Morgunblaðið - 09.11.2019, Side 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2019
STUTT
● Landsréttur staðfesti í gær dóm Hér-
aðsdóms Reykjavíkur um sýknu Símans
hf. af skaðabótakröfu Sýnar hf. vegna
verðlagningar á símtölum inn í far-
símakerfi Símans á árunum 2001-2007.
Einnig sýknaði Landsréttur Sýn hf. af
skaðabótakröfu Símans hf. vegna verð-
lagningar Sýnar á sama tímabili.
Rakið til lúkningagjalda
Eins og fram kemur í tilkynningu frá
Símanum má rekja málið til verðlagn-
ingar á svokölluðum lúkningargjöldum í
farsímaneti en um er að ræða gjald
sem farsímafyrirtæki innheimta hvert
af öðru þegar viðskiptavinir þeirra
hringja í viðskiptavini í öðru far-
símakerfi. Þessi gjöld hafa verið ákveð-
in af Póst- og fjarskiptastofnun til fjölda
ára, eins og segir í tilkynningunni.
Þar segir einnig að Síminn fagni nið-
urstöðunni og bendir á að nú hafi bæði
Landsréttur og héraðsdómur staðfest
að kröfur Sýnar hf. eigi ekki við rök að
styðjast.
Fjarskipti Símafyrirtækin deila.
Síminn sýknaður af
skaðabótakröfu Sýnar
Líkt og fjallað var um á forsíðu
Morgunblaðsins í gær hefur íslensk-
um viðskiptavinum kýpverska bank-
ans Cyprus Development Bank
(CDB) verið neitað um millifærslu
umtalsverðrar fjárhæðar á banka-
reikninga hér á landi. Í svari Seðla-
banka Íslands (SÍ) við fyrirspurn
Morgunblaðsins í tengslum við málið
um það hvort bankinn hefði haft
spurnir af slíkum tilfellum segir
bankinn að nýverið hafi „einstök til-
vik komið upp þar sem greiðslur
hafa verið stöðvaðar eða tafist“. Seg-
ir í svari bankans að hann muni
áfram fylgjast með gangi mála í sam-
starfi við Fjármálaeftirlitið. Þar
kemur enn fremur fram að Seðla-
bankinn fylgist með greiðslumiðlun
á milli Íslands og annarra landa, m.a.
í samvinnu við fjármálafyrirtæki hér
á landi. Ísland var sett á gráan lista
alþjóðlegu samtakanna Financial
Action Task Force (FATF) í október
síðastliðnum vegna ónógra varna
gegn peningaþvætti. Í svari Seðla-
bankans segir að sú aðgerð virðist
enn sem komið hafa haft mjög tak-
mörkuð áhrif. „Það er þó viðbúið að
einhverra áhrifa geti gætt,“ segir í
svari bankans. Í frétt Viðskipta-
Moggans á miðvikudag kom fram að
fjármálaeftirlitið í Sviss hefði nýlega
vísað til fundar FATF er Ísland var
sett á gráa listann. Kallaði eftirlitið
eftir því að þarlendar stofnanir
tækju upplýsingar frá FATF til
greina þegar kemur að áhættustýr-
ingu fjármálastofnana þar í landi. Í
sömu frétt var rakið að Íslendingar
sem hefðu flutt heimilisfesti frá
Sviss til Íslands hefðu þurft að loka
öllum reikningum sínum þar í landi.
Ástæðan var rakin til óljóss reglu-
verks hér á landi um nokkurt skeið.
Morgunblaðið/Golli
Seðlabankinn Vandræði hafa kom-
ið upp með greiðslur til landsins.
Greiðslur hafa
verið stöðvaðar
SÍ staðfestir vandræði með greiðslur
9. nóvember 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 123.94 124.54 124.24
Sterlingspund 159.48 160.26 159.87
Kanadadalur 94.12 94.68 94.4
Dönsk króna 18.377 18.485 18.431
Norsk króna 13.603 13.683 13.643
Sænsk króna 12.904 12.98 12.942
Svissn. franki 124.89 125.59 125.24
Japanskt jen 1.135 1.1416 1.1383
SDR 170.52 171.54 171.03
Evra 137.32 138.08 137.7
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.8829
Hrávöruverð
Gull 1484.1 ($/únsa)
Ál 1817.0 ($/tonn) LME
Hráolía 61.73 ($/fatið) Brent
Fagleg þjónusta fyrir fólk í
framkvæmdum
www.flugger.is
þess voru vélarnar hins vegar fjór-
ar. Því stefna forsvarsmenn Play að
því að félagið verði með 150%
stærri flota á þriðja rekstrarári
sínu en WOW air kom sér upp á
þremur árum. Það var raunar ekki
fyrr en á fimmta starfsári WOW
sem vélar félagsins tóku að telja á
annan tuginn, en þá urðu þær tólf
og meðal þeirra hinar gríðarstóru
Airbus A330-vélar.
Athygli vekur að skv. fjárfesta-
kynningu ÍV er gert ráð fyrir að
þjálfunarkostnaður flugstarfsfólks
verði mjög takmarkaður. Er bent á
að WOW air hafi á sínum tíma var-
ið um 15 milljónum dollara, jafn-
virði ríflega 1,9 milljarða króna í
þjálfun starfsfólks. Hins vegar geri
áætlanir Play ráð fyrir að þriggja
daga „innanhússnámskeið“ þurfi til
að gera áhafnir félagsins klárar í
fyrsta flug.
Þurfa minni sætanýtingu
Forsvarsmenn Play segja að
samningar félagins af ýmsu tagi
tryggi að kostnaður félagsins verði
í veigamiklum atriðum lægri en í
tilfelli WOW air. Þannig muni hlut-
fallslegur launakostnaður vera 27-
37% lægri en var hjá WOW air.
Nýting á áhöfnum verði mikil eða
um 800 til 900 klst. á ári meðan
Icelandair sé með um 550 klst. nýt-
ingu á sínum áhöfnum. Þá mun
Play hafa gengið frá samningi við
nýjan flugafgreiðsluaðila á Keflavík
sem bjóði áður óþekkt kjör. Hið
sama eigi við um viðhaldsmál sem
þriðji aðili mun sinna á mjög hag-
stæðum kjörum. Af þessum sökum
er bent á það í fjárfestakynning-
unni að Play þurfi um 75% sæta-
nýtingu til að standa undir rekstr-
arkostnaði en að sambærilegt
hlutfall hafi verið um 85% í tilfelli
WOW air.
Hyggjast stækka flugflotann
hraðar en WOW air gerði
Tíu vélar verði komnar í rekstur í maí 2020 Þjálfunarkostnaður mjög lítill
Áætlun þróun flugflota félagsins
OKTÓBER 2019
2 vélar
MAÍ 2020
6 vélar
MAÍ 2021
8 vélar
APRÍL 2022
9 vélar
MAÍ 2022
10 vélar
Heimild: Fjárfestakynnig
Íslenskra verðbréfa fyrir
WAB air
BAKSVIÐ
Stefán Einar Stefánsson
ses@mbl.is
Forsvarsmenn flugfélagsins Play
hyggjast stækka flugvélaflota fé-
lagsins mjög hratt á komandi miss-
erum, gangi áætlanir þeirra eftir.
Þetta má lesa úr fjárfestakynningu
sem fjármálafyrirtækið Íslensk
verðbréf (ÍV) hefur kynnt fyrir
fjárfestum í von um að afla nýs
hlutafjár til félagsins.
Líkt og fram hefur komið er
stefnan sett á að félagið hefji rekst-
ur fyrir lok þessa árs með tvær vél-
ar í förum milli Íslands og Evrópu.
Verða þær af gerðinni Airbus A320
og A321 skv. fyrrnefndri kynningu
er ætlunin að floti félagsins muni
einvörðungu skipaður vélum af
þeirri tegund. Sérstaklega er til-
tekið þar að félagið hyggist ekki
taka breiðþotur í sína þjónustu.
Félagið mun hins vegar ekki ætla
að vera með svo fáar vélar á sínum
snærum lengi. Þannig er ætlunin að
þrefalda flotann strax í maí á næsta
ári og mun hann þá skipaður sex
vélum. Sléttu ári síðar er gert ráð
fyrir að tvær vélar bætist í flotann
og að þær verði þá átta. Í apríl,
tæpu ári síðar mun ein vél bætast
við flotann og önnur í maímánuði.
Þá mun flotinn telja tíu vélar alls.
Lágur þjálfunarkostnaður
Séu áætlanir Play bornar saman
við vöxt WOW air á sínum tíma,
sem þótti nærri ævintýralegur,
kemur glögglega í ljós að áform
nýja félagsins eru afar stórtæk.
Þannig var WOW air með tvær vél-
ar í förum frá miðju ári 2012 og
fram á árið 2013 þegar ein vél bætt-
ist í flotann. Þriðja árið í rekstri