Morgunblaðið - 09.11.2019, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2019
Vínlandsleið 16
Grafarholti
urdarapotek.is
Sími 577 1770
Opið virka daga kl. 09.00-18.30
og laugardaga kl. 12.00-16.00
Verið velkomin í Urðarapótek
Okkar metnaður er að veita ávallt faglega
og góða þjónustu. Næg bílastæði og gott aðgengi.
Einn gripurinn sem Ármann
nefndi fannst í yfirborðslagi við
framkvæmdarannsókn í Hafnar-
stræti í Reykjavík árið 2001.
Hann segir að þessi gripur end-
urspegli nýlegar áherslur í forn-
leifafræðinni, það er að hlutir
þurfi ekki að vera mjög gamlir
til að vera merkilegir.
„Þetta er brjóstahaldari í
upphaflegum umbúðum. Hugs-
anlega er hann ekki orðinn forn-
gripur í lagalegum skilningi,
ekki orðinn 100 ára. Fornleifa-
fræðinni, sem er fyrst og fremst
fræðigrein efnismenningar, er
eiginlega sama um það. Á um-
búðunum stendur Charmlift og
„brassieres“ sem þykir benda
til þess að hann sé ekki yngri en
frá 1930, mögulega frá 1915-
1920. Eftir 1930 varð algengara
að stytta heiti þessa plaggs í
„bra“,“ sagði Ármann.
Brjóstahöld
grafin upp í
Hafnarstræti
FORNLEIFAR
Brjóstahaldari Ungar fornminjar.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Þjóðminjasafnið varðveitir nú um
200.000 forngripi sem fundist hafa í
jörðu. Langflestir hafa komið úr
fornleifarannsóknum en nokkrir frá
almenningi sem hefur fundið grip-
ina á víðavangi eða við fram-
kvæmdir. Lík-
lega mun aðeins
lítið brot nokkru
sinni rata á sýn-
ingar.
Ármann Guð-
mundsson, forn-
leifafræðingur
hjá Þjóðminja-
safni Íslands,
hélt nýlega
erindi um gripi
sem safninu hafa borist síðustu
misserin og kynnti sérstaklega tíu
þeirra. Hann segir að á árunum
2017 til 2019 hafi verið skráðir um
90 gripir frá almenningi en 27.486
gripanúmer úr leyfisskyldum forn-
leifarannsóknum. Undir hverju
númeri geta verið margir gripir.
En hver af gripunum tíu er athygl-
isverðastur að mati Ármanns?
„Það er erfitt að gera upp á milli
barnanna sinna,“ segir Ármann.
„Mér þykir þetta allt mjög spenn-
andi en þessir tíu gripir sýna að
forngripir geta verið alls konar.
Fyrst og fremst eru þetta venjuleg-
ir gripir sem venjulegt fólk átti.“
Ármann nefnir stein með gati í
miðjunni sem fyrst var haldið að
væri kvarnarsteinn. Hann fannst
við framkvæmdir hjá Svöðufossi í
Snæfellsbæ. Finnandi kom stein-
inum til minjavarðar Vesturlands
sem sendi hann til Þjóðminjasafns-
ins. Síðar var talið að þetta gæti
hafa verið einhvers konar sleggja
eða jafnvel stjóri, það er ankeri á
legufæri. Ármann segir að túlkanir
á forngripum geti verið snúnar og
umræddur gripur sé ágætt dæmi
um það.
Hann segir að fólk þurfi að hafa í
huga að hlutir sem finnast geti ver-
ið merkilegir og mikilvægt sé að
hafa samband við Minjastofnun eða
Þjóðminjasafnið þegar fólk telur
sig hafa fundið forngrip. Ármann
nefnir til dæmis grip sem fannst á
Bergálfsstöðum í Þjórsárdal. Hann
er úr koparblöndu og var fyrst talið
að þetta gæti verið döggskór, það
er hlíf fremst á sverðsslíðri. Við
nánari skoðun var það talið ólíklegt
en gripurinn var líklega sproti á
belti.
Ármann nefnir annan grip sem
honum þykir athyglisverður. Sá
fannst í Vatnskoti í Skagafirði í
fornleifarannsókn sem John Stein-
berg, fornleifafræðingur við Fiske
Center í Boston, stjórnar. Verk-
efnið er samstarfverkefni Fiske og
Byggðasafns Skagafirðinga. Um er
að ræða pinna úr tönn eða beini
sem hefur verið notaður til að festa
saman klæði. Hann er skreyttur
með haus af úlfi eða dreka. Ár-
mann segir að þessi gripur sé
örugglega eldri en frá 980. „Stíl-
brigðin gera hann skemmtilegan.
Pinninn á sér fáar hliðstæður hér á
landi nema hugsanlega í öðrum
grip sem líkist þessum og fannst í
Sveigakoti í Mývatnssveit,“ segir
Ármann.
Venjulegir gripir venjulegs fólks
Þjóðminjasafnið varðveitir um 200.000 forngripi sem fundust í jörðu Forn-
gripir geta verið alls konar Mikilvægt að fólk hafi vakandi auga fyrir gripum
Ljósmynd/Fiske Center
Forngripur Þessi pinni, sem festi saman klæði, er talinn eldri en frá 980 og á sér fáar hliðstæður hér á landi.
Ármann
Guðmundsson