Morgunblaðið - 09.11.2019, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 09.11.2019, Blaðsíða 56
Vetrarylur kallast tónleikar sem verða í Breiðholtskirkju í dag, laug- ardag, kl. 15.15 í Breiðholtskirkju. Strengjasveitin Spiccato leikur verk frá barokktímanum en sveitin sú var stofnuð af hópi strengjaleik- ara árið 2012 sem vettvangur til að flytja strengjatónverk þar sem jafnræði ríkir milli hljóðfæra- leikaranna og enginn einn stjórnar. Vetrarylur hljómar í Breiðholtskirkju LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 313. DAGUR ÁRSINS 2019 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.150 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is „Ég skynja að margir sparkunn- endur sem ég þekki eru orðnir tæpir á taugum eftir að VAR (video assistant referee) hóf innreið sína í sparkheima sem við hér á eyjunni fylgjumst með í gegnum raftækin okkar,“ segir meðal annars í við- horfsgrein í blaðinu í dag þar sem lögð er til önnur leið við notkun á VAR í knattspyrnunni. »45 Reynir á þolinmæði sparkunnenda Tónlistarhópurinn Nordic Affect verður með tónleika í kvöld, laugardag, kl. 21 í Mengi. Rússi- bani fyrir trúleysingja, amma í há- loftunum og ástin koma við sögu þar sem hópurinn flytur tónsmíðar eftir Báru Gísladóttur, Bergrúnu Snæbjörnsdóttur, Jobina Tinnem- ans, Maja Ratkje og Veronique Vöku. Á mánu- dag heldur hóp- urinn tónleika í Brunel Museum í London en á þeim tónleikum verður frum- flutt nýtt verk eftir Lilju Maríu Ás- munds- dóttur. Rússíbani fyrir trúleys- ingja, ástin og fleira ÍÞRÓTTIR MENNING Þór Steinarsson thor@mbl.is Hundrað ára afmæli verslunarinnar Brynju var fagnað með pomp og prakt í húsakynnum verslunarinnar á Laugavegi 29 í gær. Gestum var boðið upp á afmælistertu og kaffi auk þess sem þeir fengu að snúa lukkuhjóli. Verslunina Brynju stofnaði Guð- mundur Jónsson, trésmiður frá Akranesi, árið 1919 á Laugavegi 24. Þar var hún rekin í 10 ár þangað til Guðmundur festi kaup á húsinu númer 29 við Laugaveg. Eignarhald Brynju tók nokkrum breytingum á stríðsárunum eða frá því að Guðmundur seldi árið 1937. Það má þó segja að verslunin hafi verið fjölskyldurekin frá upphafi. Guðmundur var ömmubróðir Brynjólfs Björnssonar, núverandi eiganda Brynju. Brynjólfur tók við rekstrinum árið 1993 þegar Björn faðir hans féll frá en Björn varð eini eigandi Brynju árið 1954 eftir að hafa starfað hjá Guðmundi frænda sínum í mörg ár, fyrst sem sendi- sveinn og síðar bókari. Selja fágætar vörur „Reksturinn hefur nú alltaf geng- ið ágætlega þannig séð og það hefur alltaf verið mikil traffík hérna. Við höfum alltaf verið með mikið úrval af alls konar vörum sem fólk finnur ekki annars staðar og svo höfum við alltaf selt mikið út á land sem varð miklu léttara eftir að netið kom,“ segir Brynjólfur í samtali við Morg- unblaðið og heldur áfram að útskýra kosti vefverslunarinnar: „Það er auðveldara fyrir fólk úti á landi, sem oft var að hringja hingað og panta, að útskýra hvað það vant- ar. Núna sér það mynd af hlutunum á vefsíðunni og við getum afgreitt um hæl,“ bætir Brynjólfur við og tekur fram að Brynja sendi vörur út um allt land. „Það er heilmikið um það.“ Fjölbreyttur kúnnahópur Spurður hverjir það séu sem komi helst að versla við Brynju segir Brynjólfur að kúnnahópurinn sé gíf- urlega fjölbreyttur og hafi alltaf ver- ið. „Þetta er mjög breiður kúnna- hópur. Iðnaðarmenn, fyrirtæki og einstaklingar, alveg upp í æðstu menn eins og forseta sem hafa kom- ið hingað reglulega enda seljum við allt fyrir alla eiginlega.“ Brynjólfur átti erfitt með að nefna einhver tiltekin atvik þegar hann var spurður hvort eitthvað stæði upp úr í minningunni frá því hann byrjaði að vinna hjá Brynju en segir sam- skiptin við viðskiptavini það skemmtilegasta við starfið, það er að leiðbeina þeim og hjálpa. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fjölskyldufyrirtæki Brynjólfur Björnsson tók við rekstri verslunarinnar Brynju þegar faðir hans féll frá árið 1993. Fögnuðu 100 ára afmæli verslunarinnar Brynju  Fjölskyldurekið frá upphafi  Fjölbreyttur kúnnahópur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.