Morgunblaðið - 11.11.2019, Side 22
22 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2019
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
50 ára Ásgeir er
Hafnfirðingur en býr í
Garðabæ. Hann er
tölvunarfræðingur frá
HR og flugstjóri og
gegnir stöðu aðstoð-
aryfirflugstjóra Ice-
landair.
Maki: Sigrún Björg Ingvadóttir, f. 1971,
flugstjóri.
Börn: Arnar Freyr, f. 2002, og Andri
Steinn f. 2007.
Foreldrar: Stefán Gunnlaugsson, f.
1925, d. 2016, alþingismaður, og Mar-
grét Guðmundsdóttir, f. 1927, d. 2013,
skrifstofumaður. Þau voru bús. í Hafn-
arfirði.
Ásgeir Gunnar
Stefánsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú getur lært margt um sjálfa/n
þig með því að skoða hvernig þú talar við
aðra og bregst við því sem þeir segja.
Mundu að hóf er best á hverjum hlut.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú mátt eiga von á óvæntum gest-
um sem munu þyrla upp gömlum tilfinn-
ingum. Einhver stendur uppi í hárinu á þér,
ekki kippa þér upp við það, reyndu að
skilja af hverju.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú skalt vera varkár í umferðinni
í dag. Stundum er maður að bæta sig og
stundum stendur maður í stað.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Nú er að grípa tækifærið og gera
tilboð í það sem þú hefur lengi haft auga-
stað á. Forðastu deilur við makann.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Samræður við vin kasta sprengju inn
í líf þitt. Fólk laðast að þér vegna persónu-
töfra þinna. Láttu vera að kaupa hluti, sem
þú hefur ekki þörf fyrir.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Nú kemur til þinna kasta að leiða
starfshóp sem á að leggja drög að nýju
skipulagi. Einhver gerir hosur sínar græn-
ar fyrir þér.
23. sept. - 22. okt.
Vog Stutt ferðalög, fundir og námskeið
gera það að verkum að það er óvenjumikið
að gera hjá þér þessa dagana. Gleymdu
ekki að sýna þakklæti þitt.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ef þú heldur rétt á spöðunum
ætti þér að takast að koma í framkvæmd
öllum þeim hlutum, sem þig dreymir um.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Haltu þig við skammtímaáætl-
anirnar. Sýndu mildi og mýkt og gakktu úr
skugga um hvað aðrir vilja, þú ert svolítið
fyrir einstefnuna, gerir oft það sem þú vilt
án tillits til annarra.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er ekki allt gull sem glóir
og margt reynist eftirsókn eftir vindi.
Margt af því sem þú heyrir má fara inn um
annað eyrað og út um hitt.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Nú reynir verulega á forystu-
hæfileika þína. Launaðu illt með góðu. Þú
kemur alltaf niður á fæturna.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú hefur gert það sem í þínu valdi
stendur til þess að halda friðinn í fjölskyld-
unni. Dragðu það fram eftir degi að taka
ákvarðanir.
Ekki var mikill tími fyrir áhugamál
hjá Sigríði. „Þetta var vinna og aftur
vinna, kennslan tók mikið af mínum
tíma og maður vann þá mikið heima.
En svo þegar ég hætti að vinna þá fór
ég að ferðast töluvert. Ég bjó um tíma
í Flórída, en þá bjuggu öll börnin mín
anum, en ég vann ennþá á kvöldvökt-
um. Það var svo mikill skortur á
hjúkrunarfræðingum. Það var yndis-
legast að vera kennari,“ segir Sigríður
um starfsferilinn. „Maður lifnar við að
fá að miðla þekkingu sinni, það er svo
gefandi.“
S
igríður Jóhanna Jóhanns-
dóttir er fædd 11. nóvem-
ber 1929 á Akureyri og
ólst þar upp, fyrst í Grund-
argötu á Eyrinni og svo í
Þórunnarstræti á Brekkunni. Hún var
í sveit í Gilhaga í Öxarfirði eitt sumar.
Sigríður útskrifaðist úr Gagnfræða-
skóla Akureyrar 1946, hóf nám við
Hjúkrunarskóla Íslands um áramótin
1951 og kláraði í mars 1954. „Námið
var þá þrjú ár og tveir mánuðir, ég fer
þá til Akureyrar og vinn við Fjórð-
ungssjúkrahúsið þar til í lok árs, fer
þá til Bandaríkjanna í nám.“ Sigríður
lauk námi í gjörgæsluhjúkrun við
Presbyterian Hospital í Chicago 1956
og kom heim 1957. Síðar fór Sigríður í
nám í uppeldis- og kennslufræði við
Kennaraháskóla Íslands 1976-1977.
Hún var við nám við Nordiska Hälso-
vårdshögskolan í Gautaborg í sjúkra-
hússtjórnun 1979-1980 og nám í Miljö-
medicine, umhverfisvernd, 1980-1981.
Meðan á námsdvölinni í Bandaríkj-
unum stóð vann Sigríður á Presby-
terian Hospital og Northwestern Ho-
spital, Minneapolis. Þegar heim var
komið eignaðist hún með eiginmanni
sínum þrjá drengi á fjórum árum og
sex árum síðar dóttur, en tók samt
alltaf vaktir. „Ég vann á gjörgæslunni
og Landakoti, ég vann alltaf mikið og
þegar maðurinn veiktist alvarlega
1973 fór ég að vinna fulla vinnu á
Borgarspítalanum. Ég fór síðan í
kennaranám til að geta verið meira
hjá manninum mínum.“
Sigríður var kennari í Nýja hjúkr-
unarskólanum 1975-1977. „Þá sá ég
um ljósmæður sem vildu læra meira,
en Nýi hjúkrunarskólinn var fyrir
hjúkrunarfræðinga í framhaldsnámi.“
Hún var hjúkrunarforstjóri á St. Jós-
epsspítalanum í Hafnarfirði 1977-
1979, kennari við Hjúkrunarskóla Ís-
lands 1980-1982, yfirkennari 1982-
1983 og skólastjóri 1983-1987. „Þá er
skólanum lokað og allt hjúkrunar-
fræðinám fer á háskólastig, en ég
hafði verið í broddi fylkingar um að
sameina hjúkrunarnámið.“ Sigríður
var að lokum hjúkrunarforstjóri Heil-
brigðisstofnunar Suðurnesja 1988-
1993 og hætti þá að vinna. „Ég hafði
aldrei alveg sagt skilið við sjúkrahúsin
þótt ég hefði verið í Hjúkrunarskól-
víðsvegar um heiminn. Svo þegar flest
þeirra voru flutt aftur heim til Íslands,
þá vildi ég líka koma aftur heim. Ég
hef búið í Mörkinni í tæp fimm ár og
hef það gott. Ég er hress, glöð og
þakklát fyrir lífið sem ég hef fengið að
lifa og trúi því varla að ég hafi lifað í 90
ár.“ Sigríður hélt upp á afmælið núna
um helgina.
Fjölskylda
Eiginmaður Sigríðar var Valtýr
Bjarnason, f, 6.3. 1920, d. 10.3. 1983,
yfirlæknir svæfingadeildar Landspít-
alans. Foreldrar hans voru hjónin
Bjarni Jónsson, f. 19.2. 1865, d. 17.11.
1958, kennari, vegavinnuverkstjóri og
bóndi, og Þórdís Þórðardóttir, f. 20.10.
1885, d. 26.4. 1972, húsfreyja og org-
anisti.
Börn Sigríðar og Valtýs eru 1)
Bjarni Valtýsson, f. 23.7. 1957, læknir
og býr í Meiri-Tungu í Holtum. Eigin-
kona hans er Dóra Gerður Stefáns-
dóttir hjúkrunarfræðingur. Börn: Sig-
ríður Ósk byggingaverkfræðingur,
4.10. 1983, börn hennar eru Bóas og
Bent; Kristín Jóna læknir, f. 27.5.
1985, sonur hennar er Bjarni Henrik;
Stefán laganemi, f. 18.7. 1991, og Val-
týr vélaverkfræðingur, f. 21.8. 1993; 2)
Jóhann Valtýsson, f. 30.7. 1959, læknir
og býr í Uppsala, Svíþjóð. Eiginkona
hans er Ewa Hjelm kennari. Börn:
Sigríður Margareta nemi, f. 25.1. 1993
Sigríður Jóhannsdóttir hjúkrunarfræðingur – 90 ára
Stórfjölskyldan Haldið upp á 90 ára afmæli Sigríðar síðastliðinn laugardag.
Það var yndislegast að kenna
Fjölskyldan Sigríður, Valtýr og börn á jólum 1972.
Nýútskrifuð Sigríður árið 1954.
30 ára Alexandra er
Reykvíkingur og býr í
Grafarholti. Hún lærði
grafíska miðlun í
Tækniskólanum og er
vefhönnuður hjá Vef-
stofunni Kodo.
Maki: Ingólfur Jökull
Róbertsson, f. 1982, atvikastjóri hjá Ís-
landsbanka.
Dóttir: Marín Röfn Ingólfsdóttir, f. 2018,
og stjúpdóttir er Birta Ósk Ingólfsdóttir, f.
2013.
Foreldrar: Jón Eiríksson, f. 1963, íþrótta-
kennari og ökukennari, bús. í Mosfellsbæ,
og Kristín Kristjánsdóttir, f. 1969, tónlist-
arkennari, bús. á Hvammstanga.
Alexandra Sif
Jónsdóttir
Til hamingju með daginn
Reykjavík Marín Röfn
Ingólfsdóttir fæddist 22.
september 2018. Hún vó
2.850 g og var 48 cm löng.
Foreldrar hennar eru
Alexandra Sif Jónsdóttir
og Ingólfur Jökull
Róbertsson.
Nýr borgari