Morgunblaðið - 11.11.2019, Qupperneq 1
Suðaustan rok og rigning gekk yfir landið í gær. Verst var
veðrið á Suðurlandi og við Faxaflóa í gærkvöldi og sendi Veð-
urstofan út aðvörun þar sem fólk var varað við að vera á ferð-
inni á milli landshluta. Almenningssamgöngur röskuðust á
landsbyggðinni. Mörgum flugferðum innanlands var frestað
eða aflýst eftir hádegið og veðrið hafði einnig áhrif á flug til
og frá Keflavíkurflugvelli. Ekki bárust fregnir af miklu fok-
tjóni en björgunarsveitir Landsbjargar voru í viðbragðsstöðu.
Herjólfur III. sem nú leysir nýja Herjólf af í siglingum á milli
Vestmannaeyja og Þorlákshafnar og skipstjórnarmenn hans
leystu sín verkefni óaðfinnanlega þegar skipið nálgaðist Eyj-
ar síðdegis í gær. Þá var versta veðrið í nánd.
Lítið um tjón þegar suðaustan hvassviðri gekk yfir landið
Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson
M Á N U D A G U R 1 1. N Ó V E M B E R 2 0 1 9
Stofnað 1913 265. tölublað 107. árgangur
LEGGUR AF STAÐ
Í ERFIÐASTA VERK-
EFNI LÍFS SÍNS
DRAUMURINN
AÐ KOMAST TIL
TÓKÝÓ 2020
KRÚNUDJÁSN
LOKSINS ÞÝDD
Á́ ÍSLENSKU
INGIBJÖRG KRISTÍN FÓR Á KOSTUM, 24 RITSTÝRIR ÚTGÁFU 28HYGGST KLÍFA K2 10
Kaupmáttur
launa fer enn
vaxandi. Í sept-
ember var hann
1,2% meiri en í
sama mánuði í
fyrra. Frá árs-
byrjun 2015 hef-
ur kaupmáttur
hækkað um rúm
26%. Kemur
þetta fram í
Hagsjá Landsbanka Íslands.
Ekki eru sjáanleg merki um
launaskrið nú þegar sjö mánuðir
eru liðnir frá gerð lífskjarasamn-
inganna sl. vor, þótt lægstu laun
hafi hækkað mest. „Síðustu tölur
um þróun launavísitölunnar eru
mjög ánægjulegar því launa-
stefna lífskjarasamningsins birt-
ist í þeirri mælingu,“ segir Hall-
dór Benjamín Þorbergsson,
framkvæmdastjóri Samtaka at-
vinnulífsins. Bendir hann á að
launavísitala sýni að launaskrið
sé nánast ekkert yfir miðgildi
launa. »4
Kaupmáttur launa
fer enn vaxandi
Halldór Benjamín
Þorbergsson
Viðar Guðjónsson
vidargudjons@gmail.com
Meðlimir úr Stjórnarskrárfélaginu
voru viðstaddir umræðufund um
breytingar á stjórnarskrá sem fór
fram um helgina í Laugardalshöll.
Auk þess dreifðu þeir frumvarpi sem
byggt var á tillögum stjórnlagaráðs
fyrir fundinn. Vakti nærvera fólks úr
félaginu furðu hjá sumum þátttak-
endum sem valdir voru úr handa-
hófskenndu úrtaki til þess að sitja á
fundinum.
Heimildarmaður Morgunblaðsins
sem sat fundinn kallar veru félagsins
á fundinum áróður og það hafi komið
honum á óvart að hagsmunaaðili hafi
fengið eins greiðan aðgang að fund-
inum og raun ber vitni. Einnig var
einn meðlimur úr
félaginu í úrtak-
inu og fór hann
gegn reglum
fundarins og
ræddi við fólk við
önnur borð en
það sem hann sat
við. Var athæfið
stöðvað en ekki
fyrr en búið var
að dreifa upplýs-
ingum til þátttakenda.
Meðlimir úr Stjórnarskrárfélag-
inu fengu ekki að sitja við fundar-
borðin en þeir höfðu greiðan aðgang
að fundargestum í hléum. Þetta stað-
festir Guðbjörg Andrea Jónsdóttir,
forstöðumaður Félagsvísindasviðs,
en hún telur að viðvera fólks úr
Stjórnarskrárfélaginu hafi ekki haft
áhrif á niðurstöðu fundarins.
Fram kemur í niðurstöðum skoð-
anakönnunarinnar að einungis 29%
þátttakenda í henni sögðust vera
tilbúin að taka þátt í slíkum umræðu-
fundi um stjórnarskrána á meðan
aðrir afþökkuðu það. Úr varð að 230
manns mættu á fundinn og var þeim
ætlað að endurspegla samfélagið.
Eitt af því sem mest hefur verið rætt
um í umræðu um breytingar á
stjórnarskrá er ákvæði um auðlindir.
Það var þó ekki rætt á fundinum.
„Fólk spurði af hverju við værum
ekki að ræða auðlindaákvæðið og
það er það sem fólk gerði helst at-
hugasemdir við,“ segir Guðbjörg.
Fengu greiðan aðgang
að fólki á fundinum
Stjórnarskrárfélagið hafði áhrif á fund um stjórnarskrána
Guðbjörg Andrea
Jónsdóttir
M„Ekkert bjagandi við þetta“ »2
Forsvarsmenn
flugfélagsins
Play, sem stefnir
á jómfrúarflug
fyrir lok árs,
telja að heildar-
virði félagsins
verði um 79 millj-
arðar á árinu
2022, gangi áætl-
anir þeirra eftir.
Það ár er ætlunin
að félagið verði með 10 Airbus-
þotur í förum milli Íslands, Evrópu
og Bandaríkjanna. Þetta kemur
fram í gögnum sem kynnt hafa ver-
ið fjárfestum á undanförnum dög-
um. Sömu áætlanir gera ráð fyrir
að þeir fjárfestar sem leggja muni
félaginu til 1,7 milljarða króna
gegn 50% hlut í félaginu geti mögu-
lega losað hlut sinn eftir þrjú ár
með tólf- til þrettánfaldri arðsemi.
er þá gert ráð fyrir að eigið fé fé-
lagsins verði 350 milljónir dollara,
jafnvirði 44 milljarða króna og
skuldir þess 280 milljónir dollara,
jafnvirði 35 milljarða króna. »12
Telja Play verða tug-
milljarða virði 2022
Play Stórar áætl-
anir fylgja félaginu.