Morgunblaðið - 09.11.2019, Blaðsíða 45
ÍÞRÓTTIR 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2019
Þegar portúgalski knatt-
spyrnumaðurinn André Gomes í
liði Everton varð fyrir slæmum
meiðslum í leik liðsins gegn Tott-
enham um síðustu helgi rifjaðist
upp atvik sem átti sér stað á
gamla Valsvellinum á Hlíðarenda
fyrir 35 árum.
Áhorfendur á Goodison Park
hryllti við því sem þeir sáu því
um slæm ökklameiðsli var að
ræða og fóturinn sneri víst ekki
alveg rétt í kjölfarið. Passað var
upp á að sýna þetta ekki frekar í
sjónvarpi til að ofbjóða ekki
áhorfendum. Þeim sem horfði á
leikinn með mér til lítillar
skemmtunar!
En þeir sem vilja sjá fót snúa
einkennilega geta farið inn á
timarit.is og flett upp í Morgun-
blaðinu frá 6. júlí 1984. Kvöldið
áður lék 19 ára gamall nýliði í
marki KA gegn Val í bikarleik.
Snemma leiks varð hann fyrir
slæmum ökklameiðslum.
Á myndum í blaðinu má
glöggt sjá hvernig fóturinn er
langt frá því að snúa eðlilega.
Þar sést líka læknirinn, vinstri
bakvörðurinn og núverandi for-
stjóri Bláa lónsins, Grímur Sæ-
mundsen, standa yfir sárþjáðum
markverði KA.
Ég var á Hlíðarenda þetta
kvöld og gleymi aldrei svakaleg-
um spretti Gríms yfir allan völl-
inn og hann varð fyrstur til að
veita markverðinum aðstoð. Mið-
að við það sem gerst hefur í
seinni tíð hefði hann líklega
fengið gult spjald í dag!
Markvörðurinn ungi spilaði
ekki meira þetta sumarið en
hann náði sér að fullu, mætti gal-
vaskur til leiks næsta vor og
missti ekki úr leik næstu ellefu
ár. Hann heitir Birkir Kristinsson
og er leikjahæsti maður efstu
deildar, og leikjahæsti landsliðs-
markvörður Íslands.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
VIÐHORF
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Ég skynja að margir sparkunnendur
sem ég þekki eru orðnir tæpir á taug-
um eftir að VAR (video assistant
referee) hóf innreið sína í sparkheima
sem við hér á eyjunni fylgjumst með í
gegnum raftækin okkar. Ég er nefni-
lega svo næmur. Ég finn að töluvert
er farið að ganga á birgðastöðuna
þegar kemur að þolinmæðinni hjá
mörgum sem eyða mörgum klukku-
stundum í mánuði að horfa á knatt-
spyrnuleiki.
Í mörgum íþróttagreinum er farið
að nýta tæknina til að aðstoða dóm-
arana við að komast að niðurstöðu og
forðast mistök sem mikil áhrif kunna
að hafa á úrslitin. Bæði er tæknin
notuð í mörgum hópíþróttum en við
höfum einnig í langan tíma getað séð
nákvæmar sjónvarpsmyndir af því
þegar hlauparar hlaupa yfir marklín-
una á stórmótum í frjálsum.
Í sparkinu finnst mörgum sem
menn fari offari þegar kemur að
myndbandsnotkuninni. Eftir að VAR
kom til sögunnar séu menn eins og
beljur að vori og yfirvegunin í notk-
uninni megi vera meiri. Framsal
valds frá dómurunum og inn í vídeó-
herbergi er þá einnig orðið nokkuð
mikið.
Möguleikinn áfram fyrir hendi
Þar sem ég er viljugur til að láta
gott af mér leiða er ég tilbúinn til
þess að hjálpa knattspyrnuheiminum
áður en allt fer í bál og brand. Eða
eins og vinnufélagi minn (sem vill
ekki láta nafns síns getið og við skul-
um bara kalla Björn) segir stundum:
„Ég er hérna til að hjálpa.“
Tíminn sem fer í að skoða atvikin
er talsverður á heildina litið og svo
sem skiljanlegt að fólki finnist leik-
urinn missa dampinn við það. Ég sé
fyrir mér að millileikur í stöðunni
gæti verið sá að nýta tæknina til að
auka líkur á sanngjarnri niðurstöðu
en að hún sé nýtt sjaldnar.
Marklínutæknina ætti að nota
áfram til að úrskurða hvort boltinn
hafi farið inn fyrir marklínuna eða
ekki. Í ljósi þess að enn er milliríkja-
deila á milli Englendinga og Þjóð-
verja, um hvort mark í úrslitaleik
HM 1966 hafi átt að standa eða ekki,
er líklega nokkur þörf á að nota
tæknina við slíkar aðstæður. Mark-
línutæknin er ágætt dæmi um að
tæknin sé til góðs fyrir íþróttina.
Ég myndi hins vegar leggja til að
sleppa því að nota tæknina að öðru
leyti nema þegar liðin óska eftir því.
Þá myndu knattspyrnustjórarnir
eiga þann kost að atvik sé skoðað
með myndbandstækninni og dóm-
arinn taki ákvörðun í framhaldi af
því. Liðin myndu fá kvóta í hverjum
leik og knattspyrnuhreyfingin gæti
komið sér saman um hversu oft þjálf-
ararnir mættu beita slíku úrræði. Til
dæmis einu sinni í leik eða einu sinni í
hvorum hálfleik. Þá væri í það
minnsta búið að koma einhverri reglu
á þetta.
Þekkt útspil í NFL og NHL
Þarna er einfaldlega verið að horfa
til annarra íþrótta sem styðjast við
myndbandstækni. Í ameríska fótbolt-
anum NFL og amerísku NHL-
deildinni í íshokkíi er stuðst við
myndbandstæknina. Útfærslan í
knattspyrnu yrði ekki nákvæmlega
eins og vestanhafs.
Þar geta þjálfarar liðanna gripið til
þess að óska eftir því að atvik sé
skoðað sérstaklega. Þá eru þeir sem
sagt ósammála niðurstöðu dóm-
aranna og mega efast um hana. Í ís-
hokkíi er tæknin eingöngu notuð til
að skoða hvort mark hafi átt að
standa eða ekki að ég held. Í NFL er
tæknin notuð býsna mikið.
Í báðum tilfellum reynir á klókindi
þjálfaranna því liðum þeirra er refsað
ef efasemdir þeirra skila ekki annarri
niðurstöðu. Ef dómararnir halda sig
við fyrri ákvörðun, eftir að hafa skoð-
að atvikin í þaula, fá liðin refsingu. Í
NHL missir liðið mann af ísnum í
tvær mínútur sem yfirleitt þýðir að
liðið liggur í vörn á meðan og gæti
hæglega fengið á sig mark. Í NFL
tapar liðið leikhléi ef þjálfarinn hafði
rangt fyrir sér.
Í knattspyrnunni væri hægt að
beita einhvers konar refsingu ef upp-
haflegri ákvörðun dómarans er ekki
breytt. Knattspyrnustjórarnir
myndu þá ekki nota þetta úrræði
nema rík ástæða þætti til.
Minnka mætti videógláp
í miðjum kappleikjum
Knattspyrnan gæti horft til Bandaríkjanna Stjórarnir myndu fá útspil
AFP
Skjáskoðun Dómarinn Cuneyt Cakir skoðar myndskeið af atviki í leik sem hann dæmdi í Meistaradeildinni.
Arnar Freyr Arnarsson, línumaður íslenska landsliðsins
í handknattleik, verður leikmaður þýska félagsins Mel-
sungen frá og með næsta keppnistímabili. Hann hefur
samið við Melsungen til þriggja ára frá og með 1. júlí.
Bæði félögin tilkynntu þetta í gær. GOG staðfesti þar að
Arnar hefði verið seldur úr landi, en ekki hvert. Hann
var samningsbundinn Dönunum til vorsins 2021. Melsun-
gen staðfesti síðan að félagið væri búið að ganga frá
kaupum á Arnari og semja við hann. Melsungen er í 6.
sæti þýsku 1. deildarinnar, aðeins einu stigi á eftir Kiel
sem er í 2. sæti og hefur verið að þoka sér nær bestu lið-
um Þýskalands á undanförnum árum.
Arnar er 23 ára gamall og lék með Fram til 2016 en síðan með sænska
liðinu Kristianstad í þrjú tímabil þar sem hann varð tvisvar sænskur meist-
ari. Hann kom síðan til liðs við GOG í sumar og er þar á sínu fjórða tímabili
í röð í Meistaradeild Evrópu. Arnar hefur leikið með íslenska landsliðinu á
undanförnum þremur stórmótum og spilað 44 landsleiki. vs@mbl.is
Staðfestu kaupin á Arnari
Arnar Freyr
Arnarsson
John Henry Andrews hefur verið
ráðinn þjálfari kvennaliðs Víkings í
knattspyrnu, en það leikur í 1. deild
á komandi keppnistímabili. HK og
Víkingur hafa verið með sameigin-
legt lið í tvo áratugi en slitu sam-
starfinu í haust og sömdu um að
Víkingur færi í 1. deild en HK í 2.
deild. Andrews hefur starfað á Ís-
landi um árabil, þjálfaði kvennalið
Aftureldingar í nokkur ár og hefur
verið með lið Völsungs á Húsavík
síðustu tvö ár, en það vann 2. deild
kvenna með yfirburðum í ár.
Andrews tek-
ur við Víkingi
Ráðinn John Henry Andrews
þjálfar kvennalið Víkings