Morgunblaðið - 15.11.2019, Page 18

Morgunblaðið - 15.11.2019, Page 18
18 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2019 Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl. 12-16Listhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 2050 LISTHÚSINU Fallegt úrval af vinylgólfmottum Íslendingar eru meðal evrópskra for- ystuþjóða í rafbíla- væðingunni, ekki bara í Evrópu heldur einnig á heimsvísu þar sem sala rafknúinna fólks- bíla jókst um 46% á fyrri árshelmingi 2019 samanborið við fyrra ár. Mest hlutdeild slíkra bíla var í Nor- egi. Þar í landi voru 58% nýskráðra fólksbíla á fyrri árs- helmingi tengjanlegir rafbílar (BEV og PHEV) á sama tíma og hlutfallið var um 15% hér á landi. Margir markaðir hafa aukið hlutfall sitt í sölu tengjanlegra rafbíla. Þannig hafa t.d. Danir aukið söluna um 86% og Írar um 182%. Einung- is England dró úr sölu tengjan- legra rafbíla og er ástæðan einkum minnkandi stuðningur stjórnvalda. Ótrúlegar framfarir Fáir í bílgreininni gerðu sér grein fyrir því fyrir fimm árum að hraði rafbílavæðingarinnar yrði svo mikill sem raun ber vitni. Stjórn- völd hafa mikil áhrif í þessari veg- ferð, m.a. með beitingu vörugjalda og virðisaukaskatts. Bílaframleið- endur hafa einnig lagt þung lóð á vogarskálarnar með umhverfinu og hefur bylting orðið með minnkandi útblæstri. Slíkum framförum hefur verið náð að loft í menguðum stór- borgum er nú jafnvel hreinna þeg- ar það hefur farið í gegnum nýj- ustu Euro 6D-dísilvélarnar eins og sérfræðingar óháða greiningar- og prófunarfyrirtækisins Emissions Analytics í Bretlandi hafa nýlega sýnt fram á. Gríðarlegar sektir ESB Ný reglugerð ESB, kölluð CAFE, kveður á um að frá og með árinu 2020 megi nýir bílar á Evrópumarkaði menga að hámarki 95 grömm á hvern kílómetra að meðaltali. Þessi mörk þýða að bensínbíll má að hámarki eyða 4,1 lítra að meðaltali á hverja 100 ekna km og dísilbíll 3,6 lítrum. Rafbílar fá svokallað „súperkredit“ og telja tvöfalt með 0 grömm á hvern km. Nái framleiðandi ekki markmiðinu fær hann 95 evra sekt (liðlega 13 þúsund krónur) fyrir hvert um- framgramm margfaldað með heild- arfjölda seldra bíla á tímabilinu. Þetta þýðir að mengi skráðir bílar t.d. 5 g umfram leyfilegt hámark og seldir hafi verið 500 þúsund bílar frá framleiðandanum á ákveðnu tímabili verður reikniform- úlan 95 evrur x 5 x 500 þúsund sem þýddi sekt upp á ca. 33 milljarða króna. Þessar væntanlegu kröfur hafa auðvitað aukið áherslu fram- leiðenda á þróun enn hreinni bíla, m.a. með aukinni rafmagnstækni, þ. á m. betri tengiltvinn- og tvinn- bílum. Tengiltvinnbílar henta afar vel á Íslandi Fyrstu kynslóðir tengiltvinnbíla komu á markað fyrir nokkrum ár- um. Algeng drægni þeirra er á bilinu 20 til 30 km á rafmagninu einu saman miðað við gömlu NEDC-mælinguna. Við daglegar raunaðstæður á Íslandi er drægnin 10 til 15 km. Nú eru fullkomnari kynslóðir tengiltvinnbíla komnar á markað þar sem algeng drægni er á bilinu 50 til 96 km miðað við nýju WLTP-mælinguna. Sú mæling er mun raunhæfari en sú gamla enda framkvæmd við eðlileg skilyrði, raunhæfan akstur, hitastig, aksturslag ökumanns o.s.frv. Komið hefur í ljós að WLTP stenst mjög vel við íslenskar aðstæður, þar sem flestir aka að meðaltali 30 til 50 km á degi hverjum. Þess vegna er ekki óraun- hæft að halda því fram að tengiltvinnbíll með 50 til 70 kílómetra drægni henti afar vel á Íslandi, þar sem hægt er að aka á rafmagninu einu flesta daga vikunnar og grípa til sprengihreyfilsins á lengri ferðalög- um. Misráðið væri að afnema ívilnanir Stjórnvöld hafa lagt til að hætt verði stuðningi við tengiltvinnbíla frá og með árslokum 2020 eða eftir tæpa 14 mánuði. Stuðningi við hreina rafbíla verði hins vegar haldið áfram til loka árs 2022. Verði ákvörðunin að veruleika er ljóst að hægja mun á rafbílavæð- ingunni eins og gerðist í Bretlandi en einnig vegna þess að hreinir raf- bílar eru enn framleiddir í litlu magni og skammtaðir á mismun- andi markaði vegna of lítils fram- boðs enn sem komið er. Stærstu bílamarkaðir heims eru hins vegar að taka við sér í sölu á rafknúnum bílum, t.d. Þýskaland sem selt hef- ur flesta tengjanlega rafbíla í Evr- ópu á árinu og tekið fram úr Noregi hvað magn varðar, þó svo að hlutdeildin sé enn mjög lítil með hliðsjón af heildarmarkaðnum í Þýskalandi. Ísland er sniðið fyrir rafknúna bíla Ísland er fullkomið land fyrir rafknúna bíla, í senn 100% rafbíla, sífellt langdrægari tengiltvinnbíla og vissulega tvinnbíla. Fjölskyldur sem ferðast landshluta á milli og sækja vinnu í nálægu sveitarfélagi hafa mikinn hag af því að geta eignast tengiltvinnbíl sem kemst 50 til 70 km á rafmagni og er með hreina Euro 6D bensín- eða dísilvél sem tekur við á lengri ferðalögum. Rekstur slíkra bíla er á hverju ári án efa nokkur hundruð þúsund krónum lægri heldur en eldri bíla. Tengiltvinnbílaeign styður við upp- byggingu innviða fyrir rafbíla kom- andi kynslóða því augljóst er að þangað stefnum við. Að þessu sögðu væri það misráðið af stjórn- völdum að hætta stuðningi við tengiltvinnbíla í lok næsta árs. Slíkt mun hægja á rafbílavæðingu þjóð- arinnar, hægja á innviðauppbygg- ingu og kosta fjölskyldur og fyrir- tæki fjármuni sem ekki munu sparast í eldsneytiskostnaði lands- manna. Líklegt er að sala bensín- og dísilbíla aukist að nýju verði þetta niðurstaðan. Ísland hefur tek- ið sér forystuhlutverk í rafbílavæð- ingu og er fyrirmynd margra ann- arra. Höldum þeirri stöðu áfram. Ísland er sem snið- ið að raf- og tengil- tvinntækninni í samgöngum Eftir Jón Trausta Ólafsson »Misráðið væri ef stjórnvöld hættu stuðningi við sölu sífellt langdrægari tengiltvinnbíla sem gera kleift að aka á rafmagninu einu flesta daga vikunnar. Jón Trausti Ólafsson Höfundur er formaður Bílgreinasambandsins. Þegar ég gerðist íhaldsmaður tók það mig nokkrar vikur að þora það. Ástæðan er einföld; jafningja- þrýstingur samfélags- ins hafði vanið mig við það frá blautu barns- beini að hægra megin væru arðræningjar kapítalismans og að hinn illi Sjálfstæðis- flokkur stæði þar vörð. Ég hafði oft séð hvernig fólk í samfélagsnetinu var tekið á beinið með miklum yfirlýsingum og einelt- isræðum ef það lýsti yfir stuðningi við flokk jötnanna, því var ljóst að hugrekkis væri þörf. Ég hafði smám saman vaknað til vitundar um eigin stjórnmálaáhuga, þrátt fyrir hvað þras þeirra er oft leiðinlegt, og, eftir að hafa litið á landslag íslenskra stjórnmála, kom- ist að því að skoðanir mínar lægju hægra megin og að þar var bara einn flokkur. Ég gekk því í Sjálfstæðisflokkinn og sótti þar fundi. Þykir mér eðli- legt að ef maður er hlynntur ein- hverjum flokki þá taki maður þátt í starfi hans. Þannig kynnist maður fólki af svipuðu hugarþeli ásamt málefnagrunninum og enn fremur hvernig úr þeim grunni er prjón- aður veruleiki. Eitt af því sem gerir heimspeki skemmtilega er einmitt sá þáttur hennar þegar óhlutbundnar (e. abstract) hugmyndir eru reyndar og látnar hafa áhrif á veruleikann og þannig standa fyrir sér. Standist þær álagið slípast bæði þær og fólk- ið sem notar þær. Oft krefst þetta innri og ytri átaka, hvort heldur í lífsfarvegi einstaklinga eða sam- félaga. Innri átökin eru dýrmætust, þar sem maður neyðir sjálfið til að horf- ast í augu við sálarspegil samvisku sinnar í kyrrðinni og þá skugga sem hvíla í undarlegum djúpum sálar- innar. Þegar maður stígur fram að nýju hefur orðið umbreyting innan frá sem lýsir upp ferskari sýn á til- veruna. Samkvæmt akademískri sálar- fræði, hvort heldur hún er byggð á Freud- eða Jung- fræðum, má yfirfæra þessa hugsun á sálarlíf samfélags, en þessir virtu fræðimenn báðir skilgreindu samfélags- vitund (e. colletive consciousness) sem gilda sálarfræði og leituðust við að út- skýra hana fræðilega. Heimspekingur hlýt- ur að velta fyrir sér hlutunum allt frá vit- undarástandi ein- staklinga og hópa til efnahagsmála og pólitískra vangaveltna, með mis- löngum hvíldum í skjóli trúarlegra vangaveltna. Þá út frá vel skil- greindum og vandlega útfærðum hugtökum, hvort heldur þau hafa verið dregin inn í snertingu við veruleikann eða notuð sem breytiafl (e. catalyst) fyrir önnur keðjutengd hugtök sem fá þessa snertingu. Þessi útlistun kann að þykja full- djúp, hugsanlega flókin, hún á hins vegar rétt á sér því menning er saga hugsunar og sú hugsun sem hlutgerist þarf að byggjast á ein- hverju dýpra; einhverju sem hjúpar öfluga frumspeki, eins konar lukt sem viðheldur týru í djúpum sálar- lífsins á meðan við tökumst á við hinn hlutgerða veruleika. Saga agaðrar hugsunar – eða sið- menning – sækir styrk sinn í þetta viðhorf og sagan hefur margsannað að þegar hugsun frumspekinnar þornar eða tærist er voðinn vís í veruleikanum. Þegar kom að því að heimspeki- legar og félagslegar vangaveltur drægju mig eins og segulmögnuð skuggavera í sálardjúpunum alla leið til menningararfs þjóðveldis og vætta hætti ég þátttöku í Sjálfstæð- isflokknum af þeirri ástæðu að mér fannst þetta tvennt ekki samrým- ast. Ég hætti þó ekki að vera hægri- sinnaður í stjórnmálum og viðhélt íhaldssömum skoðunum innan end- urreists þjóðveldis og geri þegar ég á þar snertingu. Þegar þar að kom að þátttaka mín í málefnum þjóð- veldis minnkaði hóf ég að nýju að rýna í stjórnmálalíf lýðveldisins og hafði á þeim árum sem liðið höfðu slípast í fyrrgreindri glímu við hug- tökin. Á sama tíma hafði ég glímt ít- arlega við hugtakaglímur á vett- vangi eingyðistrúarinnar, rýnt í fræði frá íhaldssömum íhaldsrabb- ínum (e. ultra urthodox rabbis), virtum íslömskum fræðimönnum, kristilegum fræðimönnum skóla- speki (e. scholastic) ásamt grunn- frumspeki trúarritanna sjálfra. Þátttaka mín í mótun þjóðveldis- hugsjónarinnar krafðist þess að rýnt væri í þau gildi sem fæddu af sér þjóðveldi eldra sem gerðist á sama tíma og fimm hópar landnema endurfæddust sem íslensk þjóð árið 930. Ég biðst velvirðingar á því hversu djúpt þetta greinarkorn kann að virðast. Oft þarf að greina frá farvegi hugsunar til að lýsa því hvernig reikað var í þoku frá vörðu að vörðu og til baka að steinahrúgu. Þegar aftur var snúið til veru- leika okkar borgara íslenska lýð- veldisins frá 1944 skildist mér að hægrimenn ættu engin hugtök lengur. Sjálfstæðisflokkurinn er orðinn sóslíalískur miðjuflokkur og á fá sterk hugtök til að varða af- stöðu sína og fólkið sem viðheldur starfi hans virðist ekki vita það, hvað þá kjósendur hans. Þetta eru þung orð, rituð með trega. Staðreyndin er að sósíalískur marxismi, sem virðist stýra mennt- un fólks í grunnskólum og háskól- um, ásamt fræðslu meginstraums fjölmiðlunar, hefur sín hugtök á hreinu, hversu grunnhyggin sem mörg þeirra kunna að virðast. Orðræða sósíalismans hefur fang- að umræður okkar og innri vitund. Svo djúpt ristir, að hugtakið ís- lenski íhaldsflokkurinn er fyrirfram dauðadæmt heiti fyrir endurreisn hægristjórnmála. Við höfum ekki lengur tök á að lýsa veruleika okkar eða svara sósíalistum skilmerkilega. Eftir Guðjón E. Hreinberg »Hugleiðing um hvernig hægri- stjórnmál ársins 2019 hafa breyst í hrjóstruga eyðimörk hugans. Guðjón E. Hreinberg Höfundur er heimspekingur. gudjon@nalgun.is Íhald í krísu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.