Morgunblaðið - 16.11.2019, Page 36

Morgunblaðið - 16.11.2019, Page 36
36 MESSUR Á MORGUN Minningar MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2019 AKUREYRARKIRKJA | Fjölskyldu- guðsþjónusta kl. 11. Barnakórar kirkjunnar syngja. Umsjón hafa sr. Jó- hanna Gísladóttir og Sigrún Magna Þórsteinsdóttir. Skúffukaka í boði og lukkupakkar Kvenfélagsins á 500 kr. í safnaðarheimilinu að guðsþjónustu lokinni. Hátíðarmessa kl. 14. Prestar eru Svavar A. Jónsson, Hildur Sigurð- ardóttir og Jóhanna Gísladóttir. Kór Akureyrarkirkju syngur. Organisti er Eyþór Ingi Jónsson. Kaffihlaðborð og lukkupakkasala Kvenfélags Akur- eyrarkirkju í safnaðarheimilinu eftir messu. ÁRBÆJARKIRKJA | Léttmessa kl. 11. Sr. Þór Hauksson verður með hugvekju. Jógvan Hansen syngur ásamt kór Árbæjarkirkju, stjórnandi Krisztina K. Szklenár. Dagur Máni Viðarsson og Fríða Kristín Elíasdóttir sýna dans. Sunnudagaskólinn á sama tíma í safnaðarheimili kirkj- unnar í umsjón Jennýjar og Hrannars. Kaffi, ávaxtasafi og meðlæti á eftir. ÁSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Séra Ása Laufey Sæmunds- dóttir héraðsprestur þjónar ásamt Jó- hönnu Maríu Eyjólfsdóttur djákna- kandídat og Ingu Steinunni Henningsdóttur. ÁSSÓKN í Fellum | Kirkjuselið Fellabæ. Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14. Kór Áskirkju leiðir söng, organisti er Drífa Sigurðardóttir, prestur er Ólöf Margrét Snorradóttir. Börn úr barna- starfi og fermingarbörn aðstoða. Vöfflukaffi á eftir. BESSASTAÐASÓKN | Sunnudaga- skóli í Brekkuskógum 1 kl. 11. Um- sjón með stundinni hafa Sigrún Ósk, Þórarinn og Guðmundur Jens. Síðdegismessa í Bessastaðakirkju kl. 17 en þar verður kristniboðið í brennidepli og mun Helga Vilborg Sverrisdóttir kristniboði flytja hugleið- ingu og segja frá starfi íslenskra kristniboða á erlendri grundu. Í mess- unni syngur Álftaneskórinn og Læri- sveinar hans spila undir stjórn Ást- valdar organista. Sr. Hans Guðberg og Margrét djákni þjóna fyrir altari. BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Gísli Jónasson setur sr. Magnús Björn Björnsson í embætti sóknarprests, félagar úr Kór Breið- holtskirkju syngja undir stjórn Arnar Magnússonar. Sunnudagaskóli er á sama tíma í umsjá Steinunnar Þor- bergsdóttur djákna og Steinunnar Leifsdóttur. Alþjóðlegi söfnuðurinn verður með messu á ensku og á sama tíma sunnudagaskóla fyrir börn, kl. 14. Toshiki Toma prestur og Steina Þorbergsdóttir djákni þjóna. BÚSTAÐAKIRKJA | Barnastarf kl. 11. Daníel Ágúst, Sóley Adda og Jón- as Þórir. Hressing eftir stundina. Guðsþjónusta kl. 14. Kór Bústaða- kirkju undir stjórn kantors Jónasar Þóris. Messuþjónar og sr. Eva Björk Valdimarsdóttir þjóna. Hressing eftir stundina. DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Helga Kolbeinsdóttir þjónar og prédikar. Karlakór Kópavogs syngur. Organisti er Hólmfríður Sigurðardóttir. DÓMKIRKJA Krists konungs, Landakoti | Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl. 10.30 á íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku. Virka daga kl. 18, og má., mi. og fö. kl. 8, lau. kl. 18 er vigilmessa. DÓMKIRKJAN | Messa og barna- starf kl. 11. Séra Elínborg Sturludótt- ir, Kári Þormar dómorganisti og Dóm- kórinn. Sunnudagaskólinn á kirkju- loftinu. Æðruleysismessa kl. 20. Jónas Sigurðsson mætir og tekur nokkur lög ásamt Kristjáni Hrannari. Sr. Díana, sr. Fritz og sr. Elínborg. FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjón- usta og sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Jón Ómar Gunnarsson þjónar og pré- dikar. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur organ- ista. Reynir Þormar leikur á saxófón. Sunnudagaskólinn á sama tíma í umsjá Mörtu og Ásgeirs. Meðhjálpari er Helga Björg Gunnarsdóttir. Kaffi- sopi eftir stundina. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Hátíðar- guðsþjónusta í tilefni 120 ára afmæl- is Fríkirkjunnar 17. nóvember kl. 11. Forseti Íslands, hr. Guðni Th. Jóhann- esson, mun ávarpa samkomuna með upphafsorðum. Hjörtur Magni Jó- hannsson fríkirkjuprestur leiðir sam- veruna og flytur hugleiðingu. Gunnar Gunnarsson, Sönghópurinn við Tjörn- ina, Hjómsveitin Mantra, djasstromp- etleikarinn Arne Hiorth, strengja- kvartett kirkjunnar. Barnakórinn við Tjörnina syngur undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur. GLERÁRKIRKJA | Messa og sunnu- dagaskóli kl. 11. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Valmars Välja- ots organista. Umsjón með sunnu- dagaskóla: Sr. Hildur Sigurðardóttir. GRAFARVOGSKIRKJA | Dagur orðsins. Fjallað verður um verk Bubba Morthens. Messan hefst kl. 11. Bubbi flytur tónlist í messunni ásamt Kór Grafarvogskirkju og Vox Populi. Organisti er Hilmar Örn Agn- arsson, Matthías Stefánsson leikur á fiðlu og Þórdís Sævarsdóttir syngur. Sr. Grétar Halldór Gunnarsson þjónar. Guðmundur Andri Thorsson og Silja Aðalsteinsdóttir flytja erindi um verk Bubba kl. 12. Bubbi tekur valin lög og bregst við erindum. Sunnudaga- skóli á neðri hæð kirkjunnar kl. 11. GRAFARVOGUR - kirkjuselið í Spöng | Selmessa kl. 13. Séra Sig- urður Grétar Helgason prédikar og þjónar. Organisti er Hilmar Örn Agn- arsson og Söngfjelagið leiðir söng. GRENSÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur er María G. Ágústsdóttir, org- anisti er Ásta Haraldsdóttir. Kirkjukór Grensáskirkju leiðir söng. Messuhóp- ur og fermingarfjölskyldur þjóna. Heitt á könnunni á undan og eftir messu. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12 þriðju- dag og á fimmtudag kl. 18.15-18.45 er núvitundarstund í kapellunni. GRINDAVÍKURKIRKJA | Hin árlega kvenfélagsmessa kl. 14. Svandís Svavarsdóttir ráðherra mun flytja ræðu og einsöngvari er Guðrún Lilja Dagbjartsdóttir. Kvenfélagskonur lesa ritningartexta og selja vöfflukaffi efir messu. Ágóðinn rennur til líknarmála. Sr. Elínborg Gísladóttir þjónar ásamt messuþjónum. Kór Grindavíkurkirkju leiðir sönginn undir stjórn Erlu Rutar Káradóttur organista. GRUND dvalar- og hjúkr- unarheimili | Guðsþjónusta í umsjón Félags fyrrum þjónandi presta sunnu- dag kl. 14 í hátíðarsal Grundar. Prestur er Valgeir Ástráðsson. Grund- arkórinn leiðir söng undir stjórn Krist- ínar Waage organista. GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Barnastarf og guðsþjónusta kl. 11. Prestur er Leifur Ragnar Jónsson, organisti er Hrönn Helgadóttir og kór Guðríðarkirkju syngur. Barnastarf er í umsjá Péturs Ragnhildarsonar. Kirkju- vörður er Lovísa Guðmundsdóttir og meðhjálpari er Guðný Aradóttir. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Bar- börukórnum syngja. Organisti er Þor- valdur Örn Davíðsson. Prestur er Þór- hildur Ólafs. Leiðtogar sunnudagaskólans eru Bylgja Dís og Jasper. Hressing í Ljósbroti Strand- bergs safnaðarheimilis Hafnarfjarð- arkirkju eftir stundirnar. HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir alt- ari. Hópur messuþjóna aðstoðar. Organisti er Matthías Harðarson. Fé- lagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Umsjón barnastarfs: Kristný Rós Gústafsdóttir, Ragnheiður Bjarnadóttir og Rósa Árnadóttir. Markaður að messu lokinni til styrkt- ar Hjálparstarfi kirkjunnar. Árdegismessa miðvikud. kl. 8. Sam- tal um sorg miðvikud. kl. 17. Kyrrð- arstund fimmtud. kl. 12. HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Kordía kór Háteigskirkju syngur. Org- anisti er Guðný Einarsdóttir. Prestur er Eiríkur Jóhannsson. HJALLAKIRKJA Kópavogi | Messa kl. 11. Sr. Sunna Dóra Möller þjónar fyrir altari. Lára Bryndís organisti hef- ur umsjón með tónlistinni ásamt Hall- dóru Ósk Helgudóttur, nemanda í Söngskólanum í Reykjavík. Halldóra mun syngja aríur eftir Haydn og Moz- art. Kaffi og kleinur eru í boði eftir messu. Sunnudagaskólinn er á sama tíma í safnaðarheimilinu. HRUNAKIRKJA | Fjölskylduguðs- þjónusta kl. 11. Umsjón: Jóna Heið- dís, Óskar og Stefán. Kirkjukórinn syngur. HVERAGERÐISKIRKJA | Messa kl. 11. Kirkjukór Hveragerðis- og Kot- strandarsóknar syngur undir stjórn Miklos Dalmay organista. Sr. Gunnar Jóhannesson þjónar fyrir altari. ÍSLENSKA Kristskirkjan | Almenn samkoma með lofgjörð, fyrirbænum og barnastarfi kl. 13. Prédikun og heilög kvöldmáltíð í umsjón safnaðar- prests. Samfélag og heitt á könnunni eftir stundina. KEFLAVÍKURKIRKJA | Sunnudag- inn kl. 11 er messa og sunnudaga- skóli. Arnór Vilbergsson og kór Kefla- víkurkirkju leiða okkur í söng og tónlist. Séra Fritz Már þjónar fyrir alt- ari. Messuþjónar lesa ritningarlestra. Eftir messu er súpusamfélag í Kirkju- lundi. Miðvikudaginn 20. nóvember kl. 12 er kyrrðarstund í Kapellu vonarinnar þar sem við komum saman og njót- um góðra orða og tónlistar. Gæða- konur bjóða upp á súpu eftir stund- ina. KIRKJA heyrnarlausra | Messa í Grensáskirkju 17. nóvember kl. 14. Táknmálskórinn syngur undir stjórn Eyrúnar Ólafsdóttur. Kristín Pálsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kaffi og kaka eftir messuna. KOTSTRANDARKIRKJA | Messa kl. 14. Kirkjukór Hveragerðis- og Kot- strandarsóknar syngur undir stjórn Miklos Dalmay organista. Sr. Gunnar Jóhannesson þjónar fyrir altari. KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Sighvatur Karlsson prédik- ar og þjónar fyrir altari. Kór Kópa- vogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová, kantors kirkjunnar. Sunnu- dagaskólinn verður á sama tíma í safnaðarheimilinu Borgum. KVENNAKIRKJAN | Guðsþjónusta í Seltjarnarneskirkju klukkan 20. Séra Hulda Hrönn M. Helgadóttir prédikar. Aðalheiður Þorsteinsdóttir stjórnar sálmasöng. Á eftir verður kaffi í safn- aðarheimilinu. LANGHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Aldís Rut Gísladóttir þjónar. Graduale Futuri syngur undir stjórn Sunnu Karenar Einarsdóttur. Magnús Ragnarsson er organisti. Þórdís Una Nielsen trompetleikari leikur í messu. Sunnudagaskóli á sínum stað undir stjórn Söru Grímsdóttur. Léttur há- degisverður eftir messu. LAUGARNESKIRKJA | Messa kl. 11. Kór Laugarneskirkju og Elísabet Þórðardóttir er organisti. Séra Hjalti Jón Sverrison þjónar fyrir altari og prédikar. Sunnudagaskóli á meðan. Kaffi og samvera á eftir. 19.11. Kyrrðarbæn kl. 20. Kristin íhugun. Húsið opnað kl. 19.40. 20.11. Foreldrasamvera kl. 10-12. Félagsmiðstöðin Dalbraut 18-20. Helgistund með sr. Davíð Þór Jóns- syni. 21.11. Kyrrðarstund í Áskirkju kl. 12. Hádegisverður og opið hús á eftir. Hásalurinn Hátúni 10. Helgistund kl. 4 með sr. Davíð Þór Jónssyni. LÁGAFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta 17. nóv. kl. 11. Prestur er Ragnheið- ur Jónsdóttir. Vorboðarnir, kór eldri borgara í Mosfellsbæ, syngja og leiða safnaðarsöng. Þórður Sigurðarson spilar á orgel. Kirkjuvörður er Bryndís Böðvarsdóttir. Sunnudagaskóli í kirkj- unni kl. 13. Berglind og Þórður hafa umsjón með honum. www.lagafellskirkja.is LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnu- dagaskóli kl. 11. Guðsþjónusta kl. 20 og eru fermingarbörn og fjöl- skyldur þeirra sérstaklega boðin vel- komin. Kór Lindakirkju leiðir tónlist- ina undir stjórn Óskars Einarssonar en auk þess fáum við tónlistaratriði frá fermingarbörnum. Sr. Guðni Már Harðarson þjónar. NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Háskólakórinn syngur undir stjórn Gunnsteins Ólafssonar. Prestur er Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Söngur og gleði í barnastarfinu. Um- sjón Katrín H. Ágústsdóttir, Ágúst Þór Þórsson og Ari Agnarsson. Kaffisopi og samfélag á Torginu eftir messu. SALT kristið samfélag | Sameig- inlegar samkomur Salts og SÍK kl. 17 alla sunnudaga í Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-60. Ræðumaður: Guðlaugur Gunnarsson. Barnastarf. Túlkað á ensku. SELTJARNARNESKIRKJA | Fræðslumorgunn kl. 10. ,,Tíminn skundar burt.“ Saga Guðrúnar Lár- usdóttur, rithöfundar og alþingis- manns. Málfríður Finnbogadóttir höf- undur bókar um Guðrúnu talar. Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar fyrir altari. Sigurður Már Hannesson, guðfræðinemi, prédikar. Sveinn Bjarki og leiðtogar sjá um sunnudagaskól- ann. Friðrik Vignir Stefánsson leikur á harmóníum í athöfninni. Félagar úr Kammerkórnum syngja. Kaffiveitingar eftir athöfn í safnaðarheimilinu. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Laug- ardagur 16. nóv. kl. 11. Barnastarf í umsjá Bergþóru Ragnarsdóttur og Jóns Bjarnasonar. Sunnudagur 17. nóv. kl. 11. Messa. Séra Skírnir Garðarsson þjónar fyrir altari og prédikar. Organisti er Jón Bjarnason. SÓLHEIMAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14 sunnudag. Organisti er Ester Ólafsdóttir. Sr. Kristján Valur Ingólfs- son prédikar og þjónar fyrir altari. STÓRA-NÚPSKIRKJA | Kvöldmessa kl. 20. 110 ára afmælis kirkjunnar minnst. Fólk hvatt til að mæta í þjóð- búningi til messu. Kaffi á eftir. VÍDALÍNSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Henning Emil Magnússon prédik- ar og þjónar fyrir altari ásamt messu- þjónum. Sunnudagaskóli á sama tíma sem Matthildur Bjarnadóttir æskulýðsfulltrúi stýrir. Félagar í kór Vídalínskirkju syngja og organisti er Jóhann Baldvinsson. Sjá Garðasókn- .is. VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Messa kl. 11. Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur. Prestur er Stefán Már Gunnlaugsson. Hressing í safn- aðarsalnum á eftir. YTRI-Njarðvíkurkirkja | Minningar- stund á minningardegi fórnarlamba umferðaslysa sunnudag kl. 20. Kaffi í boði slysavarnadeilda. Sr. Brynja Vigdís þjónar fyrir altari og kirkjukórinn leiðir söng undir stjórn Stefáns H. Kristinssonar. Meðhjálpari er Pétur Rúðrik Guðmundsson. Björgunarsveitir og Slysavarnadeildir á Suðurnesjum og Njarðvíkur- prestakall. Orð dagsins: Tíu meyjar (Matt. 25) Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Súðavíkurkirkja ✝ Margrét Guð-mundsdóttir fæddist í Reykja- vík 21. janúar 1934. Hún lést á líknardeild Land- spítalans í Kópa- vogi 6. nóvember 2019. Foreldrar henn- ar voru hjónin Þuríður Þor- steinsdóttir, hús- móðir í Reykjavík, f. 28. októ- ber 1909 í Knútsborg á Seltjarnarnesi, d. 9. apríl 2006, og Guðmundur Helga- son, bakari í Reykjavík, f. 19. janúar 1909, d. 25. mars 1972. Bróðir Margrétar er Jón, f. 1932. Hinn 23. október 1954 gift- ist Margrét Þráni Guðmunds- syni frá Siglufirði, f. 24. apríl 1933, d. 20. mars 2007. For- eldrar hans voru hjónin Ingi- björg Jónsdóttir frá Sauðanes- koti á Upsaströnd við Dalvík, f. 6. ágúst 1902, d. 13. maí 1974, og Guðmundur Þorleifs- son, f. 31. október 1886, fyrr- verandi bóndi á Syðstahóli í Sléttuhlíð í Skagafirði, d. 4. september 1968. Margrét og Þráinn eign- uðust fimm börn, þau eru: 1) Ingibjörg, skrif- stofumaður, búsett í Englandi, f. 29. september 1955, maki Duncan Wills. Börnin eru Paul Þráinn, Magnús John og Margret Theresa. 2) Guðmundur Ómar, aðstoðar- yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglu- stjóra, f. 8. september 1957, maki Bergþóra Haraldsdóttir, börnin eru Þuríður, Halldóra og Daníel Ómar og sonur Guð- mundar er Þráinn. 3) Hulda, leikskólakennari, f. 25. september 1961, maki Helgi Kristinn Hannesson, börnin eru Eva Ösp, Margrét Anna, Þráinn Halldór og Halldóra Ósk. 4) Margrét, kennari, bú- sett í Árósum, f. 26. nóvember 1964, maki Héðinn Kjartans- son, börnin eru Þórkatla, Þrá- inn, Þorgerður, Björk og Baldvina. 5) Lúðvík, viðskipta- fræðingur og endurskoðandi, f. 31. október 1973, maki Berglind Hafþórsdóttir Byrd. Langömmubörnin eru 11. Útför Margrétar fór fram í kyrrþey frá Fossvogskapellu 14. nóvember 2019. Ég vil minnast í nokkrum orðum minnar kæru vinkonu, Margrétar Guðmundsdóttur. Við áttum samleið og vinskap um margra áratuga skeið. Vinskapur okkar hófst þegar við fórum að vinna saman í Hagkaup í Skeifunni og þar unnum við saman í tuttugu og fimm ár. Við áttum þar góðar samverustundir með fleiri sam- starfskonum og tókst að gera hversdaginn ánægjulegan, þrátt fyrir langan vinnudag. Þegar við hættum að vinna saman fórum við að rækta vin- skapinn á annan hátt. Við sam- starfskonurnar hittumst þá á kaffihúsum og hver heima hjá annarri og áttum margar ánægjustundir saman. Margrét var trygg og góð vinkona og áttum við dagleg símtöl eftir að starfsævi okkar lauk. Við höfðum þann sið að horfa á sjónvarpsþátt í morgunsárið hvor á sínu heimili, með morg- unkaffinu, og að þættinum loknum hringdumst við á. Þetta gerðum við alla virka daga í þrettán ár. Þá spjölluðum við saman um þáttinn og ræddum hvað þar fór fram. Það veitti okkur mikla gleði að skiptast á skoð- unum um þáttinn en einnig ræddum við um lífið og til- veruna. Það einkenndi Mar- gréti að hún sá alltaf það já- kvæða í lífinu og ég er henni þakklát fyrir þessar ánægju- stundir sem gáfu okkur báðum svo mikið. Við hjónin áttum margar góðar samverustundir með Margréti og Þráni, bæði hér heima og í ferðum okkar er- lendis. Margrét var sannur vinur vina sinna og á erfiðum stund- um í lífi minnar fjölskyldu reyndist Margrét okkur mjög vel. Fyrir það erum við æv- inlega þakklát. Ég sakna Margrétar vinkonu minnar og allra okkar samveru- stunda. En komin eru leiðarlok og lífsins kerti brunnið þín er liðin æviönn á enda skeiðið runnið. Í hugann kemur minning mörg og myndir horfinna daga, frá liðnum stundum læðist fram mörg ljúf og falleg saga. (Höf. ókunnur) Við fjölskyldan vottum börn- um Margrétar og fjölskyldum þeirra innilega samúð. Blessuð sé minning hennar. Guðrún. Margrét Guðmundsdóttir Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Takk fyrir allt, Sigrún mín, það var alltaf gott að eiga þig að, þú varst alltaf til staðar fyr- ir fjölskylduna þína og varst yndisleg tengdamóðir í alla staði. Megi Guð ævinlega vera með þér, Sigrún mín, og gefa okkur sem syrgjum þig styrk til þess að takast á við þennan erfiða tíma. Þín er og verður alltaf saknað. Þinn tengdasonur Rögnvaldur. Sigrún Jóhanna Jónsdóttir ✝ Sigrún Jóhanna Jónsdóttirfæddist 21. janúar 1940. Hún lést 4. október 2019. Sigrún var jarðsungin 25. október 2019. Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.