Morgunblaðið - 16.11.2019, Page 38

Morgunblaðið - 16.11.2019, Page 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2019 ✝ Ólafur Bjarn-freðsson fædd- ist 28. desember 1936. Hann lést 23. október 2019 eftir langvinn veikindi á Landspítalanum í Fossvogi. Ólafur var þriðji yngsti af tuttugu alsystkin- um frá Efri-Steins- mýri í Meðallandi í Vestur-Skaftafells- sýslu. Eru þau nú öll látin. Foreldrar hans voru hjónin Bjarnfreður Jó- hann Ingimundar- son og Ingibjörg Sigurbergsdóttir. Ólafur fluttist ásamt föður sínum og nokkrum systk- inum til Vest- mannaeyja árið 1946, en móðir hans hafði látist árið áður. Fimmtán ára gamall fór hann í Fljótshlíð í vinnumennsku. Tæplega sautján ára gamall flutti Ólafur svo til Reykja- víkur, þar sem hann bjó síðan alla tíð. Hann vann við fisk- vinnslu í hraðfrystihúsi í lið- lega tvö ár en stundaði síðan sjómennsku í um það bil fjóra áratugi. Síðustu starfsár hans voru við þjónustustörf á bensínstöð. Ólafur var kvæntur Pisamai Phaengsrisarn. Hann átti einn son, Guðna. Útför hans fór fram frá Fossvogskapellu hinn 31. októ- ber 2019 í kyrrþey að ósk hins látna. Minn kæri móðurbróðir og góðvinur, Ólafur Bjarnfreðsson, er nú horfinn úr jarðvistinni. Síð- ustu ár voru honum erfið vegna þrálátra veikinda. Við þekktumst allt frá barnæsku minni, en síð- ustu áratugina varð kunnings- skapur okkar dýpri og sífellt nán- ari. Hvað sjómennsku Ólafs varð- aði var hann fyrst og fremst tog- arasjómaður. Upphaflega var hann á gömlu síðutogurunum, þar sem aðbúnaður var nú yfir- leitt ekki alltof góður. Algengt var t.d. að sex til átta hásetar deildu með sér lúkar og annað eftir því. Með komu skuttogar- anna varð veruleg breyting til batnaðar í þessu sambandi og eins í öllu vinnuumhverfi, veiðar- færum, o.fl. Ólafur fór fljótt á skuttogara, enda hurfu síðutog- ararnir skjótt af sjónarsviðinu. Lengst af starfaði Ólafur hjá Út- gerðarfélaginu Ögurvík. Hann þótti harðduglegur sjómaður og vann sig upp í starf bátsmanns eða nokkurs konar verkstjóra á dekki. Þá veit ég til þess að hann þótti góður við viðvaninga, sem voru að byrja til sjós, en slíkt var nú ekki alltaf raunin í hinu harð- gerða starfi sjómannsins. Ég vil nú enda þennan sjó- mannskafla í lífi Ólafs með því að tilgreina hér upphafslínu á vísu eftir Ragnar nokkurn Jóhannes- son. Vísan var samin við erlent lag sem naut mikilla vinsælda hér á árum áður, en þar segir m.a.: „Hann var sjómaður dáðadrengur.“ Þetta eru orð sem gátu svo vel átt við Ólaf frænda minn. Við Ólafur töluðum oft mikið saman og þá um allt mögulegt. Hann hafði mikinn áhuga á íþróttum, eins og ég, svo oft barst talið að þeim málaflokki. Svo ræddum við stundum um sjávarútvegsmál, þar sem Ólafur þekkti auðvitað miklu meira til en ég. Til dæmis komu kvótamálin öðru hvoru upp í samræðum okk- ar og gat ég þá ekki alltaf setið á mér og sagði í stríðni ýmislegt, sem gerði Óla minn alveg bálreið- an, enda gat maðurinn verið skapmikill og vildi nú eiga síðasta orðið í slíkum umræðum. Við vor- um samt alltaf fljótir til sátta, enda báðum ljóst að ekki bjó mik- il alvara á bak við þetta orðaskak okkar. Það munu vera liðin rúmlega tuttugu og fimm ár síðan Ólafur og Pisamai kynntust sem leiddi síðar til hjúskapar. Samvistir þeirra voru mjög farsælar og var það happ fyrir þau bæði að leiðir þeirra skyldu liggja saman. Ekki má gleyma einstæðri um- hyggju Pisamai í veikindum Ólafs, sem ég veit að hann kunni vel að meta og var henni afar þakklátur fyrir. Ólafur var síðasta systkinið (Bjarnfreðsbörn) frá Efri-Steins- mýri til að hverfa yfir móðuna miklu og nú er þessi stóri hópur vonandi sameinaður á einhvern hátt. Ég vil nú að lokum votta eig- inkonu Ólafs og syni hans samúð mína. Hafþór Ingi Jónsson. Ólafur Bjarnfreðsson Sálm. 17.5-6 biblian.is Skref mín eru örugg á vegum þínum, mér skrikar ekki fótur. Ég hrópa til þín því að þú svarar mér, Guð,... Við þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, RANNVEIGAR ÍSFJÖRÐ, Grænumörk 2, Selfossi. Sérstakar þakkir til Díönu sjúkrahúsprests og starfsfólks á bráðadeild Landspítalans í Fossvogi fyrir einstaka umhyggju og alúð við fjölskyldu og vini á erfiðri stundu. Gunnþóra H. Önundardóttir Þorkell Ingimarsson Edda Björk Ragnarsdóttir Hallur Ægir Sigurðsson Kristveig Ósk Jónsdóttir Hallur Sigurðsson Kristín Rut Jónsdóttir Agnar Þorláksson Íris Jónsdóttir Guðmundur Sigurðsson Einar Magni Jónsson Magnea Svava Guðmundsd. ömmubörn og langömmubörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og systir, MARGRÉT GUÐMUNDSDÓTTIR, lést á líknardeild Landspítalans Kópavogi miðvikudaginn 6. nóvember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Aðstandendur þakka öllum þeim sem komið hafa að umönnun og aðhlynningu í veikindum hennar. Ingibjörg White Duncan Wills Guðmundur Ómar Þráinsson Bergþóra Haraldsdóttir Hulda Þyri Þráinsdóttir Helgi Kristinn Hannesson Margrét Þráinsdóttir Héðinn Kjartansson Lúðvík Þráinsson Berglind Hafþórsdóttir Byrd barnabörn, langömmubörn Jón Guðmundsson Ástkær móðir okkar, UNNUR G. PROPPÉ sjúkraliði, Hæðargarði 33, Reykjavík, lést á Landspítalanum 6. nóvember. Bálför fór fram í kyrrþey, að ósk hinnar látnu. Þeim sem vilja minnast hennar er vinsamlegast bent á líknarstofnanir. Sævar G. Proppé Fríða Proppé Ragna Björk Proppé Auður B. Proppé Bailey Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, RAGNHEIÐAR GUÐMUNDSDÓTTUR frá Sæbóli á Ingjaldssandi, Kópavogsbraut 1a, Kópavogi. Guðmundur Pétursson Sigrún Ingibjörg Arnardóttir Anna Bára Pétursdóttir Freysteinn Vigfússon Sigurður Pétursson Guðrún Ólafsdóttir Ingibjörg Pétursdóttir Valtýr Reginsson ömmu- og langömmubörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, bróðir og afi, ANTON NARVAÉZ, Nolo, Túngötu 10, Grindavík, varð bráðkvaddur laugardaginn 9. nóvember. Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju, mánudaginn 18. nóvember klukkan 14. Olena Kobets Helena Sandra Antonsdóttir Stefán Kristjánsson Anton Kevin Antonsson Katherine Harris Natalie T.N. Antonsdóttir Þórir Kjartansson Sylvía Mekkín Antonsdóttir Bobby Donchev Heda Hansen og barnabörn Okkar innilegustu þakkir færum við öllum þeim er sýndu okkur samúð, hlýju og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, bróður okkar og mágs, SNORRA ÞORSTEINS PÁLSSONAR frá Dagverðartungu, Fjólugötu 13. Sérstakar þakkir til Heimahlynningar á Akureyri fyrir kærleiksríka umönnun. Nittaya Nonghee Gylfi Pálsson Rósa María Björnsdóttir Ragna Pálsdóttir Ævar Ragnarsson Gísli Pálsson Stefanía Þorsteinsdóttir Snjólaug Pálsdóttir Þorsteinn Sigurðsson Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996 ALÚÐ •VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er. Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir Mig langar að minnast vinar míns og samstarfsmanns, Júlla, sem farinn er til feðranna um aldur fram. Ég og kona mín Elísabet Eyjólfs- dóttir gátum því miður ekki fylgt Júlla síðasta spölinn því við vor- um fjarri heimahögum þegar hann féll frá. Við Júlli kynntumst í Gamla Kompaníinu á sínum tíma. Með okkur tókst góð ævi- löng vinátta sem aldrei bar skugga á. Júlli var hæfileikarík- ur maður, léttur í lund og starf- samur með afbrigðum. Hann leysti mörg verkefnin, stór sem smá, fljótt og vel. Ég minnist þess meðal annars að hann var einn af þeim sem treyst var til að smíða húsgögnin í þingsal Al- þingis, stóla, borð og ræðupúlt, þegar deildir þingsins voru sam- einaðar í eina málstofu árið 1991. Allt einstakir öndvegisgripir og smíðaðir af starfsmönnum Gamla Kompanísins og þar á meðal var Júlli. Hann var einnig einstaklega laginn við allar vélar og tæki. Gat gert við allt mögu- Júlíus Jónsson ✝ Júlíus Jónssonfæddist 27. nóvember 1948. Hann lést 16. september 2019. Útför Júlíusar fór fram 27. sept- ember 2019. legt og var vanaleg- ast fljótur að því. Og þó að við héldum hvor á sinn vinnu- staðinn hélst vin- átta okkar góð og náin. Júlli kom oft í heimsókn til okkar í Skúlason og Jóns- son ehf. en þá voru málin rædd og leyst ef svo bar undir. Við Elísabet áttum margar góðar stundir með Júlla og Björk í gegnum tíðina sem gleymast ekki. En svo tóku sig upp veikindi Júlla. Hann bar sig vel þó að veikindin væru erfið og mjög hamlandi. Hann hélt ró sinni og reisn þótt veikur væri líkt og segir í sálminum góða. Þó missi ég heyrn og mál og róm og máttinn ég þverra finni, þá sofna ég hinst við dauðadóm, ó, Drottinn, gef sálu minni að vakna við söngsins helga hljóm í himneskri kirkju þinni. (Ólína Andrésdóttir) Að leiðarlokum minnumst við Júlla með þakklæti fyrir allar góðu samverustundirnar og biðj- um algóðan Guð að lýsa honum af sínu eilífa ljósi. Við vottum Björk, börnum, ættingjum og vinum hans samúð okkar. Gunnar Magnússon og Elísabet Eyjólfsdóttir. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu- degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.