Morgunblaðið - 16.11.2019, Síða 42
42 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2019
HANDBOLTI
Olísdeild kvenna
KA/Þór – Stjarnan ............................... 23:22
Staðan:
Fram 8 7 0 1 257:166 14
Valur 8 6 1 1 224:170 13
Stjarnan 9 4 3 2 218:197 11
KA/Þór 9 5 0 4 218:248 10
HK 8 3 2 3 209:218 8
Haukar 8 2 1 5 165:198 5
ÍBV 8 2 1 5 159:196 5
Afturelding 8 0 0 8 146:203 0
Grill 66 deild kvenna
Víkingur – Fylkir.................................. 12:18
Staðan:
Fram U 8 8 0 0 267:187 16
FH 8 6 1 1 215:178 13
Selfoss 8 6 1 1 185:166 13
Grótta 8 6 0 2 202:178 12
ÍR 8 5 0 3 198:192 10
ÍBV U 8 4 1 3 208:193 9
Valur U 8 3 1 4 213:204 7
Stjarnan U 8 3 0 5 198:221 6
HK U 8 2 0 6 194:225 4
Fylkir 9 2 0 7 169:194 4
Fjölnir 8 2 0 6 181:213 4
Víkingur 9 0 0 9 205:284 0
Grill 66 deild karla
FH U – Haukar U ................................ 32:36
Þróttur – Grótta ................................... 25:26
Víkingur – Valur U............................... 24:28
Stjarnan U – Þór Ak ............................ 23:30
Staðan:
Þór Ak. 8 6 2 0 241:216 14
Valur U 8 5 1 2 236:229 11
Haukar U 8 5 1 2 235:204 11
Grótta 8 5 0 3 227:228 10
FH U 8 4 0 4 239:235 8
Þróttur 8 3 2 3 243:227 8
KA U 7 3 0 4 224:208 6
Víkingur 8 2 1 5 204:217 5
Stjarnan U 8 1 1 6 198:256 3
Fjölnir U 7 1 0 6 177:204 2
Frakkland
Bikarkeppnin, 32ja liða úrslit:
Bourg-de-Péage – Nimes ................... 29:26
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir skor-
aði 5 mörk fyrir Bourg-de-Péage.
Þýskaland
B-deild:
Krefeld – Bietigheim .......................... 19:26
Arnar Gunnarsson þjálfar Krefeld.
FÓTBOLTI
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Ef Ísland vinnur Moldóvu á sunnu-
daginn mun Erik Hamrén hafa náð í
fleiri stig en Lars Lagerbäck gerði í
sinni fyrstu undankeppni sem þjálfari
karlalandsliðsins í fótbolta. Ísland
hefur safnað 16 stigum í H-riðli und-
ankeppni EM og getur því mest náð
19 stigum en liðið fékk 17 stig í und-
ankeppni HM 2014 eftir að Lager-
bäck tók við stjórnartaumunum.
Svona samanburður verður líklega
aldrei fyllilega sanngjarn. Ísland var
til að mynda í sjötta og neðsta styrk-
leikaflokki þegar dregið var í riðla í
fyrstu undankeppni Lagerbäcks en
komið í 2. flokk þegar dregið var í
undankeppni EM sem nú er að ljúka.
Á hinn bóginn fékk Ísland heims-
meistara Frakka í sinn riðil núna en
til að mynda norskt lið á niðurleið úr
efsta styrkleikaflokki fyrir HM 2014.
Ef Ísland vinnur Moldóvu og endar
með 19 stig verður stigasöfnun liðsins
betri en hjá öllum öðrum liðum sem
enda í 3. sæti síns riðils í und-
ankeppninni sem lýkur næsta þriðju-
dag. Það er ekki hægt að fullyrða það
fyrr en undankeppninni lýkur en
stigasöfnunin hefði vel getað dugað til
að koma Íslandi beint á EM ef notast
hefði verið við fyrirkomulagið úr síð-
ustu undankeppni, þar sem lið með
bestan árangur í 3. sæti komst beint á
EM en önnur lið úr 3. sæti fóru í um-
spil. Það var einmitt Tyrkland sem
komst beint á EM 2016 sem lið úr 3.
sæti, með því að vinna Ísland í loka-
umferðinni í leik sem skipti minna
máli fyrir Íslendinga. Núna skiptir 3.
sæti engu máli og árangur í Þjóða-
deild ræður því hvaða lið fara í um-
spil.
Ef horft er á hráa stigasöfnun hef-
ur engin undankeppni gengið betur
en þegar Ísland lék undir stjórn
Heimis Hallgrímssonar í undan-
keppni HM 2018. Liðið fékk 22 stig af
30 mögulegum, vann alla heimaleiki
sína og tapaði aðeins gegn Króatíu og
Finnlandi á útivelli auk þess að gera
jafntefli við Úkraínu úti.
Það sem helst er hægt að setja út á
árangur Íslands undir stjórn Ham-
réns er 4:2-tapið gegn Albaníu á úti-
velli í haust. Svipuð töp hefur liðið
hins vegar mátt þola í fyrri keppnum,
eins og gegn Finnum 2017 og gegn
Kýpur í undankeppni HM 2014. Það
var alveg viðbúið að Ísland gæti tapað
báðum leikjum sínum gegn Frökkum
en keppnin spilaðist ekki Íslandi í hag
þegar Frakkar tóku svo aðeins eitt
stig úr leikjum sínum við Tyrkland.
Hlutirnir hafa fallið betur með ís-
lenska liðinu á síðustu árum.
Stigasöfnun Íslands undir stjórn
Hamréns hefur verið betri en hjá öll-
um forverum hans, ef Heimir og Lars
eru undanskildir. Hér má sjá nið-
urstöðuna í undankeppnunum síð-
ustu tvo áratugi:
Erik Hamrén
Undankeppni EM 2020:
16-19 stig af 30. 5 sigrar, 1 jafntefli, 3
töp.
Heimir Hallgrímsson
Undankeppni HM 2018:
22 stig af 30. 7 sigrar, 1 jafntefli, 2 töp
Lars Lagerbäck og
Heimir Hallgrímsson
Undankeppni EM 2016:
20 stig af 30. 6 sigrar, 2 jafntefli, 2 töp
Lars Lagerbäck
Undankeppni HM 2014:
17 stig af 30. 5 sigrar, 2 jafntefli, 3 töp
Ólafur Jóhannesson
Undankeppni EM 2012:
4 stig af 24. 1 sigur, 1 jafntefli, 6 töp
Undankeppni HM 2010:
5 stig af 24. 1 sigur, 2 jafntefli, 5 töp
Eyjólfur Sverrisson
Undankeppni EM 2008 (Ólafur Jóhann-
esson með liðið í síðasta leiknum):
8 stig af 36. 2 sigrar, 2 jafntefli, 8 töp
Ásgeir Sigurvinsson
og Logi Ólafsson
Undankeppni HM 2006:
4 stig af 30. 1 sigur, 1 jafntefli, 8 töp
Undankeppni EM 2004 (Atli Eðvalds-
son með liðið fyrstu þrjá leikina):
13 stig af 24. 4 sigrar, 1 jafntefli 3 töp
Atli Eðvaldsson
Undankeppni HM 2002:
13 stig af 30. 4 sigrar, 1 jafntefli, 5 töp
Guðjón Þórðarson
Undankeppni EM 2000:
15 stig af 30. 4 sigrar, 3 jafntefli, 3 töp
Nær Hamrén
fleiri stigum
en Lagerbäck?
Hefði Ísland komist beint á EM
2020 með síðasta fyrirkomulagi?
Morgunblaðið/Eggert
Þjálfarinn Erik Hamrén er með samning við KSÍ sem gildir fram yfir um-
spilið í mars eða fram yfir lokakeppni EM næsta sumar nái Ísland þangað.
Íslendingar fá að vita næsta föstu-
dag hverjum karlalandsliðið í fót-
bolta mætir í undanúrslitum um-
spils um sæti á EM 26. mars. Einnig
kemur í ljós hvaða andstæðingar
gætu beðið liðsins í úrslitaleik 31.
mars, og hvort sá leikur færi fram á
heimavelli Íslands (Laugardalsvelli
eða velli nágrannaþjóðar eins og
Danmerkur ef völlurinn í Laugar-
dal verður ekki tilbúinn) eða and-
stæðingsins.
En hvað svo? Komist Ísland á EM
í gegnum umspilið ætti þegar að
vera orðið ljóst í hvaða riðli liðið
myndi leika í í lokakeppni EM, og í
hvaða löndum, því leikið er víða um
Evrópu. Það verður nefnilega dreg-
ið í riðla fyrir EM laugardaginn 30.
nóvember, þrátt fyrir að aðeins
verði 20 lið af 24 komin inn á mótið.
Hin fjögur bætast við eftir A-, B-, C-
og D-umspilin í lok mars.
Í EM-drættinum 30. nóvember
ættu Íslendingar að bíða eftir því að
sjá miða sem á stendur „sigurveg-
ari úr A-umspili“, en sá miði verður
dreginn úr neðsta styrkleikaflokki,
þeim fjórða. Það verður svo að
koma í ljós hvort Ísland verður
þessi sigurvegari.
Leikið er í sex fjögurra liða riðl-
um á EM og fyrir dráttinn raðast
sigurvegarar undanriðlanna í 1. og
2. styrkleikaflokk, tvö lið sem lenda
í 2. sæti í sínum undanriðli komast í
2. flokk, sex þeirra fylla 3. flokk og
tvö fara í neðsta flokk ásamt um-
spilsliðunum. UEFA áskilur sér þó
rétt til að hnika liðum til svo að sem
fæstir gestgjafar séu í sama styrk-
leikaflokki, en það ætti ekki að
breyta stöðu Íslands. Ísland var
einnig í neðsta styrkleikaflokki fyr-
ir EM 2016 en í 3. flokki fyrir HM
2018. sindris@mbl.is
AFP
Bæði með? Ísland er á leið í umspil
en Tyrkland er öruggt um EM-sæti.
Ísland í neðsta
styrkleikaflokknum
Lionel Messi skoraði sigurmark
Argentínu í 1:0-sigri gegn Brasilíu í
vináttulandsleik í knattspyrnu í
Sádi-Arabíu í gær. Þetta var fyrsti
leikur Messi með landsliðinu eftir
þriggja mánaða keppnisbann sem
hann fékk fyrir að saka mótshald-
ara Ameríkubikarsins um spillingu.
Messi gerði
gæfumuninn