Morgunblaðið - 11.11.2019, Page 8
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mosfellsbær Knattspyrnuvöllur og göngu- og hlaupabrautir undir þaki.
Nýtt fjölnota íþróttahús á Varmár-
svæðinu í Mosfellsbæ var tekið í notk-
un um helgina. Í byggingunni er að-
staða fyrir til að mynda knattspyrnu
auk þess sem þar er 1,5 kílómetra
göngu- og hlaupabraut sem nýtist vel
fyrir skokkara. Húsið er um 4.000 fer-
metrar að grunnflatarmáli. Sökklarnir
eru steyptir og veggir ná upp í 1,5
metra. Ofan á þá er svo reist stálgrind
með plastdúk. Gervigras er á
knattspyrnuvellinum sem er 65 x 42
metrar að stærð.
„Hér er byggt til næstu ára og þetta
hús mun valda straumhvörfum fyrir
íþróttaiðkendur í Mosfellsbæ og er
enn einn liður þess að efla umgjörðina
og leggja þannig grunn að sigrum
framtíðarinnar,“ segir Haraldur
Sverrisson, bæjarstjóri í Mosfellsbæ.
Það var haustið 2017 sem bæjaryf-
irvöld í Mosfellsbæ samþykktu að
byggja íþróttahúsið góða. Vinna við
hönnun hófst í janúar á síðasta ári, síð-
ar var samið við fyrirtækið Al-Verk
um framkvæmdir sem tók verkið að
sér fyrir 625 millj. kr. Verkið gekk
greiðlega og allt hefur verið á tíma.
Það var í lok október sem íþróttafólk
úr Aftureldingu byrjaði að nota húsið,
en formleg opnun var nú um helgina
sem fyrr segir. sbs@mbl.is
Húsið byggt fyrir
sigra framtíðar
Bætt íþróttaaðstaða í Mosfellsbænum
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2019
SMÁRALIND – KRINGLAN
DUKA.IS
matarstell
NÝR LITUR
Midnight Blue
Ofnfast
Frostþolið
Tvíbrenndur leir
Slitsterkt yfirborð
Í umsögn Samtaka atvinnulífsins,SA, um frumvarp um breytingu
á samkeppnislögum er bent á að
heilbrigð samkeppni hvetji fyrirtæki
til dáða og stuðli að lægra verði og
betri þjónustu við neytendur. Bent
er á að samkeppnislögin byggist í
grunninn á regluverki Evrópusam-
bandsins, en svo segir: „Þegar sam-
keppnislögin voru sett árið 2005 var
ákveðið að ganga skrefinu lengra í
setningu íþyngjandi reglna en gert
hefur verið í Evrópu. Það er sérstakt
í ljósi smæðar landsins.“
Óhætt er að taka undir að þetta ersérstakt og raunar mjög
óheppilegt enda bendir SA á að
óþarflega íþyngjandi samkeppnislög
standi í vegi fyrir „eðlilegri hagræð-
ingu og aukinni framleiðni sem leið-
ir til óhagræðis sem endar á almenn-
ingi með hærra verði á vöru og
þjónustu. Þetta getur jafnframt leitt
til þess að íslensk fyrirtæki í al-
þjóðlegri samkeppni eigi erfitt að
með að halda í við keppinauta sína
þar sem þau sitja ekki við sama
borð.“
Bent er á að með breytingunumsem lagðar séu til í frumvarp-
inu séu samkeppnislögin færð nær
því sem gildi annars staðar á Evr-
ópska efnahagssvæðinu.
Auðvitað getur ekki verið eðlilegtað hér á landi séu strangari og
meira íþyngjandi samkeppnislög en
í þeim löndum sem við eigum mikil
viðskipti við. Þess vegna meðal ann-
ars væri samþykkt frumvarpsins
framfaraskref, þó að vissulega væri
betra að skrefið væri stærra.
Of langt gengið
í lagasetningu
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Fjöldi rafíþróttaáhugamanna lagði
leið sína í sal 1 í Háskólabíói í gær og
fylgdist með liðinu Dusty sigra lið
FH í tölvuleiknum League of leg-
ends í úrslitum Lenovo-deildarinnar.
Kom sigur Dusty mönnum ekki á
óvart en fyrir keppni hafði liðið verið
talið sigurstranglegra en lið FH.
„Dusty vann en FH kom á óvart og
gaf góða mótspyrnu,“ sagði Ólafur
Hrafn Steinarsson, formaður Raf-
íþróttasamtaka Íslands.
Um var að ræða úrslitakvöldið í
Lenovo-deildinni, en bæði var keppt
í tölvuleiknum League of legends
(LOL) og Counterstrike: Global of-
fensive (CS:GO).
Dusty tefldi einnig fram liði í úr-
slitarimmunni gegn liðinu Seven í
CS:GO en úrslit í þeirri viðureign
lágu ekki fyrir þegar Morgunblaðið
fór í prentun í gærkvöld.
„Sunnudagurinn 10. nóvember er
risastór dagur í rafíþróttum hér á Ís-
landi og úti í heimi,“ sagði í tilkynn-
ingu frá Rafíþróttasamtökum Ís-
lands en á sama tíma og keppt var
um deildarmeistaratitilinn í LOL
hér var keppt um heimsmeistaratit-
ilinn í París, þar sem kínverska liðið
Sunplus Phoenix bar sigur af hólmi.
Dusty nýir deildarmeistarar í LOL
Úrslitakvöldið í Lenovo-deildinni í
gær Heimsmeistaramótið í París
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tölvuleikir Keppendur og lýsendur
einbeittir í sal 1 í Háskólabíói í gær.