Morgunblaðið - 16.11.2019, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2019
Miðstöð íslenskra bókmennta birtir
í dag, á degi íslenskrar tungu, nýja
könnun á viðhorfi Íslendinga til
bóklestrar og fleiri þátta.
Niðurstöðurnar sýna að lestur
hefur heldur aukist frá því að sam-
bærileg könnun var gerð síðast fyr-
ir tveimur árum. Skýringin er m.a.
rakin til aukinnar notkunar hljóð-
bóka. Meðalfjöldi lesinna bóka var
2,3 bækur í nýju könnuninni en var
2 bækur í könnuninni fyrir tveimur
árum.
Samkvæmt niðurstöðum könn-
unarinnar höfðu um 66% svarenda
lesið eða hlustað á bók eða bækur á
síðastliðnum 30 dögum. Afkasta-
mestu lesendurnir eru konur og
barnafjölskyldur og ungt fólk les
mikið á öðrum tungumálum en ís-
lensku. Yfirgnæfandi meirihluti
þjóðarinnar, eða um 76%, telur op-
inberan stuðning við bókmenntir
mikilvægan. „Greinilegt er að sam-
tal um bækur lifir góðu lífi og hefur
mikil áhrif á hvað fólk les,“ segir í
tilkynningu Miðstöðvar íslenskra
bókmennta.
Svarendur með tvö eða fleiri
börn á heimili lásu fleiri bækur en
þeir sem ekki eru með börn á heim-
ilinu. Lestur hefðbundinna bóka er
marktækt minni í ár en í síðustu
könnun.
Zenter rannsóknir framkvæmdi
könnunina og hún fór fram dagana
10. til 21. október sl. Úrtakið var
2.978 manns, 18 ára og eldri. Svar-
hlutfallið var 51%.
Lestur landsmanna eykst
Morgunblaðið/Eggert
Bóklestur Bækur eru lesnar við ýmsar aðstæður, m.a. í heitu pottunum.
Ný lestrarkönnun birt á degi íslenskrar tungu í dag
Listaverkið í Reykjavíkurtjörn, sem
er eftir Nínu Sæmundsson, nefnist
Hafmeyjan en ekki Litla hafmeyjan
eins og stóð í myndatexta í blaðinu í
gær. Beðist er velvirðingar á þessu
ranghermi.
LEIÐRÉTT
Hafmeyjan heitir hún
„Sjávarútvegs-
fyrirtæki hafa
gríðarlega
sterka stöðu og
hún mun styrkj-
ast verulega
næstu ár vegna
tæknibreytinga.
Í fyrirtæki á fé-
lagssvæði Dríf-
anda í Vest-
mannaeyjum voru eitt sinn 45-48
verkamenn á 12 tíma vöktum í upp-
sjávarfiskvinnslu. Nú þarf aðeins
12 á hvora vakt. Afköstin hafa hins
vegar farið úr því að vera 160 tonn
á sólarhring upp í 350 tonn,“ segir
Drífa Snædal, forseti ASÍ, m.a. í
pistli á vef ASÍ þar sem hún fjallar
um Samherjamálið. Hún segir af-
köstin aukast verulega en launa-
kostnað minnka að sama skapi.
Arðurinn margfaldist, sem og völd
og áhrif. „Þetta er að gerast núna.
Eftir stendur verkefnið að launa-
fólk njóti arðsins og samfélagið allt
en úthlutun gæðanna verði ekki á
valdi einstakra fyrirtækja eftir
hentisemi stjórnenda,“ segir Drífa.
Launafólk
njóti arðsins
Drífa Snædal
Verð
32.980
Verð
29.980
Verð
27.980
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Skipholti 29b • S. 551 4422
VANDAÐAR
YFIRHAFNIR
Fylgdu okkur á facebook
Vind og vatnsvarðar, hetta í kraga
kr. 39,900,-
Buxur
kr. 8.900.-
Str. S-XXL • Ökklasídd
Opið 11-15 í dag
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
FORELDRAHANDB6KIN
Hagnytar upplysingar, radleggingar og reynslusogur foreldra auk fjolda
greina eftir serfrredinga. 440 bladsfdur fullar af fr6dleik um flest allt sem
nybakada foreldra fysir ad vita og gott er ad hafa a einum stad.
Komin attur!
Meo viob6tum
09 uppfreroum
upplysingum.
FORELDRAHANDBOKIN
I
>1 . u n , 11,., u , rf"o,.,., "·• ,,..,.,11,.na,
N•u• • • ! ' " '.m ., ••• . i u ,• •,
h • • • • / • " ' " • •h61 / J " •u • • • ; •
KOMIN iN.lESTU VERSLUN OG A EDDA.IS