Morgunblaðið - 16.11.2019, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2019
Tíu skákmeistarar sem hafa unnið
samtals fjórtán heimsmeistaratitla í
ýmsum aldursflokkum, eru væntan-
legir á Isey-skyr skákhátíðina sem
hefst á Selfossi í næstu viku. Þetta er
heimsmeistaramót og koma kepp-
endur víða að. Þar á meðal eru þrír Ís-
lendingar sem hafa unnið heims-
meistaratitil í skák, þeir Hannes Hlífar
Stefánsson og Héðinn Steingrímsson
urðu heimsmeistarar í flokki 16 og 12
ára og yngri árið 1987 og Helgi Áss
Grétarsson varð heimsmeistari ung-
menna 20 ára og yngri árið 1994.
Frá fjórum álfum
Erlendir keppendur heimsmeist-
aramótsins koma frá fjórum heims-
álfum, frá Kasakstan í austri til Bras-
ilíu í vestri. Á meðal keppenda eru
tvær ungar skákkonur frá Kasakstan
og Íran sem eru meðal bestu skák-
kvenna í heimi. Dinara Saduakassova
frá Kasakstan hefur þrívegis orðið
heimsmeistari í mismunandi flokkum
og Sarasadat Khademalsharie frá Íran
hefur bæði orðið heimsmeistari í
flokki 12 ára og yngri og heimsmeist-
ari 16 ára og yngri í hraðskák.
Egyptinn Ahmed Adly sem varð
heimsmeistari í flokki 20 ára og yngri
2007 tekur þátt í mótinu sem og
Rafael Leitão frá Brasilíu, heims-
meistari 12 ára og yngri 1991 og
heimsmeistari 18 ára og yngri árið
1996. Hinn 17 ára Semyon Lomasov,
heimsmeistari 14 ára og yngri 2016,
er yngsti þátttakandinn í mótinu.
Mikhail Antipov, heimsmeistari 20 ára
og yngri 2015, teflir einnig á mótinu
sem og Sergei Zhilgalko frá Hvíta-
Rússlandi
Auk heimsmeistaramótsins verða
margir aðrir viðburðir á alþjóðlegu
skákhátíðinni. Haldið verður opna
Suðurlandsmótið í skák, Íslandsmót í
Fischer-slembiskák, skákkennara- og
dómaranámskeið, barnaskákmót,
hraðskákmót og málþing um stöðu
skákíþróttarinnar á Íslandi.
Keppt um riddarann
Opnunarhátíð skákhátíðarinnar
verður næstkomandi mánudagskvöld
og hefst klukkan 19:30. Þar munu
Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráð-
herra, og Gísli Halldór Halldórsson,
bæjarstjóri Árborgar, flytja tölur. Auk
þess verður dregið þar í töfluröð og
boðið upp á tónlistaratriði.
Opna Suðurlandsmótið í skák er sjö
umferða skákmót með 600 þúsund
kr. í verðlaunafé. Auk þess að keppa
um verðlaunafé er att kappi um Suð-
urlandsriddarann sem skorinn er út af
Sigríði Jónu Kristjánsdóttur, útskurð-
armeistara á Grund í Flóa. Íslands-
mótið í Fischer-slembiskák er at-
skákmót og fer það fram
laugardaginn 23. nóvember.
Tíu skákmeistarar væntanlegir á Isey-skyr skákhátíðina
Teflt af öllu afli á heimsmeist-
aramóti í skák á Selfossi
Morgunblaðið/Ómar
Stórmeistari Hannes Hlífar Stef-
ánsson tekur þátt í Selfossmótinu. Kerhóll, eldsumbrot, spor-baugur og hnattstaðaeru íslensk orð sem ölleru hugargjörð Jónasar
Hallgrímssonar, náttúrufræðingsins
og listaskáldsins sem dagur ís-
lenskrar tungu, 16. nóvember, er
tileinkaður. Jón-
as er einnig höf-
undur orðsins
jarðfræði og því
þótti við hæfi að
vefurinn www.is-
lenskeldfjoll.is
sem er opinbert
uppflettirit og
heildaryfirlit um
virkar eldstöðvar
á Íslandi, alls 32
talsins, væri opnaður í dag. Eld-
stöðvar þessar eru til dæmis Askja,
Bárðarbunga, Öræfajökull, Hekla,
Katla, Eyjafjallajökull og Reykja-
nesskagi.
Samstarf margra
Eldfjallavefsjáin er samstarfs-
verkefni Veðurstofu Íslands, Jarð-
vísindastofnunar Háskóla Íslands
og almannavarnadeildar Ríkislög-
reglustjóra auk þess sem fjöldi sér-
fræðinga á Íslandi og í útlöndum
hefur lagt verkefninu lið. Þykir
nauðsynlegt að þessar upplýsingar
séu allar tiltækar og almenningi að-
gengilegar, bæði í öryggisskyni og
vegna þess hve áhugi almennings á
jarðfræði og undrum náttúrunnar
er mikill.
„Þessi vefsmíði hefur staðið lengi
yfir,“ segir Bergrún Óladóttir jarð-
fræðingur í samtali við Morgun-
blaðið. „Við hófumst handa fljótlega
eftir Eyjafjallagosið 2010 við hönn-
un og upplýsingaöflun en þá reynd-
ist vera þörf erlendis á upplýs-
ingum um íslensk eldfjöll. Ensk
útgáfa fór í loftið 2016 og fyrir
nokkrum misserum fengum við svo
styrk til að koma efninu yfir á ís-
lensku. Þetta hefur verið mjög
áhugavert verkefni og gaman að
kynnast þeim mikla fjölda orða á ís-
lensku máli sem eru höfundarverk
Jónasar.“
Skáldið Jónas Hallgrímsson
(1807-1845) er talinn einn braut-
ryðjenda íslenskra náttúruvísinda.
Hann tók lokapróf í náttúruvís-
indum árið 1838 með jarðfræði og
steinafræði sem sérgrein. Samhliða
rannsóknum og skrásetningu á
náttúru Íslands orti Jónas eins og
enginn væri morgundagurinn, sem
skóp honum nafn. Sitthvað af því
sést á vefnum góða, sem fólk getur
kynnt sér á dagskrá Árnastofnunar
í Gamla bíói í dag, laugardaginn 16.
nóvember, milli klukkan 15-17.
Margt í orðabanka
Af öðru góðu í orðabanka Jón-
asar má nefna orð eins og aðdrátt-
arafl, félagsandi, heiðardalur,
himingeimur, heimahöfn og hring-
braut. Einnig huldumey, hundsvit,
miðbaugur, páfagaukur, sjónauki,
skötuselur og þrumrödd. sbs@mbl.is
Eldstöðvar á einum vef
Náttúran! Enginn hefur
gefið íslenskri náttúru
jafn sterka rödd og Jónas
Hallgrímsson. Orðið
jarðfræðingur er hans
hugsmíð og fólk í þeirri
fræðigrein hefur kortlagt
eldfjöll landsins og sett út
í netheimana.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Holuhraun Rétta lýsingin á svona hamförum er eldsumbrot en það orð er
uppfinning skáldsins Jónasar sem dagur íslenskrar tungu er tileinkaður.
Bergrún
Óladóttir
GÁMASÖLUNNARLOKADAGAR
í Hallarmúla 2
4 stólar
19.990 kr.
1 stóll
5.990 kr.
Svefnsófi
69.900 kr.
Spencer borð
120x80
Áður 24.990
Nú 14.900 kr.
Spencer borð
80x80
Áður 19.990
Nú 12.900 kr.
Allt að
afsláttur60%
Bara laugardag og sunnudag
Hermaður
179.990 kr.
milli kl. 11 og 19
Gunnarbachmann1@gmail.com