Morgunblaðið - 15.11.2019, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2019
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Þetta skapar gegnsæi um starf-
semi félagsins og auðveldar aðgang
að fjármagni,“ segir Kjartan Ólafs-
son, stjórnarformaður Arnarlax,
stærsta fiskeldisfyrirtækis landsins,
sem skráð verður í dag á NOTC,
lista kauphallarinnar í Osló fyrir
minni fyrirtæki.
Arnarlax skilaði
hagnaði á þriðja
ársfjórðungi
þrátt fyrir að
verð á laxi hafi
þá verið það
lægsta í áratug.
Nokkur spenn-
ingur ríkir um
verðmyndun á
hlutabréfum
Arnarlax þegar
viðskipti hefjast í dag. Norski fisk-
eldisrisinn SalMar á 59,4% hlutafjár
og greiddi 55,80 norskar krónur á
hlut í yfirtökutilboði í byrjun ársins.
Verðmæti hlutabréfa félagsins var
þá rúmir 20 milljarðar íslenskra
króna.
Í greiningu Arctic Securities frá
því í október er mælt með kaupum
á hlutabréfum fyrirtækisins og
verðmæti hvers hlutar metið 100
norskar krónur. Ef verðið nær því
marki nálgast heildarverðmæti
hlutabréfa félagsins 40 milljarða ís-
lenskra króna en til samanburðar
má geta þess að verðmæti hluta-
bréfa Icelandair var í gær 41 millj-
arður króna í Kauphöll Íslands.
Fá athygli greiningaraðila
Kjartan segir að í hluthafasam-
komulagi eigenda Arnarlax sé
ákvæði um að skrá félagið í norsku
kauphöllinni. Félagið hafi verið í
ströngu undirbúningsferli og sé nú
tilbúið til að stíga þetta skref.
Hann segir að það hafi þá kosti
að skrá fyrirtækið á markað í Nor-
egi að þar sé mikill áhugi og þekk-
ing á fiskeldi. Fyrirtækið fái nú at-
hygli greiningarfyrirtækja sem
fylgist grannt með starfseminni.
Nefnir hann að færeyska fiskeld-
isfyrirtækið Bakkafrost hafi ákveð-
ið, af þessum sökum, að skrá hluta-
bréf sín í kauphöllinni í Osló í lok
síðasta árs þótt beinna hefði legið
við að skrá þau í Kaupmannahöfn
vegna mikilla viðskiptatengsla
þangað.
Stjórnendur Arnarlax stefna að
því að félagið fái skráningu á að-
allista kauphallarinnar í Osló þegar
það hefur náð réttri stærð. Kjartan
vonar að það geti gerst á næsta ári.
Skráningu á markað fylgir ákveðin
upplýsingaskylda þótt hún sé minni
á NOTC en aðallista. Kjartan segir
að SalMar sé almenningshlutafélag,
skráð á aðallista, og því fylgi miklar
kröfur sem Arnarlax þurfi að taka
tillit til.
Viðsnúningur í rekstri
Rekstur Arnarlax hefur gengið
vel það sem af er ári og er orðinn
mikill viðsnúningur frá árinu 2018
sem var félaginu erfitt, meðal ann-
ars vegna áfalla í eldinu. Fyrstu níu
mánuði ársins skilaði reksturinn
hagnaði upp á 73 milljónir norskra
króna, eftir afskriftir, eða sem svar-
ar til tæpum milljarði íslenskra
króna.
Athygli vekur að hagnaður varð á
rekstrinum á þriðja ársfjórðungi
þótt heimsmarkaðsverði á laxi hafi
þá verið það lægsta í áratug. Hagn-
aðurinn nam 22 milljónum norskra
króna eða 300 milljónum íslenskra.
„Það er ánægjulegt að sjá ís-
lenskt laxeldi skila hagnaði við
þessar aðstæður,“ segir Kjartan og
skýrir þetta meðal annars með því
að Arnarlax hafi fengið hærra verð
fyrir laxinn en norsku laxeldisfyr-
irtækin. Norsku greiningarfyrir-
tækin vekja athygli á þessu í grein-
ingu á uppgjöri Salmar, meðal
annars Paredo Securities í gær.
Hærra afurðaverð skýrist af því að
laxinum er slátrað stærri hér, um 6
kílóum og stærri, og Arnarlax hefur
náð til kaupenda sem eru tilbúnir
að greiða hærra verð fyrir þessa
vöru. Þá segir Kjartan markaðurinn
taki vel á móti laxi sem alinn er í ís-
lenskum fjörðum.
Styrkur í mótvindi
„Sterkur staðbundinn mótvindur
á heimavelli hefur styrkt félagið al-
mennt og gert okkur gott,“ segir
Kjartan og vísar til áfalla í eldinu á
nýjum eldissvæðum og umræðunn-
ar í stjórnmálum og hjá öðrum
hagsmunaaðilum.
Arnarlax framleiðir um 10 þús-
und tonn á þessu ári en er að
stækka. Reiknað er með sömu
framleiðslu á næsta ári. Fyrirtækið
hefur heimildir til að framleiða 25
þúsund tonn á ári og er að undirbúa
frekari stækkun.
Skila hagnaði þrátt fyrir
sögulega lágt verð á laxi
Viðskipti hefjast með hlutabréf Arnarlax í kauphöllinni í Osló í dag
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Slátrun og pökkun Starfsmenn í sláturhúsi Arnarlax á Bíldudal pakka laxi til útflutnings. Greiningarfyrirtæki sem
þekkja til fiskeldis sjá mikla möguleika í starfsemi fyrirtækisins til framtíðar. Það fær hærra verð fyrir afurðirnar.Kjartan Ólafsson
Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar
bjargaði fjögurra manna áhöfn fiski-
bátsins Einars Guðnasonar ÍS sem
strandaði við Gölt á utanverðum
Súgandafirði seint í fyrrakvöld. Að-
stæður á vettvangi voru erfiðar sök-
um brims og hvorki var hægt að
senda björgunarskip að strandstað
né bjarga skipverjum frá landi.
Landhelgisgæslunni barst neyð-
arkall frá bátnum á slaginu tíu og var
þyrlan komin á vettvang klukkan
23:42 og áhöfn hennar hófst þegar
handa við að bjarga skipverjunum
fjórum. Á miðnætti hafði tekist að ná
þeim um borð í þyrluna og var flogið
með þá til Ísafjarðar.
„Báturinn skorðaðist fljótlega á
milli kletta og braut nokkuð á hon-
um. Hægur vindur var á svæðinu en
þó nokkur alda,“ sagði í tilkynningu
frá Landhelgisgæslunni.
Varðskipið Týr sigldi á strandstað
í gærmorgun til að reyna að bjarga
bátnum af strandstað en þegar skip-
ið kom á staðinn var báturinn ónýtur
og maraði í kafi.
„Skipverjarnir hafa það að
minnsta kosti líkamlega gott en
þetta tekur nú örugglega á sálina,“
sagði Óðinn Gestsson, framkvæmda-
stjóri útgerðarinnar Íslandssögu
sem gerir út Einar Guðnason ÍS, í
samtali við mbl.is í gær. Skipverj-
arnir fengu áfallahjálp eftir að þeim
hafði verið bjargað.
Björgun Aðgerðir gengu mjög vel þrátt fyrir virkilega krefjandi aðstæður.
Fjórum skipverjum
bjargað eftir strand
Samiðn, MATVÍS og VM hafa und-
irritað nýja kjarasamninga við
Samband íslenskra sveitarfélaga,
sem gilda til 31. mars 2023. Laun
hækka í krónutölu um 17 þúsund á
þessu ári og um 24 þús. kr á næsta
og aftur á þarnæsta ári og loks um
25 þúsund 1. janúar 2022. Lág-
markslaun eiga að ná 368 þúsund
kr. á mánuði 1. janúar 2022. Samið
var um 75.500 kr. uppgjörsgreiðslu
fyrir tímabilið frá 1. apríl sl. til 31.
október sl. og um sérstaka ein-
greiðslu upp á 57.000 kr. sem greið-
ist starfsmönnum í fullu starfi 1.
febrúar 2023. Í samningnum er
einnig kveðið á um að starfsmenn í
fullu starfi fái greidda persónu-
uppbót 1. maí og 1. desember ár
hvert á samningstímanum, mis-
munandi háa fjárhæð í hvert sinn
eða allt frá 50.450 til 124.750 kr.
Lágmarksorlof verður 30 dagar og
samið var um heimild til að fram-
lengja ráðningar starfsmanna sem
náð hafa 70 ára aldri. omfr@mbl.is
Persónuuppbætur
og 30 daga orlof
Venus NK og Víkingur AK héldu til
kolmunnaveiða á Færeyjamiðum
um miðja vikuna og eru fyrstu skip-
in til að fara á kolmunna í haust.
Eftir er að veiða um 40 þúsund tonn
af kolmunnakvóta íslenskra skipa á
þessu ári.
Veiðar á íslenskri sumargotssíld
hófust í síðustu viku vestur af land-
inu. Í gær voru Ásgrímur Hall-
dórsson SF, Beitir NK, Margrét EA,
Ísleifur VE, Hoffell SU og Kap VE
að veiðum djúpt út af Reykjanesi.
Heildaraflamark í íslenskri sum-
argotssíld á þessu fiskveiðiári er
tæplega 35 þúsund tonn.
Veiða síld og
kolmunna
Morgunblaðið/Albert Kemp
Á síld Hoffell SU frá Fáskrúðsfirði.