Morgunblaðið - 16.11.2019, Side 46
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2019
Kristinn Guðbrandur Harðarson var heiðurslistamaður
Sequences-listahátíðarinnar og á morgun, sunnudag, kl.
17 mun hann segja frá sýningu sinni í Ásmundarsal.
Ræðir hann vinnslu verkanna og þann hugmyndaheim
sem verkin eru sprottin úr. Kristinn mun m.a. fjalla um
notkun sína á texta, í sýningunni og í fyrri verkum og
tæpa á þeirri hefð sem sú textagerð er sprottin úr.
Kristinn (f. 1955) hefur starfað ötullega í íslensku
myndlistarlífi um áratuga skeið og í verkum hans birtist
persónuleg og ljóðræn úrvinnsla á hans umhverfi.
Kristinn G. segir frá verkum sínum
Kristinn G.
Harðarson
Fyrir árvekni safnvarða tókst síðdeg-
is á miðvikudag að koma í veg fyrir að
þjófar kæmust á brott með tvo lista-
verk eftir hollenska meistarann Rem-
brandt van Rijn (1606-1669) af sýn-
ingu í listasafni í London.
Reynt var að stela verkunum af
sýningunni Rembrandt’s Light sem
stendur nú yfir í Dulwich Picture
Gallery í Suður-London, en það er
elsta listasafn borgarinnar. Á sýning-
unni eru 35 verk frá tveimur áratug-
um í lífi málarans, málverk, teikn-
ingar og grafíkverk. Auk verka úr
eigu safnsins eru á henni víðfræg
listaverk fengin að láni frá kunnum
söfnum, þar á meðal „Pílagrímar í
Emmaus,“ 1648, frá Louvre í París,
„Philemon og Baucis,“ 1658, frá Nat-
ional Gallery of Art í Washington og
„Draumur Jósefs,“ 1645, frá Ge-
mäldegalerie í Berlín.
Samkvæmt upplýsingum frá
stjórnendum safnsins sást í eftirlits-
kerfi þess til þjófanna þar sem þeir
voru að athafna sig og taka verkin
niður. Þakka stjórnendurnir afar
skjótum viðbrögðum safnvarða og
jafnframt lögreglumanna sem
brunuðu á staðinn að það tókst að
koma í veg fyrir að þjófarnir slyppu
með verkin.
Samkvæmt upplýsingum fjölmiðla
náðu þjófarnir að komast á brott eftir
að hafa úðað ertandi vökva í andlit
varða sem höfðu á þeim hendur. Við
það náðu verðirnir hins vegar að kló-
festa eitt verk sem þjófarnir voru
með og síðan fannst annað verk í
safninu sem þeir höfðu tekið niður.
Lögreglan leitar þjófanna.
Forstöðumenn listasafnsins hafa
ekki gefið upp hvaða verk þjófarnir
reyndu að nema á brott, en segja rán-
ið hafa verið vel undirbúið. Safnið
hefur verið lokað frá ránstilrauninni.
Samkvæmt The Art Newspaper er
þetta ekki í fyrsta skipti sem þjófar
ásælast verk eftir Rembrandt í hinu
sögufræga Dulwich Picture Gallery.
Portretti hans af ætingameistaranum
Jacob de Gheyn III, sem málað var
1632, hefur nefnilega verið stolið alls
fjórum sinum úr safninu og er af þeim
sökum í Heimsmetabók Guinness
sem það málverk sem oftast hefur
verið stolið. Það verk mun þó ekki
vera á sýningunni Rembrandt’s
Light.
Ásældust Rembrandtverk
Þjófar sluppu
eftir ránstilraun
í safni í London
Verðmæti Málverkið Pílagrímar í Emmaus er í eigu Louvre-safnsins og er
meðal verkanna á sýningunni. Ekki hefur verið sagt hvaða verk þeir tóku.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
„Jú, þakka þér fyrir, ég hef það
bara gott og það er ágætis veður
hér úti í Bretlandi þótt vissulega sé
farið að kólna, ég fann það á eigin
skinni þegar ég fór út að hlaupa í
morgun. Mér finnst nauðsynlegt að
fara út á hverjum degi og hreyfa
mig, hvort sem ég er hér heima í
London eða að túra með hljóm-
sveitinni,“ sagði Jack Lawrence-
Brown, trommari bresku hljóm-
sveitarinnar White Lies, þegar
blaðamaður sló á þráðinn og spurði
hvernig hann hefði það og hvort
veturinn væri kominn hjá honum.
Hljómsveitin White Lies er á leið
til Íslands til að halda tónleika í
Hörpu í desember, en tilefnið er að
fagna því að tíu ár eru liðin frá því
sveitin sendi frá sér sína fyrstu
plötu, To lose my life. Ætla þeir fé-
lagar að flytja plötuna í heild sinni
á tónleikunum, en hún sló rækilega
í gegn á sínum tíma og leiðin hefur
legið upp á við hjá þeim piltum all-
ar götur síðan og nýlega sendu þeir
frá sér sína fimmtu plötu, Five.
Við elskum allir Ísland
„Við erum allir mjög spenntir að
koma aftur til Íslands til að spila
fyrir ykkur og tókum því fagnandi
þegar félagi okkar Guðbjartur
Finnbjörnsson viðburðastjóri hafði
samband og spurði hvort við hefð-
um áhuga á að vera með tónleika á
Íslandi. Okkur fannst þetta svo
gott tækifæri að við gátum ekki lát-
ið það fram hjá okkur fara. Okkur
finnst stórkostlegt að fá að halda
lokatónleikana okkar í Evrópu-
túrnum á Íslandi, því við spiluðum
á Iceland Airwaves fyrir ellefu ár-
um og það var æðislegt. Ég get lof-
að að þetta verða miklu betri tón-
leikar núna,“ segir Jack og bætir
við að þeir félagarnir í White Lies
elski Ísland.
„Við erum allir miklir aðdáendur
landsins og við Charles höfum báð-
ir komið í frí til Íslands frá því við
vorum þar fyrir ellefu árum. Því
miður getum við ekki ferðast um
landið í þetta sinn, því við þurfum
að mæta í brúðkaup hjá vini okkar í
Bretlandi tveimur dögum eftir Ís-
landstónleikana, en vonandi höfum
við tíma til að skreppa í bæinn og
kíkja á lífið eitt kvöld.“
Jack minnir á að íslenska hljóm-
sveitin Kontinuum muni hita upp
fyrir þá á tónleikunum í Hörpu.
„Okkur finnst það frábært og
virkilega gaman að geta gefið ís-
lensku bandi tækifæri í stað þess
að taka breskt upphitunarband
með okkur til Íslands.“
Jack segir að tónninn í tónlistinni
hjá White Lies hafi þróast svolítið
frá einni plötu til annarrar, en það
sé svo margt við lögin þeirra sem
geri það að verkum að í þeim verði
alltaf þessi ákveðni White Lies-
tónn.
„Meðal annars vegna þess að
rödd söngvarans, Harrys, er mjög
sérstök og það mun ekki breytast
að hún einkenni lögin okkar, en
annað er breytilegt, eins og til
dæmis hvort við leggjum meiri
áherslu á gítarhljóm, notum hljóð-
gervil eða eitthvað annað í lög-
unum. Það sem er nýtt við fimmtu
og nýjustu plötuna okkar, Five, er
að við vorum ekki með einhverja
heildarhugmynd fyrirfram um
hvernig hún ætti að vera. Hvert lag
er sjálfstætt og ekki hugsað sem
hluti af heild.“
Eru bundnir sterkum böndum
Þegar Jack er spurður hvort það
reyni ekki á vináttu þeirra félaga í
hljómsveitinni að vinna svo náið
saman sem raun ber vitni og vera
saman á krefjandi tónleika-
ferðalögum segir hann svo ekki
vera.
„Við erum kannski einstaka sinn-
um ekki alveg sammála og þá helst
þegar við erum að taka upp í stúd-
íói, en það kastast afar sjaldan í
kekki illi okkar á tónleika-
ferðalögum. Við erum orðnir harla
góðir í þessu samspili, höfum slíp-
ast mjög vel saman með árunum.
Auk þess kom vinátta okkar til áð-
ur en hljómsveitin varð til. Ég held
það hafi einmitt verið kostur þegar
við fórum að semja og spila saman
tónlist, við vorum þá þegar búnir
að hanga saman í gegnum mótandi
unglingsárin okkar. Við ólumst
nánast upp saman, vorum nágrann-
ar, það er góður grunnur að sam-
starfi. Við erum allir frá sama
svæðinu og erum bundnir sterkum
böndum, svo það að vera saman í
hljómsveit er í raun ágætis fram-
lenging á vináttu okkar. Auðvitað
náum við stundum þeim punkti
þegar við erum þreyttir að verða
pirraðir hver á öðrum, en það varir
aldrei lengi og ristir ekki djúpt. Við
höfum aldrei lent í alvarlegum
langvarandi ágreiningi eins og ger-
ist stundum hjá hljómsveitum þar
sem meðlimir verja svo miklum
tíma saman sem raun ber vitni.
Mér finnst afar ólíklegt að nokkuð
slíkt gerist hjá okkur, af því hjá
okkur er vináttan í fyrsta sæti en
hljómsveitin í öðru sæti. Við erum
nógu góðir vinir til að verja saman
meiri hluta þess tíma sem við erum
ekki að vinna í hljómsveitinni eða á
tónleikaferðalögum.“
Gerum eitthvað öðruvísi
Fram undan hjá þeim félögum er
að taka sér frí að lokinni þessari
tónleikaferð sem endar á Íslandi.
„Jólin eru jú fram undan og ára-
mótin, svo við ætlum að gefa okkur
góðan tíma til að slaka á. Við erum
búnir að bóka okkur eitthvað á nýja
árinu en seinni hluta ársins förum
við að sinna nýrri tónlistarsköpun
og gera eitthvað öðruvísi, hvort
sem það verður ný plata eða eitt-
hvað annað. Það hefur verið meira
en nóg að gera á þessu ári, æfingar,
undirbúningur og tónleikaferðalög,
svo mér finnst líklegt að við tökum
það rólega næstu misseri.“
Tónleikarnir verða í Eldborgar-
sal Hörpu 9. desember. Miðasala á
heimasíðunni harpa.is.
White Lies Harry söngvari og gítarleikari, Jack trommari og Charles bassaleikari og bakraddasöngvari.
Vináttan er alltaf í fyrsta sæti
Þeir höfðu farið saman í gegnum mótandi unglingsárin þegar þeir stofnuðu hljómsveit og segja
vináttuna grunn að góðu samstarfi Breska bandið White Lies heldur tónleika á Íslandi í desember