Morgunblaðið - 16.11.2019, Qupperneq 44
44 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2019
Metabolic Reykjavík | Stórhöfða 17 | metabolicreykjavik.is
Metabolic Reykjavík
Ný þjálfunarstöð við Gullinbrú
Faglegt Fjölbreytt Skemmtilegt
Æfðu á þínum hraða, á þínu erfiðleikastigi
Undankeppni EM karla 2020
D-RIÐILL:
Danmörk – Gíbraltar ............................... 6:0
Sviss – Georgía ......................................... 1:0
Staðan:
Danmörk 7 4 3 0 22:5 15
Sviss 7 4 2 1 13:5 14
Írland 7 3 3 1 6:4 12
Georgía 8 2 2 4 7:11 8
Gíbraltar 7 0 0 7 2:25 0
Gíbraltar mætir Sviss og Írland mætir
Danmörku í lokaumferðinni.
F-RIÐILL:
Noregur – Færeyjar ................................ 4:0
Rúmenía – Svíþjóð ................................... 0:2
Spánn – Malta........................................... 7:0
Staðan:
Spánn 9 7 2 0 26:5 23
Svíþjóð 9 5 3 1 20:9 18
Noregur 9 3 5 1 17:10 14
Rúmenía 9 4 2 3 17:10 14
Færeyjar 9 1 0 8 4:27 3
Malta 9 1 0 8 2:25 3
Malta – Noregur, Spánn – Rúmenía og
Svíþjóð – Færeyjar mætast í lokaumferð-
inni.
J-RIÐILL:
Finnland – Liechtenstein........................ 3:0
Helgi Kolviðsson þjálfar Liechtenstein.
Armenía – Grikkland ............................... 0:1
Bosnía – Ítalía........................................... 0:3
Staðan:
Ítalía 9 9 0 0 28:3 27
Finnland 9 6 0 3 15:8 18
Grikkland 9 3 2 4 10:13 11
Bosnía 9 3 1 5 17:17 10
Armenía 9 3 1 5 13:16 10
Liechtenstein 9 0 2 7 2:28 2
Grikkland – Finnland, Ítalía – Armenía
og Liechtenstein – Bosnía mætast í loka-
umferðinni.
Vináttulandsleikir karla
Brasilía – Argentína................................. 0:1
Ungverjaland – Úrúgvæ.......................... 1:2
KNATTSPYRNA
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Vestmannaeyjar: ÍBV – HK.................. L14
Varmá: Afturelding – ÍR........................ L17
Ásvellir: Haukar – Fjölnir ................ L19.30
Hleðsluhöllin: Selfoss – Fram........... S19.30
Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin:
Vestmannaeyjar: ÍBV – Fram ......... L16.30
Ásvellir: Haukar – HK ........................... L17
Varmá: Afturelding – Valur ................... S17
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
Hertz-höllin: Grótta – Selfoss........... L13.30
Kaplakriki: FH – ÍBV U.................... S14.10
Framhús: Fram U – Fjölnir................... S15
ÍSHOKKÍ
Íslandsmót karla, Hertz-deildin:
Egilshöll: Fjölnir – SA ...................... L16.45
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild karla:
Álftanes: Álftanes – Vestri..................... S15
UM HELGINA!
rekstrar tíðir. Á meðan varnarleikur
beggja liða var traustur þá hafði
harkan og brottrekstrarnir mikil
áhrif á sóknarleik liðanna, sem var
hreint ekki glæsilegur. Þegar upp
var staðið höfðu liðin tapað 30 bolt-
um í sóknum sínum.
Seinni hálfleikurinn var spennu-
tryllir af bestu gerð. Liðin voru jöfn
nánast allan tímann, annað þó stund-
um marki yfir. Lokasóknirnar voru
svakalegar. Hulda Bryndís
Tryggvadóttir kom KA/Þór yfir þeg-
ar tæpar tvær mínútur lifðu en Rak-
el Dögg Bragadóttir svaraði um hæl.
Þór/KA fór í fremur langa og vand-
ræðalega sókn og tók svo leikhlé til
að skipuleggja gott kerfi. Það fór
hins vegar allt í vaskinn og leiktöf
var dæmd þegar tuttugu sekúndur
lifðu. Stjarnan rauk upp völlinn og
reyndi línusendingu sem misheppn-
aðist. Boltinn skoppaði inn í teig þar
sem markvörður KA/Þórs, Matea
Lonac, hirti hann. Matea grýtti svo
boltanum yfir allan völlinn og hárfínt
yfir Klaudiu Pogawa sem stóð full-
framarlega í marki Stjörnunnar.
Boltinn endaði í netinu og síðan gall
lokaflautan. Tæpara mátti þetta
ekki vera og heimakonur í KA/Þór
gátu stigið trylltan dans í lokin.
Sigurmark yfir
allan völlinn
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Stórtæk Martha Hermannsdóttir var markahæsti leikmaður vallarsins.
Á AKUREYRI
Einar Sigtryggsson
sport@mbl.is
KA/Þór og Stjarnan spiluðu fyrsta
leikinn í níundu umferð úrvals-
deildar kvenna í handknattleik, Ol-
ísdeildarinnar, í gær en liðin voru í 3.
og 4. sæti deildarinnar fyrir leik.
Breyttist sú staða ekki þótt KA/Þór
hafi unnið leikinn 23:22. Sigur-
markið skoraði markvörðurinn
Matea Lonac með skoti yfir allan
völlinn á lokasekúndunum. Þór/KA
er nú einu stigi á eftir Stjörnunni,
með tíu stig.
Leikurinn var jafn og spennandi
frá upphafi til enda. Nokkur harka
einkenndi leikinn og voru brott-
Finnland er komið áfram í loka-
keppni Evrópumeistaramóts karla í
knattspyrnu eftir öruggan 3:0-sigur
gegn Helga Kolviðssyni og læri-
sveinum hans í Liechtenstein í Hels-
inki í Finnlandi í J-riðli undankeppni
EM í gær. Þetta er í fyrsta sinn í sög-
unni sem Finnar komast í loka-
keppni stórmóts karla í knattspyrnu
en Teemu Pukki, sem byrjaði tíma-
bilið frábærlega með enska úrvals-
deildarliðinu Norwich, skoraði tví-
vegis fyrir Finna í gær.
Jasse Tuominen kom Finnum yfir
strax á 21. mínútu og Pukki bætti
svo við tveimur mörkum til viðbótar
um miðjan síðari hálfleikinn. Finnar
eru með 18 stig í öðru sæti riðilsins,
níu stigum minna en topplið Ítala, og
sjö stigum meira en Grikkir sem eru
í þriðja sæti riðilsins þegar ein um-
ferð er eftir af riðlakeppninni.
Þá tryggðu Svíar sæti sitt í loka-
keppni EM eftir 2:0-sigur gegn
Rúmeníu á Þjóðarleikvanginum í
Búkarest í Rúmeníu. Bæði lið áttu
möguleika á því að enda í öðru sæti
F-riðils fyrir leik kvöldsins en Svíar
voru í öðru sætinu með 15 stig á með-
an Rúmenar voru í þriðja sætinu með
14 stig þegar flautað var til leiks.
Marcus Berg kom sænska liðinu
yfir strax á 18. mínútu og Robin
Quiason tvöfaldaði forystu Svía á 34.
mínútu og staðan því 2:0 í hálfleik.
Hvorugu liðinu tókst að bæta við
mörkum í síðari hálfleik og Svíar
fögnuðu sæti í lokakeppninni í leiks-
lok.
Spánverjar enda í efsta sæti riðils-
ins en þeir eru með 23 stig eftir stór-
sigur gegn Möltu í Cadiz á Spáni í
gær. Lars Lagerbäck og lærisveinar
hans í norska landsliðinu eru í fjórða
sæti riðilsins með 14 stig fyrir loka-
umferðina og eiga ekki möguleika á
fyrsta eða öðru sæti riðilsins.
bjarnih@mbl.is
Sögulegt afrek
Finna í Helsinki
AFP
Gleði Það var mikið um fagnaðarlæti í Helsinki í gær þegar Finnar tryggðu
sér sæti á sínu fyrsta stórmóti í knattspyrnu eftir 3:0-sigur á Liechtenstein.
Dagur Kár Jónsson, leikmaður
Grindavíkur í úrvalsdeild karla í
körfuknattleik, verður frá keppni
næstu vikurnar eftir að hafa geng-
ist undir aðgerð á hné í gær. „Hnéð
hefur verið að trufla mig að und-
anförnu og haft áhrif á leik minn.
Þetta var minniháttar aðgerð þar
sem allt heila klabbið var bara
hreinsað duglega,“ sagði Dagur í
samtali við mbl.is. „Þetta verða ein-
hverjar vikur og markmiðið er að
vera klár eftir sirka tvo mánuði.“
Grindavík er í tíunda sæti deild-
arinnar með 4 stig eftir sjö leiki.
bjarnih@mbl.is
Spilar ekki meira
á þessu ári
Morgunblaðið/Hari
Meiddur Dagur Kár Jónsson og
Grindavík hafa oft byrjað betur.
KA-heimilið, Olísdeild kvenna, föstu-
dag 15. nóvember 2019.
Gangur leiksins: 3:2, 5:3, 7:4, 9:7,
9:10, 12:11, 14:13, 15:14, 16:15, 18:18,
21:21, 23:22.
Mörk KA/Þór: Martha Her-
mannsdóttir 6/3, Martina Corkovic
4/1, Ásdís Guðmundsdóttir 3, Katrín
Vilhjálmsdóttir 3, Anna Þyrí Hall-
dórsdóttir 3, Hulda Bryndís Tryggva-
dóttir 2, Matea Lonac 1, Rakel Sara
Elvarsdóttir 1.
Varin skot: Matea Lonac 18/1.
KA/ÞÓR – STJARNAN 23:22
Utan vallar: 10 mínútur
Mörk Stjarnan: Sólveig Lára
Kjærnested 4, Hanna Guðrún Stef-
ánsdóttir 4, Stefanía Theodórsdóttir
3, Sigrún Ása Ásgrímsdóttir 3, Þór-
hildur Gunnarsdóttir 3, Karen Tinna
Demian 3, Þórey Anna Ásgeirsdóttir
1, Rakel Dögg Bragadóttir 1.
Varin skot: Klaudia Powaga 11.
Utan vallar: 10 mínútur
Dómarar: Bóas Börkur Bóasson og
Hörður Aðalsteinsson.
Áhorfendur: 374.