Morgunblaðið - 09.11.2019, Síða 53

Morgunblaðið - 09.11.2019, Síða 53
kosti og galla að tengingin sé ekki meiri, þótt safnið heiti vissulega Tími til að tengja. Kostirnir eru meðal annars þeir að hægt er að lesa eina sögu á nokkrum mínútum, skella bókinni aftur og lesa aðra stutta sögu næst þegar lestrar- andinn hellist yfir mann. Gallarnir hljóta þá að vera að dýptin er ekki jafn mikil og ef heilt skáldverk er lesið. Tengingin við persónur verður jafnframt minni en í lengri verkum en ekki er hægt að ætlast til þess að lesandi tengist per- sónu jafn vel í tíu blaðsíðna sögu og þrjú hundruð síðna. Rauði þráðurinn er jólin og kostu- legir atburðir þeim tengdir. Það er engin ástæða til að taka hlutina of al- varlega og fólk getur gert margt vit- lausara en að lesa þetta smásagna- hefti á aðventunni. Ljósmynd/Skapti Hallgrímsson Húmor Sögurnar í smásagnasafni Bjarna Hafþórs Helgasonar eru ekki hefðbundnar jólasögur en allar tengjast þær jólunum á einn eða annan hátt. MENNING 53 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2019 100% Merino ull Flott og þægileg ullarnærföt við allar aðstæður Frábært verð Höfðabakki 9, 110 Reykjavík | Sími 561 9200 | run@run.is | www.run.is OLYMPIA Sölustaðir: Hagkaup • Fjarðarkaup • Útilíf • N1 • Vesturröst • Verslun Guðsteins Eyjólfssonar • Heimkaup • Verslunin Bjarg, Akranesi • JMJ, Akureyri Lífland, Hvolsvelli og Blönduósi • Verslunin Blossi, Grundafirði Efnalaug Vopnafjarðar Kaupfélag Skagfirðinga • Smart, Vestmannaeyjum • Verslun Grétars Þórarinns- sonar, Vestmannaeyjum • Kaupfélag V-Húnvetninga • Borgarsport, Borgarnesi Verslun Bjarna Eiríkssonar, Bolungarvík • Verslun Dóru, Hornafirði Þernan, Dalvík • Siglósport, Siglufirði • Vaskur, Egilsstöðum Skóbúð Húsavíkur • Efnalaug Suðurlands, Selfossi Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Vigdís sýndi mér mikið traust með því að leyfa mér að segja sögu sína og henni finnst bókin „megaflott“, svo ég noti hennar eigin orð,“ segir Rán Flygenring, teiknari og höf- undur myndabókarinnar Vigdís, bókin um fyrsta konuforsetann. „Það er í raun ótrúlegt að það skuli ekki hafa verið gerð svona myndabók um Vigdísi fyrir löngu, en hugmyndin kemur frá Eddu Hafsteinsdóttur. Hún bjó í Kaliforníu ásamt fjölskyldu sinni en þar er mikið gefið út af bókum um kven- hetjur. Henni fannst vanta bók fyrir krakka um sterka kvenfyrirmynd úr íslensku samfélagi, svo hún kom að máli við Maríu Rán og Þorgerði Öglu í Angústúru bóka- útgáfu. Mér var síðan falið þetta verkefni, sem er gríðarlegur heiður fyrir mig. Þetta er búið að vera skemmtilegt en líka erf- itt. Mér fannst mesta áskorunin falin í því að ákveða hvernig ég ætti að segja þessa sögu, því það er engin ein leið rétt og af svo miklu að taka. Ég gæti eytt afganginum af ævinni í að skrifa þessa bók aftur og aftur með ólíkum hætti í hvert sinn,“ segir Rán sem ákvað að láta sögumanninn í bókinni vera barn sem bankar upp á hjá Vigdísi á heimili hennar við Aragötuna og segist langa til að skrifa bók um hana. „Mér fannst það ágæt leið til að geta verið í samtali við Vigdísi og auðvelt fyrir börn að setja sig í spor þessa hugrakka barns.“ Vigdís og Ástríður mjög jákvæðar Bókin er unnin í samráði við Vigdísi og Rán hitti hana áður en hún byrjaði á bókinni og einnig nokkrum sinnum meðan á vinnunni stóð. „Ég studdist mikið við heimildir og notaði mest bókina hans Páls Valssonar um Vigdísi, Kona verður forseti. Hún reyndist mér of- boðslega vel, ég lærði hana eiginlega utan- bókar,“ segir Rán og hlær. „Ég heimsótti Vigdísi og Ástríði dóttur hennar mest í lok vinnunnar við bókina og voru þær báðar afskaplega hjálpsamar. Þær mæðgur voru mjög jákvæðar gagnvart þessu allan tímann. Samstarfið var snurðulaust og þar sem Vigdís segir frá í fyrstu persónu í bókinni þá fannst mér gaman þegar hún var að laga tilsvörin sín og skaut inn athuga- semdum eins og „svona myndi ég ekki segja þetta“ eða „ég myndi ekki nota þetta orð held- ur annað“. Vigdís breytti heimsmynd margra Rán fæddist árið 1987 svo hún var ekki fædd þegar Vigdís var kosin forseti 1980. „Þegar ég komst til vits og ára þekkti ég ekki annað en að kona væri forseti Íslands. Mér fannst Vigdís vera Forsetinn með stóru effi. Margar af vinkonum mínum sem eru að- eins eldri en ég og muna eftir forsetakjörinu segja að þetta hafi gjörsamlega breytt þeirra heimsmynd. Svona fyrirmynd skiptir svo miklu máli og ég vildi koma því til skila í bók- inni hvað þetta var rosalegt skref fyrir konu að bjóða sig fram. Mig langaði líka að vera trú hennar persónu, en Vigdís er svo samkvæm sjálfri sér. Nú á tímum þegar allir eru á út- opnu með sína netprófíla dáist ég að þeirri miklu reisn og virðingu sem einkennir hana. Hún er persónuleg en aldrei dramatísk. Mér finnst það mjög aðdáunarvert,“ segir Rán og bætir við að bókin vísi auk þess langt út fyrir persónu Vigdísar. „Mér fannst ég læra svo mikið á því að sökkva mér ofan í líf og störf Vigdísar, en í bókinni segir líka frá sögu Reykjavíkur og Íslands á þessum tíma, kvenréttindabaráttu, náttúruvernd, tungumálinu, leikhúsinu og fleiru sem Vigdís kom að. Það var ótrúlega gaman að vinna að þessari bók, draga fram ótal margt og púsla saman í litla sögu, svolítið eins og að leysa þraut.“ Hún er í ramma yfir brauðristum Rán segir magnað að eftir því sem hún vann meira við bókina hafi sér fundist eins og Vigdís væri alls staðar. „Hvert sem ég fór fannst mér hún vera þar. Til dæmis þegar ég var á Norðfirði að mála og í húsinu þar sem ég bjó kíkti ég fyrir tilviljun á bak við stóran spegil í herberginu mínu og þar kom í ljós handskrifað bréf frá Vigdísi í ramma. Í Frakklandi hitti ég konu og í ljós kom að hún vann fyrir Vigdísi í ferða- málabransanum fyrir hennar forsetatíð. Svona hélt þetta áfram og mér fannst ég soga þetta að mér, en svo áttaði ég mig á að ég væri aukaatriði í þessu, heldur er nærvera Vigdísar yfir og allt um kring af því að hún hefur haft svo gríðarleg áhrif. Fólki er hún svo kær, hún er í ramma yfir brauðristum landsins.“ Rán segist afar ánægð með að gróðursett verður birkihrísla fyrir hverja selda bók. „Þessi hugmynd kom upp snemma í ferlinu, því við viljum gefa eitthvað til baka á þessum síðustu og verstu umhverfistímum, bækur eru jú gerðar úr pappír sem unninn er úr trjám. Þetta gerum við í samstarfi við Yrkjusjóð Vig- dísar og Skógræktarfélag Íslands.“ Úgáfuboð verður á morgun, sunnudag, í Veröld, húsi Vigdísar, kl. 14 og þangað ætla þær að mæta báðar Rán og Vigdís. Morgunblaðið/Eggert Teiknari á vinnustofu Rán segir enga eina leið rétta til að segja sögu Vigdísar. „Ég gæti eytt afganginum af ævinni í að skrifa þessa bók aftur og aftur með ólíkum hætti í hvert sinn.“ Símskeyti „Dag einn kom sendill með sím- skeyti. Skeytið var frá sjómönnum á togara fyrir vestan. Fyrst bláókunnugir sjómenn voru farnir að skora á mig, landkrabbann sjálfan, fannst mér ég þurfa að íhuga málið af alvöru.“ Sögupersónan lágvaxna kíkir á glugga þar sem Vigdís les símskeytið. Vigdís sýndi mér mikið traust  Meðan Rán Flygenring vann að bók um Vigdísi fannst henni eins og hún væri alls staðar  Hún kíkti á bak við stóran spegil í húsi á Norðfirði og þar kom í ljós handskrifað bréf frá Vigdísi í ramma

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.