Morgunblaðið - 09.11.2019, Qupperneq 42
42 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2019
60 ára Elínborg er
Reykvíkingur, hún er ís-
lenskukennari að mennt
og kennir við Kvenna-
skólann í Reykjavík. Hún
er meðhöfundur náms-
bókanna Skáld skrifa
þér og Tungutak.
Börn: Snorri Örn Clausen, f. 1980, Birna
Helena Clausen, f. 1985, og Ívar Örn Clau-
sen, f. 1992. Barnabörnin eru orðin 6.
Foreldrar: Ragnar Þorsteinsson, f. 1923,
d. 2000, fulltrúi hjá RÚV, og Guðrún Snjó-
laug Reynisdóttir, f. 1929, d. 1999, skrif-
stofum. hjá Strætisvögnum Reykjavíkur.
Elínborg
Ragnarsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þér tekst einhvern veginn ekki að
ná til þeirra sem þú vilt ná til. Fjöl-
skyldan er þér allt. Hugsaðu vel um
hana.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er kominn tími til að eiga
samskipti við nýju nágrannana. Vanda-
mál og tafir gera þér lífið leitt og fréttir
sem þú færð draga þig niður.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Varastu að gera vandamál ann-
arra að þínum. Allt er gott sem endar
vel. Farðu varlega í umferðinni.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú hefur í svo mörgu að snúast
að þú þarft að fá fólk í lið með þér til
þess að hlutirnir gangi upp. Gefðu þér
tíma til þess að fara í naflaskoðun.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er auðvelt að láta hugfallast í
dag, og jafnvel að finnast þú minni mátt-
ar. Mundu bara að það kemur dagur eftir
þennan dag.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú ert með of mörg járn í eld-
inum í einu. Haltu þínu striki þó að sum-
um finnist þú helst til frek/ur því þú get-
ur ekki gert öllum til hæfis.
23. sept. - 22. okt.
Vog Einhver sýnir þér trúnað. Kappsemi
þín hvetur aðra til samstarfs við þig. Þú
nýtur vinsælda á meðal samstarfsfélaga
þinna.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Varastu öll gylliboð sem
eiga að færa þér hamingju og auðæfi í
einu vetfangi. Láttu í þér heyra ef þér
misbýður eitthvað.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er erfitt að velja, þegar
vegir liggja til allra átta. Leyfðu þér að
berast með straumnum og gerðu ráð
fyrir því að þú lendir á réttum stað.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Leiftrandi bjartsýni þín smitar
aðra í kringum þig og jákvæð orka þín
kemur bæði þér og öðrum til góða. Þú
treystir á innsæið eins og oft áður.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Viðkvæmni gerir vart við sig í
nánu sambandi. Eitthvað hrjáir þig og því
ættir þú að leita til læknis og láta athuga
það sem fyrst.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Áhyggjur hverfa ef þú hunsar þær
nógu lengi. Láttu aðra ekki hafa áhrif á
þig. Þú ert í fasteignahugleiðingum.
J
ón Ármann Gíslason er
fæddur 10. nóvember 1969
í Linköping í Svíþjóð. Fjöl-
skylda hans fluttist heim til
Íslands árið 1971 og ólst
upp í Laugarneshverfinu. Hann
dvaldist oft á Sauðárkróki á sumrin á
æskuárum. „Það var gaman að vera
þar í fallegu umhverfi hjá ættingjum.
Það er mikill uppáhaldsstaður.“
Jón Ármann gekk í Laugarnes- og
Laugalækjarskóla og varð stúdent
frá Menntaskólanum við Hamrahlíð
árið 1988 og varð guðfræðingur frá
Háskóla Íslands árið 1996. „Þegar ég
fór að velta fyrir mér lífinu og tilver-
unni þá fannst mér kristin trú veita
bestu svörin við þessum spurningum
og ákvað að skella mér í guðfræðina.“
Jón Ármann hefur verið sóknar-
prestur í Skinnastaðarprestakalli (nú
Langanes- og Skinnastaðar-
prestakalli) frá 1. desember 1997.
Hann vígðist til prests 30. nóvember
sama ár. „Ég þekkti nánast ekkert til
hér á Skinnastað, þetta var alveg nýr
heimur fyrir manni að vera svona
lengst úti í sveit, en við erum búin að
vera hér í 22 ár eiginlega upp á dag.
Ég hef átt kindur og hef því fengið
smá nasaþef af sveitastörfunum, en
hér snýst nær allt um sauðfjárrækt,
en einnig töluvert um fiskeldi og
ferðaþjónustan er svo að koma sterk
inn. Hún á eftir að aukast enn meira
þegar Dettifossvegur verður tilbú-
inn. Það eru mjög margir sem skoða
Ásbyrgi en okkur finnst að fleiri
mættu koma yfir brúna í Öxarfjörð
og út á Melrakkasléttu til að skoða
alla þá fögru staði sem er hér að
finna.“
Skinnastaður er víðfeðmt presta-
kall og nær frá Kelduhverfi og austur
yfir Raufarhöfn en á svæðinu búa 500
manns. „Skinnastaður er þekktur
fyrir galdraprestana sína og hér ólst
Sigurður Pálsson skáld upp. Hér er
eitt fallegasta svæði á landinu og frá
Skinnastað er hægt að sjá öll tilbrigði
landsins í gróðurfari og náttúru,
skóga og grösug svæði og líka svart-
an sand og eyðingarmátt Jökulsár á
Fjöllum.“
Jón Ármann hefur verið prófastur
í Þingeyjarprófastsdæmi frá 2006 og
í sameinuðu Eyjafjarðar- og Þingeyj-
arprófastsdæmi frá 2010, en í pró-
fastsdæminu eru 12 prestaköll og er
skrifstofa prófastsdæmisins á Akur-
eyri. „Ég vinn samt aðallega heima,
en starfir útheimtir ferðalög inni á
milli eins og gengur. Prófasturinn er
fulltrúi biskups á svæðinu og hefur
umsjón með kirkjulegu starfi og
skipulagningu þess.“
Jón Ármann var stundakennari í
Öxarfjarðarskóla tíu fyrstu árin á
Skinnastað, hann var í stjórn Öxar-
fjarðardeildar Rauða kross Íslands
og situr nú í stjórn Jarðskjálftaseturs
á Kópaskeri.
„Ég hef gaman af ljósmyndun og
stundaði hana mikið á árum áður og
núna er ég að læra frönsku í frí-
stundum. Les bækur á frönsku, en
þetta er fallegt tungumál og menn-
ing. Svo er fullt starf að fylgjast með
öllum íþróttunum,“ en Jón Ármann
heldur með Víkingi í Reykjavík og
West Ham í enska boltanum.
„Það stendur ekki til að gera neitt
núna í tilefni afmælisins, konan mín
er að leysa af sem prestur á Akureyri
svo það verður ekki haldið upp á af-
mælið fyrr en á nýju ári.“
Jón Ármann Gíslason, sóknarprestur og prófastur – 50 ára
Mæðgin Sigurður Kári, Hildur og Þorsteinn Gísli stödd í London í fyrra.
Sér öll tilbrigði landsins
Hjónin Jón Ármann og Hildur að skemmta eldri borgurum í Stóru-Mörk á Kópaskeri.
30 ára Erla er Reyk-
víkingur, hún er
organisti og mann-
fræðingur að mennt
og er organisti í
Grindavíkurkirkju.
Maki: Hilmar Kristins-
son, f. 1980, stjórn-
málafræðingur.
Börn: Ástrós Eva Hilmarsdóttir, f. 2008,
og Kári Hilmarsson, f. 2014.
Foreldrar: Kári Ragnarsson, f. 1964,
húsgagnasmiður, og Guðný Jónsdóttir, f.
1964, húsgagnasmiður. Þau eru búsett í
Reykjavík.
Erla Rut
Káradóttir
Til hamingju með daginn
STOFNAÐ 1953Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • Sími: 553 1380
Hreinsum gluggatjöld,
sófaáklæði, ullarteppi og púðaver
Hafðu hreint fyrir
gluggunum
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is