Morgunblaðið - 11.11.2019, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2019
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Bílar
Honda Civic I.8I ES 2010 til sölu
Mjög vel farinn. Reglulegt viðhald,
allir slitfletir yfirfarðir og uppfærðir.
Mjög vel farinn að innan og reyklaus.
Skoðaður 2020. Þveginn, ryksugaður
og bónaður af fagmönnum reglulega.
Ný sumardekk og ný vetrardekk á
álálfelgum fylgja. Verð: 1.300.000.
Nánari uppl. í síma 892 5490.
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur
fyrir veturinn og
tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30, allir velkomnir. Hreyfi-
salurinn er opinn kl. 9.30-11.30, líkamsræktartæki, teygjur og lóð.
Kraftur í KR kl. 10.30, rútan fer frá Vesturgötu kl. 10.10, Grandavegi 47
kl. 10.15 og Aflagranda kl.10.20. Útskurður kl. 13, með leiðbeinanda.
Félagsvist kl. 13. Myndlist kl. 13. Kaffi kl. 14.30-15.20. Verið velkomin.
Nánari upplýsingar í síma 411 2702.
Árskógar Opin smíðastofa kl. 9-15. Opin vinnustofa kl. 9-12. Opin
handavinnuhópur kl. 12-16. Boccia með Guðmundi kl. 10. Göngu-
bretti, æfingarhjól m/leiðb. kl. 10.30. Félagsvist með vinningum kl.
12.45. Myndlist með Elsu kl. 16-19. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur
kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni. Allir vel-
komnir. S: 535 2700.
Boðinn Boccia kl. 10.30. Gönguhópur kl. 10. Bingó kl. 13. Myndlist kl.
13. Vatnsleikfimi kl. 14.30. Spjallhópur Boðans kl. 15.
Bólstaðarhlíð 43 Smíðaverkstæðið opið kl. 8.30-14. Morgunleikfimi
með Rás 1 kl. 9.45. Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10-
10.30. Samprjón kl. 13.30-14.30. Opið kaffihús kl. 14.30-15.15.
Dalbraut 18-20 Brids kl.13
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Qigong kl. 7-8. Við hringborðið kl.
8.50. Opin Listasmiðja kl. 9-12. Ganga ef veður leyfir kl. 10. Byrjenda-
námskeið í línudansi kl. 10. Hádegismatur kl. 11.30. Myndlistar-
námskeið kl. 12.30-15.30. Handavinnuhornið kl. 13. Félagsvist kl. 13.
Síðdegiskaffi kl. 14.30. Skráning á jólahlaðborð stendur yfir, lýkur á
morgun 12.11. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma
411 2790.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Leirmótun kl. 8.30. Hjúkrunarfræðingur
kl. 10. Núvitund kl. 10.30. Silkimálun kl. 12.30. Göngutúr um hverfið kl.
13. Handaband kl. 13. Bridge kl. 13. Bókabíllinn á svæðinu kl. 13.10-
13.30. Skák kl. 14. Upplestur og bókaspjall með Andra Snæ Magna-
syni rithöfundi kl. 15. Handavinnuhópur hittist kl. 15.30. Verið öll
hjartanlega velkomin. Nánari upplýsingar í síma 411 9450.
Garðabæ Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Bridge í Jónshúsi kl.
13. Vatnsleikf. Sjál kl. 7.10/7.50/15.15. Kvennaleikf. Sjál. kl. 9.30.
Kvennaleikf. Ásg. kl. 110. Stólajóga í Jónshúsi kl. 11. Zumba salur
Ísafold kl. 16.15
Gerðuberg 3-5 111 RVK Opin handavinnustofan kl. 8.30-16.
Útskurður m/leiðb. kl. 9-16. Qigong 10-11, leikfimi Helgu Ben kl. 11-
11.30. Kóræfing kl. 13-15. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 Boccia æfing, kl. 9.30 postulíns-
málun, kl. 10.50 Jóga, kl. 13.15 Canasta, kl. 16.30 kóræfing hjá
Söngvinum, kl. 19 Skapandi skrif.
Gullsmára Postulínshópur kl. 9. Jóga kl. 9.30 og 17. Handavinna og
Bridge kl. 13. Félagsvist kl. 20.
Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Opin handavinna kl. 9-14. Jóga kl. 10-11. Hádegismatur kl. 11.30.
Sögustund kl. 12.30-14.00. Prjónaklúbbur kl. 14-16. Námskeið í
olíumálun kl. 14-18, nokkur sæti laus. Námskeiðið kostar 5.500 kr, litir
og pennslar á staðnum en striga þarf að koma með.
Hraunsel Ganga alla daga í Kaplakrika kl. 8-12. Myndmennt kl 9.
Ganga í Haukahúsi kl.10. Gaflarakórinn kl 11. Félagsvist kl 13.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt yoga með Ingibjörgu kl. 9 í Borgum,
ganga kl. 10 frá Grafarvogskirkju, Borgum og inni í Egilshöll. Dans í
Borgum kl. 11. Prjónað til góðs í listasmiðju Korpúlfa í Borgum kl. 13
og félagsvist í Borgum kl. 13. Tréútskurður á Korpúlfsstöðum í umsjón
Gylfa kl. 13 í dag og kóræfing Korpusystkina kl. 16 í dag í Borgum í
umsjón Kristínar kórstjóra. Allir hjartanlega velkomnir.
Seltjarnarnes Gler, neðri hæð félagsh. kl. 9. og 13. Leir, Skólabraut
kl 9. Billjard, Selinu kl. 10. Krossgátur og kaffi í króknum kl. 10.30.
Jóga, Skólabraut kl. 11. og handavinna kl. 13. Vatnsleikfimi kl. 18.30.
Síðasti skráningardagur vegna leikhúsferðar nk. fimmtudag á
Atómstöðina. Skráning og upplýsingar í síma 893 9800. Bingó í golf-
skálanum á morgun þriðjudag kl. 14. Akstur frá Skólabraut frá 13.30.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á
könnunni kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er kl.
11.30-12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Spiluð er félagsvist
sem byrjar kl. 13.15. Kaffi og meðlæti er til sölu kl. 14.30-15.30. Allir
velkomnir. Síminn í Selinu er: 568 2586.
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík ZUMBA Gold byrjendur kl. 9.20.
ZUMBA Gold framhald kl. 10.30. STERK OG LIÐUG leikfimi fyrir
dömur og herra kl. 11.30 umsjón Tanya. Enska, námskeið kl. 12.30
og 14.30, leiðbeinandi Margrét Sölvadóttir. Tölvunámskeið kl. 13
leiðbeinandi Þórunn Óskarsdóttir .
✝ Guðrún VibekaBjarnadóttir
fæddist í Neskaup-
stað 4. janúar 1932.
Hún lést á hjúkr-
unarheimilinu Eir
31. október 2019.
Guðrún var dótt-
ir hjónanna Guð-
rúnar Halldórs-
dóttur, f. 1891, d.
1979, frá Eyrar-
bakka og Bjarna
Vilhelmssonar, f. 1882, d. 1942
frá Norðfirði. Foreldrar hennar
eignuðust 15 börn saman og eru
þau hér upp talin í aldursröð:
Hulda, Stefán, Sigríður, Guð-
finna, Fjóla, Bjarni, Þuríður,
Lilja, Lilja, Ingvar, Olga Stein-
unn, Guðrún Vibeka, Kolbeinn,
Halldór og Þórður. Sammæðra
systkin voru Ásta Strandberg
og Baldvin Ólafsson. Samfeðra
systkin voru Indíana Katrín,
Hans Einar, Fanney, Gísli og
Perchta Kazi Pàta. Signý, f.
1966, maki hennar Sigurður
Reynisson. Barnabörnin eru 21
og barnabarnabörnin 20.
Guðrún ólst upp í Neskaup-
stað í húsi foreldra sinna Mið-
húsi og bjó þar til tvítugs en þá
flutti hún til Reykjavíkur og
gerðist vinnukona hjá Soffíu
Haralds og Sveini M. Sveins-
syni. Síðar starfaði hún sem
saumakona í Kápunni.
Meðan hún var bundin heima
yfir börnum og búi fjárfesti hún
í prjónavél og prjónaði hún húf-
ur sem seldust mjög vel í barna-
fataverslunum og íþróttaversl-
unum.
Eftir að börnin stálpuðust
vann hún í eldhúsi Landspít-
alans og hjá Víði í Austurstræti.
Þau hjónin áttu og ráku
skartgripaverslunina Gullsmið-
inn í Mjódd í nokkur ár, og var
Guðrún ávallt liðtæk á gull-
smíðaverkstæði bónda síns við
hin ýmsu störf sem til féllu,
enda var hún með eindæmum
handlagin og snögg til allra
verka.
Útför hennar fer fram frá
Fíladelfíukirkju í dag, 11. nóv-
ember 2019, kl. 13.
Unnur Fjóla. Eft-
irlifandi systkin
eru Lilja og Kol-
beinn.
Eiginmaður
Guðrúnar var Guð-
bjartur Þorleifsson
gullsmiður, f. 24.
apríl 1931, d. 3.
janúar 2017. Þau
giftu sig árið 1955
og bjuggu í Reykja-
vík, lengst af á
Lambastekk 10 og síðast á
Barðastöðum 79. Guðrún dvaldi
síðustu misseri á hjúkrunar-
heimilinu Eir.
Þau hjónin eignuðust sex
börn saman og eru þau:
Viðar Norðfjörð, f. 1954,
maki hans, Kulrapas Kaewin.
Þorleifur, f. 1956. Bjarni Geir,
f. 1958, maki hans Kristín Ósk
Gestsdóttir. Elín, f. 1959, maki
hennar, Marten Ingi Løvdahl.
Guðbjartur, f. 1964, maki hans
Ég var á leiðinni til mömmu
þegar símtalið kom: „Hún móðir
þín varð bráðkvödd,“ sagði
læknirinn í símanum. Mamma
var búin að vera á hjúkrunar-
heimilinu Eir í tæp tvö ár í góðri
umsjón starfsfólksins þar. Hún
var búin að vera með alzheimer í
nokkur ár. Þegar kallið kom var
hún tilbúin og södd lífdaga. Mik-
ið á ég eftir að sakna mömmu
sem var mér svo góð.
Það dýrmætasta veganesti
sem hún gaf mér var trúin á
Jesú. Ég þreyttist aldrei á að
heyra hana segja mér frá bæna-
svörum sem hún fékk að sjá og
heyra. Því mamma var mikil
bænakona. Hún bað mikið fyrir
sínu fólki, bað fyrir mönnum og
málefnum knúin af kærleika
Krist til að óska eftir vernd og
varðveislu þeim til handa. Marg-
ir leituðu til hennar vegna trúar-
styrks hennar og var hún mörg-
um stoð og stytta.
Þó að ég muni alltaf finna fyr-
ir söknuði, þá samgleðst ég
mömmu að
vera komin í Paradís, umvafin
ástvinum sínum sem á undan
eru gengnir.
Þegar ég leystur verð þrautunum frá,
þegar ég sólfagra landinu á
lifi og verð mínum lausnara hjá –
það verður dásamleg dýrð handa mér.
Dásöm það er, dýrð handa mér,
dýrð handa mér, dýrð handa mér,
er ég skal fá Jesú auglit að sjá,
það verður dýrð, verður dýrð handa
mér.
Og þegar hann, er mig elskar svo
heitt,
indælan stað mér á himni’ hefur veitt,
svo að hans ásjónu’ ég augum fæ
leitt –
það verður dásamleg dýrð handa mér.
Ástvini sé ég, sem unni ég hér,
árstraumar fagnaðar berast að mér,
blessaði frelsari, brosið frá þér,
það verður dásamleg dýrð handa mér.
(Þýð. Lárus Halldórsson)
Blessuð sé minning mömmu.
Signý Guðbjartsdóttir.
Elsku tengdamamma mín,
hún Gunna, var einstaklega ljúf-
lynd og góð kona, hún kvaddi
þetta líf óvænt og skjótt á fal-
legum degi 31. október.
Heilsa hennar var farin að
gefa sig og dvaldist hún á hjúkr-
unarheimilinu Eir, en þótt veik-
indi hrjáðu hana var kímnigáfan
enn á sínum stað, alltaf var stutt
í hláturinn og brosið bjarta.
Gunna var mér afar kær, ég
kynntist henni árið 1981, Baddi
sonur hennar og ég ákváðum að
flytja aftur heim til Íslands eftir
langdvöl í Svíþjóð, við fengum
að búa hjá Gunnu og Bjarti
tímabundið þar til við hófum
sambúð. Hún tók mér strax opn-
um örmum og ég fékk að finna
að ég væri orðin ein af fjölskyld-
unni.
Hún kenndi mér margt varð-
andi ungbörn, enda búin að ala
upp sex börn sjálf.
Það er kaldur vetrardagur,
við erum á leið í heimsókn til
Gunnu og Bjarts. Við förum út
úr bílnum og höldum á litla
drengnum okkar. Þá heyrist í
tengdamömmu: „Ó, ó, elskurnar!
Þið megið ekki láta barnið anda
að sér köldu, setjið eitthvað fyr-
ir munninn og nefið á barninu!
Honum má ekki verða kalt!“
Eftirleiðis passaði maður sig
á því að þegar farið var í heim-
sókn til ömmu Gunnu dúðuðum
við barnið í tvær húfur, vett-
linga, þykka úlpu með hettu,
með trefil fyrir vitum, innvafið í
ullarteppi! Nú er ég farin að
segja þessi sömu orð við son
minn þegar hann kemur með
barnabörnin í heimsókn! Takk
Gunna, þú hafðir rétt fyrir þér.
Tengdamamma var afar
glæsileg og bar sig vel, mér
fannst svo mikil tign og reisn yf-
ir henni, hún kunni vel að meta
vandaðar flíkur og skó og bar
fallega skartgripi eftir manninn
sinn, gullsmiðinn Guðbjart Þor-
leifsson, hún fylgdist ágætlega
með tískunni og var hreinskilin
ef eitthvað varðandi þá strauma
var henni ekki að skapi.
Við fengum að fara með þeim
Gunnu og Bjarti í ógleymanleg
ferðalög bæði innanlands og ut-
an, þær voru dýrmætar stund-
irnar sem við áttum saman.
Hún var líka fljót að sá fræ-
kornum trúarinnar í hjarta mitt.
Gunna var kraftmikil bænakona
og átti öflugt og innihaldsríkt
bænalíf. Það leituðu margir til
hennar um fyrirbænir, hún fékk
oft neyðarósk um að biðja fyrir
þeim sem hún kunni nánast eng-
in deili á og fékk að upplifa
mörg bænasvör. Uppáhalds-
stundirnar mínar með henni
voru þær þegar hún sagði mér
frá öllum kraftaverkunum og
bænasvörunum yfir góðum
kaffibolla. Ég er svo innilega
þakklát fyrir allar bænirnar,
hún kenndi mér að tala við Guð
og að treysta honum.
Nú er hún komin heim í dýrð
Föðurins og er hjá Bjarti og ást-
vinum sem á undan eru farnir.
Elsku Gunna, takk fyrir að
vera frábær fyrirmynd fyrir mig
og börnin okkar Badda, ynd-
islegri ömmu er ekki hægt að
hugsa sér. Hafðu þakkir fyrir
ást og hlýju og nú kveð þig með
söknuði og ylja mér við allar
góðu minningarnar. Ég er ríkari
að hafa haft þig í lífi mínu.
Hver minning dýrmæt perla að liðn-
um lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug
þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Kristín Ósk Gestsdóttir.
Elsku langamma.
Þó svo að ég geti ekki hitt þig
lengur þá munt þú alltaf vera í
hjarta mínu því ég á svo margar
góðar minningar um þig, elsku
langamma mín. Nú ertu komin
til langafa sem hefur saknað þín
og er örugglega yfir sig glaður
að vera með þér á ný uppi á
himnum. Mér fannst alltaf svo
gaman að koma í heimsókn til
þín og langafa. Þegar ég var lítil
var ég alltaf að horfa á fallega
útsýnið úr stofuglugganum ykk-
ar með kíkinum hans langafa.
Það fannst mér alveg svakalega
skemmtilegt. Það var líka svo
gaman að fá að spila á hljóm-
borðið ykkar og leika á ruggu-
hestinum. Mér þótti svo vænt
um að koma til þín á Eir með
ömmu Ellu. Þú varst alltaf til í
að koma með okkur í ísbíltúr.
Þú varst svo skemmtileg og með
svo góðan húmor.
Elsku langamma, mikið á ég
eftir að sakna þín. Mér líður vel
að hugsa til þess að núna ertu
komin til langafa og englarnir
gæta ykkar.
Elska þig og sakna þín, elsku
langamma mín.
Irena April Løvdahl.
Elsku amma mín.
Á stundu sem þessari eru
minningarnar sennilega það
dýrmætasta sem maður á. Þær
eru margar góðar minningarnar
sem ég á í hjarta mér, elsku
amma. Minningar frá því að ég
var barn hjá ykkur afa uppi á
Lambó. Ég man svo vel enn í
dag hvernig allt leit út. Það var
svo gaman að vera hjá ykkur.
Heimili ykkar var fullt af áhuga-
verðum og framandi hlutum sem
gaman var að skoða aftur og aft-
ur. Þegar ég hugsa til baka,
elsku amma, þá eru litlu augna-
blikin líka eitthvað svo minn-
isstæð, t.d. þegar þú leyfðir mér
að gramsa í gömlu dóti uppi á
háalofti, þegar ég fékk að snigl-
ast inni á verkstæði hjá afa og
skoða allt skartið í litlu sætu
búðinni ykkar á Lambó og í
Mjóddinni. Þegar þú gafst mér
rjóma út á Cheerios þegar
mjólkin var búin – gott var að
eiga ráðagóða ömmu. Mér þykir
einnig afar vænt um allar minn-
ingarnar sem ég á um þig og afa
úr bústaðnum í Kjósinni og allar
góðu stundirnar með ykkur á
Barðastöðum, þar sem börnin
okkar hafa einnig fengið að
skapa dýrmætar minningar með
langömmu og langafa.
Ég er þakklát fyrir allar góðu
minningarnar, hver minning er
dýrmæt á sinn hátt. Þú varst
alltaf svo góð við okkur, elsku
amma. Við vorum öll svo hænd
að þér, vorum þér öll svo náin.
Mikið er erfitt að kveðja, elsku
amma, en mér líður vel í hjarta
mínu að vita til þess að þið afi
eruð saman á ný.
Minning þín er ljós í lífi okk-
ar, elsku amma.
Láttu nú ljósið þitt
loga við rúmið mitt.
Hafðu þar sess og sæti,
signaði Jesús mæti.
(Höf. ók.)
Íris Martensdóttir.
Amma Gunna skilur eftir sig
stórt tómarúm og ég mun sakna
hennar ákaflega mikið. Allt frá
barnsaldri og upp til fullorðins-
ára á ég gull af minningum sem
ég mun varðveita hjarta mínu
næst. Þegar ég var yngri man
ég eftir henni sem hlýrri ömmu
sem passaði vel upp á mig. Fyr-
ir svefninn bjó hún um mig eins
og blóm í eggi og fór með Gutta-
vísur. Það gerði hún með svo
mikilli innlifun að ég bað hana
að fara með vísuna aftur og aft-
ur, og hún gerði það. Amma
Gunna var með skemmtilegan
húmor og það var dásamleg
upplifun að horfa á sjónvarp
með henni en hún gat lífgað svo
upp á venjulegar bíómyndir með
smitandi hlátri sínum, að lokum
hlógu allir með sem hjá henni
sátu. Við eyddum mörgum
stundum við eldhúsborðið henn-
ar þar sem hún sagði sögur frá
því þegar hún var ung og hvern-
ig tímarnir voru þegar hún ól
upp börnin sín. Mér fannst alltaf
jafn gaman að hlusta á hana,
meira að segja þegar hún end-
urtók sögurnar. En með tím-
anum fór minninu hennar ömmu
að hraka. Einn sunnudagsmorg-
un þegar við sátum við eldhús-
borðið dró hún mig með sér á
samkomu í Fíladelfíu og þar
fann ég mig heima, ég verð
henni ætíð þakklát fyrir það.
Amma var mikil bænakona og
sterkustu minningar mínar um
hana eru þegar hún sat í sólstof-
unni sinni með biblíuna sína.
Hún byrjaði alltaf daginn sinn
þannig, stundum kom ég að
henni þar sem hún hafði sofnað
en um leið og hún heyrði mig
koma skaust hún á fætur og
spurði hvort ég vildi ekki morg-
unmat. Þó að ég væri orðin full-
orðin stjanaði hún enn þá í
kringum mig, en þannig var
hún, mikill gestgjafi og vildi allt-
af bjóða upp á eitthvað.
Þegar ég kynntist eiginmanni
mínum tók hún á móti honum
með opnum faðmi. Hún var ekki
lengi að slá upp veislu í tilefni af
trúlofun okkar, seinna bauð hún
tengdaforeldrum mínum sem
heimsóttu landið í mat. Mér
þótti alltaf svo vænt um hvað
hún tók mikinn þátt í lífi mínu.
Mér fannst ég sannarlega elsk-
uð. Við hjónin gistum hjá ömmu
og afa þegar við komum í heim-
sókn til landsins og urðum öll
miklir vinir. Þegar ég gekk með
fyrsta barnið mitt var amma
handviss um að það yrði stelpa,
hún var svo viss að hún var búin
að hekla fjólublátt teppi áður en
við vissum kynið. Hún hafði auð-
vitað rétt fyrir sér. Samband
okkar var innilegt og ég leitaði
oft til hennar. Ég var aldrei of
gömul til að koma og gista hjá
ömmu og fannst mér alltaf nota-
legt að eyða tíma með henni.
Þegar ég flutti til útlanda
hringdi ég reglulega og fékk
alltaf sömu spurningu: „Ert þú
ekki að fara að koma til mín?“
Mér var svo hlýtt í hjartanu að
mig langaði stundum að hoppa
upp í næstu vél. Einn daginn
kem ég til þín, amma mín, ég
mun halda minningu þinni lif-
andi með sögum um þig við eld-
húsborðið og auðvitað býð ég
upp á eitthvað gott.
Guðrún Marta Andersson.
Guðrún Vibeka
Bjarnadóttir