Morgunblaðið - 16.11.2019, Qupperneq 1
L A U G A R D A G U R 1 6. N Ó V E M B E R 2 0 1 9
Stofnað 1913 270. tölublað 107. árgangur
SKUGGASKIP
GYRÐIS
ELÍASSONAR
ETJA KAPPI
VIÐ LYFJA-
RISANA
NÝTT APÓTEK 4B́ÓKARDÓMUR 48
Sextán Íslendingar hafa greinst
með mergæxli fyrir tilstilli rann-
sóknarinnar Blóðskimun til bjarg-
ar. Þetta var upplýst á ráðstefnu
International Myeloma Found-
ation, Perluvina – Félags um merg-
æxli, Háskóla Íslands og Landspít-
ala í gær.
Skráðir þátttakendur í rannsókn-
inni voru 80.744 talsins. Meira en
62.000 sýni hafa verið send utan til
skimunar. 2.101 einstaklingur hef-
ur greinst með forstig mergæxlis
og 117 með mallandi mergæxli.
„Það var ótrúlegur árangur að fá
yfir 80 þúsund manns til að vera
með í klínískri rannsókn. Við
þekkjum ekki neina aðra vísinda-
rannsókn þar sem þarf upplýst
samþykki og þátttaka hefur verið
jafn góð,“ sagði Sigurður Yngvi
Kristinsson, prófessor og frum-
kvöðull rannsóknarinnar. Hann
sagði að gengið hefði vel að safna
blóðsýnunum.
Örlítið fleiri
fundust með
forstig merg-
æxlis og fleiri
greindust með
mallandi merg-
æxli án ein-
kenna, en búist
hafði verið við.
Greinist for-
stig mergæxlis
eftir rannsóknir
er viðkomandi
látinn vita af því og er fylgst með
honum t.d. einu sinni á ári. Þeir
sem greinast með mallandi merg-
æxli fara í eftirlit á 3-4 mánaða
fresti. Þeim sem greinast með
krabbamein, mergæxli, er vísað til
Landspítalans í meðferð. Hún hef-
ur gefið mjög góða raun. „Það hef-
ur orðið algjör bylting í lífslíkum
mergæxlissjúklinga síðustu tíu árin
með tilkomu nýrra lyfja,“ sagði
Sigurður Yngvi. gudni@mbl.is
Sextán greindir
með mergæxli
Bylting í meðferð mergæxlissjúklinga
Sigurður Yngvi
Kristinsson
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Breytingar gætu orðið á vaxtakjör-
um hjá Íbúðalánasjóði (ÍLS) til upp-
byggingar félagslegra íbúða um ára-
mótin. Verðtryggð íbúðalán hjá
sjóðnum bera 4,2% vexti en til sam-
anburðar eru lægstu vextir hjá líf-
eyrissjóðunum nú 1,64% .
Þetta kemur fram í svari Her-
manns Jónassonar, forstjóra ÍLS,
við fyrirspurn Björns Arnars Magn-
ússonar, forstjóra Brynju hússjóðs.
Fylgi skuldabréfaútboðum
Morgunblaðið fékk afrit af svar-
inu. Sjóðnum er ekki heimilt að
fylgja stýrivöxtum SÍ heldur verður
að fylgja vöxtum í skuldabréfaútboð-
um. Það síðasta fór fram 2012 en síð-
an hafa vextir lækkað mikið.
„Verði frumvarp það, sem nú er til
meðferðar á Alþingi og kveður á um
að Íbúðalánasjóður sameinist Mann-
virkjastofnun í nýrri Húsnæðis- og
mannvirkjastofnun, að lögum þá
opnast möguleiki til að bjóða upp á
sanngjarnari vexti, jafnvel þegar á
næsta ári. Sameinuð Húsnæðis- og
mannvirkjastofnun verður mun bet-
ur í stakk búin til að sinna þörfum
óhagnaðardrifinna leigufélaga svo
sem Brynju, Félagsbústaða og leigu-
félags Félagsstofnunar stúdenta og
annarra þeirra sem hljóta stofnfram-
lög úr almenna íbúðakerfinu en
Íbúðalánasjóður getur að óbreyttu,“
skrifaði Hermann.
Taki mið af aksturskostnaði
Dagur B. Eggertsson, borgar-
stjóri Reykjavíkur, kallar eftir
breyttu viðhorfi lánastofnana til
íbúðalána. Nánar tiltekið telur hann
að bankar eigi að gera lántökum
kleift að kaupa dýrari íbúðir ef lægri
rekstrarkostnaður bifreiða skapar
til þess svigrúm.
Þá telur Dagur að hagkvæmni
húsnæðis utan höfuðborgarsvæðis-
ins hafi verið ofmetin með hliðsjón af
háum aksturskostnaði.
Íbúðalánasjóður boðar
lægri vexti á nýju ári
Breytingar boðaðar Borgarstjóri vill nýtt lánshæfismat
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Á Hlíðarenda ÍLS vill þjóna betur
félagslega íbúðakerfinu á Íslandi.
MBankarnir endurmeti... »6
Hjúkrunarfræðingar fögnuðu því í Hörpu í gær-
kvöldi að 100 ár eru liðin frá stofnun þeirra
fyrsta fagfélags, þegar Félag íslenskra hjúkr-
unarkvenna var stofnað 18. nóvember 1919. Yfir
800 hjúkrunarfræðingar voru komnir saman í
Silfurbergi og Norðurljósasal til að gera sér
glaðan dag og var afmælishátíðin í gærkvöldi
síðasti viðburðurinn af sjö sem félagið hefur
staðið fyrir á aldarafmælinu. Félagið hefur
meðal annars staðið fyrir málþingum, hjúkr-
unarmessu, sögusýningu og fjölskyldudegi. Sök-
um fjöldans varð að skipta veislugestum í tvo sali
en veislustjórar voru þau Felix Bergsson og
Hera Björk Þórhallsdóttir. Boðið var upp á
tónlist og skemmtiatriði.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Yfir 800 hjúkrunarfræðingar fögnuðu 100 ára afmæli
Aðalmeðferð fór nýlega fram í
skaðabótamáli í Héraðsdómi
Reykjavíkur þar sem farið var fram
á samtals 2,3
milljarða króna
skaðabætur
vegna háttsemi
stjórnenda fjár-
festingarfélags-
ins Gnúps.
Gnúpur var
stofnaður árið
2006. Magnús
Kristinsson átti
ásamt fjölskyldu
sinni 46,5% í fé-
laginu. Þá áttu félög í eigu Kristins
Björnssonar og þriggja systra hans
46,4% og Þórður Már Jóhannesson
átti 7,1%.
Bótakröfurnar eru annars vegar
vegna millifærslna frá Gnúpi í
tengslum við þátttöku Þórðar í fé-
laginu árið 2006 og hins vegar
vegna skorts á upplýsingum í
tengslum við hlutafjáraukningu í
Gnúpi í lok árs 2007.
Gnúpur átti um tíma stóran hlut í
Kaupþingi og FL Group og einnig í
Glitni og Bakkavör. Í lok árs 2006
námu eignir félagsins 57 millj-
örðum króna en lækkun hlutabréfa-
verðs á íslenska markaðinum og
mikil skuldsetning leiddi til þess að
Gnúpur komst í þrot í byrjun árs
2008. »14
Krefjast
2,3 millj-
arða bóta
Tekist á um
viðskipti Gnúps
Gnúpur Átti m.a. í
Glitni og FLGroup.