Morgunblaðið - 16.11.2019, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2019
verslunineva LAUGAVEGI 26
verslunin.eva
...NÝ GLÆSILEG SENDING
MÆTT Í VERSLUN
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Ekkert samráð var haft við lögregl-
una á höfuðborgarsvæðinu þegar
Reykjavíkurborg ákvað að ráðast í
breytingar á Hagatorgi í Vesturbæ
Reykjavíkur. Til margra ára hefur
sú venja verið uppi að leita ráða hjá
lögreglu þegar ráðast skal í stærri
breytingar sem snúa að umferðar-
málum og -mannvirkjum. Þetta
staðfestir Guðbrandur Sigurðsson,
aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Hringtorgið Hagatorg hefur
mjög verið til umræðu að undan-
förnu og hefur Strætó m.a. lokað
biðskýli þar svo vagnstjórar gerðust
ekki brotlegir við lög, en að stöðva
ökutæki á hringtorgi er, samkvæmt
umferðarlögum, ekki heimilt.
Reykjavíkurborg hefur þrengt
mjög að umferð ökutækja um torgið
í þeim tilgangi að hægja á umferð
ökutækja. Hefur því verið haldið
fram að hraðakstur sé stundaður á
torginu.
Spurður hvort Hagatorg sé þekkt
sem slysa- eða hraðaksturssvæði
kveður Guðbrandur nei við.
„Nei, þetta er ekki hraðaksturs-
svæði. Þarna er í gildi 30 km
hámarkshraði,“ segir hann.
Ný lög breyta engu
Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, for-
maður skipulags- og samgönguráðs,
sagði á mbl.is í gær að með nýjum
umferðarlögum sem tækju gildi 1.
janúar nk. yrði heimilt að stöðva
ökutæki á hringtorgum.
Samkvæmt g-lið 1. mgr. 29. gr.
nýrra laga má eigi stöðva ökutæki
eða leggja því á hringtorgi. Ekki
verður séð að lögin geri ráð fyrir að
heimilt sé að víkja frá umræddu
ákvæði í því tilviki sem um ræðir.
Borgin hafði ekki
samráð við lögreglu
Hagatorg er ekki
þekkt sem slysa- og
hraðaksturssvæði
Morgunblaðið/Eggert
Hagatorg Hringtorgið hefur um
árabil verið merkt sem hringtorg.
Baldur Þórhallsson, prófessor ístjórnmálafræði, ræddi utan-
ríkismál Íslands í viðtali við
Morgunblaðið í vikunni. Þar var
til umræðu sú staða sem uppi er í
alþjóðamálum og áhrifin á Ísland,
en einnig þróunin síðustu ár.
Baldur ræddimeðal annars
viðbrögðin við
bankahruninu fyrir
rúmum áratug og
sagði að við hefð-
um leitað til
Bandaríkjanna sem
hefðu hafnað að-
stoð en bætti svo
við: „Það var sótt um aðild að
Evrópusambandinu níu mánuðum
eftir hrun sem voru dæmigerð
viðbrögð lítils ríkis sem lendir í
áfalli. Evrópusambandið átti að
bjarga okkur á öllum sviðum,
hvort sem það væri efnahagslega,
pólitískt eða samfélagslega.“
Hann sagði ennfremur aðþarna hefði utanríkisstefnan
vitnað um „að menn hafa verið
dálítið örvæntingarfullir, á köfl-
um. Það má kannski líta á það
sem dæmi hvernig aðildarum-
sóknin að ESB var höndluð í
flýti“.
Vafasamt er að það sé réttgreining að um örvæntingu
hafi verið að ræða. Miklu frekar
tækifærismennsku stuðnings-
manna ESB. En ef þetta var ör-
vænting þá sást hún meðal ann-
ars í skrifum Baldurs Þórhalls-
sonar, frambjóðanda Samfylk-
ingarinnar fyrir kosningarnar
2009 og svo varaþingmanns, sem
skrifaði á vef flokksins:
„[Forystumenn Evrópusambands-
ins] eru hins vegar tilbúnir að
semja við okkur um inngöngu á 9
til 12 mánuðum.“ Sá spádómur
gekk ekki eftir frekar en ýmsir
álíka.
Baldur
Þórhallsson
Örvænting eða tæki-
færismennska?
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Vinna hefur staðið yfir í vikunni við
lokun borholu í Seltúni við Krýsuvík
og var reiknað með að framkvæmd-
irnar gætu haft lokanir í för með sér,
samkvæmt því sem fram kemur á
vef Hafnarfjarðarbæjar. Loka þurfti
holunni sem var farin að gjósa og
valda slysahættu, en svæðið við hol-
una hefur verið lokað síðan í febrúar.
Seltún er eitt helsta hverasvæðið í
Krýsuvík og þar er hægt að ganga á
milli leir- og gufuhvera. Fjöldi ferða-
manna leggur leið sína á svæðið á
hverju ári.
Hafnarfjarðarbær fékk leyfi Um-
hverfisstofnunar til að gera við bor-
holun þar sem hverasvæðið er í
Reykjanesfólkvangi, sem er frið-
lýstur. Það var mat Umhverfisstofn-
unar að þó svo að framkvæmdin
gæti haft tímabundin neikvæð áhrif
á gesti á bílaplani og göngupalli væri
ekki líklegt að hún hefði áhrif á nátt-
úrufar og verndargildi svæðisins.
Borholu lokað í Seltúni í Krýsuvík
Slysahætta eftir að holan fór að gjósa
Morgunblaðið/Eggert
Útivist Fjöldi fólks leggur leið sína á hverasvæðið við Krýsuvík.