Morgunblaðið - 09.11.2019, Side 34

Morgunblaðið - 09.11.2019, Side 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2019 ✝ ErlingurLoftsson fæddist 22. júní 1934 á Sandlæk, Gnúpverjahreppi. Hann lést 20. október 2019 á lungnadeild LSH í Fossvogi. Erlingur hét fullu nafni Guðjón Erlingur. For- eldrar hans voru hjónin á Sandlæk, þau Elín Guðjónsdóttir, húsfreyja frá Unnarholti í Hrunamanna- hreppi, f. 14.9. 1901, d. 2.2. 1991, og Loftur Loftsson, bóndi frá Stóra-Kollabæ í Fljótshlíð, f. 8.10. 1896, d. 14.3. 1978. Systkini Erlings voru: Baldur, f. 5.10. 1932, d. 18.9. 2015, Loftur Sigurður, f. 5.4. 1937, d. 18.6. 1997, Sigríður, f. 11.4. 1940, d. 13.2. 1992. Yngst er Elínborg, f. 26.8. 1947. Hún býr á Akureyri. Þann 25. júní 1955 giftist börn. Dóttir Bjarna Jóns er Ester Elín hjúkrunarfræð- ingur, f. 1972, í sambúð með Björgvini Rúnarssyni. Til sam- ans eiga þau 5 börn og eitt barnabarn. Valgerður er land- og skógfræðingur, gift Brian R. Haroldssyni, f. 1966. Dætur Brians eru Freyja og Alba Rós, sem á eina dóttur. Loftur er löggiltur fasteignasali, giftur Helgu Kolbeinsdóttur, f. 1974. Börn þeirra eru Ljósbrá, f. 2001, Kolbeinn, f. 2002, Þór- katla, f. 2006 og Vésteinn, f. 2008. Með fyrri konu sinni, Sólveigu, á Loftur börnin Ás- rúnu Höllu bifvélavirkja, f. 1996, í sambúð með Magnúsi Þór Ingólfssyni, og Erling Snæ húsasmið, f. 1991, giftur Hlín Magnúsdóttur, eiga þau þrjú börn. Erlingur gekk í Ásaskóla sem var barnaskóli Gnúpverja og unglingaskólann á Braut- arholti, síðan í Héraðsskólann á Laugarvatni 1951-1953 þaðan sem hann tók landspróf. Hann var bóndi á Sandlæk frá 1954- 2010. Erlingur var alla tíð virkur félagi í kórum sem störfuðu í Hreppunum á hverj- um tíma, Söngfélagi Hreppa- manna, Árneskórnum, kirkju- kórum Hrepphólakirkju og síðan kirkjukór Ólafsvalla- og Stóra-Núpssóknar. Síðustu árin starfaði hann einnig með kór eldri borgara í Hreppum, Tvennum tímum. Erlingur starfaði mikið í félagsmálum innan sveitar og utan alla ævi, mislöng tímabil. Má þar til dæmis nefna í stjórn Ung- mennafélag Gnúpverja og ýms- um nefndum innan þess, Hreppsnefnd Gnúpverjahrepps um 12 ára skeið og nefndum á hennar vegum, stjórn Árne- skórsins, sóknarnefnd Stóra- Núpskirkju, stjórn Félags eldri borgara í Skeiða- og Gnúp- verjahreppi, stjórn veiðifélags Stóru-Laxár, áfengisvarn- arnefnd Árnessýslu, stjórn Landssambands blandaðra kóra, stjórn Kaupfélags Árnes- inga, þar sem hann gegndi for- mennsku um nokkurra ára skeið. Útför Erlings fer fram frá Skálholtskirkju í dag, 9. nóv- ember 2019, klukkan 13. Erlingur Guðrúnu Helgadóttur. Hún var dóttir hjónanna í Tungufelli, Helga Jónssonar, f. 22.4. 1906, d. 1945, og Valgerðar Ingv- arsdóttur, f. 14.12. 1908, d. 1995. Bróðir Guðrúnar er Sigurjón Helgason, verkfræðingur í Reykjavík, f. 16.4. 1937. Börn Guðrúnar og Er- lings eru: Helgi, f. 29. ágúst 1956, d. 10. júlí 1981. Elín, f. 25. maí 1959, Valgerður, f. 11. apríl 1963, og Loftur, f. 14. júní 1968. Elín er landfræðingur, gift Bjarna Jóni Matthíassyni, f. 1953. Dóttir þeirra er Guðrún Heiða, f. 1996, í sambúð með Andra Jónassyni. Sonur Elínar er Helgi Haukur Hauksson, f. 1984, viðskiptafræðingur, gift- ur Helgu Margréti Friðriks- dóttur. Til samans eiga þau 4 Í dag kveðjum við systkinin föður okkar, Erling Loftsson. Hann lést á sjúkrahúsi eftir um sjö vikna margþætt veikindi, 85 ára gamall, eftir farsæla ævi. Pabbi var svo lánsamur að njóta góðrar heilsu þar til nú í haust og heillar hugsunar alveg til síðasta dags. Hann hafði mömmu sér við hlið í um 65 ár, og saknaði hennar sárt. Hún lést í janúar 2017. Pabbi var fæddur og uppal- inn á Sandlæk í fjörugum hópi systkina og frændfólks. Leik- irnir snerust um búskap, vega- gerð og bolta- og hlaupaleiki. Pabbi lifði miklar tæknibreyt- ingar á sinni löngu ævi, allt frá slætti með orfi og ljá, kolaelda- vél og heimavinnslu mjólkur. Það varð hlutskipti foreldra okkar að taka við búskap á Sandlæk, þegar foreldrar hans, sem búið höfðu á Sandlæk frá 1930, drógu sig smám saman í hlé. Pabbi og mamma héldu áfram ræktun lands og bú- stofns, innréttuðu sér íbúð í ris- inu í nýja húsinu árið 1955, byggðu fjós og fjárhús fyrir blandað meðalstórt bú, lögðu rafmagn og vatn og hitaveitu seinna meir. Þau héldu bókhald yfir rekstur og skýrslur um bú- fjárrækt alla tíð. Meðfram bú- skapnum voru þau virk í tveim- ur kórum og félagsmálum, sérstaklega pabbi, innan sveitar og utan. Pabbi var bjartsýnis- maður, fús að prófa nýjungar eins og skjólbelta- og nytja- skógrækt og kornrækt sem ruddi sér almennt til rúms í framhaldi af því. Hann lifði það að sjá tré sem þau mamma plöntuðu vegna tilrauna á Sand- lækjarmýrinni höggvin sem nytjavið með stórvirkum skóg- arhöggsvélum. Pabbi las fyrir okkur fyrir svefninn og raulaði vísur og fór með kvöldbænirnar. Hann var lífsglaður, léttstígur, brosandi og gjarnan syngjandi í búverk- unum. Við fylgdum honum eftir því sem við höfðum aldur til. Hann var góður kennari, sann- gjarn verkstjóri, kunni að hrósa og hvetja til dáða, hafði lag á og fá okkur til að opna hjartað og ræða málin um það sem brann á hverju sinni. Hann varð trún- aðarvinur okkar og lagði alltaf gott til málanna, lausnamiðaður og bjartsýnn, var eiginlegra að horfa á björtu hliðarnar en hin- ar. Þau mamma voru foreldrar sem stóðu með sínum í gegnum þykkt og þunnt og lögðu ómet- anlegar línur í mannlegum sam- skiptum og jákvæðni sem eru eitt það allra dýrmætasta sem við meðtókum í uppvextinum. Börnin okkar og barnabörnin voru svo lánsöm að fá að kynn- ast þeim. Sem afi og langafi naut pabbi sín í botn, sýndi nýj- um fjölskyldumeðlimum ást og virðingu, hafði alltaf tíma til að taka á móti litlum gestum og taka þátt í leikjum þeirra og vangaveltum um lífið og til- veruna. Þannig lagði hann þeim til viðhorf sín til lífsins. Pabbi missti heilsuna fyrir um tveimur mánuðum. Ör- þreyttur og saddur lífdaga tók hann ákvörðun og óskaði lið- sinnis okkar þriggja. Hann ósk- aði þess að læknarnir aftengdu tækin sem viðhéldu veiku lífi sem hann, saddur lífdaga, kaus að ljúka með reisn. Við sátum hjá honum til skiptis eða öll saman þá fimm sólarhringa sem hann dró andann eftir það. Það var síðasta einstaka verkefnið sem hann úthlutaði okkur, börnunum sínum, í skóla lífsins, að fylgjast með því hvernig lífið fjarar út á náttúrulegan, eðli- legan hátt. Við og afkomendur okkar heiðrum minningu pabba best með því að halda uppi merki hans sem lífsglaðs, bjartsýns og jákvæðs mannvinar sem bar virðingu fyrir fegurð náttúrunn- ar. Í þakklæti fyrir það sem hann gerði fyrir okkur systk- inin, börnin okkar og barna- barnabörnin öll. Hvíli hann í ei- lífum friði. Elín Erlingsdóttir, Val- gerður Erlingsdóttir, Loftur Erlingsson. Það var sannkallaður sólardans á herbergisveggnum mínum þegar blessuð morgunsólin sendi geisla sína gegnum tindrandi asparlaufið fyrir utan gluggann minn einn morguninn. Og vakti það þegar umhugsun um annan heim þarna úti í óravíddum geimsins þar sem við lendum um síðir er við flytjum milli heima að endaðri för. Þar er hvorki sorg né sút og engin fátækt þekkist þar. Og við látum það eftir okkur að hlakka til endurfundanna við þá sem okkur hefur þótt vænst um hér forðum daga. Og sólin heldur áfram að dansa sinn sólardans á veggnum mínum - enn um sinn. (Hugleiðing EL 4. september 2019) Með kveðju frá barnabörn- um, Helgi Haukur, Guðrún Heiða, Erlingur Snær, Ásrún Halla, Ljósbrá, Kolbeinn, Þórkatla og Vésteinn. Ég kom í hlaðið á Sandlæk í maí 1971 með ferðatösku í ann- arri hendi og gúmmískó í hinni. Á móti mér tók ungur piltur sem sagði: „Komdu sæll. Hvað heitir þú?“ Ég kynnti mig og pilturinn kallaði inn í bæ: „Pabbi, kaupamaðurinn er kom- inn.“ Erlingur stóð í dyrunum, brosti út að eyrum og bauð mig hjartanlega velkominn. Móttökurnar eru mér ógleymanlegar. Maðurinn geisl- aði af gleði og kátínu. Hjá þeim heiðurshjónum Erlingi og Gunnu dvaldi ég næstu þrjú sumur sem kaupamaður. Það er mér í fersku minni hversu góð- ur andi ríkti á Sandlæk. Sam- takamátturinn mikill og já- kvæður. Á þessum árum var uppbygging lykilorð í sveitinni. Erlingur var mjög áhugasamur um allar framfarir, sama hvaða nafni þær voru nefndar. Hann var samvinnumaður með stórum staf. Maður skildi fljótt hvað hon- um var annt um sveitina sína, og um allt sem þar var að ger- ast, ekki bara hjá sér, heldur líka hjá nágrönnunum. Hann gladdist mikið þegar félags- heimilið Árnes reis, þegar sund- laugin í Þjórsárdal var vígð, þegar bændur í sveitinni voru að stækka bústofninn, nú eða bylta túnum. Okkur sem hjá Erlingur Loftsson Mér finnst að ég hafi þekkt Nonna alla mína ævi. Þegar Nonni kom fyrst heim til okkar með Dagnýju systur hafði ég aldrei séð annan eins ofurtöffara með sítt og mikið næstum svart hár, klæddur í ofursmart föt með stóran silfurkross um hálsinn, nánast eins og popp- stjarna. Krossinn varð hans aðalsmerki þó svo hann skipti í annan minni síðar. En fyrir innan þessa glansmynd sló stórt og hlýtt hjarta og einn besti maður sem ég hef kynnst. Nonni var litríkur og stór- brotinn. Hann var einstaklega duglegur og allt sem hann tók sér fyrir hendur var unnið Jón Ernst Ingólfsson ✝ Jón Ernst Ing-ólfsson fæddist 11. febrúar 1950. Hann lést 25. októ- ber 2019. Jón var jarð- sunginn 8. nóv- ember 2019. hratt og örugg- lega, hann gekk rösklega, talaði hratt og var oft óðamála, skoð- anafastur og trú- aður. Nonni var örugglega ekki allra en þeir sem kynntumst honum áttu í honum vin að eilífu. Margar góðar samveru- stundir höfum við átt með Nonna, Dagnýju og börnum þeirra í gegnum tíðina enda er stutt á milli heimila okkar. Við erum sérstaklega þakkát að hafa átt góða kvöldstund með þeim viku fyrir andlát Nonna, en þá hittumst við systkinin og makar. Mikið óskaplega sökn- um við Nonna okkar og þökk- um við honum samfylgdina. Elsku Dagný mín, Rósa Dögg, Helgi, Dagur og fjöl- skyldur, ykkar missir er mikill og sendum við okkar innileg- ustu samúðarkveðjur og styrk á þessum erfiðu tímum. Helga og Karl (Kalli). Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, KOLFINNA ÁRNADÓTTIR, Njarðarvöllum 2, Reykjanesbæ, lést á Hrafnistu Nesvöllum þriðjudaginn 29. október. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 15. nóvember klukkan 11. Ástfríður Svala Njálsdóttir Árný Dalrós Njálsdóttir Gísli Sigurðsson Jóhanna Njálsdóttir Kári Þorgrímsson Þórdís Anna Njálsdóttir Erlendur Salómonsson Kolfinna Njálsdóttir Óskar Birgisson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn Elskulegi sonur minn, bróðir, mágur og frændi, RAFN GUNNARSSON, fv. verkstjóri hjá Eimskip, Æsufelli 6, Reykjavík, lést miðvikudaginn 30. október. Útförin fer fram frá Seljakirkju þriðjudaginn 12. nóvember klukkan 13. Elsebeth Finnson Kristinn Gunnarsson Lilja K. Hallgrímsdóttir Ásta María Gunnarsdóttir Anna Gunnarsdóttir Súsanna Gunnarsdóttir Jón Vilhjálmsson Bylgja Gunnarsdóttir og frændsystkini Elskulegur faðir og afi, SVEINN ÞORLÁKSSON ýtustjóri, Hringbraut 50, lést á hjúkrunarheimilinu Grund miðvikudaginn 6. nóvember. Þorlákur R. Sveinsson og fjölskylda Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, AUÐUR BJÖRNSDÓTTIR frá Fagraskógi, lést á hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð á Akureyri þriðjudaginn 5. nóvember. Útförin fer fram frá Möðruvallaklausturskirkju laugardaginn 23. nóvember klukkan 14. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á styrktar- og líknarsjóð Oddfellowa. Þóra Björg Magnúsdóttir Sigurður Heiðdal Stefán Magnússon Sigrún Jónsdóttir Björn Vilhelm Magnússon Sigrún Ingveldur Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær dóttir okkar, systir, mágkona og frænka, GUÐRÚN MARÍA GUNNARSDÓTTIR, lést hinn 29. október í Þrándheimi, Noregi. Útför fer fram 13. nóvember klukkan 13 frá Digraneskirkju. Þorbjörg Ólafsdóttir Gunnar Viðar Jónsson Ragna K. Magnúsdóttir Jón Baldur Gíslason Kristinn Már Viðarsson Ingibjörg Jónasdóttir Jón Gunnar Gunnarsson Karen Sif Sigurðardóttir Alex Darri, Katrín Zíta, Birkir Ari, Rebekka Rán, Ýmir Baldur Elskuleg systir okkar, mágkona og frænka, SÓLRÚN HELGADÓTTIR, Hrísmóum 1, Garðabæ, er látin. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug. Fyrir hönd annarra aðstandenda, Sigurður Helgason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.