Morgunblaðið - 16.11.2019, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2019
Greiðsluáskorun
Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur
eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi
innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar:
Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds sem fallið hefur í eindaga til
og með 15. nóvember 2019, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 5. nóvember
2019 og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með
15. nóvember 2019, á staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds, virðisaukaskatti,
virðisaukaskatti í tolli, vanskilum launagreiðenda á gjöldum í og utan staðgreiðslu, fjármagns-
tekjuskatti á skilaskylda aðila, áfengisgjaldi, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, olíugjaldi, kílómetra-
gjaldi, gistináttaskatti, fjársýsluskatti, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu,
vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, árgjöldum, aðflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir,
fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjöldum, jarðarafgjaldi, sektum skattrannsóknarstjóra,
ofgreiddri uppbót á eftirlaun, eftirlitsgjaldi Fjármálaeftirlitsins, árgjaldi handhafa markaðsleyfis,
veiðigjaldi og álögðum þing- og sveitarsjóðsgjöldum, sem eru:
Tekjuskattur og útsvar ásamt álagi á ógreiddan tekjuskatt og útsvar, útvarpsgjald,
gjald í framkvæmdasjóð aldraðra, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa,
auðlegðarskattur og viðbótar auðlegðarskattur, fjármagnstekjuskattur ásamt álagi á
ógreiddan fjármagnstekjuskatt, ógreiddur tekjuskattur af reiknuðu endurgjaldi ásamt
álagi, búnaðargjald, sérstakur fjársýsluskattur, sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki,
jöfnunargjald alþjónustu, ofgreiddar barnabætur og ofgreiddar vaxtabætur.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum
gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að
leiða, á kostnað gjaldenda.
Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir
gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 25.000 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald
er 2.500 kr. auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem
fyrst til að forðast óþægindi og kostnað.
Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald,
afdreginn fjármagnstekjuskatt, áfengisgjald, fjársýsluskatt, gistináttaskatt og virðisaukaskatt,
búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara, þeir gjaldendur er skulda
bifreiðagjöld og kílómetragjald mega eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum
þeirra án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem skulda gjöld þar sem lögveð fylgir mega
búast við að send verði út sérstök greiðsluáskorun fyrir gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin
hefur ekki áhrif á þessi innheimtuúrræði þannig að fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu
áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum.
Reykjavík, 16. nóvember 2019
Ríkisskattstjóri
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra
Sýslumaðurinn á Austurlandi
Sýslumaðurinn á Suðurlandi
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum
Líney Sigurðardóttir
Þórshöfn
Skáksamband Íslands stendur í vet-
ur fyrir fræðsluverkefni í grunn-
skólum landsins sem miðar að því að
gefa kennurum tækifæri til að
standa að og efla kennslu í skák í
sínum skólum. Grunnskólinn á Þórs-
höfn tekur þátt í verkefninu og fékk
nýlega í heimsókn stjórnarmann frá
Skáksambandi Íslands, Stefán
Steingrím Bergsson, sem var einn
skóladag með nemendum og kenn-
urum og fór með þeim yfir helstu at-
riði skáklistarinnar.
Verkefninu verður svo fylgt eftir í
skólanum með stuðningi og ráðgjöf
Skáksambandsins og mun Hilma
Steinarsdóttir skólastjóri sinna
kennslunni og verður meðal annars
boðið upp á skák sem valgrein í skól-
anum.
„Þetta var góður dagur, hér eru
áhugasamir og fínir nemendur,“
sagði Stefán Steingrímur að loknum
skóladegi á Þórshöfn, en þangað
kom hann eftir fræðslu í grunnskól-
anum í Öxarfirði. Þar er mikill
skákáhugi, að sögn Stefáns og öfl-
ugur kennari sem heldur skákinni að
nemendum. Spurt hefur verið hvort
skák sé íþrótt, leikur eða list og lík-
lega er hún blanda af þessu öllu og
sérlega góð hugarleikfimi sem krefst
rökhugsunar og framsýni. Þá hafa
erlendar athuganir sýnt að skák-
iðkun geti eflt félagsfærni nemenda.
Stefán skipuleggur þetta fræðslu-
verkefni á vegum Skáksambandsins
og mun ásamt fleirum frá samband-
inu fara í skólana sem óska eftir
heimsóknum. Margir skólar á
Norðurlandi taka þátt í verkefninu
og stefnt er að sveitakeppni skóla á
Norðurlandi eftir áramót.
Með þessu fræðsluverkefni er
vonast til þess að fjölga skólum sem
sinna skákkennslu nemenda og ekki
síst ná til allra landshluta, sagði
Stefán. Hann er áhugamaður um
skák frá barnsaldri og hefur unnið
að skákvæðingu grunnskóla Reykja-
víkur og landsbyggðarinnar síðustu
árin. Hann hefur ferðast víða um
heim til að keppa í skák og hefur náð
ágætis árangri á alþjóðlegum skák-
mótum svo sem í Slóveníu síðastliðið
sumar.
„Að tefla á skákmótum er það
skemmtilegasta sem ég geri,“ sagði
Stefán að lokum.
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Skákkennsla Nemendur og kennarar á Þórshöfn sitja að tafli.
Skák og mát í
grunnskólanum
ÚR BÆJARLÍFINU
Birna Konráðsdóttir
Borgarfirði
Í Borgarfirði var einmuna veður-
blíða allt síðasta sumar. Elstu menn
muna vart slíkt staðviðri, enda
Vesturland betur þekkt fyrir breyti-
legt veðurfar. Kættust íbúar mjög yf-
ir þessari blíðu, framan af. Er líða tók
á sumar fóru ýmsir að ókyrrast.
Gróður spratt illa svo bændur horfðu
á tún sín gulna í þurrkunum og lax-
veiðiárnar urðu ásýndum eins og litl-
ar lækjarsprænur.
Er sumarið er gert upp má segja
að sóldýrkendur hafi fengið það sem
þeir óskuðu helst eftir en bændur og
laxveiðimenn síður. Allar helstu lax-
veiðiár Borgarfjarðar eru hálfdrætt-
ingar miðað við meðaltal síðustu tíu
ára og heyfengur bænda hefur verið
oft verið meiri, alla vega að gæðum.
Er ekið er eftir Norðurárdal í
Borgarfirði má sjá að ljósum á bæj-
um hefur snarlega fækkað. Eins og
staðan er í dag er hefðbundinn bú-
skapur á 3-4 jörðum og eru jafnvel
blikur á lofti um að fækka muni enn
frekar. Ekki er í þessu tilviki hægt að
kenna því um að sveitin sé afskekkt
þar sem þjóðvegur nr. eitt liggur um
dalinn. Menn velta fyrir sér hverju sé
um að kenna. Hvort það sé stefna
stjórnvalda um minni stuðning við ís-
lenskan landbúnað og þar með erf-
iðari afkomumöguleikar fyrir
bændur eða hvort vandinn liggi í því
að eldri kynslóðir stígi of seint upp og
afhendi þeim sem yngri eru bús-
forráð. Hver sem ástæðan er liggur
ljóst fyrir að víða í Borgarfirði eru
blikur á lofti um breytingar á
búskaparháttum og fækkun í
sveitum.
Margir landsmenn þekkja
listamanninn Pál Guðmundsson sem
býr og starfar í Húsafelli. Hann er
m.a. þekktur fyrir andlit sem hann
hefur klappað í steina í umhverfi sínu
í Húsafelli ásamt steinhörpu sem
hann hefur hannað og spilað á af list-
fengi. Í haust voru haldnir hátíðar-
tónleikar í Reykholtskirkju til heið-
urs listamanninum. Tilefnið var 60
ára afmæli listamannsins fyrr á
árinu. Kammerkór Suðurlands undir
stjórn Hilmars Arnar Agnarssonar
og Reykholtskórinn undir stjórn Við-
ars Guðmundssonar fluttu þar hljóð-
myndir Páls, „Hjartað í fjallinu“, auk
nokkurra annarra verka en heiti
verksins er sótt í kvæði Sigurðar
Pálssonar sem hann orti um Pál.
Listamaðurinn lék ásamt fleirum
undir á hljóðfæri sem hann hefur
smíðað, þar með talið flautu úr rab-
arbaraleggjum.
Glanni og Paradísarlaut í
Norðurárdal eru náttúruperlur sem
margir hafa skoðað og dáðst að en
jafnframt kvartað undan aðstöðuleysi
á svæðinu. Umhverfis- og auðlinda-
ráðuneytið hefur nú gert samning við
Borgarbyggð um að útbúa þar bíla-
stæði og salerni. Mun ríkið leggja til
13 miljónir króna á tveimur árum. Til
stendur að byggja salernishús úr
timbri á þessu ári og undirbúa bíla-
stæði sem verða á 1.500 fermetra
svæði. Á næsta ári er fyrirhugað að
ganga frá þeim, en lokafrágangur er
áætlaður vorið 2021. Gríðarlegur
fjöldi ferðafólks heimsækir þetta fal-
lega svæði ár hvert og ekki óalgengt
að öll bílastæði séu þar upptekin á
góðviðrisdögum. Landið er í einka-
eigu og verður landeigendum falin
framkvæmd verksins, sem bera jafn-
framt ábyrgð á því gagnvart ríkinu,
en eignast mannvirkin að fram-
kvæmdum loknum.
Á Hvanneyri í Borgarbyggð eru
nú uppi þær aðstæður að það íbúðar-
húsnæði sem kemur í sölu selst á ör-
skömmum tíma, svo framarlega sem
verðlagning er ekki upp úr öllu valdi.
Fólk á öllum aldri sækist í að setjast
þar að. Skortur er þó á minni íbúðum
fyrir fólk á miðjum aldri sem býr á
staðnum en vill selja stærri eignir
sínar og fá sér minna og jafnvel hent-
ugra húsnæði. Það sem hefur vakið
athygli er að margir nýbúar á staðn-
um hafa ekkert frekar tengsl við
Landbúnaðarháskólann sem er á
Hvanneyri, heldur óska sér bara að
setja niður heimili á staðnum. Fyrir
barnafólk hefur staðurinn upp á að
bjóða bæði leik- og grunnskóla sem
er heillandi og frelsi til leikja úti við,
án hættu frá aðsteðjandi umferð.
Eldri kynslóðin sér kannski að á
Hvanneyri sameinast bæði sveit og
bær. Náttúrufegurð og kyrrð en stutt
í alla þjónustu og menningu.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Glanni Til stendur að byggja salernishús úr timbri við fossinn Glanna og Paradísarlaut á þessu ári.
Tún gulnuðu í þurrkunum og ár þornuðu