Morgunblaðið - 15.11.2019, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2019
Hamraborg 10, Kópavogi
Sími: 554 3200 Opið: Virka daga 9.30–18
VERIÐ VELKOMIN
Í SJÓNMÆLINGU
———
15. nóvember 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 124.73 125.33 125.03
Sterlingspund 160.31 161.09 160.7
Kanadadalur 93.98 94.54 94.26
Dönsk króna 18.374 18.482 18.428
Norsk króna 13.526 13.606 13.566
Sænsk króna 12.798 12.872 12.835
Svissn. franki 125.92 126.62 126.27
Japanskt jen 1.1445 1.1511 1.1478
SDR 171.16 172.18 171.67
Evra 137.32 138.08 137.7
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.9708
Hrávöruverð
Gull 1463.45 ($/únsa)
Ál 1765.0 ($/tonn) LME
Hráolía 61.85 ($/fatið) Brent
BAKSVIÐ
Pétur Hreinsson
peturh@mbl.is
Athafnamaðurinn Sigmar Vilhjálmsson hefur í
nógu að snúast þessa dagana. Næsta vor, eða í síð-
asta lagi fyrir Evrópumótið í knattspyrnu sem
hefst 12. júní 2020, hyggst Sigmar opna nýjan af-
þreyingarstað; tvo 9 holu mínígolfvelli, sportbar og
veitingarými, í 1.850 fermetra húsnæði við Skútu-
vog 2, þar sem Vodafone var áður til húsa. Gengið
hefur verið frá leigusamningi við fasteignafélagið
Regin. „Þetta er í raun og veru „all-in“ fjárfesting.
Og ég væri ekki að taka þetta stóra skref nema ég
tryði því að þetta væri frábær hugmynd,“ segir
Sigmar í samtali við Morgunblaðið en fyrir er Sig-
mar helmingshluthafi í Hlöllabátum, sem verður
móðurfélag nýja staðarins, en hann stendur einnig
í ströngu við að opna nýjan sportbar í Mosfellsbæ;
Barion, þar sem Arion banki var áður til húsa.
Brautir tengdar íslenskum kennileitum
Vinnuheitið fyrir hinn nýja stað er MiniGolf ver-
öldin og er undirbúningur löngu hafinn. „Hver og
ein braut verður sviðsmynd og það eru margar
áhugaverðar pælingar í gangi, en margar þeirra
verða tengdar íslenskum kennileitum. Til dæmis
Hallgrímskirkju,“ segir Sigmar sem er fullviss um
að þörf sé á slíkum stað.
„Við búum á þessu veðralandi þar sem þú veist
aldrei hvað er hægt að stóla á. Það er alveg sama
hvort um er að ræða helgarafþreyingu, barnaaf-
mæli, hópefli vinnustaða eða bara djamm í upphafi
kvölds þá mun MiniGolf veröldin okkar verða frá-
bær staður til að njóta samveru. Verðið mun líka
koma skemmtilega á óvart í mat, drykk og afþrey-
ingu,“ segir Sigmar.
Að hans mati er góður tími til að opna staðinn nú
þrátt fyrir að margir veitingastaðir berjist í bökk-
um, en hann opnaði t.d. Hamborgarafabrikkuna
árið 2010, skömmu eftir bankahrun. „Þegar það
fer aðeins að þrengja að hjá fólki verður þörfin fyr-
ir að lyfta sér upp meiri. Sérstaklega þegar það er í
þessum kostnaðarramma en ekki í helgarferðum
eða einhverju slíku.“
Fyrirmyndina er að finna hjá Swingers: The
Crazy Golfclub, sem er nokkurs konar mínígolf-
veröld í Lundúnum. „Ég hef verið með þessa hug-
mynd í maganum ansi lengi. Þegar ég sá að þetta
var í boði í London þá fór ég út og skoðaði, kom
heim og var ákveðinn í því að þetta væri málið,“
segir Sigmar sem býr einnig að þeirri reynslu að
hafa rekið Keiluhölluna í Egilshöll. „Sú reynsla
kemur að góðum notum. Við verðum með fullbú-
inn sportbar og spennandi lausnir í mat. Við mun-
um ekki vera með einn veitingastað þarna inni
heldur verðum við með spennandi „mathöll“ sem
hluta af heildinni. Þannig munu viðskiptavinir
geta pantað mismunandi rétti úr mismunandi átt-
um eða til að deila saman. Lifandi DJ-tónlist verð-
ur allar helgar sem er frábær viðauki við þá
stemningu sem myndast í svona dýnamísku um-
hverfi.“
Sigmar opnar mínígolfver-
öld í 1.850 fermetra rými
Hyggst opna staðinn næsta vor Brautir með tengingar við íslensk kennileiti
Ljósmynd/Swingers: The Crazy Golf Club
Fyrirmynd Sigmar fékk innblástur fyrir verkefnið frá Swingers: The Crazy Golfclub í Lundúnum.
Mínígolf Hér getur að líta teikningu á smjör-
pappír af MiniGolf veröld Sigmars og félaga.
Hagnaður Brims á þriðja ársfjórð-
ungi nam 17,8 milljónum evra, jafn-
virði 2,4 milljarða króna, en nam 8,2
milljónum evra yfir sama tímabil ári
fyrr. EBITDA nam 28,1 milljón evra
á þriðja fjórðungi, jafnvirði 3,8 millj-
arða króna, samanborið við 13,5
milljónir evra yfir sama tímabil 2018.
Rekstrartekjur yfir tímabilið námu
67,7 milljónum evra, jafnvirði 9,2
milljarða króna, samanborið við 49,2
milljónir evra 2018.
Hagnaður Brims það sem af er ári
nemur 28,5 milljónum evra, jafnvirði
3,9 milljarða króna en nam 11,2 millj-
ónum evra á fyrstu níu mánuðum
síðasta árs. EBITDA það sem af er
ári nemur 51,3 milljónum evra, jafn-
virði tæplega 7 milljarða króna, sam-
anborið við 24,1 milljón evra fyrstu
níu mánuði ársins 2018. Rekstrar-
tekjur jukust einnig og námu 177,7
milljónum evra, jafnvirði 24,2 millj-
arða króna króna, samanborið við
149,2 milljónir evra 2018.
Eignir Brims í lok þriðja ársfjórð-
ungs námu 664 milljónum evra, jafn-
virði 90,5 milljarða króna. Skuldir fé-
lagsins námu 368,3 milljónum evra,
jafnvirði 50,2 milljarða króna en
höfðu staðið í 387,6 milljónum evra
um áramótin síðustu.
Guðmundur Kristjánsson, for-
stjóri félagsins, segir að félaginu hafi
gengið vel á þriðja ársfjórðungi og
það sem af er ári hafa skip félagsins
dregið 110 þúsund tonn úr sjó.
„Þorskveiði, makrílveiðar og
vinnsla gengu vel og meira var fram-
leitt á þessu tímabili af verðmætari
afurðum. Verð afurða á erlendum
mörkuðum var hagstætt og ekkert
skip var í slipp á tímabilinu. Þá eru
auknar fjárfestingar félagsins á und-
anförnum misserum í nýjum skipum
og aflaheimildum að skila sér með
skýrum hætti í aukinni arðsemi.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Brim Guðmundur Kristjánsson.
Hagnaður Brims
meira en tvöfaldast
110 þúsund
tonna afli á fyrstu
níu mánuðunum
Kvika banki hf. hagnaðist um rúma
1,9 milljarða króna eftir skatta á
þriðja fjórðungi ársins. Þetta er rúm-
lega 500 milljóna króna aukning borið
saman við sama tímabil í fyrra, þegar
félagið hagnaðist um ríflega 1,4 millj-
arða króna, sem er 36% aukning.
Eignir Kviku í lok tímabilsins námu
tæpum 113 milljörðum króna en voru
rúmir 88 milljarðar í lok síðasta árs.
Eigið fé Kviku nemur nú tæpum 15
milljörðum króna, en það var um 13
milljarðar í lok árs 2018.
Eiginfjárhlutfall Kviku í lok sept-
ember var 22,9% en 23,6% að teknu
tilliti til hagnaðar á fjórðungnum.
,,Rekstur Kviku gekk vel á fyrstu
níu mánuðum ársins. Það er sér-
staklega ánægjulegt að sjá hvernig
reksturinn gekk á þriðja ársfjórðungi
þrátt fyrir erfiðar markaðsaðstæður.
Tekjumyndun bankans hefur verið
góð það sem af er ári og vel hefur
gengið að halda rekstrarkostnaði á
áætlun. Arðsemin er góð og vel um-
fram langtímamarkmið bankans,“
segir Marinó Örn Tryggvason, for-
stjóri Kviku, í fréttatilkynningu til
Kauphallar Íslands.
Hagnaður
Kviku 1,9
milljarðar
Eignir jukust