Morgunblaðið - 11.11.2019, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2019
Lágmúli 8 | S: 530 2800
ðaðu TILBOÐIN okkar á
*SENDUM UM LAND ALLT
20%
Sko
25%
15-20%
HEITIRDAGAR
Skipulags- og samgönguráð Reykja-
víkur hefur samþykkt að auglýst
verði breyting á deiliskipulagi
Naustareits vegna lóðarinnar nr. 6-
10A við Vesturgötu.
Í breytingunni felst að heimilt er
að koma fyrir svölum á austurenda
Vesturgötu 6-8 og endurbyggja
svalir með tröppum á Vesturgötu
10. Fyrir liggja uppdrættir THG
Arkitekta ehf. að þessum breyt-
ingum. Jafnframt verður gistist-
arfsemi heimiluð á 2. hæð Vest-
urgötu 6-8. Málinu var jafnframt
vísað áfram til borgarráðs.
Vesturgata 6-8 er sögufrægt hús.
Þar var lengst af starfrækt veitinga-
húsið Naust. Engin starfsemi hefur
verið í húsinu nokkur undanfarin ár.
Eigandi þess er Kirkjuhvoll sf., félag
Karls Steimgrímssonar, jafnan
kenndur við Pelsinn, og fjölskyldu.
Minjastofnun heimilaði svalagerð-
ina og segir í umsögn að elsti hluti
Vesturgötu 6-8 hafi verið reistur ár-
ið 1882 sem verslunarhús. Húsið nýt-
ur friðunar vegna aldurs. Er það tal-
ið hafa mikið gildi fyrir verslunar-
og atvinnusögu Reykjavíkur auk
þess að vera mikilvægur hluti elstu
götumyndar Vesturgötu.
Húsið var stækkað í nokkrum
áföngum á árunum 1883-1902. Árið
1915 var gerður kvistur á framhlið
þess. Veitingahúsið Naustið var opn-
að þar 1954 „og voru þá gerðar
breytingar á útliti hússins sem nú
eru að mestu horfnar ásamt merk-
um innréttingum Sveins Kjarval“,
segir Minjastofnun. sisi@mbl.is
Heimilt að gista í Naustinu
Svalir verða settar
upp á austurenda
Vesturgötu 6-8
Morgunblaðið/Valli
Vesturgata Veitingahúsið Naust var í áratugi rekið í þessu sögufræga húsi.
„Embætti landlæknis tekur undir þá
skoðun að vandamál sem tengjast
notkun eða ofnotkun ávana- og fíkni-
efna sé heilbrigðisvandamál en ekki
síður félagslegt vandamál. Embættið
ítrekar þó að málefnið sé á engan hátt
einfalt og að frekar eigi að vinna til-
lögur sem þessa í endurskoðaðri heild-
stæðri stefnumótun til lengri tíma,“
segir í nýrri umsögn Landlæknisemb-
ættisins við frumvarp á Alþingi um að
afnema refsingu fyrir vörslu og með-
ferð fíkniefna til eigin nota.
Landlæknir leggst ekki afdrátt-
arlaust gegn hugmyndinni
Embættið telur að svara þurfi
ýmsum spurningum um þessar
breytingar áður en ákvarðanir yrðu
teknar en ekki er að sjá af umsögn
Landlæknis að embættið leggist af-
dráttarlaust gegn hugmyndum um
afnám banns við vörslu, kaupum og
móttöku fíkniefna.
Skv. frumvarpi Halldóru Mogen-
sen, þingmanns Pírata, og átta ann-
arra meðflutningsmanna á Alþingi,
yrði innflutningur, útflutningur, sala,
skipti, afhending, framleiðsla og til-
búningur fíkniefna eftir sem áður
refsiverður en refsingum ekki beitt
gegn neytendum fíkniefna.
Í umsögn Landlæknis er m.a. vísað
til þess hvaða áhrif afnám refsinga
hefur haft á notkun ungmenna í
Portúgal og Hollandi. Bent er á að í
Evrópsku vímuefnarannsókninni
hafi komið fram að kannabisneysla
meðal portúgalskra unglinga hafi
aukist í kjölfar þess að refsingar voru
felldar niður 2001.
Afstaða fagnar frumvarpinu
Ólíkar skoðanir koma fram í um-
sögnum sem komið hafa fram við
frumvarpið á undanförnum dögum.
Afstaða félag fanga og annarra
áhugamanna um bætt fangelsismál
og betrun fagnar frumvarpinu og í
umsögn hennar er bent á aðra
reynslu í Portúgala en fram kemur í
umsögn Embættis landlæknis. Minnt
er á að Portúgalar samþykktu fyrir
18 árum lög þess efnis að varsla
neysluskammta yrði refsilaus. „Efa-
semdir voru um ágæti laganna en
þær að mestu horfið enda fjöldi vímu-
efnaneytenda í Portúgal nú til dags
hlutfallslega mjög lítill miðað við önn-
ur lönd í Evrópu, afbrotum tengdum
vímuefnaneyslu hefur fækkað mikið
og niðurstöður allra rannsókna sýna
að portúgalska leiðin skili stórgóðum
árangri,“ segir í umsögn Afstöðu.
Opnað fyrir flæði fíkniefna
Félagið Fræðsla & forvarnir leggst
ákveðið gegn því að frumvarpið verði
samþykkt og bendir m.a. á að með
samþykkt þess yrði opnað fyrir
greiðara flæði fíkniefna um samfélag-
ið. Reikna megi með að seljendur og
dreifendur fíkniefna muni nýta sér
svigrúmið og leiðir sem bjóðist til þess
að athafna sig.
Rauði krossinn á Íslandi fagnar á
hinn bóginn frumvarpinu og telur að
verði það að veruleika muni aðgengi
jaðarsettra einstaklinga, sérstaklega
þeirra sem glíma við erfiðan vímuefna-
vanda, að heilbrigðisþjónustu, fé-
lagslegri þjónustu og viðbragðsþjón-
ustu aukast til muna. „Dæmi eru um
að einstaklingar sem glíma við vímu-
efnavanda veigri sér við að hringja eft-
ir bráðaaðstoð eða leita sér aðstoðar af
ótta við að lögregla fjarlægi neyslu-
skammta þeirra og/eða vera handtek-
in vegna annars ólögmæts athæfis.“
omfr@mbl.is
Ekki einfalt að
afglæpavæða
neyslu fíkniefna
Ólíkar skoðanir á frumvarpi um
afnám refsinga fyrir vörslu fíkniefna
Morgunblaðið/Hari
Vímuefni Skiptar skoðanir eru á
frumvarpi um neyslurými.
fasteignir