Morgunblaðið - 09.11.2019, Side 51

Morgunblaðið - 09.11.2019, Side 51
MENNING 51 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2019 Kvikmyndaserían um Tor-tímandann hefur lifaðágætu lífi í gegnum tíð-ina, þó að flestir séu sammála um að fyrstu tvær mynd- irnar af þeim fimm sem gerðar hafa verið til þessa standi hinum miklum mun framar. Sú fyrsta, sem kom út árið 1984, bjó til Tortímandann, lík- lega frægasta hlutverk Arnolds Schwarzeneggers, sem og setn- inguna fleygu: „I’ll be back“, sem síðan hefur náð að troða sér með góðu eða illu inn í flestallar myndir Arnolds. Þar var kappinn í hlutverki ófyrirleitins vélmennis, sem sent var aftur í tímann til þess að drepa Söruh Connor, leikin af Lindu Ham- ilton, áður en hún gæti fætt John Connor, sem í framtíðinni myndi leiða mannkynið til sigurs yfir illu gervigreindinni Skynet. Framhaldsmyndin árið 1991 þótti ekki síðri, sér í lagi þar sem þar var farin sú leið að gera tortímanda Schwarzeneggers að „góða gæj- anum“, en Robert Patrick fékk að vera T-1000, seigfljótandi illmenni, sem eltist við Söruh og John Con- nor, en tókst ekki betur til en svo að það tókst að koma í veg fyrir að dómsdagur rynni upp hinn 29. ágúst 1997. Síðan þá hafa þrjár aðrar tortím- andamyndir verið gerðar við mis- mikla hylli, en ljóst er að eitt helsta takmark núverandi myndar er að láta sem þær hafi einfaldlega gerst í einhverri annarri tímalínu, en þráð- urinn er þess í stað tekinn upp þar sem frá var horfið í lok Tortímand- ans 2. Að þessu sinni er sögusviðið Mexíkóborg, þar sem nýtt dráps- vélmenni er sent til baka til þess að reyna að myrða Dani Ramos (Na- talia Reyes) áður en hún tryggir með einum eða öðrum hætti mann- kyninu sigur á Legion, annarri gervigreind sem rís upp úr öskum Skynet. Leikaravalið er að mestu gott, og á Arnold Scwarzenegger flotta spretti sem hinn upphaflegi tortím- andi, sem hefur orðið eldri og vitr- ari með árunum. Linda Hamilton sýnir einnig hvers vegna hennar hefur verið sárt saknað úr mynda- bálknum, en Sarah Connor í þessari mynd er hörkutól sem nýtir sér bitra reynslu sína til þess að veiða tortímandavélmenni hvar sem til þeirra næst. Af fulltrúum nýja tímans sýnir Mackenzie Davis (Blade Runner 2049) flotta takta sem Grace, ofur- hermaður úr framtíðinni, sem send er til baka sérstaklega til þess að verja Daniellu Ramos (Natalia Reyes), en líkt og í fyrri myndum er ljóst að vondu vélmennin vilja deyða Dani og koma í veg fyrir að hún uppfylli örlög sín og bjargi mann- kyninu á sinn hátt. Þar sem helst skortir upp á er í sjálfum vonda kallinum, hinum nýja og skelfilega tortímanda af gerðinni Rev-9, en sá er búinn þeim eigin- leika að vera bæði í föstu og fljót- andi formi. Þrátt fyrir að vélmennið ægilega gefi fyrirrennurum sínum lítið eftir í drápsgetu og bardaga- færni skortir eitthvað aðeins upp á að Gabriel Luna nái að ljá því þann sjarma sem bæði Schwarzenegger og Robert Patrick náðu á sínum tíma. Rev-9-tortímandinn verður því frekar óspennandi og óeftir- minnilegur, sem er frekar mikil synd í hasarmynd af þessu tagi. Þá verður einnig að segja að þó að mjög margt sé gert vel í mynd- inni veldur hún um sumt ákveðnum vonbrigðum. Hasaratriðin eru vel gerð og allar tæknibrellur fyrsta flokks. Myndina skortir einhvern veginn sömu sál og einkenndi fyrstu tvær myndirnar. Það er til dæmis mun minna af húmor í þessari og fyrir vikið verður hún þyngri í vöf- um, og jafnvel langdregin um mið- bikið. Terminator: Dark Fate fellur því í hinn stóra flokk mynda sem talist geta ágætis afþreying, en líklega mun hún höfða langmest til harðra aðdáenda Tortímandans eða Schwarzeneggers. Þeir fá enda nokkuð fyrir sinn snúð. Stóra spurningin er hins vegar hvort sá efniviður sem hér hefur verið búinn til muni nýtast framleiðendum til þess að láta tortímandann snúa aft- ur og aftur. Einhvern veginn virðist það ekki vera í spilunum. Tortímandinn snýr aftur Sambíóin, Laugarásbíó, Smára- bíó og Borgarbíó Akureyri Terminator: Dark Fate bbbnn Leikstjóri: Tim Miller. Handrit: David Goyer, Justin Rhodes og Billy Ray, byggt á sögu James Camerons, Charles H. Eglees, Josh Friedmans, Davids Goyers og Justins Rhodes. Aðalhlutverk: Linda Hamilton, Arnold Schwarzenegger, Mackenzie Davis, Natalia Reyes, Gabriel Luna og Diego Boneta. Bandaríkin 2019, 128 mínútur. STEFÁN GUNNAR SVEINSSON KVIKMYNDIR Tortímandinn Arnold Schwarzenegger snýr aftur einu sinni enn. Ragnhildur Jóhanns opnar sýningu í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglu- firði, í dag, laugardag, kl. 15 sem ber yfirskriftina Hvílist mjúklega. Málverkaserían Hvílist mjúklega er byggð á samnefndum pistlum sem birtust í tímaritinu Frúin sumarið 1962. Í tilkynningu kemur fram að pistlarnir eru „útdrættir úr bók frú- arinnar Ingrid Prahm sem var kunn- ur leikfimis- og afslöppunarsérfræð- ingur á þeim tíma. Hún skrifaði bók um æfingakerfið sem byggist á viðbrögðum dýra sem hún segir kunna þá list að slaka fullkomlega á vöðvum sínum þegar þau hvílast. Við æfing- arnar er notaður húllahringur og reynt er að apa eftir dýrunum í hinum ýmsu stellingum til þess að ná hinni fullkomnu slökun. Ingrid Prahm tekst svo snilldar vel að búa til mjög ljóðrænt og fallegt æfingakerfi. Hún er að kenna konum að æfa sig, líta betur út en á sama tíma að vera afslappaðar.“ Ragnhildur Jóhanns er fædd 1977 og býr og starfar í Reykjavík. Hún hefur tekið þátt í fjölda einka- og samsýninga bæði hér heima og erlendis síðan hún útskrifaðist frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands 2010. Sýningin Hvílist mjúklega stendur til 24. nóvember. Byggt á pistlum afslöppunarfræðings Æfing Eitt af verkum Ragnhildar. „Þetta er áframhald,“ segir Leifur Ýmir Eyjólfsson myndlistarmaður um nýja sýningu sína, Handrit III, sem verður opnuð kl. 17 í dag í Listamönnum galleríi. Á hann þar við að sýningin sé framhald af fyrri sýningu hans, Handrit, sem opnuð var í fyrra. „Þetta verk hafði hvorki upphaf né endi. Ég gerði heiðarlega tilraun til að einbeita mér að öðru en fann að þetta verkefni væri ekki alveg búið,“ segir Leifur Ýmir. „Þetta verður í raun þríleikur,“ segir hann en sýningin Handrit II er væntanleg þegar fram líða stundir og kveðst Leifur Ýmir vera byrjaður að vinna að þeirri sýningu. Á fyrri sýningunni notaðist Leifur Ýmir við leirplötur sem hann brenndi og skrifaði á tilfallandi orð og setningar sem svo mynduðu heild. Nú er efniviðurinn pappír sem útskýrir hvers vegna þessi sýning kallast Handrit III en ekki II. „Nú er þetta á pappír sem er nær okkur í tíma,“ segir hann en efniviðurinn og hvenær hann var notaður í sögunni ræður þannig röðinni; leirplöturnar komi fyrstar, bókfell komi næst og svo pappírinn á þessari sýningu. Leifur Ýmir segist hafa byrjað að vinna að Handriti III um leið og fyrri sýningu hans var lokið. „Hún er búin að vera að mjatlast,“ segir hann og vill meina að aðferðafræðin á bak við þessa sýningu sé sú sama og áður. „Að mynda yfirþyrmandi hugrenningatengsl,“ segir hann um aðferðafræðina. Þó er hægt að skoða hvert verk fyrir sig á sýningunni að sögn Leifs Ýmis og hafa þau ákveð- inn persónuleika. „Verkin eru svolít- ið eins og portrettmyndir í raun- inni.“ Eins og áður segir verður sýningin opnuð kl. 17 og er opin til 19 í dag. Þá er hún opin frá kl. 9 til 18 alla virka daga og 12 til 16 alla laugardaga í nóvember. bodvarpall@mbl.is Morgunblaðið/Einar Falur Tengsl Leifur Ýmir Eyjólfsson vill í sýningunni mynda yfirþyrmandi hug- renningatengsl. Segir hann um framhald af sýningunni Handrit að ræða. Þríleikurinn heldur áfram  Leifur Ýmir opnar Handrit III í Listamönnum galleríi í dag kl. 17 Viðburður á vegum Reykjavíkur bók- menntaborgar UNESCO í tengslum við Drop the mic, samstarfsverkefni Lillehammer, Reykjavíkurborgar og Tartu sem allar eru bókmenntaborg- ir UNESCO og tónlistarborgarinnar Reykjavíkur, fer fram í Mengi annað kvöld kl. 20. Íslensku þátttakend- urnir eru Gunnar Ragnarsson og Kol- finna Nikulásdóttir sem bæði eru tón- listarmenn og með þeim eru Hilde Susan Jaegtnes og Erik Eikehaug frá Noregi og frá Eistlandi Kaisa Kus- lapuu og Toomas Leppik. Drop the mic í Mengi annað kvöld Listafólk Hópurinn sem fram kemur og vinnur með hið ritaða orð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.