Morgunblaðið - 11.11.2019, Side 28
VIÐTAL
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Sögur af Réttlætisbandalagi Ameríku,
skammstafað RBA, hafa verið gefnar
út í fyrsta sinn á íslensku, í 320 bls.
myndasagnabók, á vegum verslunar-
innar Nexus. Pétur Yngvi Leósson er
ritstjóri útgáfunnar líkt og sagnanna
um Leðurblökumanninn sem Nexus
hóf að gefa út á íslensku í nóvember í
fyrra. Réttlætisbandalagið skipa ofur-
hetjur úr sagnaheimi DC Comics en
þaðan er Leðurblökumaðurinn einnig
ættaður.
Pétur hefur allt frá barnæsku verið
ástríðufullur aðdáandi myndasagna
um ofurhetjur og segir Leðurblöku-
manninn í sérstöku uppáhaldi.
„Ég hef lifað og hrærst í myndasög-
um frá því ég man eftir mér og starfaði
sem innkaupa- og deildarstjóri
myndasögudeildar Nexus í tíu ár, frá
1997 til 2006. Auk þess flutti ég inn
myndasöguhöfunda, ráðlagði bóka-
söfnum um allt land um innkaup og
skipulagði fyrirlestra og uppákomur í
samstarfi við Borgarbókasafnið og
Háskóla Íslands,“ segir Pétur. Hann
hafi því verið „atvinnumyndasagna-
nörd“ á tímabili og sé nú orðinn það
aftur.
Merkilegustu myndasögur
20. og 21. aldarinnar
Gísli Einarsson, eigandi og for-
stjóri Nexus, leitaði til Péturs um að
ritstýra útgáfu á ofurhetjublöðum á
íslensku og Pétur þáði boðið. „Nú er
ég ritstjóri, einn af þýðendunum og
líka hönnuðurinn á bak við megnið af
lógó-breytingum og svoleiðis,“ segir
Pétur.
Útgáfan hófst í fyrra með fríblaði
um Leðurblökumanninn og var því
fagnað með upplestri og teiti í versl-
un Nexus í Glæsibæ. Ástæða útgáf-
unnar var fyrst og fremst sú, að sögn
Péturs, að Gísli vildi gefa út mynda-
sögu sem væri líkleg
til að kveikja áhuga
ungra drengja á
lestri. „Hann réð
mig í starfið og að
mínu mati eru Bat-
man-sögur 20. og 21.
aldarinnar merki-
legustu myndasögur
sem hafa komið út á
Vesturlöndunum.
Þær eru líka með
áberandi frábærum
handritum og blæ-
brigðaríkum texta,“
segir Pétur.
Hann segir
Leðurblökumanninn
þá myndasagna-
persónu sem laðað
hafi til sín flesta góða
höfunda og teiknara, m.a. Frank
Miller, Dennis O’Neill og Grant
Morrison. „Allar kanónurnar hafa á
einhverjum tímapunkti hamast á
krúnudjásni myndasagnaheimsins,“
segir Pétur.
Saga engum öðrum lík
–Það lá því beinast við að hefja út-
gáfuna með Leðurblökumanninum?
„Já, með tveimur af allra bestu
sögunum úr 80 ára útgáfusögu hans,
Uglurétti og upprunalegu sögunni
um Ra’s al Ghul og framhaldssögum
þeirra,“ svarar Pétur, en fyrstu sex
bækurnar hafa nú verið gefnar út og
verða fáanlegar saman í öskju fyrir
jól. Í hverri bók má finna sögur frá
ólíkum tímum eftir ólíka höfunda,
sem er áhugavert bæði fyrir Batman-
nörda og þá sem eru að kynnast hetj-
unni í fyrsta sinn.
Hvað upprunalegu söguna um Ra’s
al Ghul varðar (Ghul er illmenni og
hryðjuverkamaður) segir Pétur að
þeir tíu hlutar sem myndi uppruna-
legu söguna hafi ekki áður verið gefn-
ir út númeraðir og merktir í réttri
röð. Það hafi fyrst verið gert núna
með íslensku útgáfunni. Þess má geta
að sagan var kvikmynduð á Íslandi
árið 2004 með Liam Neeson í hlut-
verki Ra’s al Ghul.
„Það er svo skemmtilegt við þessa
sögu að hún byrjaði árið 1970, hélt
áfram 1980 og árið 1990 kom aftur
lykilkafli. Árið 2006 gerði Grant
Morrison svo framhald af þessu öllu
saman. Þessi saga sem ég er að lýsa
hér er merkilegasta ofurhetjusaga
sem ég hef lesið á 21. öldinni, þetta er
svo rosalega metnaðarfullt að ég hef
aldrei séð neitt í lík-
ingu við þetta,“ seg-
ir Pétur.
Hann segir bestu
sögurnar um
Leðurblöku-
manninn höfða til
breiðs aldurshóps,
ekki bara táninga
heldur líka fullorð-
inna, í stuttu máli
allra sem hafi gam-
an af góðum skáld-
skap og flottum
teikningum.
Þakkir frá
kennurum
–Þið viljið með
útgáfunni auka ynd-
islestur drengja,
leggja ykkar af mörkum í að vekja
áhuga þeirra á lestri. Hafið þið fengið
einhver viðbrögð við útgáfunni?
„Já, frá kennurum sem komið hafa
í búðina og þakkað fyrir framtakið.
Þeir hafa notað bækurnar í tímum.
Ég hef heyrt það frá starfsmönnum
verslunarinnar,“ svarar Pétur.
Sögunar um Leðurblökumanninn
höfða þó ekki bara til drengja og
karla, þrátt fyrir að fjalla nær ein-
göngu um karlmenn, karlkyns hetjur
og skúrka. Pétur bendir á að um 15%
áskrifenda Leðurblökunnar, eins og
bækurnar heita á íslensku, séu konur
og stúlkur.
Í RBA er kynjahallinn ögn minni,
þótt mikill sé, því þar má finna
Undrakonuna, Wonder Woman. Og
fyrsta bókin sem Nexus gefur út um
RBA er vegleg, 320 blaðsíður að
lengd og nefnist Veraldavíg. Í henni
þarf bandalagið að verja jörðina fyrir
linnulausum árásum innrásarherja
utan úr geimnum og svikulla engla,
hvorki meira né minna, og gengur þá
auðvitað mikið á, bitið í skjaldar-
rendur og menn klofnir í herðar nið-
ur.
Pétur er spurður að því hvort fleiri
kvenhetjur séu væntanlegar og segir
hann svo vera. „Upprunalega sagan
um Leðurblökukonuna frá 1956 og
Ras al Ghul-saga með Leðurblöku-
konunni frá 1979 birtast báðar í
blöku-bók 7 ásamt meginsögunni þar
sem deila Leðurblökumannsins og al
Ghul endar í blóðugu lokauppgjöri.“
Spurður út í framhaldið segist Pét-
ur stefna að því að gefa út blöku-bók
á tveggja mánaða fresti og eina til
tvær RBA á ári.
Krúnudjásn myndasagnaheimsins
Hetjur Pétur Yngvi Leósson, ritstjóri hjá Nexus og atvinnumyndasagnanörd, hér með Undrakonunni í verslun Nexus. Blaka Síða úr níundu bókinni um Leðurblökumanninn.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Leðurblökumaðurinn gefinn út á íslensku til að auka yndislestur drengja Réttlætisbandalag
Ameríku hefur bæst við útgáfu Nexus Frábærir höfundar hafa tekist á við Leðurblökumanninn
Sú fyrsta Fyrsta bókin sem
Nexus gaf út um Leðurblöku-
manninn, Leðurblakan nr. 1.
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2019
Metabolic Reykjavík | Stórhöfða 17 | metabolicreykjavik.is
Metabolic Reykjavík
Ný þjálfunarstöð við Gullinbrú
Faglegt Fjölbreytt Skemmtilegt
Æfðu á þínum hraða, á þínu erfiðleikastigi