Morgunblaðið - 09.11.2019, Side 29
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2019
Íslenska liðið sem tók þátt í Ól-ympíumóti 16 ára og yngri íCorum í Tyrklandi fékkst viðeitt mest krefjandi verkefni
sem hægt er að hugsa sér í þessum
aldursflokki. Eins og getið var um í
síðasta pistli var íslenska liðið hið
eina frá Norðurlöndunum og V-
Evrópuþjóðirnar sátu heima ef und-
an er skilin portúgalska sveitin. Alls
voru þátttökuþjóðirnar 48 talsins og
niðurstaðan varð sú að Aserbaídsjan
sigraði með 16 stig, Úsbekistan varð
í 2. sæti með 15 stig og Hvít-Rússar
fengu bronsið með 14 stig.
Þó að íslenska liðið hafi fallið nið-
ur í 31. sæti með tapi í lokaumferð-
inni var árangurinn vel ásættan-
legur þegar horft er til þess að fjórir
liðsmenn bættu ætlaðan árangur
sinn. Bestum árangri náði Vignir
Vatnar Stefánsson, sem hlaut 6
vinninga af 9 mögulegum og var
traustur á 1. borði. Næstur kom
Stephan Briem með 5½ vinning af 9
á 2. borði. Batel Goitom skilaði góð-
um árangri, en í hverri sveit var
a.m.k. ein stúlka. Hún vann tvo mun
stigahærri andstæðinga og hækkaði
um samtals 54 Elo-stig. Benedikt
Briem hækkaði einnig lítillega en Al-
exander OIiver Mai var seinheppinn
en mér sýndist litlu muna að hann
næði að landa mun fleiri vinningum.
Í 7. umferð unnu Íslendingar góðan
3½ : ½ sigur á öflugri stúlknasveit
Tyrklands. Þá var þessi skák tefld:
Filipa Piparas – Batel Goitom
Kóngsindversk vörn
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4
d6 5. Be2 O-O 6. Be3 e5 7. d5 Ra6 8.
g4 Rc5 9. f3 h5 10. g5 Rh7 11. h4 f6
12. gxf6 Bxf6 13. Bf2 a5 14. Kd2?!
Skrítinn leikur. Hægt var að koma
kónginum í skjól með því að leika 14.
Dd2 og hrókera síðan langt.
14. ... c6 15. Kc2 a4 16. De1 Bg7
17. Rh3 Bd7 18. Dg1 Df6 19. Hd1
Hfd8 20. Be3 a3 21. b3 Ra6 22. Rg5
Rb4 23. Kb1 Hdc8 24. Rxh7
Hvíta staðan er betri því að leiðir
til gegnumbrots á drottningarvæng
eru ekki greiðar. Hér var 24. c5!
mun sterkara og svarta staðan er
erfið.
24. ... Kxh7 25. Bg5 Df8 26. De3
c5 27. Hdg1 Bf6 28. Hg3 De7 29.
Hhg1 Hg8 30. Df2 Haf8 31. Dg2
Df7!
Svartur hefur náð að verja g6-
veikleikann og á betri möguleika því
að eftir uppskipti á g5 situr hvítur
eftir með hinn lélega biskup á e2.
32. Dh1 Bxg5 33. Hxg5 Df4 34.
Hd1 De3 35. De1 Df4 36. Df2? Bg4!
37. Rb5
Reynir að ná mótspili en það er of
seint.
37. ... Dxe4+! 38. fxe4 Hxf2 39.
Bxg4 Hb2+ 40. Kc1
- og gafst upp um leið því að næsti
leikur svarts er 40. ... Rxa2 mát.
Rússar Evrópumeistarar
Rússar unnu langþráðan sigur í
Evrópukeppni landsliða sem lauk í
Batumi í Georgíu um síðustu helgi.
Þeir unnu Pólverja í síðustu unferð
en Úkraínumenn sem voru jafnir
Rússum urðu að gera sér jafntefli að
góðu gegn Króötum, hlutu 14 stig og
silfrið. Englendingar hrepptu
bronsið.
Íslenska liðið vann Kósóvó 3:1 í
síðustu umferð og hafnaði 21. sæti af
40 liðum. Frammistaðan er lakari en
oftast áður og einungis Guðmundur
Kjartansson náði að bæta ætlaðan
árangur sinn. Liðsstjórinn Ingvar Þ.
Jóhannesson fór þá leið að gefa efni-
legum skákmanni, Degi Ragnars-
syni, tækifæri til að spreyta sig. Var
það góð ákvörðun. Á umræðuvett-
vangi skákmanna hefur verið gagn-
rýnt að Hjörvar Steinn Grétarsson
var ekki valinn þó að hann hafi gefið
kost á sér í liðið. Þrír aðrir skák-
menn með yfir 2.500 Elo-stig sátu
líka heima að þessu sinni.
Krefjandi verk-
efni í Tyrklandi
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Morgunblaðið/Heimasíða
Teflt til sigurs Íslenska liðið f.v. Vignir Vatnar Stefánsson, Stephan Briem,
Alexander Oliver Mai og Batel Goitom unnu Tailendinga 2½ : 1½.
Ari fróði Þorgilsson fæddist
1067. Foreldrar hans voru hjón-
in Þorgils Gellisson, bóndi á
Helgafelli, og Jóreiður, líklega
Hallsdóttir Þórarinssonar,
bónda í Haukadal.
Þegar Ari var sjö ára var hon-
um því komið í fóstur hjá Halli í
Haukadal og var hjá honum
næstu 14 árin. Teitur Ísleifsson,
ættfaðir Haukdælinga, var þar
prestur. Hann kom á fót skóla í
Haukadal og kenndi sveinum
þar til prests. Ari var nemandi
hans, hlaut klassíska menntun
og lærði latínu en nam einnig
ýmsan annan fróðleik.
Að námi loknu var Ari vígður
af Gissuri biskupi Ísleifssyni og
gerðist prestur á Stað á Öldu-
hrygg, sem nú heitir Staða-
staður, en lítið er vitað um ævi
hans eftir það. Börn Ara voru
Þorgils prestur á Stað og Hall-
fríður.
Ari skrifaði Íslendingabók en
í henni er skráð saga íslensku
þjóðarinnar frá upphafi til um
1120. Á dögum Ara var latína al-
þjóðamál lærðra manna, en
hann kaus að rita á tungu þjóð-
ar sinnar og markaði með því
stefnu í upphafi íslenskrar bók-
menningar. Hann mun einnig
hafa skrifað eða átt þátt í frum-
gerð Landnámu.
Ari fróði lést 9.11. 1148.
Merkir Íslendingar
Ari fróði
Þorgilsson
Íslendingabók Handrit frá 17.
öld, en Ari skrifaði sagnfræði-
ritið á fyrri hluta 12. aldar.
Reykjavik Raincoats
LAUGAVEGUR 62, 101 RVK
www.reykjavikraincoats.com
info@reykjavikraincoats.com
Sími: 5711177
Takk, Þorgerður
Katrín, fyrir grein
þína í Morgunblaðinu
5. nóvember sl.
Það er tólf mánaða
bið í boði heilbrigðis-
ráðherra eftir lið-
skiptaaðgerð á Ís-
landi.
Er það ásættanlegt
að hið íslenska vel-
ferðarkerfi skuli kjósa
að hafa þetta ástand svona fyrir
þennan hóp sjúklinga? Að fólk með
nokkuð algengan kvilla skuli þurfa
að þjást og bíða eftir aðgerð í allt
að tólf mánuði?
Það merkilega við þetta ástand er
að það er algerlega á ábyrgð heil-
brigðisráðherra. Ríkið greiðir nefni-
lega fyrir aðgerðir erlendis frekar
en nýta íslenska krafta. Það er
óskiljanlegt að heilbrigðisráðherra
geti réttlætt það að greiða erlend-
um klínikum fyrir aðgerðir sem ís-
lenskir sérfræðingar bjóða upp á
hér á landi með fullkominni að-
stöðu. Hvað veldur?
Fyrir þann sem stendur frammi
fyrir þeim læknisúrskurði að lið-
skiptaaðgerð sé nauðsynleg eru þrír
kostir í boði. Í fyrsta lagi bíða og
þjást með sinn kvilla í tólf mánuði. Í
öðru lagi fara til útlanda og fá þessa
aðgerð framkvæmda þar fyrr, með
því umstangi sem því
fylgir, löngum ferða-
lögum og óþægindum.
Í þriðja lagi greiða fyr-
ir aðgerðina úr eigin
vasa og fá þar með
skjóta og góða þjón-
ustu hér á landi.
Það er líklegt að
margir muni reyna að
skrapa saman spari-
peningana sína til að
taka þann kostinn.
Maður skilur ekki
hvað liggur að baki
þeirri ákvörðun heilbrigðisráðherra
að leysa ekki úr þessum vanda
snarlega þar sem henni væri það í
lófa lagið. Það eru mörg hundruð
manns á biðlistum eftir liðskipta-
aðgerð. Það er sársaukafullt að
ganga með þann sjúkdóm sem ekk-
ert er við að gera nema liðskipti.
Það er alveg ótrúlegt að ástandið
skuli vera svona í þessari grein
læknisfræðinnar hér á landi, að
óþörfu.
Tólf mánuðir í boði
heilbrigðisráðherra
Eftir Kristján
Baldursson
Kristján Baldursson
»Ríkið er nefnilega að
greiða fyrir aðgerðir
erlendis frekar en nýta
íslenska krafta.
Höfundur er eldri borgari.
kribald@gmail.com
Hvar er næsta
verkstæði?
FINNA.is
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.