Morgunblaðið - 09.11.2019, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2019
Við erum til staðar þegar þú
þarft á okkur að halda
551 1266
Skipulag útfarar
Dánarbússkipti
Kaupmálar
Erfðaskrár
Reiknivélar
Minn hinsti vilji
Fróðleikur
Sjá nánar á
www.utfor.is
Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | utfor.is
Önnumst alla þætti útfararinnar
með virðingu og umhyggju að leiðarljósi
Reynslumikið fagfólk
Elín Sigrún Jónsdóttir
Framkvæmdastjóri
Jón G. Bjarnason
Útfararþjónusta
Ellert Ingason
Útfararþjónusta
Helga Guðmundsdóttir
Útfararþjónusta
Lára Árnadóttir
Útfararþjónusta
Katla Þorsteinsdóttir
Lögfræðiþjónusta
Guðmundur Baldvinsson
Útfararþjónusta
Sigurður Bjarni Jónsson
Útfararþjónusta
Magnús Sævar
Magnússon
Útfararþjónusta
Emilía Jónsdóttir
Félagsráðgjafi
Sigrún Óskarsdóttir
Guðfræðingur
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
utfor.is
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Í fjárhagsáætlun Faxaflóahafna sf.
fyrir árið 2020 er gert ráð fyrir 100
milljóna króna framlagi til að
mögulegt verði að tengja skip í
Sundahöfn raforkukerfinu í landi.
Gert er ráð fyrir 50 milljónum í
háspennubúnað við Sundabakka
(Eimskip) og 50 m.kr. í háspennu-
búnað við Vogabakka (Samskip) í
fjárhagsáætluninni. Þar kemur
fram að allmikið magn upplýsinga
liggi nú fyrir um möguleika á há-
spennutengingum fyrir stærri skip
og raunhæft að ætla að unnt sé að
setja upp búnað fyrir flutningaskip
Eimskips og Samskipa.
Samstarf við skipafélögin
Ef háspennutengingar við
Sundabakka og Vogabakka væru
fyrstu skrefin í þessari þróun
þyrfti að liggja fyrir vilji skipa-
félaganna að útbúa skip sín þannig
að þau gætu tekið við tengingum.
Enn fremur þurfi að liggja fyrir
með hvaða hætti Veitur myndu
koma að þessu verkefni. Á grund-
velli samstarfs framangreindra að-
ila mætti sækja um framlag úr
Loftslagssjóði.
„Nú er að fara af stað vinna
starfshóps borgar, Faxaflóahafna
sf. og Veitna um hvernig megi taka
fyrstu skrefin í háspennutenging-
um og á grundvelli niðurstöðu þess
hóps ætti að vera unnt að koma
verkefninu af stað. Framhald máls-
ins ræðst hins vegar af samstarfi
og samkomulagi aðila. Með til-
greindum fjármunum lýsa Faxa-
flóahafnir sf. yfir vilja sínum til að
af verkefninu verði,“ segir í fjár-
hagsáætluninni.
Tíu stærstu hafnirnar á Norður-
löndum, að Faxaflóahöfnum sf. og
Þórshöfn í Færeyjum meðtöldum,
hafa undirritað yfirlýsingu um
samstarf og samvinnu á sviði um-
hverfismála og þar með talið lofts-
lagsmála. Þetta kemur fram í frétt
á heimasíðu Faxaflóahafna.
Markmið samkomulagsins er að
hafnirnar leggi sitt af mörkum í
samræmi við Parísarsamninginn.
Einn mikilvægur þáttur sé há-
spennutengingar stærri skipa til að
draga úr útblæstri skipa sem liggja
í höfn.
Umhverfismál á hafnarsvæðum
snerta fjölmarga þætti svo sem út-
blástur skipa, móttöku á sorpi,
gæði sjávar og ástand setlaga á
sjávarbotni. Með formlegu og
auknu samstarfi stærstu hafna á
Norðurlöndum er markmiðið að ná
enn frekari árangri á þessu sviði,
segir í fréttinni.
Setja 100 milljónir til
landtengingar skipa
Tíu stærstu hafnirnar á Norðurlöndum taka upp samstarf
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sundahöfn Dettifoss í höfninni. Landtengingar skipa verða teknar upp.
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Áhersla Íslandsstofu á sjálfbærni
vakti mikla athygli á World Travel
Market, WTM, í Lundúnum fyrr í
vikunni, en WTM er ein stærsta
ferðasýning í heimi.
María Björk Gunnarsóttir, verk-
efnastjóri hjá Íslandsstofu á sviði
áfangastaðarins, segir í samtali við
Morgunblaðið að gestir hafi haft orð
á því að Ísland væri eini áfangastað-
urinn sem gerði út á sjálfbærni með
svo sýnilegum hætti á sýningunni.
Sjálfbærni er meginþemað í fram-
tíðarstefnu Íslandsstofu fyrir ís-
lenskan útflutning, eins og fram kom
í viðtali ViðskiptaMoggans við Pétur
Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóra
Íslandsstofu, á dögunum. „Á básn-
um okkar vorum við með stóra vegg-
mynd af íslensku heitunum fyrir
ferðamenn (e. The Icelandic
Pledge), sem snýst um að fá fólk til
að velta fyrir sér ábyrgri ferða-
mennsku. Margir komu og tóku ljós-
myndir af veggmyndinni, og ferða-
þjónustuaðilar frá öðrum löndum
sóttu innblástur í heitin og vildu
gera það sama á eigin áfangastöð-
um.“
Vel nýtt fundaaðstaða
María segir að mikið líf og fjör
hafi verið á básnum dagana sem sýn-
ingin stóð yfir, 4.-6. nóvember. „Við
hjá Íslandsstofu skipuleggjum alltaf
sérstakan Íslandsbás og bjóðum fyr-
irtækjum að taka þátt með okkur.
Þarna er fundaaðstaða sem fyrir-
tækin nýta vel. Allt í allt voru
fulltrúar frá 17 íslenskum ferðaþjón-
ustuaðilum mættir með okkur á sýn-
inguna, ásamt markaðsskrifstofu
Norðurlands.“
Að sögn Maríu verða næstu ferða-
sýningar á Spáni og í Hollandi í jan-
úar, og svo koll af kolli. „Þá fer bolt-
inn að rúlla aftur eftir hátíðirnar.“
Ferðir Mikið líf og fjör var á íslenska básnum á World Travel Market í
Lundúnum í vikunni þar sem íslenskir aðilar kynntu þ jónustu sína.
17 ferðaþjónustuaðilar kynntu vörur
og þjónustu á World Travel Market
Áhersla á sjálfbærni