Morgunblaðið - 09.11.2019, Side 20

Morgunblaðið - 09.11.2019, Side 20
ÚR BÆJARLÍFINU Sigmundur Sigurgeirsson Selfossi Þessa dagana er verið að reisa nýtt húsnæði undir starfsemi Golf- klúbbs Selfoss. Um er að ræða 437 fermetra límtréshús sem hýsa mun vélageymsluog áhaldahús, sem og æfingaaðstöðu fyrir klúbbfélaga. Kemur nýbyggingin í stað bráða- birgðahúsnæðis sem reist var árið 1990. Fyrirtækið Jökulverk ehf. sér um bygginguna en félagsmenn hafa jafnframt verið duglegir við að að- stoða við hana, að sögn Hlyns Hjartarsonar, framkvæmdastjóra GOS. Hann segir nýtt hús breyta miklu fyrir starf klúbbsins, einkan- lega verði mikill munur fyrir starfs- fólkið, og þjálfunaraðstaða batnar einnig til muna að sögn Hlyns. Klúbburinn er í miklum fram- kvæmdahug, en á sama tíma er ver- ið að stækka völlinn í 18 holur. Framkvæmdastjórinn er bjartsýnn og segir að starfsemi hefjist í hús- inu fyrir jól.    Fyrstu húsin í nýjum miðbæ á Selfossi eru nú risin og vinna við uppsetningu næstu húsa jafnframt hafin. Húsin sem risin eru og blasa við þeim sem koma austur yfir Ölf- usárbrúna eru eftirmynd Sigtúns, fyrsta verslunarhúss á Selfossi, sem varð síðar verslun Kaupfélags Ár- nesinga. Í því húsi verður veitinga- staður með austurlensku ívafi. Það stendur við hlið ráðhúss Árborgar. Hitt húsið er Braunshúsið, sem reist var 1915 við Hafnarstrætið á Akureyri. Þar er ætlunin að verði bakarí á jarðhæð og íbúðir á hæð- unum fyrir ofan. Næsta bygging sem rís verður að líkindum gamla mjólkurbúið á Selfossi, sem er tals- vert stór bygging og mun m.a. hýsa skyrsafn, bókaverslun og kaffihús. Þá er byrjað að slá upp fyrir fjórum öðrum húsum sem eru endurgerð þekktra bygginga; Fjalakattarins, Egilssonarhússins í Hafnarfirði, Reykjavíkurapóteksins og Smjör- hússins í Hafnarstræti í Reykjavík.    Framkvæmdir hefjast fljót- lega við nýjan leikskóla í Lönd- unum svokölluðu, nýlegri byggð sem risin er suðaustast á Selfossi. Í vikunni voru opnuð tilboð í jarð- vinnu fyrir bygginguna og var það fyrirtækið Aðalleið ehf. í Hvera- gerði sem átti lægsta tilboðið, tæp- ar 25 milljónir króna, sem er 71 prósent af því sem kostnaðaráætlun bæjarins hljóðaði upp á. Tólf aðilar buðu í verkið og aðeins tveir þeirra yfir áætluninni. Í verkinu felst að grafa fyrir leikskólanum, fylla undir sökkla hússins og fylla í lóð og bíla- stæði. Ætlað er að verkinu sé lokið 7. janúar næstkomandi. Alls eru vel á sjötta hundrað börn í leikskólum í sveitarfélaginu og talsverð eftir- spurn verið eftir plássi, einkanlega á því svæði sem um ræðir hér að of- an, þar sem ungar fjölskyldur hafa byggt upp hverfið hratt á fáeinum misserum. Á sama tíma styttist í að jarð- vinna hefjist við fjölnota íþróttahús á Selfossi, en fyrsta skóflustungan var tekin að þeirri byggingu í gær. Það var fyrirtækið Þjótandi ehf. sem bauð lægst í það verk og er ætlað að vinna þar hefjist á næstu dögum eða vikum.    Fram undan er alþjóðleg skák- hátíð á Selfossi sem haldin er í til- efni 30 ára afmælis Skákfélags Sel- foss og nágrennis. Hefur hún fengið nafnið Ísey skyr-skákhátíðin og fer fram á Hótel Selfossi dagana 19.-29. nóvember. Þar mun meðal annars fara fram nokkurs konar heims- meistaramót, þar sem etja kappi tíu manns sem hafa samtals unnið 14 heimsmeistaratitla í mismunandi aldursflokkum. Þrír af þeim fjórum Íslendingum sem hafa orðið heims- meistarar í sínum aldursflokki taka þátt í mótinu; Hannes Hlífar Stef- ánsson, Héðinn Steingrímsson og Helgi Áss Grétarsson, en sá fjórði, Jón L. Árnason, verður fjarri góðu gamni. Erlendir keppendur mótsins koma frá fjórum heimsálfum, en á meðal keppenda verða tvær ungar skákkonur frá Kasakstan og Íran sem taldar eru meðal bestu skák- kvenna í heimi nú um stundir. Auk þessa móts verða á hátíðinni margir aðrir viðburðir, svo sem Suður- landsmótið í skák, Íslandsmót í Fischer-slembiskák, skákkennara- námskeið, skákdómaranámskeið, barnaskákmót, hraðskákmót og málþing um stöðu skákíþrótt- arinnar á Íslandi. Morgunblaðið/ Sigmundur Sigurgeirsson Nýbygging Framkvæmdastjóri GOS er bjartsýnn á að starfsemi hefjist í nýbyggingu golfklúbbsins fyrir jól. Framkvæmdagleði í sveitarfélaginu Selfoss Eftirmyndir gamla Sigtúns og Braunshúss rísa nú í miðbænum. 20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2019 Árlegur basar dvalar- og hjúkr- unarheimilisins Áss í Hveragerði verður haldinn í dag frá kl. 13-17. Þar munu heim- ilismenn á Ási selja margs kon- ar handverk og föndur sem tilvalið er að verða sér úti um í aðdraganda jólanna. Kaffi og meðlæti verður einnig á boð- stólum. Basarinn verður í vinnustofu Áss í Frumskógum 6b í Hveragerði. Ás með basar í Frumskógum Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Þetta var nú fremur tíðindalítið þing. Við vorum að mestu að vinna í þeim lögum sem snúa að kirkjunni vegna samnings hennar við ríkið, en annars var þetta fremur hefðbundið og án ágreinings,“ segir Drífa Hjartardóttir, forseti Kirkjuþings, í samtali við Morgunblaðið. Vísar hún í máli sínu til Kirkju- þings sem hófst laugardaginn 2. nóvember og lauk á miðvikudag. Sameining prestakalla víða um land var til umfjöllunar á þinginu. Fallið var frá þeirri hugmynd að leggja niður Holt í Önundarfirði. Drífa segir íbúa á svæðinu vilja hafa prest í samfélaginu. „Það var beðið um að þetta prest- setur færi ekki í sölu að þessu sinni og við því var orðið,“ segir Drífa. og heldur áfram: „Ég geri ekki ráð fyrir að þessi ákvörðun verði endurskoðuð á næstu árum og verður setrið því áfram í eigu kirkjunnar. Þó að nú- verandi prestur búi ekki þarna núna er ómögulegt að segja til um hvað næsti prestur mun gera. Fólk í þess- ari sveit vill hafa prestsetur þarna áfram og þá er bara sjálfsagt að verða við þeirri ósk.“ Saurbæjarnafnið komið aftur eftir breytingar á starfsreglum Á Kirkjuþingi voru gerðar breyt- ingar á 12. grein starfreglna um skipulag í héraði. Snúa breytingar þessar m.a. að heiti Garða- og Hval- fjarðarstrandarprestakalls í Vestur- landsprófastsdæmi. Breytist það í Garða- og Saurbæjarprestakall, en flutningsmaður tillögunnar var Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Ís- lands. Holt í Önundar- firði ekki lagt niður  Nýliðið Kirkjuþing sagt tíðindalítið Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Kirkja Frá Holti í Önundarfirði, en það verður ekki selt á næstunni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.