Morgunblaðið - 09.11.2019, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 09.11.2019, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2019 Fyrir nokkr-um vikumvar Ísland sett á gráan lista apparats, sem fer undir merkjum baráttu gegn pen- ingaþvætti og kall- ast Financial Action Task Force, skammstafað FATF. Margt sætir furðu við verklag þessarar stofnunar, ekki síst að Ísland skuli vera í brennidepli hjá henni því ætla mætti að víða í heiminum væri að finna bólgnari kýli til að stinga á. Dilkadrættir FATF hafa að því er virðist ekki farið fram hjá mönnum í fjármálaheim- inum. Í vikunni bárust fréttir af því að bankar í Sviss og á Kýp- ur hefðu varann á sér vegna Ís- lands. Á miðvikudag kom fram í ViðskiptaMogganum að Íslend- ingar, sem átt hafa reikninga í svissneska bankanum UBS, hefðu þurft að loka þeim vegna óljóss regluverks á Íslandi. Orðspor Svisslendinga er ekki beysið þegar kemur að peningaþvætti. Landið er vissulega með ímynd reglu- festu og heiðarleika. Bankar í Sviss hafa hins vegar verið mörgum skálkaskjól sem hafa viljað koma auði sínum undan eftirliti heima í héraði. UBS er síður en svo undan- skilinn í þeim efnum. Í febrúar dæmdi franskur dómstóll bankann til að greiða rúmlega fimm milljarða evra (690 millj- arða króna) í sekt fyrir að hjálpa viðskiptavinum sínum að komast hjá því að greiða skatta. Þetta mál vefst vitaskuld ekki fyrir FATF og gefur enga ástæðu til þess að setja Sviss á gráan lista, enda er regluverkið í Sviss fullkomið. Það er bara ekki farið eftir því. Hins vegar má velta fyrir sér hvort ekki væri nær að Ísland og aðrir hættu viðskiptum við UBS en að bankinn setji sig á háan hest gagnvart Íslandi. En vitaskuld þarf bankinn að bjarga orðspori sínu og það hljóta að fara hlýir straumar um fjármálaheiminn að vita að hann sé ekki með nein vett- lingatök þegar kemur að Ís- landi. Á forsíðu Morgunblaðsins í gær var síðan greint frá því að Þróunarbanki Kýpur, Cyprus Development Bank, hefði sett Ísland á bannlista og lokað á millifærslur til landsins. Kýpur er þekkt skattaskjól og í fréttum hefur oftsinnis ver- ið fjallað um að rússneskir auð- jöfrar og óligarkar hafi notað fjármálastofnanir eyjarinnar til að koma peningum sínum í umferð. Cyprus Development Bank var stofnaður til að efla kýp- verskt efnahagslíf í upphafi sjöunda áratugar 20. aldar. Stofn- endur voru kýp- verska ríkið og Fjárfestingarbanki Evrópu. 2008 var bankinn einka- væddur og er því ekki lengur í ríkiseigu. Rússar eru meðal núverandi eigenda bankans. Erfitt getur verið að átta sig á eignarhaldi banka, en á einum stað er hermt að Ívan Míasín nokkur hafi keypt Cyprus Develop- ment Bank með illa fengnu fé úr rússneska bankakerfinu. Míasín var dæmdur í skil- orðsbundið fangelsi um alda- mótin fyrir rán. Í kjölfarið gerðist hann atkvæðamikill í bankageiranum í Rússlandi. Þegar mest lét var hann ráð- andi í 26 fjármálastofnunum þar í landi í gegnum leppa og milliliði. Allar þessar stofnanir munu hafa misst leyfi sín, með- al annars vegna gruns um pen- ingaþvætti, og hafa talsverðar upphæðir verið nefndar. Mías- ín var þó ekki borinn sökum opinberlega. Það er því athyglisvert að kýpverski bankinn skuli hafa ákveðið nú um mánaðamótin að breyta stefnu sinni um þóknan- lega viðskiptavini með áður- nefndum afleiðingum fyrir Ís- lendinga í viðskiptum við hann. Spurning hvað þetta þýðir fyrir eigandann, en ef til vill er hann ekki í viðskiptum við bankann. Sú spurning kann að vakna hjá lesandanum hvers vegna verið sé að draga fram þessar upplýsingar, jafnvel óstað- festar, um bankana tvo. Fyrir það fyrsta hefur komið fram að ástæðan fyrir því að Ís- land er komið á gráan lista FATF er eingöngu að reglu- verkið sé ekki í lagi hér á landi. Ekki hafi verið bent á nein til- vik um að aðstæður á Íslandi hafi verið misnotaðar til pen- ingaþvættis eða annars mis- ferlis. Vissulega er ámælisvert að reglur skuli ekki hafa verið uppfærðar á Íslandi og engin ástæða til að verja það. Hins vegar er rétt að benda á að í gegnum peningaþvottavélar heimsins fer upphæð, sem nem- ur allt að fimm prósentum af framleiðslu heimsins. Í þessum stórþvotti er Ísland eins og korktappi í Gullfossi. Engu að síður beinir fyrirbæri, sem í orði kveðnu segist berjast gegn alþjóðlegu peningaþvætti, kröftum sínum að Íslandi þann- ig að bankar sem jafnvel eru með allt niður um sig í þessum málum geta slegið um sig með því að setja Íslendingum stól- inn fyrir dyrnar í viðskiptum. Einhvern tímann hefði þetta verið kallað að kasta grjóti úr glerhúsi. Banki í Sviss lokar íslenskum reikn- ingum og banki á Kýpur setur Ísland á bannlista} Grjót úr glerhúsi SVIÐLJÓS Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Vísbendingar eru um aðbókaútgáfa á Íslandi séað taka við sér eftir mög-ur undanfarin ár. Eins og Morgunblaðið hefur greint frá nam tekjusamdráttur í bókaútgáfu næstum 40% síðasta áratug. Fyrr á þessu ári sýndu veltutölur bóka- útgefenda loks vöxt á ný og mun- aði þar mest um rafrænar áskrift- artekjur sem koma frá hljóðbókaveitunni Storytel. Jólabókaflóðið er nú hafið og virðist bjartsýni ríkja meðal útgef- enda. Frumvarp Lilju Alfreðs- dóttur mennta- málaráðherra um endur- greiðslu kostn- aðar við útgáfu bóka hefur blás- ið þeim byr í brjóst og útgáf- an er veglegri nú en oft áður. „Það hefur verið mikill meðbyr með bókinni og bókaútgáfu í ár. Frumvarpið um endurgreiðslu kostnaðar við bókaútgáfu var sannarlega mikill meðbyr og allra fyrstu greiðsl- urnar eru væntanlegar inn á reikn- inga útgefenda. Bara lagasetningin sjálf í desember í fyrra hefur haft áhrif á útgáfuna allt þetta ár. Það eru bókaunnendur farnir að sjá núna en við í bransanum höfum lengi skynjað. Íslensk bókaútgáfa hefur oft verið keyrð áfram af bjartsýni og ástríðu og stundum hefur kannski ekki alltaf verið innistæða fyrir því. En núna er eins og fari saman hljóð og mynd í því,“ segir Heiðar Ingi Svansson, formaður Félags íslenskra bókaút- gefenda. „Svo er auðvitað salan eftir. Það eru ekki enn komnar tölur sem hægt er að leggja út af en miðað við umfjöllun og stemningu – það er búið að vera fullt hús á upplestrum á kaffihúsum til að mynda – heldur þessi meðbyr með bókinni áfram,“ segir formaðurinn. Barnabækur í mikilli sókn Bókatíðindum verður dreift í hús 18. og 19. nóvember en þegar er hægt að kynna sér jólaútgáfuna á heimasíðu Félags íslenskra bóka- útgefenda. Þar má til að mynda sjá að 98 íslensk skáldverk koma út að þessu sinni en þau voru 81 í fyrra. Nemur aukningin 21%. Heiðar segir að aukin útgáfa barna- og unglingabóka veki sér- staka eftirtekt þetta árið. Alls eru 107 ný skáldverk gefin út fyrir börn og unglinga að þessu sinni en þau voru 73 í fyrra. Aukningin nemur 47%. „Þarna skiptir máli að umfram endurgreiðsluna var stofnaður nýr sjóður, Auður, að frumkvæði menntamálaráðherra sem hefur sérstaklega styrkt útgáfu á barna- og unglingabókum. Ég held að endurgreiðslan, styrkirnir og bjartsýnin skipti þarna máli en kannski er umræðan um bóklestur farin að skila sér. Vonandi erum við líka komin að því að það sé vax- andi áhugi foreldra á að halda bók- um að börnum sínum. Bæði að lesa fyrir þau og færa þeim lesefni sem þau geta lesið sjálf.“ Heiðar segir að mikill vöxtur í útgáfu ljóðabóka sé til marks um gott grasrótarstarf í bókaútgáfu. 62 bækur sem innihalda ljóð og leikrit koma út að þessu sinni og nemur aukningin 51% frá fyrra ári. „Það er ýmislegt að gerast í gras- rótinni þó að stundum þurfi að leggjast ofan í svörðinn til að sjá það allt. Mér finnst þessi fjölgun í útgefnum ljóðabókum forvitnileg því það er nú ekki langt síðan menn spáðu því að útgáfa ljóða- bóka væri dauð.“ Loks meðbyr í bóka- útgáfu eftir mögur ár Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Bókaverslun Jólabókaflóðið er nú hafið og útgáfa barnabóka hefur aukist umtalsvert frá fyrra ári. Skáldsögum og ljóðabókum fjölgar sömuleiðis. Heiðar Ingi Svansson „Við gefum út 300 bækur á þessu ári og nú eru um 1.200 íslenskir titlar á Storytel en um 200.000 ef enskar og skandinavískar bækur eru tald- ar með,“ segir Stefán Hjör- leifsson, framkvæmdastjóri hljóðbókaveitunnar Storytel á Íslandi. Stefán segir að áskrifendum Storytel hafi fjölgað um 100% á þessu ári. „Starfsemi Story- tel er ekki eins árstíðabundin og hjá öðrum útgefendum. Við leggjum því ekki áherslu á jólabókaflóð sem slíkt. Við er- um þó með eitthvað af titlum sem koma samtímis út hjá okkur og á prenti og nokkra titla sem koma út fyrst sem hljóðbækur hjá Storytel,“ segir Stefán en hægt er að kaupa gjafapakka með Storytel- áskrift fyrir jólapakkana. „Það er nefnilega auðveldara að pakka inn 10.000 bókum en fólk heldur,“ segir Stefán, kankvís að endingu. 300 hljóð- bækur í ár MIKILL VÖXTUR STORYTEL Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ N ýtt frumvarp um Menntasjóð námsmanna felur í sér grundvallarbreytingu á stuðningi við námsmenn. Það mun leiða til betri fjárhags- stöðu námsmanna og skuldastaða þeirra að námi loknu mun síður ráðast af fjöl- skylduaðstæðum, þar sem foreldrar í námi fá fjárstyrk en ekki lán til að framfleyta börnum sínum. Þá er innbyggður í kerfið mikill hvati til bættrar námsframvindu, með 30% niðurfærslu á höfuðstól og verð- bótum ef námi er lokið innan tiltekins tíma. Það stuðlar að betri nýtingu fjármuna, auk- inni skilvirkni og þjóðhagslegum ávinningi fyrir samfélagið. Ennfremur munu náms- menn njóta bestu lánskjara ríkissjóðs Ís- lands hjá Menntasjóði námsmanna og námsaðstoðin, lán og styrkir, verður undanþegin lög- um um staðgreiðslu opinberra gjalda. Með frumvarpi um Menntasjóð námsmanna er brugðist við þeim umfangsmiklu breytingum sem orðið hafa á íslensku menntakerfi, námsumhverfi og samfélaginu öllu. Nýtt kerfi miðar að því að jafna stuðning og dreifingu styrkja ríkisins til námsmanna sem taka námslán, með félagslegum stuðningssjóði. Sérstaklega verður hugað að hópum sem reynst hefur erfiðara að sækja nám s.s. einstæðum foreldrum, fjölskyldufólki og námsmönnum utan höfuðborgarsvæðisins. Með þessari kerfisbreytingu viljum við auka gagnsæi, fyrirsjáanleika og skipta gæðum með jafnari og réttlátari hætti milli námsmanna. Þá er leitast við að bæta þjónustu við námsmenn í nýju kerfi með því að heimilt verður að greiða út námslán mánaðarlega, lánþegar geta þar valið við námslok hvort þeir endurgreiði lán sín með verðtryggðum eða óverðtryggðum skuldabréfum og valið að endurgreiða námslán með tekjutengd- um afborgunum séu námslok lánþega áður eða á því ári er þeir ná 35 ára aldri. Menntun er lykillinn að framtíðinni. Á okkur hvílir sú skylda að horfa fram á við, setja metnaðarfull markmið og tryggja að námsstuðningur hins opinbera stuðli að jafnrétti til náms. Ég trúi því að með frumvarpi um Menntasjóð námsmanna sé stigið mikið framfaraskref, sem eigi eftir að nýtast námsmönnum vel, atvinnulífinu og samfélaginu öllu. Lilja Alfreðsdóttir Pistill Réttlátur stuðningur við námsmenn Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.