Morgunblaðið - 16.11.2019, Blaðsíða 45
ÍÞRÓTTIR 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2019
Dominos-deild karla
ÍR – Fjölnir ........................................... 92:80
Njarðvík – Þór Ak .............................. 113:52
Keflavík – KR ....................................... 66:67
Staðan:
Keflavík 7 6 1 627:570 12
Tindastóll 7 5 2 615:576 10
KR 7 5 2 597:552 10
Stjarnan 7 5 2 623:588 10
Haukar 7 4 3 643:614 8
Þór Þ. 7 4 3 576:580 8
ÍR 7 4 3 582:611 8
Njarðvík 7 3 4 576:504 6
Valur 7 3 4 580:603 6
Grindavik 7 2 5 591:618 4
Fjölnir 7 1 6 590:636 2
Þór Ak. 7 0 7 518:666 0
1. deild karla
Selfoss – Höttur.................................... 75:83
Snæfell – Álftanes ................................ 70:77
Staðan:
Hamar 7 7 0 682:588 14
Höttur 7 6 1 607:543 12
Breiðablik 6 5 1 582:483 10
Vestri 6 3 3 538:478 6
Álftanes 6 3 3 479:503 6
Sindri 5 1 4 417:457 2
Selfoss 6 1 5 445:498 2
Skallagrimur 6 1 5 469:560 2
Snæfell 7 1 6 512:621 2
Spánn
B-deild:
Alicante – Oviedo ................................ 90:54
Gunnar Ólafsson skoraði 3 stig og gaf
eina stoðsendingu fyrir Oviedo.
NBA-deildin
Cleveland – Miami.............................. 97:108
New York – Dallas ........................... 106:103
Milwaukee – Chicago ....................... 124:115
New Orleans – LA Clippers ............ 132:127
Phoenix – Atlanta ............................. 128:112
Denver – Brooklyn ............................. 101:93
KÖRFUBOLTI
Í KEFLAVÍK
Skúli B. Sigurðsson
skulibsig@mbl.is
Keflavík og KR mættust í toppslag
úrvalsdeildar karla í körfuknattleik,
Dominos-deildinni, í Blue-höllinni í
Keflavík í gær. Eftirvæntingin var
mikil enda meistarar síðustu sex ára
að mæta ósigruðu liði Keflavíkur á
þessu tímabili. Eitthvað varð undan
að láta og að lokum voru það meist-
arar KR sem sigruðu leikinn með 67
stigum gegn 66 eftir einn bráð-
skemmtilegasta leik vetrarins þrátt
fyrir lágt stigaskor.
Frá fyrstu mínútu var það ljóst að
um toppslag væri að ræða. Mikil gæði
og skemmtun í leik beggja liða og
skiptust liðin á að eiga sín áhlaup í
leiknum nánast allt til loka leiks. Þó
að vissulega hafi verið eftirvænting
eftir leiknum sjálfum var ekki síður
spenna að sjá einvígi Michael Craion
og Dominykas Milka, miðherja
beggja liða. Craion hefur svo gott
sem eignað sér teiginn í leikjum sín-
um hér á landi síðustu ár en Litháinn
Milka er að koma virkilega sterkur til
leiks. Framan af virtist Milka ætla að
hafa vinninginn enn hann var kominn
í 20 stig og 10 fráköst strax í fyrri
hálfleik. Eitthvað virtist þó draga af
honum í seinni og það var að lokum
Craion sem hélt heim með sigurinn
mikilvæga. Já, mikilvægur var hann
þrátt fyrir að aðeins sé enn nóvember
og nóg eftir af mótinu. Milka lét svo
skapið fara með sig eftir leik, lét dóm-
ara leiksins fá það óþvegið og upp-
skar brottrekstur í kjölfarið. Líkast
til er hann á leið í leikbann. Heilt á lit-
ið er óhætt að segja að þetta séu tvö
sterkustu lið landsins í dag. Keflvík-
ingar hafa ekki litið betur út í mörg
ár og eru til alls líklegir þetta tímabil-
ið. KR-liðið er að eldast en árin virð-
ast seint ætla að hægja á þeim á leið
sinni að sjöunda titlinum í röð.
Niðurlæging í Njarðvík
Njarðvík vann sinn annan leik í röð
í deildinni þegar liðið fékk nýliða Þórs
frá Akureyri í heimsókn í Ljónagryfj-
una í Njarðvík. Leiknum lauk með
stórsigri Njarðvíkur, 113:52, en
Njarðvík leiddi með sjö stigum eftir
fyrsta leikhluta, 25:18. Njarðvíkingar
keyrðu yfir Þórsarar í öðrum og
þriðja leikhluta og var staðan fyrir
fjórða leikhluta 91:50.
Þórsarar skoruðu einungis tvö stig
í öðrum leikhluta, gegn 22 stigum
Njarðvíkur en Kristinn Pálsson var
stigahæstur Njarðvíkinga með 24
stig og sex fráköst. Þá átti Wayne
Martin jr. mjög góðan leik og var
hann með tvöfalda tvennu, 22 stig og
11 fráköst. Hjá Þórsurum var Jamal
Palmer stigahæstur með 13 stig.
Njarðvík fer með sigrinum í áttunda
sæti deildarinnar en Þórsarar eru
sem fyrr án stiga á botni deild-
arinnar.
Þá vann ÍR tólf stiga sigur gegn
Fjölni í Seljaskóla í Breiðholti, 92:80.
ÍR-ingar höfðu frumkvæðið allan tím-
ann og leiddu með tíu stigum í hálf-
leik, 45:35. ÍR-ingar gáfu ekkert eftir
í síðari hálfleik og innbyrtu sann-
gjarnan sigur í leikslok.
Evan Singletary var stigahæstur
ÍR-inga með 23 stig og Georgi Boya-
nov skoraði 20 stig og tók tólf fráköst.
Srdan Stojanovic átti stórleik í liði
Fjölnis og skoraði 30 stig en það
dugði ekki til. ÍR er í sjöunda sæti
deildarinnar með 8 stig en Fjölnir í
ellefta sætinu með 2 stig.
Meistara-
seigla KR-inga
í Keflavík
Njarðvíkingar klifra upp töfluna
Sigur í fyrsta leik Danero Thomas
Ljósmynd/Skúli Sig.
Á flugi Dominykas Milka, Keflavík, og Kristófer Acox KR, takast á.
Morgunblaðið/Hari
Nýr Danero Thomas er mættur aftur í Breiðholtið eftir rúmlega árs fjar-
veru. Hann átti fínan leik fyrir ÍR-inga og skoraði 9 stig og tók sex fráköst.
Blue-höllin, Dominos-deild karla,
föstudag 15. nóvember 2019.
Gangur leiksins: 5:3, 14:15, 16:23,
28:24, 30:24, 32:28, 37:30, 43:36,
43:38, 45:46, 47:48, 49:51, 55:55,
58:57, 66:63, 66:67.
Keflavík: Dominykas Milka 26/14
fráköst, Khalil Ullah Ahmad 16/7 frá-
köst, Deane Williams 10/11 frá-
köst/3 varin skot, Hörður Axel Vil-
hjálmsson 7/7 stoðsendingar,
Reggie Dupree 3, Magnús Már
Traustason 2, Andrés Ísak Hlynsson
2.
KEFLAVÍK – KR 66:67
Fráköst: 27 í vörn, 14 í sókn.
KR: Michael Craion 16/10 fráköst/5
stolnir, Brynjar Þór Björnsson 13,
Matthías Orri Sigurðarson 12/7 frá-
köst, Kristófer Acox 10/7 fráköst,
Jón Arnór Stefánsson 9, Jakob Örn
Sigurðarson 5, Helgi Már Magnússon
2.
Fráköst: 25 í vörn, 8 í sókn.
Dómarar: Leifur S. Garðarsson, Dav-
íð Kristján Hreiðarsson, Eggert Þór
Aðalsteinsson.
Áhorfendur: 440.
Handknatt-
leikskonan
Hrafnhildur
Hanna Þrast-
ardóttir skoraði
fimm mörk fyrir
Bourg-de-Péage
þegar liðið sló
Nimes úr leik í
32-liða úrslitum
frönsku bikar-
keppninnar.
Leiknum lauk með 29:26-sigri Bo-
urg-de-Péage en Hrafnhildur
Hanna var markahæsti leikmaður
Bourg-de-Péage. bjarnih@mbl.is
Markahæst
í bikarsigri
Hrafnhildur Hanna
Þrastardóttir