Morgunblaðið - 11.11.2019, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 11.11.2019, Blaðsíða 32
Pantaðu borð í síma 483 4700 | hverrestaurant.is HVER TEKUR VEL Á MÓTI ÞÉR Ljúffengur matur, góð þjónusta og hlýlegt andrúmsloft. OPIÐ 11:30–22:00 ALLA DAGA Úti regnið grætur – bók um skáldið Jóhann Sigur- jónsson nefnist ný bók Sveins Einarssonar um leik- og ljóðskáldið Jó- hann Sigur- jónsson sem kynnt verður í Gunnarshúsi á morgun, þriðju- dag, kl. 20. Í ár eru 100 ár liðin frá andláti skáldsins, en Jóhann lést 31. ágúst aðeins 39 ára að aldri. Meðal þekktustu verka Jóhanns eru kvæðin „Bikarinn“, „Sorg“ og „Sofðu unga ástin mín“ sem og leikritin Fjalla- Eyvindur, Galdra-Loftur og Rung læknir. Bók um Jóhann Sigur- jónsson skáld kynnt MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 315. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Afturelding er komið upp að hlið Hauka í toppsæti Olís-deildar karla í handknattleik eftir sigur á Fjölni í gær. Liðin eru með 14 stig en Haukar eiga leik til góða gegn Sel- fossi í kvöld. ÍR komst upp í þriðja sætið með sigri gegn ÍBV, KA vann góðan sigur á móti FH, Valur skellti HK og Fram og Stjarnan gerðu jafn- tefli í ótrúlegum leik. »27 Afturelding upp að hlið Haukanna ÍÞRÓTTIR MENNING Liverpool er heldur betur komið í góða stöðu nú í byrjun nóvember í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Liverpool skellti Englandsmeisturum Manchester City 3:1 í toppslag ensku úr- valsdeildarinnar á Anfield í gær og er liðið nú komið með átta stiga forskot í toppsæti deildarinnar þegar tólf umferðum er lokið. Manchester United vann góð- an sigur gegn Brighton og fór með sigrinum upp um sjö sæti og er í 7. sæti deild- arinnar. »25 Liverpool er gjör- samlega óstöðvandi Veronika S. Magnúsdóttir veronika@mbl.is Sjálfsmynd, umhverfismál, stríð og ranghugmyndir um unglinga eru meðal þeirra málefna sem ungmenni úr grunnskólum Reykjavíkur munu kryfja á listrænan hátt á úrslita- kvöldi Skrekks, hæfileikahátíðar skóla- og frístundasviðs Reykjavík- ur. Keppnin fer fram í Borgarleik- húsinu í kvöld klukkan 20.00 og verður sýnd í beinni útsendingu á RÚV, en þetta er í 30. sinn sem Skrekkur er haldinn. „Skrekkur er ekki bara hæfi- leikakeppni heldur langt sköp- unarferli, sem skapar vettvang fyrir listræna tjáningu ungs fólks,“ segir Harpa Rut Hilmarsdóttir, verkefna- stjóri barnamenningar. Hún segir keppnina fela í sér heilbrigt starf sem kemur inn á marga þætti í lífi unglinganna. „Þau eru að tjá sig um það sem þeim þykir mikilvægast,“ segir hún. Atriði í keppninni hafa breyst með árunum og eðli þeirra orðið pólitískara en áður. „Þau fara ofan í það að skoða einhver málefni, til dæmis hvernig góð og slæm öfl eru að sækja á þau á unglingsárunum og þau þurfa að velja rétta leið,“ segir hún. Færst hefur í aukana að frum- samin tónlist hljómi undir atriðum á Skrekk og jafnast atriðin stundum á við fagleiksýningar að sögn Hörpu. „Krakkarnir eru orðnir svo miklir fagmenn í dag, þau eru orðin svo djúpt listræn og klár – þau eru að semja sína eigin tónlist til dæmis.“ Á þriðja hundrað ungmenna úr átta grunnskólum Reykjavíkur stíga á stóra svið Borgarleikhússins og flytur hver skóli frumsamið list- atriði. Þeir skólar sem komust upp úr undankeppni og keppa til úrslita í kvöld eru Árbæjarskóli, Breiðholts- skóli, Hagaskóli, Háteigsskóli, Hlíðaskóli, Laugalækjarskóli, Selja- skóli og Réttarholtsskóli. Listin lítur dagsins ljós  Ungmenni munu tjá málefni sem liggja þeim á hjarta á úrslitakvöldi Skrekks  Keppnin haldin í 30. skiptið Morgunblaðið/Eggert Skrekkur Átta grunnskólar keppa til úrslita í kvöld en myndin var tekin á einu undanúrslitakvöldi keppninnar. Morgunblaðið/Eggert Innlifun Margir uppgötva ástríðu sína á sviði leiklistar í Borgarleikhúsinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.