Morgunblaðið - 16.11.2019, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2019
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri
Reykjavíkur, kallar eftir því að lána-
stofnanir endurmeti greiðslumat
vegna íbúðalána m.t.t. rekstrar-
kostnaðar bifreiða. Með því að kaupa
nýjar og vel stað-
settar íbúðir geti
lántakar sparað
mikil eldsneytis-
kaup og því keypt
dýrari eignir.
Dagur tekur
dæmi af einstak-
lingi sem á íbúð
langt frá vinnu-
stað sem kostar
40 milljónir. Bet-
ur staðsett íbúð
geti til dæmis kostað 50-55 milljónir.
Með því að draga úr eldsneytiskaup-
um og öðrum útgjöldum vegna bif-
reiðar geti lántakinn brúað bilið.
Ætti að vera utan Reykjavíkur
„Ég tel mjög mikilvægt að þetta
sé tekið með í reikninginn og minni á
að í aðdraganda síðustu kjarasamn-
inga heyrðust ýmsar raddir um að
næsta átak í uppbyggingu húsnæðis
á viðráðanlegu verði ætti ekki að
vera í Reykjavík, eða á höfuðborgar-
svæðinu, heldur í klukkutíma-
akstursfjarlægð frá höfuðborgar-
svæðinu. Þegar reiknað var út hvað
þeir sem myndu flytja inn í íbúðirnar
þyrftu að borga í samanlagðan hús-
næðis- og samgöngukostnað þögn-
uðu þessar raddir að miklu leyti.
Því að kostnaðurinn við að reka bíl
er mjög mikill, þ.m.t. kostnaðurinn,
eða tímavirðið, við að vera jafnvel
klukkustund aukalega í bíl á dag – og
ég tala nú ekki um ef viðkomandi
þarf að vera með tvo bíla í rekstri á
heimili. Það hlýtur því að vera eitt
lykilmarkmið okkar að minnka sam-
anlagðan húsnæðis- og samgöngu-
kostnað fólks og þá þurfum við að
skipuleggja og þróa borg þar sem við
styttum bilið milli vinnustaða og
heimilis og tryggjum eins góðar
almenningssamgöngur og hægt er
þar á milli,“ segir Dagur.
Þúsundir íbúða í smíðum
Fram kom í máli Dags á fundi í
Ráðhúsi Reykjavíkur um uppbygg-
ingu í borginni, að um 2.000 nýjar
íbúðir komi á markað í borginni á
næsta ári. Alls séu um 4.200 íbúðir á
framkvæmdastigi í borginni.
Spurður um hæga sölu íbúða á
sumum reitum í miðborginni segist
Dagur líta svo á að íbúðir seljist nú á
eðlilegri hraða en áður. Ástandið á
markaðnum fyrir nokkrum misser-
um, þegar slegist var um íbúðir, hafi
verið óeðlilegt. Nú sé meira jafnvægi
framundan á markaðnum.
„Ég tel að ekki sé ástæða til að
hafa áhyggjur af sölu íbúða á
miðborgarsvæðinu vegna þess að
miðborgin er og mun verða mjög eft-
irsótt. Það er nær að líta svo á að nú
sé einstakt tækifæri til að tryggja
sér miðborgareignir vegna þessara
mörgu reita og þessa mikla fram-
boðs. Því ef við horfum nokkur ár
fram í tímann má kannski segja að
miðborgin verði fullbyggð og þá
verður ekki sama framboð á þessu
eftirsótta svæði,“ segir Dagur.
Borgarstjóri kynnti áform um
uppbyggingu á mörgum reitum
nærri miðborginni.
Spurður hvort áformin séu raun-
hæf, með hliðsjón af niðursveiflunni,
segir Dagur borgina fá þær upplýs-
ingar frá framkvæmdaaðilum að
sumir hafi tryggt fjármögnun en
aðrir ekki. Ef einhverjir geti ekki
hafist handa geti það skapað tæki-
færi fyrir þá sem hafa fjármagn.
„Allar greiningar benda til að
áfram verði sterk eftirspurn eftir
nýjum íbúðum ef þær væru vel stað-
settar og á sanngjörnu verði. Slíkar
íbúðir ættu að vera megineinkenni
uppbyggingarinnar í Reykjavík á
næstu árum,“ segir Dagur og bendir
á góða sölu íbúða á Hlíðarenda.
Fleiri hagkvæmar íbúðir
Hann telur aðspurður að í lok
kjörtímabilsins, sem verður að
óbreyttu árið 2022, verði komið
meira framboð á markaðnum.
„Ég var búinn að spá því að við
fengjum snemma á þessu kjörtíma-
bili miklu heilbrigðari húsnæðis-
markað; staðan í lok þessa kjörtíma-
bils verður sú að það verða mun fleiri
íbúðir fyrir þá sem hafa lægri laun,
við verðum búin að fjölga félagsleg-
um íbúðum hjá Félagsbúðstöðum og
stúdentaíbúðum líka. Verktakar
verða búnir að byggja fleiri vel stað-
settar íbúðir til sölu víða í borginni,“
sagði Dagur sem kvaðst að öðru leyti
ekki vilja spá um hvernig markaður-
inn yrði. Það sé hlutverk annarra.
Víða uppbygging
Eins og sjá má á grafinu hér fyrir
ofan er fjöldi íbúða í byggingu í öll-
um sveitarfélögum á höfuðborgar-
svæðinu að Seltjarnarnesi undan-
skildu. Þar er takmarkað landrými.
Meðal verkefna sem eru á loka-
stigi í borginni er bygging 244 leigu-
íbúða Félagsstofnunar stúdenta í
Vatnsmýri en þær fyrstu verða af-
hentar í janúar næstkomandi.
Þá kynnti Sigurborg Ósk Haralds-
dóttir, formaður samgöngu- og
skipulagsráðs, nýtt hverfaskipulag
fyrir Árbæ, Ártúnsholt og Selás.
Íbúar geti flett því upp í Hverfasjá
hvort þeir hafi heimildir til að
stækka eða breyta húsnæði. Með
nýja skipulaginu verði mun einfald-
ara og fljótvirkara að fá breytingar
samþykktar. Það geti aftur skilað
sér í heimildum fyrir aukaíbúðum í
grónum hverfum. Með því nýtist inn-
viðir betur.
Bankarnir
endurmeti
greiðslumat
Borgarstjóri telur lægri rekstrar-
kostnað bifreiða eiga að vega þyngra
Uppbygging íbúða í Reykjavík
Framkvæmdum
við hátt í
2.000
íbúðir sem nú
eru í byggingu
verður lokið
sumarið 2020.
8.632 íbúðir eru í formlegu skipulagsferli.
Uppbyggingaráform á
4.160 íbúðum á þróunar-
svæðum eru nú til skoðunar.
Heimild:
Reykja-
víkurborg
Íbúðir sem nú eru á fram-
kvæmdastigi í Reykjavík
2.515 íbúðir eru í byggingu
fyrir almennan markað
1.649 á vegum húsnæðisfélaga
Alls
4.164
íbúðir
2,735
1,052
566
459
160
Íbúðir í byggingu á höfuðborgarsvæðinu 2010-2019
2.500
2.000
1.500
1.000
500
0
Hafnarfjörður Mosfellsbær Garðabær Kópavogur Reykjavík
Maí 2010 Sept. 2019
H
ei
m
ild
:R
ey
kj
av
ík
ur
bo
rg
Samkvæmt talningu
Samtaka iðnaðarins
Stúdentaíbúðir og hjúkrunarheimili
í Reykjavík; alls um 500 íbúðir eða
rými eru ekki meðtalin
Dagur B.
Eggertsson
Blaðamannafélagi Íslands
(BÍ) hefur borist stuðnings-
yfirlýsing frá Alþjóða-
sambandi blaðamanna
(IFJ) vegna yfirstandandi
kjarabaráttu og verkfalls-
aðgerða. Á vef Blaða-
mannafélagsins er vitnað í
bréf frá Younes Mjahed, forseta
IFJ, þar sem félögum í BÍ eru send-
ar baráttukveðjur og boðinn fram
stuðningur IFJ í yfirstand-
andi verkfallsaðgerðum.
Önnur lota vinnustöðv-
unar BÍ var í gær þar sem
myndatökumenn, ljósmynd-
arar og blaðamenn á vef-
miðlum, sem eru fé-
lagsmenn í BÍ og starfa hjá
fyrirtækjum innan Samtaka at-
vinnulífsins, lögðu niður störf í átta
stundir.
Alþjóðasamband
styður kjarabaráttu
Önnur verkfallslota blaðamanna í gær
Alþjóðlega matsfyrirtækið S&P
Global Ratings hefur staðfest A/
A-1 lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs
Íslands með stöðugum horfum.
Í tilkynningu frá fjármála- og
efnahagsráðuneytinu segir, að
S&P reikni með lítils háttar sam-
drætti á yfirstandandi ári vegna
samdráttar í komum ferðamanna
til landsins, en að hagvöxtur taki
við sér á ný frá og með 2020. Við-
námsþróttur hagkerfisins bæði á
sviði ríkisfjármála sem og í ytri
stöðu þjóðarbúsins sé traustur.
Lánshæfiseinkunn ríkissjóðs
endurspegli háa landsframleiðslu
á mann, stöðuga stofnanaum-
gjörð og skilvirka stefnumótun.
Einkunnin taki einnig mið af
sterkri stöðu ríkisfjármála eftir
verulega niðurgreiðslu skulda á
undanförnum árum og takmörk-
uðum sveigjanleika peningastefn-
unnar, sem þó er tekið fram að
hafi aukist eftir losun fjármagns-
hafta.
Lánshæfiseinkunn ríkissjóðs
gæti hækkað ef staða ríkisfjár-
mála og ytri staða þjóðarbúsins
styrkist markvert umfram vænt-
ingar matsfyrirtækisins.
Aftur á móti gæti einkunnin
lækkað ef merki kæmu fram um
aukinn greiðslujafnaðarþrýsting
eða að fjármálastöðugleika væri
ógnað á næstu tveimur árum.
Lánshæfiseinkunn ríkissjóðs staðfest