um torfhesthúsið sem byggt var upp fyr- ir örfáum árum. Þetta hefur mælst vel fyrir og starfsemin er í sókn. Viðurkenningar nyrðra Góðir sprotar Evelyn Ýr Kuhne Búið er að selja um 75% sýning- arsvæðis á stór- sýningunni Verk og vit sem hald- in verður dagana 12.-15. mars næstkomandi í Laugardalshöll. Í fréttatilkynningu segir, haft eftir Elsu Giljan Krist- jánsdóttur sýningarstjóra, að Verk og vit sé vettvangur fyrir alla sem starfa í byggingargeiranum að hitt- ast og styrkja viðskiptasamböndin og afla nýrra, kynna vörur og þjón- ustu og ræða mál. Aðsóknarmet var slegið á síðustu sýningu Verks og vits árið 2018 en þá komu 25.000 gestir á sýninguna þar sem um 110 sýnendur tóku þátt. Þorri þeirra var ánægður með útkomuna, flestir mynduðu viðskiptatengsl og náðu markmiðum sínum með þátt- tökunni. Verk og vit Stefnir í stóra sýningu í mars Byggingarkrana ber við himin. Upplýsingatækni og nýjar áherslur í skólamálum eru í brennidepli á UTÍS-ráðstefnunni sem haldin er í Árskóla á Sauðárkróki um helgina. Upptakt- urinn var sleginn sl. fimmtudag í skólanum með svonefndum UT-starfsdegi allra grunnskólanna í Skagafirði, með endurmenntunardagskrá fyrir starfsmenn. Ingvi Hrannar Ómarsson er höfundur að UTÍS- ráðstefnunni sem haldin er árlega á Sauðárkróki. Vegna ráðstefnunnar koma hingað til lands alls átta erlendir sérfræðingar í tækni- og skóla- málum og stýra vinnustofum fyrir starfsfólk skól- anna á endurmenntunardegi þeirra á morgun. Einnig eru haldnar svonefndar menntabúðir þar sem starfsfólk grunn- og framhaldsskóla deilir reynslu af áhugaverðum og fjölbreyttum verk- efnum sem unnin eru í skólunum. Dagurinn endar á spennandi örkynningum um ýmis smáforrit og verkfæri sem nýtt eru í skólastarfi. Alls taka um 150 manns þátt í ráðstefnunni og var mikill áhugi meðal fólks á því að taka þátt í þessum viðburði sem hefur vakið athygli víða meðal skólafólks. „Upplýsingatækni skapar mikla möguleika í skólastarfi og framþróunin er hröð um þessar mundir,“ segir Ingvi Hrannar. „Við verðum samt að muna eftir mennskunni og samskiptum við fólk í skólastarfi og það efni hefur einmitt verið mjög til umræðu á ráðstefnunnii núna. Skapandi hugsun og það að segja sögur er nokkuð sem mannfólkið hefur fram yfir tölvurnar. Hingað á ráðstefnuna er margt af helsta skólafólkinu mætt og því hef ég sagt að þessi viðburður hér sé eins konar landsliðsæfing í skólastarfi,“ bætir Ingvi Hrannar við. Nýjungar upplýsingatækninnar í skólamálum eru í brennidepli Landsliðsæfing í skólastarfi á Króknum Ljósmynd/Óli Arnar Skólar Ingvi Hrannar leiðbeindi kennurum á UT-starfsdegi grunnskólanna í Skagafirði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.