Morgunblaðið - 09.11.2019, Page 27
27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2019
Haustganga Fátt er meira hressandi en að fara í heilsubótargöngu í haustblíðunni, sér í lagi þegar umhverfið er eins fallegt og í þessum skógi við Sveinseyri í nágrenni Varmár.
Eggert
Við Íslendingar höf-
um notið þess að marg-
ir útlendingar sem
lögðu leið sína hingað á
liðnum öldum sögðu
frá reynslu sinni á eft-
irminnilegan hátt í rit-
uðu máli. Margar slík-
ar ferðasögur hafa
verið þýddar og gefnar
út, oft myndskreyttar á
þeirrar tíðar vísu. Upp
í hugann koma frá 19.
öld nöfn manna eins og Ebenezers
Hendersons, Konrads Maurers og
Williams Collingwoods og frá 20. öld
myndir og frásagnir þýskra ferða-
langa frá millistríðsárunum sem
birtust í ritinu Úr torfbæjum inn í
tækniöld (Örn og Örlygur 2003). Við
áttum vart von á því að enn myndu
bætast í þennan hóp einstaklingar
sem ekki var áður kunnugt um og
hefðu einhverju marktæku að miðla
um land og þjóð. Nú hefur nafn Eng-
lendingsins Pikes Wards (1856-1937)
hins vegar óvænt birst okkur, tengt
bæði máli og myndum frá því um
1900 og árunum fram að fyrri heims-
styrjöld. Ward var Íslendingum áð-
ur að góðu kunnur af störfum sínum
sem fiskkaupmaður hérlendis um og
eftir aldamótin 1900, og
einnig vegna safns síns
af gömlum munum sem
Þjóðminjasafnið fékk
til varðveislu þegar ár-
ið 1950.
Dagbækur Wards
spennandi lesning
Í fyrra kom út hjá
Ampora Press bókin
The Icelandic Advent-
ures, sem hefur að
geyma dagbókar-
færslur Pikes Wards
frá árinu 1906. Handrit
með þeim fundust fyrst árið 2016 í
geymsluhólfi á heimili eins afkom-
anda hans. Bókin er rit upp á rúmar
200 blaðsíður og hefur að geyma
texta úr þremur dagbókarhand-
ritum Wards frá dvöl hans á Íslandi
þetta ár frá mars til nóvember. Hér-
lendis hafði hann þá dvalið lang-
dvölum ár hvert allt frá fyrstu heim-
sókn sinni hingað 1893. Starfsemi
hans sem fiskkaupmanns teygði sig
víða um land, en fyrstu árin hafði
hann aðalaðsetur sitt í Reykjavík,
færði sig til Hafnarfjarðar 1898, en
árið sem hann skrifar dagbókina
gerir hann aðallega út frá þremur
stöðum: Reykjavík, Ísafirði og Seyð-
isfirði. Hann lærði íslensku og hafði
íslenska aðstoðarmenn og hesta-
sveina í ferðum sínum víða um land.
Árið 1899 gerði hann út togarann
Utopia frá Hafnarfirði með breskri
áhöfn sem ekki reyndist vandanum
vaxin og enga Íslendinga var þá að
hafa til slíkra starfa. Þegar hann
byrjar dagbókina 1906 er hann að
leggja upp í ferð með s/s Vestu frá
Englandi til Berufjarðar (Djúpa-
vogs) í hörku vetrarveðri. Þaðan var
haldið áfram norður um land allt til
Reykjavíkur með viðkomu á mörg-
um stöðum. Í Reykjavík og nágrenni
dvaldi Pike fram í miðjan maí, fór þá
til Ísafjarðar en í byrjun júlí lá leiðin
til Seyðisfjarðar. Þaðan hélt hann
um Fjarðarheiði upp á Hérað og
áfram til Vopnafjarðar og Bakka-
fjarðar. Seyðisfjarðarþátturinn fær
mest rúm í dagbókinni, enda ekki
haldið þaðan suður fyrr en um miðj-
an október. Meðan Ward dvaldi á
Seyðisfirði fékk Ísland síma-
samband við umheiminn. – Dagbók
hans er skemmtileg aflestrar, með
glöggum lýsingum á daglegu lífi,
mataræði og aðbúnaði fólks. Þrátt
fyrir gagnrýni og góðlátlegt grín
leynir sér ekki samúð og velvilji
hans í garð heimamanna. Vonandi er
þess ekki langt að bíða að þetta rit
birtist okkur á íslensku.
Ward sem fjölhæfur
áhugaljósmyndari
Nýlega bárust Þjóðminjasafni Ís-
lands frá Devon Heritage Centre í
Exeter sýnishorn af ljósmyndum
Wards sem þar er að finna í átta úr-
klippubókum frá hans hendi. Þetta
reyndist vera mikill fengur sem varð
til þess að Ljósmyndasafn Íslands
gerði sýningu um hann sem opnuð
var 20. október sl. undir fyrirsögn-
inni Með Ísland í farteskinu. Það var
ævintýri líkast að hlýða á Ingu Láru
Baldvinsdóttur sviðsstjóra segja frá
og leiða gesti um sýninguna við opn-
un hennar. Ásamt henni vann að
sýningunni Kristín Halla Baldvins-
dóttir. Glöggar upplýsingar fylgja
hverri mynd og munum úr fórum
Wards. Hann birtist mönnum þarna
sem reyndur og fær áhugaljósmynd-
ari sem á margan hátt fyllir í sögu-
lega eyðu með fjölbreyttu myndefni
víða að af landinu. Sem vænta má er
þarna að finna fjölda mynda af at-
vinnulífi við sjávarsíðuna, konum í
erfiðisvinnu og körlum á sjó, en líka
tækifærismyndir af óvenjulegum
viðburðum eins og brúðkaups-
skrúðgöngu í Reykjavík 1895, nið-
urdýfingarskírn á Ísafirði 1910,
hárklippingu á sýslumanni úti fyrir
Hótel Seyðisfirði og ljósmyndatöku
framan við Lúðvíkshúsið gamla á
Norðfirði. Fjölda margbreytilegra
húsa úr timbri og torfi frá upphafi
20. aldar bregður hér fyrir, t.d. af
bænum á Miðhúsum á Héraði. Hér
sjást bátar og skip af öllum stærðum
og næstelsta bifreið hérlendis,
Grundarbíllinn frá 1909, er vel sýni-
legur. Margbreytilegar manna-
myndir auka á fjölbreytnina, t.d. af
eina lögregluþjóni landsins 1896, af
Jóni fótalausa og af Jónasi Mána
dyraverði Alþingis. Margar úrklipp-
ur úr breskum blöðum þessa tíma
með frásögnum frá Íslandi auka á
fjölbreytni sýningarinnar sem og
munir úr safni Wards. Hann tók
einnig svonefndar stereó- eða þrí-
víddarmyndir sem horft var á í sér-
stökum kíkjum og opnuðust þá
óvæntir töfraheimar. Sá sem þetta
skrifar minnist slíks galdratækis úr
æsku sinni eystra. – Þess er að
vænta að margir leggi leið sína á
þessa frábæru sýningu í Þjóðminja-
safninu, þar á meðal fólk sem víðast
að af landinu.
Eftir Hjörleif
Guttormsson »Dagbók Wards
er skemmtileg
aflestrar með glöggum
lýsingum á daglegu
lífi, mataræði og
aðbúnaði fólks.
Hjörleifur
Guttormsson
Höfundur er náttúrufræðingur.
Ljósmyndir og dagbækur
Pikes Wards eru óvæntur fjársjóður