Morgunblaðið - 16.11.2019, Blaðsíða 25
UMRÆÐAN 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2019
Þetta afbrigði skákarinnarsem kallast Fischer ran-dom og stundum Chess960, heiti sem vísar til
fjölda mögulegra upphafsstaða, hef-
ur verið í sviðsljósinu. Mörgum þyk-
ir kostur við keppnisgreinina að
þurfa ekki að treysta á minnið þegar
sest er að tafli. En Boris Spasskí
hafði þó ákveðna fyrirvara um Fisc-
her random þegar hann kom hingað
til lands sumarið 2005. Sagði að upp-
hafsstaða hefðbundinnar skákar
bæri með sér ákveðið samræmi,
skipulag og menningarsögu sem
ekki væri ástæða til að hrófla við.
En fyrsta opinbera heimsmeist-
aramótið í greininni hófst í Bærum í
Noregi í lok október og lauk með
óvæntum sigri Wesley So sem sigr-
aði Magnús Carlsen í lokaeinvígi
keppninnar með ótrúlegum yfir-
burðum, 13½:2½. Magnús hafði áður
unnið Fabiano Caruana 12½:7½ og
var talinn nær öruggur um sigur
gegn Filippseyingnum. Tímamörk
voru þrenns konar, 45 mín. á 40 leiki
og 15 mín. til loka og enginn auka-
tími, 15 2 og síðan hraðskákir 3 2.
Það voru fleiri stig undir í skákum
með lengri umhugsunartíma.
Magnús hlýtur að hafa verið veru-
lega illa fyrirkallaður í einvíginu sem
var í beinni útsendingu á NRK.
Hann gerði furðulegustu mistök.
En það er svolítið kaldhæðnislegt
að þessir miklu meistarar, Magnús
Carlsen og Garrí Kasparov, hafa
báðir fengið eftirminnilega útreið í
skákafbrigði því sem nefnt er eftir
Bobby Fischer. Fyrir nokkrum vik-
um tapaði Kasparov, 7:19, fyrir
Caruana á skákhátíðinni í St. Louis.
Tvö íslensk lið á EM skákfélaga
Íslensku liðin Taflfélag Reykja-
víkur og Víkingaklúbburinn unnu
sínar viðureignir á fimmtudaginn í
fimmtu umferð Evrópukeppni skák-
félaga sem fram fer í Budva í Svart-
fjallalandi og lýkur um helgina.
Tefldar eru sjö umferðir og hefur
sveit TR fengið 6 stig en Víkinga-
klúbburinn er með 5 stig. TR-sveitin
er skipuð Margeiri Péturssyni,
Helga Áss Grétarssyni, Guðmundi
Kjartanssyni og Ingvari Þ.
Jóhannessyni auk Omars Salama og
Egyptans Mohameds Ezat og er
svipuð þeirri sem tefldi á Íslands-
móti skákfélaga í október sl. en sveit
Víkingaklúbbsins er ekki eins sterk.
Magnaðasta skák ársins 2019
Daniil Dubov heitir ungur rúss-
neskur stórmeistari sem margir
telja að hafi teflt eina mögnuðustu
sóknarskák ársins 2019 í viðureign
Rússa og Þjóðverja á EM landsliða í
Batumi á dögunum. Dubov lagði í
mikinn sóknarleiðangur og rak
flótta svarta kóngsins yfir á drottn-
ingarvæng með því að skáka látlaust
á hvítum reitunum g6, h5, d5, h3, e6,
c6, og f3. Það var eins og hann væri
alltaf að leita að svörtum reit. Það
kom með eftirminnilegum 36. leik
hvíts. Þar fannst c1-reiturinn:
Daniil Dubov – Rasmus Svane
Drottningarbragð
1. c4 e6 2. Rc3 d5 3. d4 Rf6 4. Rf3
Be7 5. Bf4 O-O 6. e3 b6 7. Dc2 Ba6
8. O-O-O dxc4 9. Rg5 Rc6 10. a3 g6
11. h4 Bd6 12. g3 De7 13. h5 e5 14.
hxg6 hxg6 15. Bg2!?
Gott var einnig 15. dxe5 Rxe5 16.
Rd5 Rxd5 17. Hxd5 ásamt – f3 og
Dh2.
15. ... exf4 16. Bxc6 fxg3 17. Kb1
Had8 18. f4 Bc8 19. Hde1 Kg7 20.
Rd5 Rxd5 21. Hh7+ Kg8
22. Hxf7! Hxf7 23. Dxg6+ Kf8 24.
Dh6+ Hg7 25. Bxd5+ Ke8 26. Dh5+
Kd7 27. Dh3+ Ke8 28. Dh5+ Kd7
29. Be6+ Kc6 30. Df3+ Kb5 31.
Bxc4+! Ka5 32. Dd5+ Bc5 33. b4+
Ka4 34. Dg2 Bxb4
Og nú kemur mátfléttan magnaða.
35. Dc6+! Kxa3
36. Bb3! Bd7 37. Dc1+ Kxb3 38.
Dc2+ Ka3 39. Da2 mát.
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Ljósmynd/Chessbase
Óvænt úrslit Wesley So (t.h.) og Magnús Carlsen að tafli í Bærum.
Wesley So fyrsti
heimsmeistarinn
í Fischer random
Fyrir fáeinum miss-
erum hafði ég einu
sinni sem oftar á
undanförnum sjö árum
verið beðinn að annast
messu eða guðsþjón-
ustu í Fríkirkjunni við
Tjörnina í Reykjavík.
Þar sem stundin var í
tengslum við allraheil-
agramessu var tekið
sérstaklega fram að
minnast ætti látinna,
þeirra sem látist hefðu á árinu en
jafnframt var guðsþjónustan einnig
ætluð þeim sem bara einhvern tíma
hefðu misst ástvin og vissu því hvað
það væri að syrgja og sakna.
Mæting þótti bara góð og á svæð-
inu var bæði fólk sem ég þekkti vel,
kannaðist við og fólk sem ég hafði
aldrei séð og vissi því ekkert um.
Þarna var fólk sem svo nýlega hafði
misst ástvin að útför hafði ekki enn
farið fram. Þarna var líka kona sem
hafði misst ungan eiginmann og fjöl-
skylduföður af slysförum nákvæm-
lega tveimur árum fyrr upp á dag. Og
fjölskylda sem hafði misst unga eig-
inkonu, móður, dóttur og systur úr
krabbameini fimm árum áður upp á
dag. Samankomið var fólk á öllum
aldri sem hafði misst sína nánustu;
foreldra, maka, systkini og börn úr
erfiðum sjúkdómum, af slysförum og
svo framvegis.
Það var hreint ekki auðvelt að
ganga inn gólfið undir fyrstu tón-
unum, snúa sér síðan við og taka til
við að ávarpa blessað fólkið sem
þarna var samankomið. Augnablikið
var eðlilega mjög viðkvæmt.
Allt gekk þó vel. Tónlistin var ynd-
isleg og að lokinni minni tölu, ræðu
eða predikun, sagði ég viðstöddum að
gott væri að tendra lítið ljós til minn-
ingar um látinn ástvin og þannig biðja
Guð að taka við bænum okkar. Ég
sagði að hann vildi okkur vel og
heyrði bænir. Það væri bara þannig.
Að þeim orðum sögðum byrjuðu
Gunnar Gunnarsson vinur minn, Frí-
kirkjubandið og sönghópurinn Við
Tjörnina að spila og syngja „Heyr
mína bæn, mildasti blær, berðu
kveðju mína yfir höf“, lag sem flestir
Íslendingar þekkja, fyrst flutt á ís-
lensku af Ellý Vilhjálms. Fólk tók þá
að streyma upp að kerta-
altarinu í tugatali til þess
að tendra ljós til minn-
ingar um látinn ástvin
undir þessum fallegu
tónum. Að lokinni mess-
unni var mér þakkað
innilega fyrir stundina
og falleg orð látin falla
með hlýjum faðmlögum
sem var gott að fá og
gefa. Sannarlega aldrei
þakklátara og meira gef-
andi en að fá að standa í
veikum mætti og gefa af
sér til fólks í svona stöðu.
Ég hafði óskað eftir því við yngsta
son minn, þá 22 ára nemanda í
sjúkraþjálfun við HÍ, að hann kæmi
með mér og yrði mér til halds og
trausts svona ef ske kynni að það liði
yfir mig við altarið. Þegar við feðgar
vorum svo sestir upp í bíl að lokinni
þessari heilögu stund, þar sem svo
mikið góður andi og þakklæti sveif yf-
ir og réð ríkjum, heyrum við sungið
og spilað í útvarpinu: „Ég er umvafin
englum, aldrei ein, aldrei ein.“
Sonurinn leit þá á mig og sagði:
„Pabbi, hvað er þetta eiginlega?
Pantaðir þú þetta lag eða hvað?“
Og ég svaraði: „Það mætti að vísu
halda það, en nei, þetta er nærvera
heilags anda, skal ég segja þér. Hér
er heilagur andi Guðs að minna okkur
á sig eftir þessa viðkvæmu stund sem
ég gaf alla mína krafta og orku í.
Hann sem ber okkur í örmum sér
jafnt í lífi sem dauða.“
Og við sátum hljóðir og hugsandi á
leiðinni úr miðborginni á meðan þetta
fallega lag, sungið af Guðrúnu Gunn-
arsdóttur við aldeilis laglegan texta
Valgeirs Skagfjörð, spilaðist.
Sannarlega ekki í fyrsta skipti sem
ég upplifi eitthvað álíka á ögur-
stundu. Dýrð sé Guði. Með kærleiks-
og friðarkveðju. – Lifi lífið!
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson
» „Pabbi, pantaðir þú
þetta lag eða hvað?“
„Það mætti að vísu
halda það, en nei, hér er
heilagur andi Guðs að
minna okkur á sig.“
Sigurbjörn
Þorkelsson
Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur
og aðdáandi lífsins.
Umvafinn englum
Ásthildur Jóhanna Thor-
steinsson fæddist 16. nóvem-
ber 1857 á Kvennabrekku í
Dölum. Foreldrar hennar
voru hjónin Guðmundur Ein-
arsson, prófastur og alþingis-
maður, og Katrín Ölafsdóttir
frá Flatey. Ásthildur var með-
al tíu fyrstu nemendanna í
Kvennaskólanum í Reykjavík
og varð efst í bekknum.
Eiginmaður Ásthildar var
Pétur J. Thorsteinsson stór-
kaupmaður. Þau bjuggu á
Bíldudal, í Hellerup í Dan-
mörku, Reykjavík og Hafnar-
firði, og byggðu húsið Galta-
fell á Laufásvegi. Þau eignuð-
ust ellefu börn og komust tíu
þeirra á legg.
Höfðingsskapur og gjaf-
mildi Ásthildar urðu landfleyg
og á Bíldudal var hún sögð
„sólskinið sjálft fyrir allan
þann mannfjölda“ og heimili
þeirra í Hellerup var sam-
komuhús íslenskra mennta-
manna. Þegar hallaði undan
fæti hjá Pétri sagði Ásthildur
að sér hefði þótt verst við það
hvað hún hafði þá lítið til að
gefa.
Ásthildur stofnsetti leir- og
glervöruverslun í Kolasundi
og sá sjálf um rekstur búðar-
innar og þótti góður yfir-
maður. Hún þótti hagmælt og
samdi sögur og ljóð.
Ásthildur lést 1.4. 1938.
Merkir Íslendingar
Ásthildur
Thorsteinsson
skoðið úrvalið á facebook
Þú getur pantað í gegnum Facebook síðu
okkar og fengið sent hvert á land sem er.
Opið: laugardag frá 10-18 – sunnudag frá 11-17
Vetrarfatnaður á a
lla fjölskylduna
Breytt og
bætt búð
Allir velkomnir
SKÓR, FATNAÐUR, ,LEIKFÖNG, HANDKLÆÐI, YOGA DÝNUR, BAKPOKAR, GÖNGUSTAFIR, ÍSBRODDAR, GLERAUGU, LOPI,
PRJÓNAR, NÁLAR, NEON VETTLNINGAR, GUMMITÚTTUR, SUNDGLERAUGU, SPIL, HÁRBURSTI, BENDLABÖND, VETTLINGAR,
HÚFUR, GJAFAPOKAR, KORT, NAGLAKLIPPUR, DÚKKUR, TÖSKUR, TÓBAKSKLÚTAR, NÆLONSOKKAR, SKÓHORN, INNLEGG,
BOLTAR, SÁPUKÚLUR, HLAUPASOKKAR, GJAFAVARA O.M.FL.
á frábæru verði