Morgunblaðið - 15.11.2019, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2019
****
S.J. Fréttablaðið
,,Átakanleg sýning um
uppgjör við lífið og dauðann”
borgarleikhus.is
– Því er haldið fram að Samherji
hafi lagt lítið til samfélagsins ytra.
Eru þetta réttar fullyrðingar af
hálfu framleiðanda þáttarins?
„Ég hef reyndar ekki kynnt mér
öll atriðin í málinu en vitna til orða
forstjóra Samherja þar sem hann
fullyrðir að því sé ranglega haldið
fram að Samherji hafi tekið fé út úr
félaginu. Þetta er auðvitað hluti af
því sem mun koma fram í rannsókn-
inni en auðvitað voru settar fram
slíkar ásakanir í þessum þætti og
það þarf að upplýsa.“
Fékk símtal frá Þorsteini Má
– Þrýsti stjórn Samherja á að Þor-
steinn Már hætti eða stigi til hliðar?
„Mér er kunnugt um að þetta var
að frumkvæði Þorsteins Más. Seint í
gærkvöldi [á miðvikudagskvöld]
fékk ég símtal frá Þorsteini Má sem
bað mig um að taka við félaginu.
Stjórnin er auðvitað að leita leiða til
að mýkja þessa umræðu eins og gef-
ur auga leið. Þetta er stórt fyrirtæki
með milli 800 og 900 manns í vinnu á
Íslandi og öll umræða af þessum
toga getur veikt félagið. Það var
niðurstaða stjórnar að það þyrfti að
styrkja félagið.“
Draga sig út úr starfseminni
– Hvaða áhrif hefur málið haft á
starfsemi Samherja í Namibíu?
„Ég veit ekki betur en Samherji
hafi verið búinn að ákveða að draga
sig út úr þessari starfsemi. Sú
ákvörðun var tekin árið 2017.“
– Verðurðu í þessu embætti fram
yfir áramótin?
„Verkefnið er skýrt og ég vona að
málin leysist á sem skemmstum tíma
þannig að þessi tímabundna ráðning
vari ekki mjög lengi,“ segir Björg-
ólfur og hlær við. Það séu hagsmunir
félagsins að málið leysist sem fyrst.
hluta gagnanna vegna húsleitar í
Seðlabankamálinu 2012?
„Ég kann ekki að meta það. Mér
fyndist það ekki ólíklegt.“
Viðbrögðin verið hógvær
– Hver hafa viðbrögð erlendra við-
skiptavina verið?
„Þau hafa verið tiltölulega hóg-
vær. Stóra spurningin fyrir við-
skiptavini er umræðan á Alþingi um
mögulega frystingu eigna Samherja.
Það getur vissulega haft áhrif á við-
skiptavini að fá ekki vörur og svo
framvegis ef slíkar hugmyndir
fengju eitthvert flug. Þær spurning-
ar lúta þá fyrst og síðast að því að
fullvissa aðila um að félagið standi
við gerða samninga og afhendi vörur
samkvæmt því. Það er auðvitað það
sem menn ætla að gera en getur
truflast ef farið verður í þá vegferð
sem Helga Vala [Helgadóttir, þing-
maður Samfylkingar] var að tala um.
Að öðru leyti eru viðbrögðin ekki
nema í þessa áttina. Spurt er hvort
ekki sé öruggt að félagið geti afhent
vörur. Sem er alveg klárt að félagið
gerir.“
Þátturinn var mjög einhliða
– Þú þekkir Samherja vel á fyrri
stigum félagsins. Þarf félagið að fara
í einhverjar slíkar æfingar að breyta
um nafn eða vörumerki út af málinu?
„Á þessu stigi held ég að við segj-
um einfaldlega nei. Ég held að öllum
sé ljóst að sjónvarpsþáttur Kveiks
var mjög einhliða. Það er vilji allra
að upplýsa um öll þessi atriði en ýjað
var að því að félagið hefði brotið
gegn lögum og sýnt slæmt siðferði í
viðskiptum. Þegar niðurstöður rann-
sóknarinnar liggja fyrir geta menn
metið þetta en það er ekki hægt á
þessu stigi.“
Allt kapp lagt á að upplýsa málið
Starfandi forstjóri Samherja segir umfjöllun Kveiks um starfsemina í Namibíu hafa verið einhliða
Mikilvægt að sannfæra erlenda viðskiptavini Samherja um að félagið muni geta afgreitt vörur
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Fyrir norðan Höfuðstöðvar Samherja við Glerárgötu á Akureyri.
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Björgólfur Jóhannsson, starfandi
forstjóri Samherja, segir sér hafa
runnið blóðið til skyldunnar að taka
tímabundið við stjórnartaumunum
hjá félaginu.
Hann hafi
unnið með þeim
frændum, Þor-
steini Má Bald-
vinssyni og Krist-
jáni Vilhelmssyni,
fyrir félagið.
Fyrst sem endur-
skoðandi Sam-
herja, 1984-1992
og svo sem fram-
kvæmdastjóri ný-
sköpunar og þróunar árin 1996-1999.
Hann hafi alla tíð síðan fylgst náið
með félaginu. Nú sé verkefnið að
ljúka sem fyrst athugun á málefnum
félagsins í Namibíu í tilefni af um-
fjöllun sjónvarpsþáttarins Kveiks.
Honum þyki vænt um félagið.
Fara yfir Afríkufélagið
– Hver verða viðbrögð ykkar í ná-
inni framtíð við því sem gerst hefur?
„Stjórn Samherja, eins og kemur
fram í tilkynningu frá félaginu, hefur
ráðið lögmannsstofu til að yfirfara
þessi mál. Þannig að það verði upp-
lýst hvernig þessu var öllu háttað.
Síðan eru yfirvöld á Íslandi að skoða
málið út af þessum ásökunum en
Samherji mun að sjálfsögðu vinna
með yfirvöldum til að reyna að upp-
lýsa þessi mál eins vel og mögulegt
er.“
– Telur fyrirtækið að til bær yfir-
völd, þar með talið skattrannsókn-
arstjóri, hafi þegar farið yfir stóran
Björgólfur
Jóhannsson
Orðspor Íslands í spillingarmálum,
tengsl Kristjáns Þórs Júlíussonar
sjávarútvegsráðherra við Samherja
og vera Íslands á gráum lista og að-
gerðir gegn peningaþvætti voru
meðal mála sem voru rædd í óund-
irbúnum fyrirspurnartíma á Al-
þingi í gær. Katrín Jakobsdóttir
forsætisráðherra sagði í ræðu sinni
að margt hefði breyst til betri veg-
ar í þeim efnum frá því að hún kom
inn á þing árið 2007 og nefndi siða-
reglur um þingmenn og reglur um
hagsmunaskráningu þingmanna
sem dæmi.
Hún sagði að viðskipti ættu sér
stað yfir landamæri og eftirlit með
spillingu þyrfti því líka að eiga sér
stað yfir landamæri. Samherja-
málið sýndi að þörf væri á auknu al-
þjóðlegu samstarfi.
Staða Kristjáns Þórs Júlíussonar
sem sjávarútvegsráðherra í ljósi
tengsla hans við Samherja var mik-
ið rædd. Kristján hefur gefið það út
að hann muni stíga til hliðar í mál-
um sem tengjast Samherja í fram-
tíðinni. Forsætisráðherra vonast til
að sú ákvörðun verði til þess að
friður skapist um stöðu hans.
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, og Logi Ein-
arsson, formaður Samfylking-
arinnar, tókust harkalega á eftir að
Logi sagðist óttast Ísland væri að
„teiknast upp sem spillingarbæli í
augum umheimsins“.
Bjarni sagði það alvarlegt mál
þegar formaður stjórnmálaflokks
teldi rétt að lýsa landinu á þann
veg. „Ég tel að það sé engin inni-
stæða fyrir svona dramatískum
orðum,“ sagði Bjarni og bætti við
að ummæli Loga væru með ólík-
indum.
Morgunblaðið/Eggert
Sérstök umræða um spillingu
Samherjamálið var fyrirferðarmikið á Alþingi í gær
Á þingi Smári McCarthy og Katrín Jakobsdóttir ræðast við.
Samherjamálið
Forstjóri og
stjórn Sam-
herja kom-
ust að sam-
komulagi í
gær um að
Þorsteinn
Már Bald-
vinsson stígi
tímabundið
til hliðar þar
til helstu
niðurstöður innri rannsóknar á
ætluðum brotum dótturfélags
Samherja í Namibíu liggja fyrir.
Þetta sagði í tilkynningu sem
Samherji sendi frá sér í gær.
„Hjá Samherja starfa um 850
manns á Íslandi og fjöldi manns
erlendis. Við tökum þetta mikil-
væga skref til að tryggja sem
best hlutleysi rannsóknar-
innar,“ var haft eftir Eiríki S. Jó-
hannssyni, stjórnarformanni
Samherja, í tilkynningunni.
Í samtali við fréttastofu Vísis
eftir starfsmannafund Sam-
herja sem haldinn var á Dalvík í
gær sagði Þorsteinn Már að sér
blöskraði umræðan og árásir á
félagið. Hann sagði Samherja
ekki vera sálarlaust fyrirtæki og
sagðist vera að stíga til hliðar í
þeirri von að umræðan gæti
róast eitthvað. Morgunblaðið
náði ekki tali af Þorsteini Má í
gær.
Tryggja hlutleysi
rannsóknar
ÞORSTEINN MÁR STÍGUR
TÍMABUNDIÐ TIL HLIÐAR
Þorsteinn Már
Baldvinsson