Morgunblaðið - 09.11.2019, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 09.11.2019, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2019 39 ÍSAM ehf. óskar eftir að ráða tollmiðlara. STARFSSVIÐ: • Gerð tollskýrslna og bókun reikninga •     • Samskipti við innri og ytri viðskiptavini • Skjalavinnsla •        HÆFNISKRÖFUR: •              • Reynsla af tollun •    !"    #$    • % " & !       • Kunnátta á Ax og Excel, sem og almenn    "  • Íslensku- og enskukunnátta skilyrði • Góð skipulagshæfni • ' "   $  "     Um er að ræða fullt starf og æskilegt er að viðkomandi       Umsóknarfrestur er til og með 21. nóvember 2019 og skulu umsóknir berast rafrænt á heimasíðu www.isam.is                           mannaudur@isam.is TOLLMIÐLARI ÓSKAST ISAM ehf. • BLIKASTAÐAVEGUR 2-8 • 112 REYKJAVÍK • isam.is Garðyrkjufræðingar óskast til starfa Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar auglýsir eftir garðyrkju- fræðingum til starfa. Við leitum að kraftmiklum einstaklingum til að vinna að umhirðu og fegrun grænna svæða í borginni. Garðyrkjufræðingar hafa yfirumsjón með garðyrkju og umhirðu á skilgreindum svæðum í borgarlandinu. Á næstu vikum mun ný hverfaþjónustustöð opna á Fiskslóð. Henni er ætlað að verða öflugur vinnustaður þar sem unnið er þvert á fagsvið þeirra sem starfa að umhirðu og fegrun borgarlandsins. Þar skapast ný og spennandi tækifæri til samvinnu við að gera borgina fallega, vistvæna og örugga. Um sviðið Umhverfis- og skipulagssvið (USK) gegnir fjölþættu hlutverki í umhverfis-, skipulags- og samgöngumálum í Reykjavík. Þar er framkvæmdum og viðhaldi stýrt og almennum rekstri í borgarlandinu sinnt, eins og grasslætti og snjómokstri. Undir sviðið tilheyra lögbundin verkefni byggingarfulltrúa, skipulagsfulltrúa, Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur og Bílastæðasjóðs. Sviðið er stór og framsækinn vinnustaður þar sem framúrskarandi fagfólk starfar að fjölbreyttum verkefnum. Starfsfólk hefur tækifæri til símenntunar og virkrar þátttöku í stefnumótun málaflokksins. Vinnugildi sviðsins eru vinsemd, kraftur, samvinna og hófsemd. Menntunar- og hæfniskröfur • Garðyrkjufræðingur úr Land- búnaðarháskóla Íslands eða sambærileg menntun • Reynsla af störfum í garðyrkju er æskileg • Nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð • Lipurð í samskiptum og hæfni til að vinna í teymi • Almenn ökuréttindi • Reglusemi og stundvísi • Líkamleg hreysti Um er að ræða fullt starf og æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og hlutaðeigandi stéttarfélags. UMHVERFIS- OG SKIPULAGSSVIÐ Borgartún 12–14 • S. 411 11 11 • usk@reykjavik.is Umsóknarfrestur er til og með 25. nóvember og sækja skal um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, reykjavik.is, undir Laus störf – Garðyrkjufræðingar. Nánari upplýsingar veitir Hafsteinn Viktorsson í síma 411 1111 eða á Hafsteinn.Viktorsson@reykjavik.is. Öllum umsækjendum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Viltu mála BORGINA OKKAR græna? Safnvörður við Byggðasafn Árnesinga Starf safnvarðar við Byggðasafn Árnesinga er laust til umsóknar. Um er að ræða fullt starf. Unnið er undir stjórn safnstjóra að faglegum störfum við safnið. Starfið er fjölbreytt og fellst í móttöku gestahópa og leiðsögn, gæslu, safnmunaskráningu í Sarp, umsýslu varðveislu safnkosts, viðburðastjórnun, sýningagerð, markaðssetningu, safnfræðslu fyrir nemendur skóla og ýmsu fleiru. Leitað er að drífandi og áhugasömum einstaklingi sem er sjálfstæður og vandaður í vinnubrögðum og lipur í mannlegum samskiptum. Æskilegt er að umsækjandi hafi menntun sem nýtist í starfi og þekkingu á safnastarfi. Góð almenn tölvukunnátta er nauðsynleg og góð íslenskukunnátta og ritfærni. Æskilegt er að viðkomandi geti unnið utan hefðbundins dagvinnutíma þegar svo ber undir. Byggðasafn Árnesinga er í eigu Héraðsnefndar Árnesinga bs., starfssvæðið er Árnessýsla öll en höfuðstöðvar safnsins eru á Eyrarbakka. Safnið er með skrifstofu og geymslur að Hafnarbrú 3 á Eyrarbakka og grunnsýningu í Húsinu á Eyrarbakka, Eggjaskúrnum og Kirkjubæ. Það sér einnig um starfsemi Sjóminjasafnsins á Eyrarbakka og Rjómabúsins á Baugsstöðum skv. þjónustusamningum. Framundan er spennandi og krefjandi verkefni við flutning innri aðstöðu safnsins í nýtt húsnæði. Upplýsingar um Byggðasafn Árnesinga má finna á heimasíðu safnsins www.byggdasafn.is. Umsóknir skal senda til Byggðasafns Árnesinga, Hafnarbrú 3, 820 Eyrarbakka eða á netfangið lydurp@byggdasafn.is. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir skulu innihalda starfsferilsskrá og kynningarbréf sem greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum ásamt rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Umsóknarfrestur er til 1. desember 2019. Gert er ráð fyrir að ráða til eins árs með möguleika á framtíðarráðningu. Laun samkvæmt kjarasamningi Fræðagarðs við Samband íslenskra sveitarfélaga. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf ekki síðar en 1. mars 2020. Nánari upplýsingar gefur Lýður Pálsson safnstjóri í síma 891 7766. Ertu að leita að sérfræðingi? hagvangur.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.